Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1986, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1986, Blaðsíða 6
6 DV. MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ 1986. Peningamarkaðurinn Innlán með sérkjörum Alþýðubankinn: Stjörnureikningar eru fyrir 15 ára og yngri og 65 ára og eldri. Inn- stæður þeirra yngri eru bundnar þar til þeir verða fiillra 16 ára. 65-69 ára geta losað inn- stæður sínar með 9 mánaða fyrirvara, 70-74 ára með 6 mánaða fyrirvara og 75 ára og eldri með 3ja mánaða fyrirvara. Reikningamir eru ■ verðtryggðir og með 8% vöxtum. Þriggja stjörnu reikningar eru með hvert innlegg bundið í tvö ár, verðtryggt og með 9% nafnvöxtum. Lífeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá lífeyrissjóðum eða almannatryggingum. Inn- stæður eru óbundnar og óverðtryggðar. Nafnvextir eru 15% og ársávöxtun 15%. Sérbók. Við fyrsta innlegg eru nafnvextir 10% en 2% bætast við eftir hverja þrjá mán- uði án úttektar upp í 16%. Ársávöxtun á óhreyfðri innstæðu er 13,64% á fyrsta ári. Búnaðarbankinn: Sparibók með sér- vöxtum, Gullbókin, er óbundin með 13% nafhvöxtum og 13,4% ársávöxtun á óhreyfðri innstæðu eða ávöxtun 3ja mánaða verð- tryggðs reiknings reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast 0,75% í svonefnda vaxtaleið- réttingu. 18 mánaða reikningur er með innstæðu bundna í 18 mánuði á 14,5% nafnvöxtum og 15% ársávöxtun, eða ávöxtun 6 mánaða verð- tryggðs reiknings reynist hún betri. Iðnaðarbankinn: Bónusreikningar eru annaðhvort með 10,5% nafnvöxtum og 10,8% ársávöxtun eða verðtryggðir og með 3% vöxt- um. Hærri ávöxtunin gildir hvem mánuð. Á hreyfðum innstæðum gildir verðtrygging auk 1% vaxta í úttektarmánuðinum. Taka má út tvisvar á hveiju 6 mánaða tímabili án þess að vaxtakjör skerðist. Vextir em færðir 30.06. og 31.12. Landsbankinn: Kjörbók er óbundin með 13% nafnvöxtum og 13,4% ársávöxtun eða ávöxtun 6 mánaða verðtryggðs reiknings reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast 0,7% í svonefnda vaxtaleiðréttingu. 100 ára afmælisreikningur er verðtryggð- ur og bundinn til 15 mánaða. Vextir eru 7,25% og breytast ekki á meðan reikningurinn verð- ur í gildi. Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur hefur stighækkandi vexti á hvert innlegg, fyrst 8%, eftir 2 mánuði 8,25%, 3 mánuði 8, 50%, 4 mánuði 9%, 5 mánuði 9,5% og eftir 6 mánuði 12%, eftir 12 mánuði 12,5% og eftir 18 mánuði 13%. Sé ávöxtun betri á 3ja eða 6 mánaða verðtryggðum reikningum gildir hún um hávaxtareikninginn. 18 og 24 mánaða reikningar eru bundnir og verðtryggðir og gefa 7,5 og 8% vexti. Útvegsbankinn: Ábót ber annaðhvort hæstu ávöxtun óverðtryggðra reikninga í bankanum, nú 13%, eða ávöxtun 3ja mánaða verðtryggðs reiknings með 1% nafnvöxtum sé hún betri. Samanburður er gerður mánað- arlega en vextir færðir í árslok. Sé tekið út af reikningnum gilda almennir sparisjóðs- vextir, 8%, þann mánuð. Verslunarbankinn: Kaskóreikningur er óbundinn. Þá ársfjórðunga, sem innstæða er óhreyfð eða aðeins hefur verið tekið út einu sinni, eru reiknaðir hæstu vextir sparifjár- reikninga í bankanum. Nú er ársávöxtun annaðhvort 12,9% eða eins og á verðtryggðum 6 mánaða reikningum með 3% nafnvöxtum. Af úttekinni upphæð reiknast almennir spari- sjóðsvextir, 8,5%, og eins á alla innstæðuna innan þess ársfjórðungs þegar tekið hefur verið út oftar en einu sinni. Innlegg