Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1985, Blaðsíða 32
32
DV. FIMMTUDAGUR15. AGÚST1985.
>
Andlát
Þórarinn Þórarinsson, fyrrum skóla-
stjóri á Eiðum, sem lést 2. ágúst sl.
veröur jarðsunginn í dag 15. ágúst frá
Háteigskirkju. Þórarinn var fæddur á
Valþjófsstað 5. júní 1904. Kona hans,
Sigrún Sigurþón dóttir, lifir mann
sinn, en saman áttu þau tvö börn, sem
bæði eru á lífi. Þórarinn nam til
guðfræðings erlendis en gerðist
snemma kennari að Alþýðuskólanum
aö Eiðum þar sem hann síðar varð
skólastjóri. Þórarinn starfaöi mikið aö
félagsmálum í tengslum við menntun
sína, uppruna og störf, og yrði of langt
mál að gera því skil hér.
Steinunn Jóhannesdóttir, fyrrverandi
hjúkrunarkona, frá Skáleyjum, verður
jarðsungin í dag, fimmtudag, kl. 15.
Steinunn fæddist í Skáleyjum á Breiða-
firði 30. nóvember 1898. Foreldrar
hennar voru þau Jóhannes Jónsson
bóndi og María Gísladóttir húsfreyja
og áttu þau bú í Skáleyjum. Tíu
systkini eignaðist Steinunn og komust
átta þeirra til fullorðinsára. 1933 giftist
hún Valtý H. Valtýssyni en missti hann
eftir nærri sextán ára sambúð. Þeim
varð tveggja barna auðið sem heita
Reginn og Kolbrún Rögn. Steinunn
starfaöi meðan kraftar entust sem
hjúkrunarkona og lengi sem yfir-
hjúkrunarkona við eina deild Klepps-
spítala.
Guðrún Halldórsdóttir, Tómasarhaga
53 Reykjavík, lést í Landakotsspítala
aðfaranótt 14. ágúst.
Helgi Guðmundsson frá Patreksfirði,
Ljósheimum 8 Reykjavík, lést í Land-
spítalanum þriðjudaginn 13. ágúst síð-
astliðinn.
Sigríður Sigurðardóttir, Kárastíg 14
Reykjavík, verður jarðsungin frá
Hallgrímskirkju föstudaginn 16. ágúst
kl. 10.30.
x Albert Friðrik Sigurðsson, Móaflöt 39
Garðabæ, verður jarðsunginn frá
Bústaöakirkju föstudaginn 16. ágúst
kl. 13.30.
Pétur Gíslason, Kleppsvegi 6, verður
jarðsunginn frá Laugarneskirkju
föstudaginn 16. ágúst kl. 15.
Margrét Oddný Hjörleifsdóttir frá
^ Hrísdal verður jarðsungin frá Fá-
skrúðarbakkakirkju laugardaginn 17.
ágúst kl. 14.
Tilkynningar
Heiðursmerki Letterstedtska
félagsins afhent
Letterstedtska félagið veitir á ári hverju sér-
stakt heiðursmerki þeim manni er þykir
leggja hvaö veigamestan skerf til norrænnar
samvinnu. I ár þótti við hæfi að veita Sigurði
Bjarnasyni sendiherra merki þetta fyrir störf
hans að stofnun Norðurlandaráðs. Heiðurs-
merkið afhenti, eins og venja er til, þingfor-
seti einhvers hinna norrænu landa, í þetta sinn
Þorvaldur Garðar Kristjánsson, forseti
sameinaðs alþingis. Viðstaddir voru for-
maöur félagsins, Gustaf Petrén frá Stokk-
hólmi, norrænir sendiherrar hér á landi auk
stjórnar Letterstedtska félagsins og fleiri
gesta.
Sendiherra íslands í Rúmen-
íu
Hinn 7. ágúst sl. afhenti Páll Asgeir Tryggva-
son sendiherra Nikolai Ceausescu, forseta
Rúmeniu, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra
Islands í Rúmeníu með aðsetur í Moskvu.
