Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1986, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1986, Blaðsíða 20
20 DV. MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ 1986. Ibróttir mi • Ómar Rafnsson, Ómar sleit krossbönd Frá Þráni Ste£ánssyni, fréttamanni DV á Akureyri. Ómar Rafiisson, sem var einn al- besti leikmaður Völsunga á Húsavík í 2. deildinni í knattspyrnu sl. sumar, sleit nýlega krossbönd í hné. Þarf að fara í uppskurð og litlar líkur á að hann leiki í sumar. Það er mikið áfall fyrir Völsung. Ómar lék áður með Breiðabliki i Kópavogi og lék þá fjóra landsleiki sem bakvörður. hsím Frestað vegna bikarúrslita Vormót Ungmennafélags Keflavik- ur, sem vera átti á laugardag kl.14, hefur verið fært til sunnudags vegna úrslitaleiks Everton og Liverpool sem sýndur verður í sjónvarpinu í beinni útsendingu á laugardag. Vormótið hefst kl.14 á sunnudag. FH-Akranes - í litfa bikamum Fyrstu deildar lið FH og Akraness leika í litlu bikarkeppninni á morgun, uppstigningardag. Leikuriim verður í Kaplakrika í Hafharfirði og hefst kl. 14. Fer Metgod til Kölnar? V-þýska liðið Köln hefur mikinn áhuga á að fá Hollendinginn Johnny Metgod til liðs við sig. Metgod, sem hefur staóið sig frábærlega með Nott- ingham Forest, er í miklu áliti hjá Georg Kessler, þjálfara Kölnar. „Met- god er leikmaður á heimsmælikvarða. Ég vildi gjaman hafa hann í liði mínu og veit að hann hefur áhuga á að koma,“ sagði Kessler en hann þjálfaði Metgod þegar þeir voru hjá hollenska liðinu AZ 67 Alkmaar. Hið háa verð sem Nottingham hefur sett á Metgod gæti komið í veg fyrir þessí kaup. Þeir vilja fá um 1,8 milljón marka (u.þ.b. 34 milljónir kr.). Þessa tölu segir varaformaður Köhiar, Karl-Heinz Thielen, fáránlega. Það er því óvíst hvort af þessum kaupum verður. -SMJ róttir Iþróttir Iþróttir Urslitaleikur Evrópukeppni meistaraliða kl. 18 í dag: Verður Steaua fyrst austantjaldsliða til að sigra í keppninni? Einn af hápunktum knattspymu- vertíðarinnar í Evrópu, sjálfur úrslita- leikurinn í Evrópubikarnum, keppni meistaraliða, fer fram á Sanchez Piz- juan leikvanginum í Sevilla í kvöld. Að þessu sinni eru það lið Barcelona og Steaua Búkarest sem keppa um þennan eftirsóttasta knattspymutitill í Evrópu. Barcelona er eitt þriggja spænskra liða sem komust í úrslit í Evrópu- keppninni þetta tímabil. Það hefur gífiirlega sterku liði á að skipa. I liðinu em sjö leikmenn sem verða í spánska landsliðinu í Mexíkó. Þar að auki er v-þýski snillingurinn Bemd Schiister á miðjunni og í framlínunni er skoski markaskorarinn Steve Archibald. Nokkur heppni hefur fylgt Barcel- ona á leiðinni í úrslitaleikinn. Liðið náði að slá Evrópumeistarana frá þvi í fyrra, Juventus, út með 1:0 sigri heima og 1:1 jafhtefli úti. Barcelona var en heppnara í leik sínum við sænska liðið Gautaborg. Töpuðu fyrri leiknum 3:0 en unnu þennan mun upp á heimavelli og komust áfram eftir vítaspymukeppni. Þetta tímabil hefur verið heldur rýrt hjá Barcelona. Félagið varð 11 stigum á eftir Real Madrid f 1. deildinni og tapaði í úrslitaleik um spánska bikar- inn fyrir Real Zaragoza. Það er því ljóst að leikmenn Barcelona em þyrst- ir í verðlaun. uð á óvart í keppninni og sló m.a. stjömum prýtt lið Anderlecht ömgg- lega út. Þeirra bestu menn em miðvallarleikmaðurinn Ladislau Bol- oni og sóknarmaðurinn Marius Lacatus. Báðir frábærir leikmenn. til Yrðu fyrstir austantjaldsliða að vinna Ef Steaua Búkarest vinnur leikinn í kvöld yrði félagið fyrst austantjalds- liða til að vinna Evrópubikarinn, keppni meistaraliða. Aðeins Partizan Belgrad hefur náð svona langt áður í keppninni. Júgóslavneska liðið komst í úrslit 1966 