fær strax hæstu ávöxtun sé það óhreyft næsta heila ársQórðung. Vextir færast fjórum sinnum á ári og leggjast við höfuðstól. Þeir eru alltaf lausir til útborgunar. Sparisjóðir: Trompreikningur er verð- tryggður og með ávöxtun 6 mánaða reikninga með 3% nafnvöxtum. Sé reikningur orðinn 3ja mánaða er gerður samanburður á ávöxtun með svokölluðum trompvöxtum, 12,5%, með 13% ársávöxtum Miðað er við lægstu inn- stæðu í hverjum ársfjórðungi. Reynist trompvextir gefa betri ávöxtun er þeim mun bætt á vaxtareikninginn. Hreyfðar innstæður innan mánaðar bera trompvexti sé innstæðan eldri en 3ja mánaða, annars almenna spari- sjóðsvexti, 8%. Vextir færast misserislega. 12 mánaða reikningur hjá Sparisjóði vél- stjóra er með innstæðu bundna í 12 mánuði, óverðtryggða en á 15,5% nafnvöxtum. Þeir eru færðir einu sinni á ári og ársávöxtun ev því einnig 15,5%. 18 mánaða reikningar. Nokkrir stærri sparisjóðanna eru með innstæðu bundna óverðtiyggða í 18 mánuði en á 14,5% nafn- vöxtum og 15,2% ársávöxtun. Spariskírteini Spariskírteini Ríkissjóðs íslands eru seld í Seðlabankanum, viðskiptabönkum, sparisjóð- um, hjá verðbréfasölum og í pósthúsum. Nýjustu skírteinin eru að nafnverði 5, 10 og 100 þúsund krónur, nema vaxtamiðabréf sem eru 50 þúsund að nafnverði. Þau eru: Hefðbundin, til mest 14 ára. Með þriggja ára binditíma eru ársvextir 7%, fjög- urra ára 8,5% og sex ára 9%. Verðbætur, vextir og vaxtavextir greiðast með höfuðstól við innlausn. Með vaxtamiðum, til mest 14 ára, innleysanleg eftir fjögur ár. Ársávöxtun er 8,16% á verðbættan höfuðstól hverju sinni og vextir greiðast út 10.01. og 10.07. ár hvert. Við innlausn greiðast verðbætur með höfuð- stól. Gengistryggð skírteini eru til fimm ára. Þau eru bundin safngjaldeyrinum SDR (til- tekin samsetning af dollar, pundi, yeni, þýsku marki og frönskum franka). Vextir eru 8,5%. Höfuðstóll, vextir og vaxtavextir greiðast í einu lagi við innlausn. Almenn verðbréf Fasteignatryggð verðbréf eru til sölu hjá verðbréfasölum. Þau eru almennt tryggð með veði undir 60% af brunabótamati fasteign- anna. Bréfin eru ýmist verðtryggð eða óverðtryggð og með mismunandi nafnvöxtum. Þau eru seld með afföllum og ársávöxtun er almennt 12 16% umfram verðtryggingu. Húsnæðislán Nýbyggingarlán frá Byggingarsjóði ríkis- ins, F-lán, nema á 1. ársfjórðungi 1986: Til einstaklinga 782 þúsundum króna, 2 4 manna fjölskyldna 994 þúsundum, 5 manna óg fleiri 1.161 þúsundum, 7 manna og fleiri (í sértilvik- um) 1.341 þúsundum. Lánin eru til 31 árs. Lán til kaupa á eldri íbúðum, G-lán, nema á 1. ársfjórðungi 1986: Til kaupa í fyrsta sinn er hámark 391 þúsund krónur til einstakl- ings, annars mest 195 þúsund. 2-4 manna fjölskylda fær mest 497 þúsund til fyrstu kaupa, annars mest 248 þúsund. 5 manna fjöl- skylda eða stærri fær mest 580 þúsundir til fyrstu kaupa, annars mest 290 þúsund. Láns- tími er 21 ár. Húsnæðislánin eru verðtryggð með láns- kjaravísitölu og með 3,5% nafnvöxtum. Fyrstu tvö árin er ekki greitt af höfuðstól, aðeins vextir og verðbætur. Útlán lífeyrissjóða Um 90 lífeyrissjóðir eru í landinu. Hver sjóður ákveður sjóðfélögum lánsrétt, lánsupp- hæðir, vexti og lánstíma. Stysti tími að lánsrétti er 30 60 mánuðir. Sumir sjóðir bjóða aukinn lánsrétt eftir lengra starf og áunnin stig. Lán eru á bilinu 150-1000 þúsund eftir sjóðum, starfstíma og stigum. Lánin eru verð- tryggð og með 