Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1986, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1986, Blaðsíða 36
36 DV. MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ 1986. Sviðsljós Sviðsljós Sviðsljós Sviósljós Ólyginn sagði ... Madonna og eiginmaður hennar, Sean Penn, eru ekki vinsælustu hjónakornin i sjóbisnessnum. Þau hafa orðið sér úti um óvini allt frá Hong Kong tii London samfara kvikmynda- tökunum á myndinni Shang- hai Surprise og svo hávær urðu átökin við pressuna að framleiðandinn og Bítillinn George Harrison flaug til Hong Kong og stillti til friðar. Nú gengur parið undir nafninu Eiturpennarnir innan press- unnar og ófáir þeirrar stéttar myndu gefa mikið fyrir aö kreista hressilega úr hjónun- um fyllingarnar. George Hamiiton brosir hringinn eftir að hafa nælt i Liz Taylor. Til þess að vinna hylli leikkonunnar þurfti hann að ýta aftur fyrir sig hin- um tuttugu og sjö ára gamla Michael Jackson sem var þá- verandi elskhugi hinnar hressu Taylor. Kanarnir anda léttara núna því Hamilton er þó ekki nema átta áruhi yngri en Liz - Jackson vantar hins vegar tuttugu og sjö ár til við- bótar til aldursjöfnunar. Parið Hamilton og Taylor Ijómar af hamingju og kunnugir segja frúna komna í heilsukúr sem heilsufrikið Hamilton hannar af sinni heimsþekktu ná- kvæmnl. Ronald Reagan má gæta skapsmunanna þetta vorið segja stjörnuspámenn og vara vatnsbera eins og for- setann við því að missa sjónar á jaröbundnum málefnum. Og svo verða væntanlega vand- ræði með illa hegðun náinna ættingja um miðjan mai, að sögn fræðinganna. Ekki gott útlit hjá þeim gamla - skyldi dóttirin Patti vera með aöra elskulega frásögn af heimills- erjunum i Hvíta húsinu i burðarliðnum? Gamlir Tímajaxlar kætast Allmörg gömul Tímahjörtu kætt- ust saman í Þingholti nú fyrir skömmu - og höfðu gilda ástæðu til gleðinnar. Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur náði sumsé þeim merka áfanga að telja sex tugi til fortíðar og af því tilefni söfnuðust saman fyrrum samstarfsmenn hans af Tím- anum til þess að fagna með afmælis- barninu. Hófið var haldið að frumkvæði Fríðu Björnsdóttur, Kára Jónassonar og Magnúsar Bjarn- freðssonar - öll fyrrum blaðamenn á Tímanum - og boðsgestir voru Ind- riði sjálfur og eiginkonan, Þórunn Friðriksdóttir. Meðfylgjandi DV- myndir tók svo Gunnar V. Andrésson sem að sjálfsögðu er fyrrum frétta- ljósmyndari á málgagni framsóknar- manna - Tímanum. Ræður fyrir minni afmælisbarnsins Indriða og fyrirbænir um langlífi til handa málgagninu eru beinlínis nauðsyn á slíkri stundu. Þarna er Kristján Benediktsson borgarfulltrúi og fyrrum framkvæmdastjóri Tímans í miðri tölu en til hliðar eru Tómas Árnason, einnig fyrrum framkvæmdastjóri Tímans, eiginkona hans Þóra Kristín Eiríksdóttir, Ey- steinn Jónsson, fyrrum formaður blaðstjórnar Timans, og eiginkona hans, Sólveig Eyjólfsdóttir, og Kári Jónasson ásamt eiginkonunni, Ragnhildi Valdimarsdóttur. Einu sinni var - á Tímanum! Sigurður Hreiðar, ritstjóri Urvals, Eysteinn Jónsson, fyrrverandi ráðherra, og afmælisbarnið, Indriði G. Þorsteinsson rit- höfundur. Fyrrum blaðamannagengi framsóknarmálgagns - Jón Hákon Magnússon fréttamaður, Magnús Bjarnfreðsson fréttamaður, Kristján Bersi Olafsson skólastjóri og Sólveig Jónsdóttir blaðamaður. Þrenningin Guðjón Einarsson fréttaljósmyndari, Indriði G. Þorsteinsson og Og önnur þrenna - Kári Jónasson fréttamaður, Björn P. Guðmundsson laga- Alfreð Þorsteinsson forstjóri. prófessor og Eysteinn Jónsson. John Zaccharo er í þann mund að jarða pólitískan frama móður sinnar, Gerald- ine Ferraro. Hann hefur selt sjálfan sig í kókauglýsingum oftar en einu sinni, notað nafn móðurinnar i þeim öllum, komið á framfæri erfiðum yfirlýsingum frá eigin bijósti um hin ýmsu . málefni og svo mætti lengi telja. En steininn tók þó úr nú fyrir skömmu þegar kappinn var tekinn fyrir kókaínneyslu og í Ijós kom að hann hafði stundað yfirgripsmikla sölustarfsemi á duft- inu. Hann var þekktur í kunningjahópnum undir nafninu Lyfi afræðingurinn og nú eru nánustu vinir þessa ágæta apótek- ara unnvörpum að safnast bak við lás og slá. Béatrice - hin nýja B.B. Frá Gizuri í. Helgasyni, fréttaritara DV í Zurich: Ný Brigitte Bardot er komin fram í kvikmyndaheiminum. Hér er um að ræða frönsku leikkonuna Béatrice Dalle og þykir hún sérstaklega kynæsandi, með sama „stút“-munninn og B.B. og aðrar línur líkamans í 100% lagi. Leikkonan, sem er 21 árs gömul, hefur nú nýverið lokið við fyrstu kvik- myndina sem heitir „37 Grad Le Matin“ og sýndi þar að hún hefur ýmislegt annað til brunns að bera en kyntöfrana. Næsta mynd er í sjón- máli. Það er af einkalífinu að segja, að Béatrice er gift listmálara - a.m.k. í bili.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.