og tapaði fyrir Real Madrid. Lið frá Spáni hefur ekki unn- ið þennan titil síðan. Steaua Búkarest hefur komið nokk- Leikið í skugga Heysel harm- leiksins Mönnum er enn í fersku minni úr- slitaleikurinn í fyrra - ekki vegna knattspymunnar sem þar var leikin heldur vegna harmleiksins sem átti sér þar stað. 39 manns létu þá lífið eftir að óeirðir bmtust út meðal áhorfenda. Það er því mikilvægt fyrir knattspym- unna að fá nú góðan úrslitaleik. Öryggisráðstafanir í Sevilla em miklar og ætti að vera tryggt að ekk- ert í líkingu við það sem gerðist í fyrra eigi sér stað nú. Ensk lið hafa oftast unnið Evrópukeppni meistaraliða hefur farið fram síðan 1956 og hafa eftirfar- andi lið unnið keppninna: 1956 ..........Real Madrid, Spáni 1957 ..........Real Madrid, Spáni 1958 ..........Real Madrid, Spáni 1959 ..........Real Madrid, Spáni 1960 ..........Real Madrid, Spánb 1961 ....................Benfica, Portúgal 1962 ....................Benfica, Portúgal 1963 ........... AC Mílano, Ítalíu 1964 ........Inter Mílano, Italíu 1965 .......Inter Mílano, Ítalíu. 1966 ..........Real Madríd, Spáni 1967 ...Glasgow Celtic, Skotlandi 1968 .Manchester United, Englandi 1969 ...........AC Mílano, Ítalíu 1970 ..................Feyenoord, Hollandi 1971 .......................Ajax, Hollandi 1972 .......................Ajax, Hollandi 1973 .......................Ajax, Hollandi 1974.. .Bayem Múnchen, V-Þýskalandi 1975.. .Bayem Múnchen, V-Þýskalandi 1976.. .Bayem Múnchen, V-Þýskalandi 1977....................Liverpool, Englandi Stefnt að byggingu þrjátíu íþróttahúsa Mikill áhugi er hjá mörgum sveitar- félögum um byggingu íþróttahúsa og fyrirhugað er að byggja þijátíu á næstu ámm. Hér er um umtalsverðar fjárfestingar að ræða þvi áætla má byggingarkostnað íþróttahúsa í bilinu 25-30 milljónir króna eftir því hvaða byggingagerð er valin. Sveitarfélög og íþróttafélög leita því leiða til að koma upp hagkvæmum og hentugum íþróttahúsum á ekki alltof löngum tíma. - önnur ráðstefna um byggingu þeirra kröfixr hinna ýmsu áhugaaðila um byggingu íþróttahúsa og bygginga- og verkefnisstjórn. Þá verður fjallað um gerð starfe- og kostnaðaráætlana svo og fiármögnunarleiðir. Farið verður yfir helstu atriði sem varða byggingu íþróttahúsa og einkum þau sem gætu orðið til lækkunnar á stofii- og rekstr- arkostnaði þeirra. Ákveðið hefur því verið að efiia til sérstaks námskeiðs um skipulagningu og verkefnastjómun í sambandi við undirbúning og byggingu íþróttahúsa. Á námskeiði þessu verður fjallað um Námskeiðið verður haldið dagana 16.-17.maí nk. og er þegar góð þátt- taka. Leiðbeinendur á námskeiðinu verða verkfræðingamir Jón Hjaltalín Magnússon og Gunnar Torfason sem veita allar nánari upplýsingar. Nám- skeið um þetta efni var haldið í apríl og var fullbókað á það. Þar komust færri að en vildu. Ásta Urbancic í öðni sæli á bandaríska háskólameistaramótinu í borðtennis " . ■ " I Ásta Urbancic, Eminum, varð í öðru sæti á bandaríska háskólameistara- mótinu í borðtennis sem fram fór í Colarado. í slendingar eiga nú tvo góða borðtennisspilara sem dvelja ytra við nám, Hjábntý Hafsteinsson, KR, sem stundar doktorsnám í tölvufræði við Comell, og Ástu Urbancic, Eminum, sem stimdar mastersnám í landafræði við Maryland háskólann. Bæði Hjálmtýr og Ásta unnu fjöl- menna keppni innan síns skóla og képptu í framhaldi af því á rnillisvæða- móti þar sem háskólar á tilteknu svæði leiða saman sína bestu menn til keppni. Þar lenti Hjálmtýr Hafeteins- son sem keppti um árabil með KR í öðru sæti en Ásta sigraði örugglega og vann þar með rétt til að keppa í úrslitum í Colarado. Þar gekk henni vonum ffamar og sló meðal