Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1986, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1986, Blaðsíða 32
32 DV. MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ 1986. Brynjólfur Símonarson lést 23. apríl sl. Hann fæddist í Hábæ á Miðnesi 15. nóvember 1889. Brynjólfur fluttist til Hafnarfjarðar árið 1924 og bjó þar alla tíð síðan. Hann stundaði bæði sjómennsku og landvinnu jöfnum höndum, lengst af í frystihúsinu á Mölum. Útför hans verður gerð frá Hafnarfjarðarkirkju í dag kl. 15. Knútur Ragnarsson lést 26. apríl sl. Hann fæddist 18. júlí 1925 á Vatn- eyri við Patreksfjörð. Foreldrar hans voru Sigurbjörg Magnúsdóttir og Ragnar Kristjánsson. Knútur réðst til Olíufélagsins hf. 1949 og vann hjá því fyrirtæki alla tíð. Lengst af sínum starfstíma hjá Olíufélaginu hf. var hann bifreiðarstjóri en hin síðari ár skrifstofumaður á dreifingarskrif- stofu félagsins á Gelgjutanga. Knútur giftist Ágústu Sigurðardótt- Knúts verður gerð frá Dómkirkjunni í dag kl. 13.30. Robert D. Boulter lést 28. apríl sl. Hann fæddist í Lincoln, Nebraska i Bandaríkjunum 4. febrúar 1926. Nauðungaruppboð annað og síðasta á Brúarenda v/Starhaga, þingl. eign Péturs Einarssonar, fer fram eftir kröfu Arnar Höskuldssonar hdl., Gjaldheimtunnar í Reykjavík, Guðm. Ingva Sigurðssonar hrl„ Ásgeirs Thoroddsen hdl., Björns Ól. Hall- grímss. hdl., Útvegsbanka islands, Róberts Á. Hreiðarssonar hdl., Helga V. Jónssonar hrl. og Landsbanka islands á eigninni sjálfri föstudag 9. maí 1986 kl. 11.00. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 13., 22. og 25. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1986 á jörð- inni Sléttu, Reyðarfirði, þingl. eign Sigurðar Baldurssonar, fer fram skv. kröfu Innheimtustofunnar sf. á eigninni sjálfri miðvikudaginn 14. maí 1986 kl. 11. Sýslumaðurinn í Suður-Múlasýslu. Nauðungaruppboð sem auglýst var 113., 22. og 25. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1986 á Bleiks- árhlíð 61, Eskifirði, miðhæð, þingl. eign Ólafs Gunnarssonar, fer fram skv. kröfu Landsbanka íslands, Ásgeirs Thoroddsen hdl. og Ólafs Gústafssonar hrl. á eigninni sjálfri miðvikudaginn 14. maí 1986 kl. 10. Bæjarfógetinn á Eskrfirði. Nauðungaruppboð sem auglýst var I 13., 22. og 25. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1986 á Sævarenda 2, Stöðvarfirði (sildarverksmiðju), þingl. eign Hraðfrystihúss Stöðvarfjarðar hf„ fer fram skv. kröfu Jóns Ólafssonar hrl. og Björns Jósefs Arnviðarsonar hdl. á eigninni sjálfri þriðjudaginn 13. maí 1986 kl. 13.30. ___________________Sýslumaðurinn i Suður-Múlasýslu. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 13„ 22. og 25. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1986 á Banka- stræti 1, Stöðvarfirði (hraðfrystihúsi), þingl. eign Hraðfrystihúss Stöðvarfjarðar hf„ fer fram skv. kröfu Björns Jósefs Amviðarsonar hdl. og Tryggingarstofnun- ar ríkisins á eigninni sjálfri þriðjudaginn 13. maí 1986 kl. 13. ___________________Sýslumaðurinn í Suður-Múlasýslu. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 129., 133. og 139. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 á Búðavegi 18, Fáskrúðsfirði (HrauniJ, þingl. eign Hafnarsjóðs Búðakauptúns, fer fram skv. kröfu Fiskveiðasjóðs Islands á eigninni sjálfri þriðjudaginn 13. maí 1986 kl. 11. ______________________Sýslumaðurinn í Suður-Múlasýslu. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 13„ 22. og 25. tölubl. Lögbirtingablaðsins 1986 á Skóla- brekku 9, Fáskrúðsfirði, þingl. eign Birgis Kristmundssonar, fer fram skv. kröfu Iðnaðarbanka íslands hf. á eigninni sjálfri þriðjudaginn 13. maí 1986 kl. 10.30. ___________________Sýslumaðurinn i Suður-Múlasýslu. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 13„ 22. og 25. tölubl. Lögbirtingablaðsins 1986 á Hlíðar- götu 15, Fáskrúðsfirði, þingl. eign Jens P. Jensen, fer fram samkvæmt kröfu AsgeirsThoroddsen hdl. á eigninni sjálfri þriðjudaginn 13. maí 1986 kl. 10. ___________________Sýslumaðurinn í Suður-Múlasýslu. Hann giftist Þórunni Jónsdóttur árið 1955 og bjuggu þau í Louisville, Kentucky, þar sem Þórunn stundaði tónlistarnám. Árið 1966 fluttust þau til Islands og hafa búið hér síðan. Þau eignuðust fjóra syni. Robert starfaði við námsráðgjöf í Menning- arstofnun Bandaríkjanna, við Fulbright-stofnunina, Toefl-prófin og fl. Útför hans verður gerð írá Hall- grímskirkju í dag kl. 13.30. Ferðalög Ferðafélag íslands Dagsferðir 8. mai (fimmtudag). 1) KL. 9, Skarðsheiði (Heiðarhorn 1053 m). Verð kr. 600. 2) Kl. 11, Sölvafjara-Stokkseyri- Knarrarósviti. Æskilegt að hafa stígvél með og ílát fyrir söl. Verð kr. 550. Helgarferð í Þórsmörk 9.-11. maí. Léttar gönguferðir. Gist í Skag- fjörðsskála. farmiðasala og upplýs- ingar á skrifstofunni, Öldugötu 3. Dagsferðir sunnudag 11. maí. 1) Kl. 10, fuglaskoðunarferð á Suður- nesjum og víðar. Æskilegt að hafa sjónauka og fuglabók. Þátttakendur fá afhentan lista með nöfnum þeirra fugla sem væntanlega sjást í ferð- inni. Verð kr. 500. 2) Kl. 13, Vífilsfell (655 m). Verð kr. 350. Sunnudag 18. maí (hvítasunnudag). Kl. 13, Strandarkirkja - Hveragerði. Verð kr. 550. Mánudag 19. maí. Kl. 13, Höskuldarvellir-Keilir. Brottför frá Umferðarmiðstöðinni, austanmegin. Frítt fyrir börn í fylgd fullorðinna. Farmiðar seldir við bíl. Tónlist Tónleikar í Roxy Fimmtudaginn 8. maí halda Björn Thoroddsen og hljómsveit hans tón- leika í Roxý. Hljómsveitina skipa auk Björns þeir Jóhann Ásmundson, bassa, Þórir Baldursson, hljómborð, og Steingrímur Óli Sigurðarson, trommur. Tónleikamir hefjast kl. 22. Tónlistin sem leikin verður er svo- kölluð jassfunk tónlist. Fyrirsætukeppni á vorhátíð Útsýnar á Broadway Ungfrú og herra Útsýn 86 verða val- in á vorfagnaði Útsýnar, sem haldinn verður í Broadway í kvöld. Húsið verður opnað kl. 20 en hátíðakvöld- verður hefst kl. 20.45. Meðan á honum stendur verða fjölbreytt sýn- ingar- og skemmtiatriði í gangi. Kynnt verða úrslit í spurningaleik Útsýnar í sjónvarpsauglýsingum og verðlaun afhent: Sólarlandaferð með Útsýn fyrir alla fjölskylduna. Hinn sprellfjörugi og sívinsæli Ómar Ragnarsson fer á kostum með ný- justu gamanmálin. Auk þess verður ferðabingó með 3 stórvinningum og dans til kl. 03. Stórhljómsveit Gunn- ars Þórðarsonar leikur. Allir sem komast í úrslit í ungfrú og herra Útsýn hreppa sólarlandaferð með Útsýn í verðlaun. Á vorfagnaðinum munu einnig útskrifast rúmlega 60 nýir ferðatæknar sem undanfarið hafa tekið þátt í ferðamálanámskeiði Útsýnar. Ljóða- og óperutónleikar í Njarðvikurkirkju Fimmtudaginn 8. maí halda þau Árni Sighvatsson barftónsöngvari og Þóra Fríða Sæmundsdóttir, ljóða- og óperutónleika í samvinnu við Tón- listarfélag Keflavíkur og nágrenni. Á efnisskrá verða ljóð eftir íslenska og erlenda höfunda svo og aríur úr óperum. Tónleikarnir verða haldnir í Njarðvíkurkirkju og hefjast kl. 16. Árni lauk 8. stigs prófi frá Söngskól- anum í Reykjavík og var síðan við söngnám á Ítalíu í rúm tvö ár. I vet- ur hefur hann verið kennari við Tónlistarskóla Keflavíkur. Þóra Fríða stundaði nám við Tónlistar- skólann x Reykjavík. Framhaldsnám stundaði hún í Þýskalandi, m.a. var hún við nám í