5% vöxtum. Lánstími er 15-42 ár. Biðtími eftir lánum er mjög breytilegur. Hægt er að færa lánsrétt við flutning milli sjóða eða safna lánsrétti frá fyrri sjóðum. Nafnvextir, ársávöxtun Nafnvextir eru vextir í heilt ár og reiknað- ir í einu lagi yfír þann tíma. Séu vextir reiknaðir og lagðir við höfuðstól oftar á ári verða til vaxtavextir og ársávöxtunin verður þá hærri en nafnvextimir. Ef 1000 krónur liggja inni í 12 mánuði á 10% nafnvöxtum verður innstæðan í lok tíma- bilsins 1100 krónur. Ársávöxtunin verður því 10%. Sé innstæðan óverðtryggð í verðbólgu dregur úr raunávöxtun sem því nemur og hún getur jafnvel orðið neikvæð. Liggi 1000 krónurnar inni í 6 + 6 mánuði á 10% nafnvöxtum reiknast fyrst 5% vextir eft- ir 6 mánuði. Þá verður upphæðin 1050 krónur og ofan á þá upphæð leggjast 5% vextir seinni 6 mánuðina. Á endanum verður innstæðan því 1.102,50 og ársávöxtunin 10,25%. Dráttarvextir Dráttarvextir eru frá 01.04.1986 2,25% á mánuði eða 27% á ári. Vísitölur Lánskjaravísitala í maí 1986 er 1432 stig en var í mars 1428 stig, í febrúar 1396 og jan- úar 1364 stig. í apríl var hún 1425 stig. Miðað er við gmnninn 100 í júní 1979. Byggingarvísitala á 2. ársfjórðungi 1986 er 265 stig á grunninum 100 frá 1983 en 3924 stig á gmnni 100 frá 1975. Húsaleiguvísitala hækkaði um 5% 01.04. en um 10% næst þar áður, frá 01.01. Þessi vísitala mælir aðeins hækkun húsaleigu þar sem við hana er miðað sérstaklega í samning- um leigusala og leigjenda. VEXTIR BANKA 0G SPARISJÓÐA (%) 01 -10.05. 1986 INNLÁN MEÐ SÉRKJÖRUM ■h i SJA sérlista ll 33 mínií 3l 13 ll íl INNLÁN ÓVERÐTRYGGD SPARISJÖÐSBÆKUR Úbundin innstæða 9.0 9.0 8.0 8.5 8.0 9.0 8.5 8.5 8.5 8.0 SPARIREIKNINGAR 3ja mán uppsögn 10.0 10.25 10.0 9.0 8.5 10.0 8.5 9.0 10.0 9.0 6 mán. uppsögn 12.5 12,9 12.5 9.5 11.0 10,0 10.0 12.0 10.0 12mán.uppsögn 14.0 14.9 14.0 11.0 12.6 12.0 SPARNAÐUR - LANSRÉTTUR Sparað 3-5 mán. 13.0 13,0 8.5 10,0 8.0 9.0 10,0 9.0 Sp.Gmán.ogm. 13.0 13.0 9.0 11.0 10.0 10.0 TÉKKAREIKNINGAR Avisanareikningar 6.0 6.0 2.5 3.0 4.0 4,0 3.0 3.0 3.0 Hlaupareikningar 4.0 3.0 2.5 3.0 4.0 4.0 3.0 3.0 3.0 INNLÁN VERÐTRYGGÐ SPARIREIKNINGAR 3ja mán. uppsögn 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 6 mán.uppsögn 3.5 3.0 2.5 2.5 3.5 2.5 3.0 3.0 3.0 innlAn gengistryggð GJALDEYRISREIKNINGAR Bandarikjadollarar 8.0 7.5 6.0 6.0 6.0 6.5 6.25 7.0 6.25 Sterlingspund 11.5 11.5 9.5 9.0 9.5 10.0 10.0 11.5 9.5 Vestur-þýsk mörk 4.5 4.0 3.5 35 3.5 3,5 3.5 3.5 3.5 Danskar krónur 8.0 9.5 7.0 7.0 7.0 7.5 7.0 7.0 7.0 ÚTLÁN ÓVERÐTRYGG0 ALMENNIRViXLAR (forvextir) 15.25 15.25 15.25 15,25 15.25 15,25 15,25 15.25 15,25 VIÐSKIPTAViXLAR 3} (forvextir) kge 19.5 kge 19,5 kge kge kge kge ALMENN SKULDABRÉF 2) 15.5 15,5 15,5 15.5 15,5 15,5 15.5 15,5 1S.5 VIÐSKIPTASKULDABRÉF 3) kge 20,0 kge 20,0 kge kge kge kge HLAUPAREIKNINGAR YFIRDRATTUR 9.0 9,0 9.0 9.0 7.0 9.0 9.0 9.0 9.0 ÚTLÁN VERÐTRYGGÐ SKULDABRÉF Að 21/2 ári 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 Lengri en 21/2 ár 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 ÚTLÁN TIL FRAMLEIÐSLU SJÁNEÐANMÁLSt) 1) Lán til framleiðslu á innanlandsmarkað eru á 15,0% vöxtum. Vegna útflutn- ings, í SDR 8%, í Bandaríkjadollurum 8,25%, í sterlingspundum 11,5%, í vestur- þýskum mörkum 6%. 2) Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs vanskilalána er 2%, bæði á verðtryggð og óverðtryggð lán. 3) Við kaup á viðskiptavíxlum og viðskipta- skuldabréfum, á þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge, hjá þeim bönkum sem þannig er merkt við, einnig hjá flestum stærstu sparisjóðunum. Viðskipti Viðskipti Viðskipti Einingahúsafyrirtækin klóra í bakkann: Byggja sumar bústaði Islensk einingahúsaíyrirtæki smíða nú aðallega sumarbústaði en ekki íbúðarhús vegna þess mikla samdrátt- ar sem orðið hefur í byggingariðnaði á undanfómum mánuðum. Aðilar í þessum rekstri, sem DV hafði samband við, vom þó vongóðir um að brátt yrði aftur farið að smíða íbúðarhús. Salan á einingahúsum væri i takt við fasteignamarkaðinn yfirleitt og hann ætti eftir að lifna við með nýju hús- næðislánunum. Sumarbústaðir Knútur Jónsson, skrifstofustjóri hjá Húseiningum hf. á Siglufirði, sagði að lítið væri af samningum um smíði á - ekki íbúðartiús íbúðarhúsum. Verið væri að smíða sumarbústaði í staðinn. Fyrirtækið heíði þreifað fyrir sér með útflutning á einingahúsum og væm viðræður í gangi við bæði Grænlendinga og Fær- eyinga. Taldi Knútur viðræðumar við Grænlendinga vænlegar til árangurs. Hvað innlendan markað snerti þá væm menn vongóðir að úr rættist fljótlega. “Við erum tilbúnir í slaginn ef þetta fer í gang aftur,“ sagði Knút- ur JÓnsson. Hjá Húseiningum störfúðu 30 manns í fyrra en nú vinna þar 12 manns. Lítið að gera Guðmundur Sigurðsson hjá S.G. ein- ingahúsum á Selfossi sagði að lítið væri að gera. Aðeins hefðu verið af- greidd tíu einingahús á þessu ári sem væri mikill samdráttur. Fyrirtækið legði þvi miklu meiri áherslu á að smíða sumarbústaði. Minni innflutningur Undanfarin ár hefur líka dregið vemlega úr innflutningi á einingahús- um. Hámarki náði þessi innflutningur árið 1982 en það ár vom flutt inn ein- ingahús að verðmæti 88 milljónir króna á verðlagi ársins 1985. Verð- mæti innflutningsins á árinu 1985 var hins vegar aðeins um 5,2 milljónir króna. -EH Það er orðið sjaldséð að sjá menn vinna við að setja upp einingahús. Þessa dagana er verið að hlaða múrsteini utan á einingahús sem nýlega var sett upp við Jöldugróf í Reykjavik. Benetton blómstrar Á meðan setið er á rökstólum um hvaða ráðstafanir eigi að gera til a,ð bjarga íslenska ullariðnaðinum blómstrar Benetton, ítalska ullarfyrir- tækið. Fyrirtækið hefur á fáum árum slegið í gegn í flestum löndum heims með ullarfatnaði sínum. Jókst hagn- aður fyrirtækisins um 140% á síðasta ári. Hagnaður fyrirtækisins í fyrra var 64 milljónir dollara eða 2688 milljónir króna. Til samanburðar má nefria að tekjur Islendinga af útflutningi á ull- arvörum í fyrra voru 1100 milljónir. Heildarvelta Benetton nam 587 millj- ónum dollara í fyrra sem er rúmlega 24 milljarðar íslenskra króna. Benetton ullarkeðjan var upphaf- lega var lítið fjölskyldufyrirtæki en rekur nú verslanir í 57 löndum. 60% af veltu fyrirtækisins verða til utan Ítalíu. Úr ullinni framleiðir Benetton alls konar ullarvörur svo sem peysur, kjóla, trefla, og húfur, allt vörur í skærum litum og mynstrum sam- kvæmt nýjustu tísku. Nú er stefnt er að því að setja Ben- etton ullarvörur á markað í Kína, árs verði í kringum 67 milljónir doll- Indlandi og í Austur-Evrópu. Fyrir- ara og tekjur 660 milljónir dollara. tækið reiknar með að hagnaður þessa -EH Benetton ullarkeðjan teygir anga sina til íslands. Þijár Benetton búðir eru starf- andi í Reykjavík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.