annars bandaríska unglingalandsliðsstúlku sem flestir spáðu sigri, úr keppninni og komst í úrslit. Þar tapaði hún naumlega fyrir indverski stúlku sem hún hafði reyndar unnið fyrr í keppn- B-keppni Evropukeppninnar í körfu: Njósnað rækilega um im í Belgíu Það verður greinilega allt gert til að tryggja sem bestan árangur íslenska landsliðsins i körfuknattleik á Evr- ópumótinu sem fram fer í Belgíu eftir nokkra daga. Eins og fram hefur kom- ið í DV mun islenska liðið leika tvo æfingaleiki gegn Hollendingum á föstudag og laugardag í Hollandi. Nú er ákveðið að þeir Kristinn Al- bertsson og Hilmar Gunnarsson fari utan á vegum körfuknattleikssam- bands Islands og taki leiki Hollend- inga og Pólverja upp á myndband en þjóðimar leika tvo leiki fyrir b-keppn- ina. Pólverjar eru sem kunnugt er í riðli með íslenska liðinu og fyrsti leik- ur okkar er einmitt gegn Póllandi. Pólverjar leika einnig tvo landsleiki gegn Belgum fyrir b-keppnina og munu þeir Kristinn og Hilmar einnig taka þá leiki upp á myndband. Ljóst má því vera að Einar Bollason og Gunnar Þorvarðarson landsliðsþjálf- arar ættu að vita mikið um pólska liðið þegar að leíknum gegn þeim kemur, föstudaginn 16. maí. Einar njósnar Þeir Knstinn og Hilmar fara utan á næstu dögum og nú mun ákveðið að þeir Einar Bollason og jafnvel Gunnar Þorvarðarson fari til Hollabnds og sjái leik Pólveija og Hollendinga fyrir b- keppnina. Landsliðsþjálfaramir munu fara utan á undan landsliðinu en hitta það síðan í Belgíu. -SK Reiknað er með fjörutíu Islendingum á Evrópukeppnina í körfu Allt stefiiir í mikla þátttöku í hópferð sem Flugleiðir gangast fyrir á Evr- ópukeppnina í körfuknattleik. Alls bjóða Flugleiðir körfuknattleiksunn- endum ijörutíu sæti og er reiknað með þvi að þau seljist fljótlega upp enda kostar pakkinn aðeins 16 þúsund krón- ur. Innifalið er flug, gisting, morgun- matur á Holiday Inn í Liege í Belgíu, ferðir frá Luxemburg til Liege þar sem leikið verður og ferðir frá hóteli á leik- ina. Farið verður utan 15. maí og komið heim þann 21. maí. Söluskrif- stofur Flugleiða veita nánari upplýs- ingar. -SK SSEfíL i Kvikmynd um sögu Vals í tiiefni 75 áia afmælis félagsins Firmakeppni Skíðaráðs Reykjavik- ur, sem fresta varð 1. maí vegna veðurs, verður haldin á uppstjgningar- dag, 8. maí, á skiðasvæði Fram í Bláfjöllum. Keppnin hefst kl. 13 en skráning keppenda hefst kl. 11 í skála Fram í Eldborgargili. Keppt er í svigi og göngu og er um forgjafárkeppni að ræða. Rnattspymufélagið Valur verður 75 ára 11. maí nk. Félagið starfar nú í fimm íþróttadeildum, knattspymu-, handknattleiks-, körfuknattleiks- skíða- og badmintondeild. Nú stunda yfir 800 manns reglubundnar æftngar og keppni á vegum Vals. Skráðir félag- ar em um 1400. Félagssvseði Vals er við Hlíðarenda en þar fara nú fram miklar fram- kvæmdir á vegum félagsins. Nýtt íþróttahús er í byggingu ásamt bún- ingsaðstöðu fyrir inni- og útiíþróttir svo og nýtt félagsheimili. Þá em einn- ig nýhafiiar miklar vallarframkvæmd- Valsmenn gera margt til að minnast 75 ára afmælisins. Það verður gefinn út minnispeningur og gerð sérstök kvikmynd um sögu félagsins. Á laugardagskvöldið verður haldið kvöldverðarsamsæti á Hótel Sögu þar sem m.a. verða afhent gullmerki fé- lagsins fyrir félagsstörf. Heiðursgestur verður Davíð Oddsson borgarstjóri. Sunnudaginn 11. maí ætla Valsmenn að hittast við styttu séra Friðriks Frið- rikssonar í Lækjargötu. Þar mun Albert Guðmundsson halda ræðu. Þaðan verður síðan gengið út á íþróttasvæði Vals við Hlíðarenda. Þar verður vegleg íþróttahátíð. -SMJ Iþróttir Iþróttir róttir Iþróttir m

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.