Jarðfræðiferð
um Reykjanesskaga
Sunnudaginn 18. ágúst efna Ferðamálasam-
tök Suðurnesja til jarðfræðiferðar um
Reykjanesskaga. Landmótunarsaga Reykja-
nesskagans verður kynnt og ýmis jarðfræði-
leg fyrirbæri skoðuð. I ferðinni verður komiö
víða við og efalaust kemur ýmislegt þátt-
takendum á óvart af því sem fyrir augu ber.
Leiðsögn verður í höndum jarðfræðinga
sem báðir eru nákunnugir jarðfræði Reykja-
nesskaga.
Brottför verður frá Umferðarmíðstöðinni
(BSÍ)kl. 10.
Áætlað er að ferðin taki um 6—7 klst. Verð
kr. 500 fyrir fullorðna, 250 fyrir 12—15 ára.
Okeypis fyrir börn yngri en 12 ára í fylgd með
fullorðnum. Upplýsingar má fá í sima 92-4099.
Ljósböð fyrir psoriasissjúkl-
inga
UVB ljósaklefi var settur upp í húðdeild
Heilsuverndarstöðvarinnar í Reykjavík fyrir
allnokkru. Hefur hann reynst mjög vel en
talið er að UVB-geislar geti hjálpað í 70—80%
tilfella hjá psoriasissjúklingum en nauðsyn-
legt er að fara daglega eða annan hvern dag í
2—3 vikur samfleytt til að ná góöum árangri.
Hingaö til hefur aöeins verið unnt að sækja
ljósböð á vinnutíma en eftir sumarleyfi
verður húðdeildin opin fram á kvöld, mánu-
daga til föstudaga. Hægt er að panta tima í
síma 22400 milli kl. 15 og 16 daglega.
Málaskólinn Mímir
Starfsemi Málaskólans Mimis, sem nú er í
eigu Stjórnunarfélagsins, er að lifna við eftir
sumarleyfi. Haustnámskeið skólans hefjast 2.
september og lýkur 18. október. Kennt er
tvisvar sinnum í viku, tvær klukkustundir í
senn og öll kennslugögn eru innifalin í nám-
skeiðsgjaldi. Kennsla fer fram í nýju húsnæði
að Ananaustum 15, Reykjavík. Mímir býður
upp á nám í f jölmörgum tungumálum og hægt
er að velja um morgun-, dag- eöa kvöldnám-
skeið. Ákveðinn hluti námskeiðanna fer fram
á Gauki á Stöng en barnanámskeiðin verða í
Gerðubergi og Þróttheimum. EUilífeyris-
þegar, svo og félagsmenn Stjórnunarfélags-
ins, fá 20% afslátt en skráning fer fram í síma
10004 þar sem ennfremur fást allar nánari
upplýsingar um starfsemi skólans sem hýsir
auk þess Ritaraskólann.
I gærkvöldi í gærkvöldi
Berlín og Ólafur Oddsson
Dagskrá sjónvarps var með hress-
asta móti í gærkvöldi. Ég horföi að
vísu aöeins á einn þátt auk frétta en
hann var afbragðsgóður. Músík
verður mynd var kynnt sem þáttur
um nýlist og þróun hennar í Berlin —
en reyndar er réttara að segja að.
myndin sé um tengsl rokks og mynd-
listar almennt.
Hljómsveitin Pretty Things kom
mér mest á óvart, ég þekkti nafn
hennar áður en hafði ekki grænan
grun um gæðin. Lou Reed, David
Bowie, Velvet Underground og John
Cage voru skemmtilegir og hug-
myndin að blanda Duran Duran
videóinu Ríó og pöbbrokki Phils
Mays var vel heppnuð.
Dagskrá útvarpsins var
hefðbundin. Þáttur Sigmars B.
Haukssonar, Svört sveifla, var likur
öðrum þáttum sama manns: góð
hugmynd sem rann út í sandinn.
