Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1986, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1986, Blaðsíða 4
4 DV. MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ 1986. Stjórnmál Stjórnmál Skoðanakönnun DV: Stjórnmál Stjórnmál Hvaðan kemur fylgi ríkisstjórnannnar? Fylgi ríkisstjómarinnar og fylgi stjómarflokkanna fer ekki alveg sam- an samkvæmt skoðanakönnun DV. Sama fólkið var spurt, hvort það væri fylgjandi eða andvígt ríkisstjóminni og hvaða lista það mundi kjósa í þing- kosningum. Þannig má við samanburð fara nærri um, hvemig stuðningsmenn hinna einstöku lista skiptast í afstöðu til ríkisstjómarinnar. Niðurstöður eru, að yfirgnæfandi meirihluti stuðningsfólks Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks styður einnig ríkisstjóm þessara flokka. Af sjálf- stæðismönnum styðja um 89 prósent stjómina og um 87 prósent af fram-- sóknarmönnum. En fólk frá stjómar- andstöðuflokkunum á það líka til að styðja þessa ríkisstjóm um þessar mundir. Þannig reynast 40 prósent þeirra, sem segjast kjósa Bandalag jafnaðarmanna, styðja stjómina, auk um 16 prósenta alþýðuflokksmanna, 15 prósent stuðningsfólks Kvennalista og jafnvel 8 prósent alþýðubandalags- manna. Athuga ber, að í könnuninni er þama ekki um marga að ræða. Og hvað um andstöðuna við ríkis- stjómina? Alþýðubandalagsmenn em nokkuð einarðir í andstöðu. 86 prósent þeirra segjast andvígir ríkisstjóminni. Um 73 prósent alþýðuflokksmanna em andvígir stjóminni, 50 prósent stuðningsmanna Bandalags jafnaðar- manna og 63 prósent stuðnigsmanna Kvennalista. Lítilsháttar andstaða er meðal sjálfstæðismanna. Þá ber nokkuð á þvi, að framsóknar- menn segist óákveðnir í afstöðu til stjómarinnar. Sama gidir um stuðningsmenn Kvennalista. - Sjá nánar í meðfylgj- andi töflum. Af þeim hópi, sem segist óákveðinn um afetöðu í þingkosningum, styðja um 28 prósent stjómina, um 17 prósent em henni andvígir og rúmur helming- ur af þessum hópi er einnig óákveðinn í afetöðu til stjómarinnar eða svarar ekki þeirri spumingu. -HH Fylgi rikisstjórnarinnar kemur úr eftirfarandi áttum miðað við, hvað menn ætla að kjósa í þingkosningum (sjá með- fylgjandi ,,köku“) Frá Alþýðuflokki 2,6% Frá Framsókn 22% Frá Bandalagi jafnaðarm .1,5% Frá Sjálfstæðisflokki 42,5% Frá Alþýðubandalagi 1,5% Frá Kvennalista 1,5% Frá óákveðnum 28,4% Ríkisstjórnarkakan. - Þessi kaka sýnir, hvernig fylgi rikisstjómarinnar er Núverandi ríkisstjórn ásamt forseta fslands. hlutfallslega samsett, miðað við afstöðu fólks i þingkosningum. Stuðningsmenn hinna ýmsu lista í þingkosningum skipt- ust sem hér segir í afstöðu til ríkísstjórnarinnar samkvæmt skoðanakönnuninni: Stuðningsmenn Alþýðuflokks- ins: Fylgjandi stjórninni 15,9% Andvígir 72,7% Óákveðnir 9,1% Svara ekki 2,3% Stuðningsmenn Framsóknar- flokksins: Fylgjandi stjórninni 86,8% Óákveðnir 13,2% Stuðningsmenn Bandalags jafnaðarmanna: Fylgjandi stjórninni 40% Andvígir 50% Óákveðnir 10% Stuðningsmenn Sjálfstæðis- flokksins: Fylgjandi stjórninni 89,1% Andvígir 3,1% Óákveðnir 7% Svara ekki 0,8% Stuðningsmenn Alþýðu- bandalagsins: Fylgjandi stjórninni 8% Andvígir 86% Óákveðnir 4% Svara ekki 2% Stuðningsmenn Kvennalist- ans: Fylgjandi stjórninni 14,8% Andvígir 63% Óákveðnir 22,2% Óákveðnir um afstöðu í þing- kosningum eða svöruðu ekki spurningu um þingkosningar skiptast þannig: Fylgjandi stjórninni 27,8% Andvígir 17,2% Óákveðnir eða svara ekki 54,9% I dag mælir Dagfari I dag mælir Dagfari í dag mælir Dagfari Fáum Svíar telja að átta þúsund manns í nágrannalöndunum muni sýkjast af bænvænu