Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1986, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1986, Blaðsíða 16
16 DV. MIÐVIKUDAGUR 7. MAI 1986. Spurningin Hve lengi þurfa leigjendur að bíða? Konráð Friðfiimsson skrifar: Nú styttist óðfluga í næstu kosning- ar með tilheyrandi loforðum og yfir- lýsingum. Margt hefur eflaust verið gert gott á því kjörtímabili sem nú er senn á enda runnið. Þó hefði mátt gera betur nú sem oft áður. Einn er sá málaflokkur sem að mestu hefúr legið í salti eins og stundum er sagt. Það eru svonefnd leigjendamál. Þar situr allt við sama. Ekkert, ná- kvæmlega ekkert hefúr þar verið gert til úrbóta og ríkir þar því sama örygg- isleysið og verið hefur enda lítill skilningur í þjóðfélaginu á þörfúm þessa hóps sem þó er allfjölmennur. Verra er þó að enn hefur Búseti ekki fest sig í sessi og er því enn sem komið er aðeins fjarlægur draumur með sínar fjölmörgu íbúðir og trygga húsnæði. Hve lengi enn við leigjendur þrnfúm að bíða veit ég ekki. Það vita hins vegar alþingismennimir og þá um leið stjómarliðamir. Við munum það í næstu kosningum. Hjá þeim er fatt um svör þegar svo stórt er spurt. En leigjendur bíða spenntir eftir því að þeim háu herrum þóknist að taka málið í sínar hendur sem að mínu mati er löngu orðið tíma- hært að fái sanngjama umræðu og afgreiðslu. Á það hefur á hinn hóginn mikið vantað því enn er það stefhan að hver og einn eigi sinn húskofa sjálf- ur. Allt annað er talið rugl og fjar- stæða af mörgum. Stefnan er að láta fólk kaupa eða flakka um með bú sitt á bakinu ævina á enda. Þessari stefiiu þarf að breyta. Hjá Bifreiðum og Landbúnaðarvélum fengust þessar upplýsingar: einir aðstoð? Brynja Birgisdóttir nemi: Já, ég fæ núna að kjósa í fýrsta sinn. Ég er þó ekki búin að ákveða enn hvað ég kýs. Hrafnhildur Þórsteinsdóttir, vinnur hjá Lyfjaverslun rikisins: 0, ég veit það ekki. Og þó, kannski þetta fari að verða spennandi hvað úr hverju. Ert þú farin(n) að hlakka til kosninga? Oddný Árnadóttir, vinnur á skrif- stofu: Ég hef lítið hugsað um það. Ég er nýkomin frá útlöndum og hef ekki haft tíma til að setja mig inn í málin. Ég vil fá að vita hvers vegna ekki er hægt að skrá bifreiðamar eftir sölu- ári og hvers vegna umboðið vill ekki veita afslátt. Þegar bifreið er skráð ári eldri en hún er í raun og vem lækkar það endursöluverð hennar. Hörður Óskarsson, starfsmaður UMFI: Já, ég hugsa að þær verði nokkuð spennandi. Það á ýmislegt eftir að koma í Ijós þega nær líður. Hjá bifreiðaeftirlitinu fengust þessar upplýsingar: Skráningarár nýrra bifreiða er sett í skráningarskírteinin. Hins vegar er það verksmiðjan sem gefur upp fram- leiðsluárið og við höfum ekki rétt til að breyta því. Viðskiptaaðilar okkar erlendis hafa ekki viljað gefa okkur afslátt vegna þessa og benda á að breytingar á gengi dollara, sem við greiðum þeim með, hafi þegar lækkað verð bifreiðanna. Þessar bifreiðar em framleiddar eftir mitt síðasta ár. Aðrir íramleiðendur Hilmar er ósáttur við að fá ekki Löduna sem hann kaupir í ár skráða sem ár gerð 1986. skrá bifreiðar firamleiddar eftir það ur á móti við áramót. Þeir hafa ekki ekki heldur þótt vitað