Málræktarþáttur Olafs Oddssonar
var þar á undan. Eg tek heils hugar
undir orð Olafs: auglýsingar á er-
lendum tungumálum eru móðgun við
neytendur.
Margur virðist halda að Islending-
ar séu eina þjóöin í heiminum sem
reynir að hamla á móti engil-
saxneskum áhrifum á tungu sína.
Það er alrangt. Þjóðverjar og
Frakkar, svo dæmi séu tekin, eru
mun duglegri en við. I Frakklandi
eru lög sem banna erlend heiti fyrir-
tækja og vara af innlendum uppruna.
Þar væri Olafur Laufdal látinn
greiða himinháa sekt fyrir að kalla
fyrirtæki sín Hollywood og Broad-
way. Væri ekki ráð aö setja slík lög
hérlendis og framfylgja þeim?
Árni Snævarr.
Fyrirlestrar
Sögustaðir á
íslandi
Fimmtudaginn 15. ágúst kl. 20.30 heldur Árni
Böðvarsson málfræðingur fyrirlestur um
sögustaði á Islandi. Fyrirlesturinn, sem fer
fram á norsku, er þáttur í „opnu húsi” svo-
nefndu, en slíkt kallast sumardagskrá Norr-
æna hússins fyrir norræna ferðamenn. Auk
fyrirlestrarins verður kvikmyndin „Sveitin
milli sanda” sýnd með norsku taii. Allir eru
velkomnir og aðgangur er ókeypis.
Sýningar
Sýning í Ganginum
Italski myndlistarmaðurinn Carlo Mauro
sýnir um þessar mundir 3 myndraðir og
bækur í Ganginum að Rekagranda 8, Reykja-
vik. Þegar þeirri sýningu lýkur verður
Magnús Pálsson með sýningu á sama stað.
Sýning á Sóley
Fimmtudaginn 15. ágúst nk. hefst í Gallerí
Langbrók við Amtamannsstíg í Reykjavík
sýning á fellistólnum Sóley sem Valdimar
Harðarson arkitekt hannaöi. Sýndar verða
ýmsar útgáfur af stólnum, ljósmyndir af
frumgerðum hans, úrklippur úr erlendum
blöðum með úmsögnum um stólinn og þau
verðlaunaskjöl sem hlotnast hafa hönnuð-
inum. Sýningin stendur í hálfan mánuð og er
opin öllum frá kl. 10-18 daglega og 14—18 um
helgar. Aðgangur er ókeypis.
Fundað um ferðamál
Fulltrúar Ferðamálaráðs, Amarflugs og
Flugleiða hittust nýverið til að ræða stöðu og
framtíö islenskra ferðamála og möguleika á
auknu samstarfi í landkynningar- og
markaðsmálum. Var mynd þessi tekin við
það tækifæri og sjást þar, talið frá vinstri:
Böðvar Valgeirsson, Pétur Eiríksson, Sigfús
Erlingsson, Vilhjálmur Guðmundsson,
Sigurður Skagfjörð, Kjartan Lárusson, Davíð
Vilhelmsson, Hans Indriðason, Omar
Benediktsson, Birgir Þorgilsson, Steinn
Lárusson, Magnús Oddsson og Jóhann
Sigurðsson.
Tapað -fundiö
Pollý er týnd
11 ára smávaxin poodle terriertík, gulbrún að
lit varð viðskila viö eiganda sinn þann 28. júni
sl. Pollý, sem er með rautt R-merki um háls-
inn, sást síöast á mánudag, einhvers staðar á
milli hvalstöðvarinnar og Ferstiklu. Ef ein-
hver veit um ferðir hennar síðan þá er hann
vinsamlegast beðinn að hafa samband í
símum 36038 og 84551. Fundarlaun.
Sjötug er í dag, 15. ágúst, frú Sigríður
Anna Sigurjónsdóttir, Engjavegi 45
Selfossi, fyrrverandi húsfreyja að
Stóru-Hildisey í Austur-Landeyjum.