ljóðaundirleik við tón- listarháskólann i Stuttgart. Ymislegt Frá Sálarrannsóknafélaginu í Hafnarfirði Fundur verður fimmtudaginn 8. maí nk. í Góðtemplarahúsinu og hefst kl. 20.30. Dagskrá annast Guðmundur Einarsson, Snorri Jónsson og Sveinn Ólafsson. Þá munu þau Hlíf Kára- dóttir og Sverrir Guðmundsson syngja við undirleik Ragnheiðar Skúladóttur. Kaffiveitingar. Samtök Svarfdælinga í Reykjavík efna til fjölskyldukaffis fyrir félags- menn og gesti í Múlabæ, Ármúla 34, á uppstigningardag, 8. maí nk., og hefst kl. 14.30. Svarfdælingum 60 ára og eldri sérstaklega boðið. Átthagafélag Strandamanna í Reykjavík er með kaffiboð fyrir eldri Stranda- menn í Domus Medica fimmtudaginn 8. maí kl. 15. Aðalfundur félagsins er á sama stað 15. maí kl. 20.30. Prestur segir frá ferð sinni til Sovétríkjanna Fimmtudaginn 8. maí, uppstigning- ardag, kl. 16 flytur séra Rögnvaldur Finnbogason, sóknarprestur á Staðastað, erindi í húsakynnum MÍR að Vatnsstíg 10 um ferð sína og konu sinnar, Kristínar Thorlacius, til Sovr étríkjanna í marsmánuði sl. Meðan á dvölinni í Sovétríkjunum stóð voru hjónin gestir Sambands sovéskra vináttufélaga og rússnesku rétttrún- aðarkirkjunnar og þau ferðuðust nokkuð um landið. Séra Rögnvaldur hefur lagt stund á rannsóknir í kirkjusögu um langt skéið og nú hin síðari ár einkum fengist við sögu austurkirkjunnar og þá sérstaklega listsögu hennar og helgisiði. Hann sýnir litskyggnur sem þau hjón tóku á ferðalagi sínu. Aðgangur að fyrir- lestrinum að Vatnsstíg 10 er öllum heimill. Kvennadeild Skagfirðingafélagsins verður með boð fyrir eldri Skagfirð- inga í félagsheimili sínu, Drangey, Síðumúla 35, á uppstigningardag, 8. maí. Hefst það kl. 14. Ræðumaður verður Jón R. Hjálmarsson fræðslu- stjóri og söngfélagið Drangey syngur. Þeir sem óska eftir akstri hringi í síma 685540. Safnaðarfélag Asprestakalls býður eldra fólki í sókninni upp á kaffi eftir miessu á uppstigningardag (degi aldraðra). Þeir sem óska eftir því að verða sóttir, hringi í síma 84035 milli kl. 11 og 12 sama dag. Umsjónarfélag einhverfra barna verður með basar og kaffisölu á upp- stigningardag á Hallveigarstöðum. Húsið verður opnað kl. 11. Styðjið þarft málefni og gerið góð kaup. Umboðsmann vantar á Breiðdalsvík. Uppl. gefur Geirlaug í síma 5662 og afgreiðsla DV í síma 91-27022. Umboðsmann vantar á Vopnafjörð. Upplýsingar gefur Laufey í síma 3195 og afgreiðsla DV í síma 91-27022. Afmæli 80 Aðalheiður Konráðsdóttir frá Sauð- árkróki til heimilis að Hátúni 10 B. Hún verður stödd á heimili sonar síns og tengdadóttur að Njörvasundi 3 í dag. 85 ára afmæli á í dag, 7. maí, Finn- bogi Helgason bóndi að Sólvöllum í Mosfellssveit. Finnbogi dvelur um þessar mundir á Heilsuhæli NLFÍ í Hveragerði. 90 ára er í dag, 7. maí, Friðrik Arna- son, fyrrverandi hreppstjóri á Eski- firði. Kona hans var Elínborg Þorláksdóttir, en hún lést fyrir all- mörgum árum. Börn þeirra voru 9 og eru 8 þeirra á lífi. Friðrik gegndi ýmsum trúnaðarstörfum á Eskifirði og var t.d. hreppstjóri í 40 ár, eða frá 1934 til 1974, þegar Eskifjörður hlaut kaupstaðarréttindi. Árið 1976 var Friðrik gerður að heiðursborgara á Eskifirði og er hann eini Eskfirðing- urinn sem hlotnast hefur sá heiður. Friðrik tekur á móti gestum í Félags- heimilinu Valhöll í dag frá kl. 17. Leiðrétting I frétt blaðsins af framboðsmálum í Bessastaðahreppi í gær var haft eftir Erlu Jónsdóttur að hún byggist við að fleiri fylgdu Einari Ólafssyni í sér- framboð. Þar átti að standa að hún byggist ekki við að aðrir fylgdu hon- um. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.