sé að annað sem næstu árgerð. Rússamir miða aft- viljað breyta þessu og bifreiöaeftirlitið gildi um aðrar tegundir. Helga skrifar: Er það virkilega rétt, sem altalað er, að þeir einir sem em svo óheppnir að vera alkóhólistar, dópistar eða eiga við geðræn vandamál að stríða eigi von um aðstoð Félagsmálastofnunar? Einstæð móðir, sem er að reyna að halda bömum sínum, borga skuldir, húsaleigu, rafmagn, hita, síma, mat og bamaheimili af 20 þúsimd króna launum á hins vegar enga von um aðstoð. Getur það verið að þegar hringt er í stofnunina á þessum klukkutíma sem símatíminn er annan hvem dag og þessum háu herrum sagt að hvorki sé til mjólkurdropi né matarbiti á heimil- inu þá sé viðkomandi beðinn að bíða í þijár vikur? Og þegar vikumar þrjár em liðnar og móðirin einstæða búin að kyngja öllu stolti og sjálfsvirðingu þá er því svarað að málið verði athugað eftir þrjár vikur. Og þá hafði ekki unnist tími til að athuga málið og móðirin beðin að bíða í tvær vikur. Og þá reyn- ist viðkomandi félagsráðgjafi vera veikur og enginn við vinnu fyrir hann. Og þá byrjar píslarsaga aftur. 1 millitíðinni hafa skuldimar og vandræðin aukist. Sjálfsvirðingin öll farin út í veður og vind og auðveld- asta leiðin frá öllu er að hella sér út í áfengisdrykkju og lyfjaát. Þarf fólk virkilega að gera það fyrst til að eiga von um aðstoð? Geir Gunnarsson alþingismaður: Já, þetta verður spennandi, í það minnsta í Hafnarfirði. Þar er úr nógu að velja. Félagsmálastofnun: Fá dvykkjusjúklingar og dópistar Þórður Hilmarsson lögreglumaður: Ekkert sérstaklega. Eg hef lítinn áhuga á kosningunum enda lítil von um breytingar. Helga hefúr sitthvað við þjónustu Félagsmálastofnunar að athuga. Leikum ekki meiri fffl en við eram Jón Jóhannsson hringdi: Ég vil mótmæla sóun fjármuna vegna þátttöku íslands í söngva- keppni sjónvarpsstöðva. Hér í bænum ganga sögur um milljóna eyðslu í þessa vitleysu. Þessa peninga hefði mátt nota til þarfari hluta. Það vantar 650 þúsund í rekstur Kvennaathvarfsins. Hefði ekki verið nær að leggja eitthvað til þess? Það vita allir sem vilja að vandi kvennanna sem þangað leita er mikill. Og hvað um gamla fólkið? Væri ekki nær að aðstoða það og gleyma þessari söngvakeppni eftirleiðis? Við ættum ekki að gera okkur að meiri fíflum en við erum. Ég hef séð færari skemmtikrafta en þennan Icy- hóp. Jafiigáfuð þjóð og við erum eig- um ekki að bjóða nágrannaþjóðun- um upp á þetta. Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur Hvað eru nýju Lódurnar gamlar? Hilmar hringdi: Margir þeir sem keypt hafa bifreiðar hjá Bifreiðum og Landbúnaðarvélum í vor hafa lent í því að þessar bifreiðar fast ekki skráðar nema sem árgerð 1985 þótt þær séu keyptar á þessu ári. Þessar bifreiðar eru úr sendingu sem þeir hjá umboðinu segja að hafi ekki borist fyrr en á þessu ári þótt þær hafi verið framleiddar í fyrra. Bifreiða- eftirlitið neitar að skrá þessar bifreiðar á það ár sem þær eru seldar. Umboðið hefur boðið að endurgreiða þessar bifreiðar þeim sem það vilja en neita að veita afslátt eins og mörg önnur umboð hafa gert þegar svona stendur á.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.