Eiginmaður hennar er Axel Jónsson.
Verður Sigríöur að heiman í dag.
Áttræður er i dag, 15. ágúst, Jóhann
Brynjólfsson frá Ytri-Ey í Austur-
Húnavatnssýslu. Kona hans er Ester
Jónsdóttir og eru þau hjón nú vistmenn
á elliheimilinu Skjaldarvík við Akur-
eyri. Jóhann verður að heiman í dag.
Eldurírútu
Eldur kviknaöi í rútu sem stödd var
á móts við Sandskeið í gærkvöldi. Kom
eldurinn upp í vél. Var rútunni lagt við
Litlu kaffistofuna. Hafði tekist aö
slökkva eldinn að mestu þegar slökkvi-
liðið kom á vettvang.
Rútan skemmdist nokkuð. Engan í
bílnum sakaöi. -EH.
Engin lausn
— segja foreldrasamtök
„Ummæli borgarstjóra boða enga
lausn á þeim vanda sem nú blasir við
heldur miða þvert á móti að því aö dag-
heimili verði lögð niður sem uppeldis-
stofnanir.”
Svo segir meðal annars í bréfi sem
Foreldrasamtök barna á dagheimilum
hafa sent öllum borgarstjórnarfuiltrú-
um vegna ummæla Davíðs Oddssonar
borgarstjóra að dagheimili borgarinn-
ar skuli mönnuð ófaglærðu starfsfólki.
Þá segir ennfremur að „í yfirlýsingu
borgarstjóra felst ekki einungis lítils-
virðing heldur einnig ótrúleg vanþekk-
ing á hlutverki dagvistarstofnana. Það
er skilyrðislaus krafa foreldrasamtak-
anna á hendur borgaryfirvöldum að
þau sirffii því hiutverki sem þau eru
kjörin til og framfylgi lögum og regl-
um um starfsemi dagvistarheimila.”
-KÞ
Fundað um hvalveiðar:
Fundur í dagog á morgun
I dag og á morgun verða haldnir
fundir sem eiga það sameiginiegt aö
fjalla um hvalveiðar Islendinga.
I kvöld standa Landvernd og Sam-
band íslenskra náttúruverndarfélaga
fyrir fundi í Lögbergi og hefst hann kl.
20.30. Á fundinn mæta þrír náttúru-
verndarmenn sem munu skýra frá við-
horfum sínum til fyrirhugaðra hval-
veiða Islendinga í vísindaskyni. Tom
Garret, Bandaríkjamaöur, kemur frá
náttúruverndarsamtökunum Monitor
en þau hafa barist mjög gegn hvalveið-
um. Hann mun skýra frá störfum vís-
indanefndar Hvalveiðiráðsins.
Þá mun Roger Payne fjalla um vís-
indarannsóknir á hvölum og Arne
Schiötz frá Danmörku mun einnig
fjalla um hvalveiðar í vísindaskyni.
Fundur þessi er öllum opinn og allt
tal fer fram á ensku.
Hafrannsóknastofun
með fund
Á morgun verður annar fundur sem
haldinn er á vegum Hafrannsókna-
stofnunar. Þar verða flutt átta erindi
um hvalarannsóknir Islendinga. Er-
indi verða öll flutt á íslensku.
„Tilgangurinn með þessum fundi er
að kynna fyrir Islendingum hvað sé að
gerast á sviði hvalarannsókna hér á
landi og hvað sé fyrirhugað að gera.
Það er búið að vera svo mikið um að
þaö sé verið að fara út í þessar rann-
sóknir undir einhverju yfirskini. Af
okkar hálfu er enginn leikaraskapur
hvað snertir þessar rannsóknir,” segir
Jakob Jakobsson, forstjóri Hafrann-
sóknastofnunar.
Fundurinn er öllum opinn og verður
á föstudag kl. 13.30 að Borgartúni 6.
APH