krabbameini vegna geisl- unar frá Sovét. Varla bregður herrunum í Kreml stórt við þær fréttir. Mannslífið hefur ekki verið haft í svo miklum metum austur þar. En hvað verður nú um kröfuna um kjamorkuvopnalaus Norður- lönd? Eflaust verður hún borin fram af enn meiri krafti en áður, enda sjá allir heilvita Svíar, að ef engin kjamavopn em á Norðurlöndum þá er engin hætta á styijöld eða geislun - eða hvað? Óbeint kjamorkustríð er nú komið á það stig að það verður að líta á málið alveg frá nýrri hlið. Nú hlýtur það að komast í tísku að láta leka. Þegar vindar snúa til aust- urs gætu Svíar til dæmis hótað Gorbatsjov þvi að nú komi upp leki hjá þeim ef hann vilji ekki gera hitt eða þetta. Og Gorbi fer allur í kerfi og biður um að ekki verði látið leka því hann muni nú leita allra ráða til að finna Wallenberg - lífs eða liðinn. Allavega er mglið i alheimsmálun- um orðið slíkt að þetta gæti þess vegna orðið næsta mál á dagskrá. En ef við virðum fyrir okkur ástandið í stærra samhengi þá kem- ur í ljós að með kjamorkulekanum annars vegar krabbi og hins vegar ofbeldi. Fyrir daga geislimarinnar hans Gorba vom ferðamálafrömuðir á Norðurlöndum vongóðir um að Kanar myndu telja sér óhætt að sækja í norður í sumar. Gaddafi mundi aðeins drepa í Suður-Evrópu og Bretlandi. En Gorbi sá við þeim leka og lét leka. Og nú þorir enginn meðalgreindur Kani - en af þeim er töluvert til þótt ótrúlegt sé - að fara til Norðurlanda eða Þýskalands því þar muni allt morandi i banvænum geislum sem valda krabba. Nú er því úr vöndu að ráða því Kaninn bar með sér morð fjár að vestan. En sem fyrr segir er bann skíthræddur við ofbeldi, enda ekki vanur því úr sínu heimalandi að þar séu menn beittir ofbeldi, nema því aðeins að þeir neiti að borga Maf- íunni það sem Mafíunni ber, en slíkt gerir enginn heiðarlegur maður. Þeir sem ekki standa skil á sinu til Guðfeðranna eiga auðvitað ekki von á góðu, en það er þeim sjálfum að kenna og þar er ekki um ofbeldi að ræða eins og hjá Gaddanum í Líbýu og hans glæpalýð. Að vísu hefur það komið fram í fréttum að Kaninn telji ísland ennþá sæmilega öruggt, en enginn skyldi treysta á landafræði- kunnáttu þeirra westanmanna. Því hafa Sovétarar komið stærra höggi á efhahag Norðurlanda en þá óraði fyrir í upphafi. Nú þorir Kaninn nefnilega alls ekki að túristast til Skandinavíu. Það er tvennt sem hinn venjulegi Kani óttast mest, fyr- ir utan kommúnistana. Það er kann svo að fara að við missum vænan spón úr aski okkar á ferða- mannatímanum i sumar og getum skrifað það á reikning þeirra félaga Gadda og Gorba. En þá verðum við auðvitað að fara fram á skaðabætur ekki síður en í Rainbowmálinu. Hætt er við að það verði þó ekki síður þungsótt en skipamálið og óvíst með öllu að Gor- bi taki það einu sinni í mál að ræða við okkur. Og varla fer hann að bjóða okkur rússneska ferðamenn í stað- inn. Engin hætta á því, enda yrði þar um slæm býtti að ræða, því hætt er við að skotsilfur austanmanna sé af skomum skammti, nema inn opin- bera embættismenn sé að ræða. Það eina sem gæti komið okkur á kortið sem öruggt og hreint land væri ef þeir Gorbi og Reagan fengjust til að halda með sér fund í Reykjavík. Þar með myndu þeir sýna fram á að hér væri ekkert að óttast, hvorki af völd- um Gaddafis né geislunar og við sýndum enn einu sinni og sönnuðum að maður er hvergi öruggari en ein- mitt á íslandi. Þessu er svona varpað fram til umhugsunar fyrir Steingrím og Matthias Á. Einarsbróður. Dagfari. Reagan og Gorba til íslands

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.