Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1986, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1986, Blaðsíða 5
DV. MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ 1986. 5 Stjórnmál Stjórnmál Stjórnmál Stjórnmál Spurt á Fáskrúðsfirði: Hverju spáir þú um úrslit kosninganna á Fáskrúðsfirði? Gunnar Skarphéðinsson rafveitu- stjóri: - Alþýðubandalagið heldur sínum þremur mönnum og óháða framboðið kemur engum manni inn. Trausti Gestsson verkamaður: - Ég get engan veginn gert mér grein fyrir því hvernig þetta fer, er lítill áhugamaður um pólitík. Páll Óskarsson verkamaður: - Ég held að Alþýðubandalagið sigri í þessum kosningum og að það nái hreinum meirililuta i hrepps- nefnd. Stefanía Ingólfsdóttir fiskverkunar- kona: - Ég vona bara að Sjálfstæðisflokk- urinn komi vel út úr þessum kosn- ingum. Guðný Þorvaldsdóttir húsmóðir: - Ég geri ráð fyrir að þetta verði óbreytt en vona þó að Sjálfstæðis- flokkurinn vinni á. Sigurbjörg Guðmundsdóttir fisk- verkunarkona: - Ég er ósköp lítið inni í pólitík. Ég spái því þó að óháðir nái inn ein- um manni. Fjórir Fjórir listar eru í framboði á Fá- skrúðsfirði, sem heitir reyndar, strangt til tekið, Búðir. Nýr listi hefur bæst í hópinn frá síðustu kosningum, listi óháðra. Hugsanlegt er að þessi listi verði til þess að riðla núverandi fylgi flokkanna. Framsóknarflokkur á tvo fulltrúa í hreppsnefridinni, Alþýðubandalag 3 og Sjálfstæðisflokkur 2. Framsókn og Alþýðubandalag mynda meirihluta í hreppsnefndinni. Sjálfstæðismenn una hag sínum illa og vilja gjaman fá að ráða meiru. Æðsta ósk þeirra er að komast í meirihluta. Annars eru hreppsnefndarmenn ekki mjög ósammála um hvað þarf að gera. Þeir vilja allir að gert verði meira fyrir aldraða, byggð verði smá- Fáskruðsfjörður: listar í framboði bátahöfii og slitlagi komið á götur Á Fáskrúðsfirði búa um 780 manns. skrá og kjörsókn var um 92 prósent. bæjarins svo eitthvað sé nefiit. í síðustu kosningum voru 442 á kjör- . -APH Fákrúðsfjörður. Óháðir: Er á móti þessum flokka- framboðum „Ég er andvígur þessum flokka- fi-amboðum í litlum byggðarlögum. Hér þurfa menn ekki að vera að rífast um landsmálapólitíkina og því óþarfi að blanda þessu við flokkapólitík,“ segir Einkur Stefánsson, efsti maður á lista óháðra. Eiríkur hafhaði í þriðja sæti í prófkjöri Alþýðubandalagsins. Hann var ekki sáttur við það og bauð þess í stað fram nýjan lista. „Ég er einnig á móti því að gefa út stefnuskrá fyrir kosningar. Það er ein- ungis kosningabrella og hefur enga þýðingu. Hér eru mörg verkefhi sem þarf að taka á. Mér er það reyndar mikið kappsmál að það verði gert meira fyrir aldraða. Þá á ég við að þeim verði veitt meiri aðstoð. Það mætti hugsa sér að farið yrði heim til gamla fólksins og lóðir þeirra slegnar SjáHstæðisflokkur: Viljum fá að ráða meiru Sjálfstæðismenn á Fáskrúðsfirði eru ekki sáttir við að sitja einir í minni- hluta hreppsnefndarinnar og vilja að breyting verði á þessu í kosningunum. „ Að sjálfsögðu stefhum við að því að ná inn þremur mönnum og fá ein- hverju ráðið næstu fjögur árin,“ segir Sigurður Þorgeirsson, annar maður á lista Sjálfstæðisflokksins, og leynir því ekki að flokkurinn vill sitja í meiri- hluta næsta kjörtímabil. „Við viljum að fjármál bæjarins verði tekin fastari tökum. Lausafjár- staðan er ákaflega slæm þessa stund- ina. Annars er ekki mikill ágreiningur um forgangsmálin héma. Það eru allir sammála um að það þarf að bæta gatnakerfið og koma upp smábátahöfn héma svo eitthvað sé nefnt. -APH Eiríkur Stefánsson, er á móti flokka- pólitik. og hús þeirra máluð svo eitthvað sé nefnt," segir Eiríkur, sem segist vera bjartsýnn á að koma inn tveimur mönnum - a.m.k. einum manni í hreppsnefnd. -APH Sigurður Þorgeirsson, Sjálfstæðis- fiokki, sættir sig ekki við að flokkur hans sitji í minnihluta. Alþýðubandalagið: Úrslitin tvísýn „Vegna tilkomu nýs framboðs gætu úrslitin orðið tvísýn í þessum kosning- um,“ sagði efsti maður á lista Al- þýðubandalagsins, Björgvin Baldurs- son. Alþýðubandalagið og Framsóknarflokkurinn mynda núver- andi meirihluta í hreppsnefhdinni með fimm fulltrúa til samans. I minnhlut- anum situr Sjálfstæðisflokkurinn með tvo fulltrúa. „Við höfum verið að keppast við að ljúka við byggingu dvalarheimilis fyrir aldraða og að því loknu verður hafist handa við byggingu hjúkrunarheimil- is. Þá verða framkvæmdir við smá- bátahöfnina boðnar út í sumar. Auk þessara verkefiia eru fjölmörg önnur sem bíða.“ -APH Framsóknarflokkur: Varanlegt slit- lag á allar götur 1990 Lars Gunnarsson, efsti maður á lista Framsóknarflokksins, segir að meiri- hlutasamstarfið við Alþýðubandalagið hafi gengið vel þetta kjörtímabil. Ur- slit kosninganna verði síðan að leiða í ljós hvort þetta samstarf heldur áfram. „Við stefhum að því að hér verði komið varanlegt slitlag á allar götur fyrir 1990. Einnig að byggt verði íþróttahús og lokið við gerð smábáta- hafhar,“segir Lars. Hann segir að ýms mál séu í deigl- unni. Atvinnulífið sé einhæft og það Framboðslisti Alþýðubanda- lagsins 1. Björgvin Baldursson verkstjóri 2. Sigurður Jónss. símstöðvarstj. 3. Rut Gunnþórsdóttir húsmóðir 4. Páll Óskarsson vinnuvélastjóri 5. Valbjöm Pálss. iðnverkam. 6. Þórormur Óskarss. verkam. 7. Þórunn Ólafsdóttir húsmóðir 8. Hjördís Ágústdóttir verkakona 9. Valur Þórarinsson verkamaður 10. Ivar Gunnarsson verkamaður 11. Ragnhildur Jónsdóttir verkak. 12. Guðlaugur Kristinss. verkam. 13. Gunnþór Guðjónss. verkam. 14. Þorsteinn Bjarnas. húsasmíðam. Framboðslisti Framsóknarfé- lagsins 1. Lars Gunnarss. múrarameist. 2. Guðmundur Þorsteinss. yfirk. 3. Arnfríður Guðjónsdóttirkennari 4. Steinn Jónass. bifvélavirkjam. 5. Elsa Guðjónsd. verslunarm. 6. Kjartan Reyniss. skrifstofum. 7. Sigríður Jónsdóttir húsmóðir 8. Guðni Elíss. bifvélavm. 9. Hulda Stefánsdóttir verkakona 10. Sigurður Óskarsson nemi 11. Haukur Jónsson vélvirki 12. Jóhannes Sigurðss. verkam. 13. Ólafur Gunnarsson stýrimaður 14. Sölvi Ólason trésmiður Úrslit 1982 Úrslit sveitarstjórnarkosninganna á Fáskrúðsfirði 1982 urðu þessi: Atkvæði Fulltrúar Framsóknarflokkur(B) 142 2 Sjálfstæðisflokkur(D) 106 2 Alþýðubandalag(G) 148 3 í hreppsnefnd voru kjörnir eftirtaldir: Lars Guðmundsson(B), Guðmundur Þorsteinsson(B), Albert Kemp(D), Sigurður Þorgeirsson(D), Björgvin Bald- ursson(G), Gunnar Skarphéðinsson(G) og Þórun Ólafs- dóttir(G). Björgvin Baldursson, Alþýðubanda- lagi- DV-myndir KAE Lars Gunnarsson, Framsóknarflokki, vill auðvelda mönnum að koma upp iðnfyrirtækjum. verði að auðvelda mönnum að setja upp iðnað, sem það vilja. Einnig legg- ur Lars áherslu á að gera þurfi átak í umhverfismálum bæjarins. -APH Framboðslisti óháðra 1. Eiríkur Stefánss. verkam. 2. Birgir Kristmundss. verkam. 3. Vignir Hjelm verkamaður 4. Óðinn Magnason verkam. 5. Ingólfur Hjaltas. vélvirki 6. Guðný Sigmundsd. verkak. 7. Grétar Arnþórss. verkstj. 8. Ingvar Sverriss. sjómaður 9. Benedikt Sverriss. stýrim. 10. Jón Káras. sjómaður 11. Agnar Sveinss. útgerðarm. 12. Lúðvík Daníelss. iðverkam. 13. Sigurbjörg Kristmundsd. húsm. 14. Þórarinn Bjarnas. á Borg, elsti íbúi Fáskrúðsfjarðar. Framboðslisti Sjálfstæðisfé- lagsins 1. Albert Kemp skipaeftirlitsm. 2. Sigurður Þorgeirss. afgreiðslum. 3. Ægir Kristinss. bifreiðastj. 4. Sævar Sigurðsson húsasmíðam. 5. Ama S.D. Christiansen bæjargj. 6. Guðný Björg Þorvaldsd. verkak. 7. Agnar Jónss. vélvirkjam. 8. Dóra Gunnarsdóttir húsm. 9. Ævar Ingi Agnarss. verkstj. 10. Hallgrímur Bergss. skrifstj. 11. Arnar Ingas. verslunarm. 12. Rúnar Þór Hallss. vélvirkjam. 13. Björgvin Gunnarss. verkam. 14. Hafsteinn Skaftas. stýrim.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.