Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1986, Qupperneq 5

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1986, Qupperneq 5
LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1986. 5 Stjómmál Jóhanna vill rannsaka tannlækna- þjónustu Jóhanna Sigurðardóttir og tveir aðr- ir þingmenn Alþýðuflokksins, Magnús H. Magnússon og Kolbrún Jónsdóttir, hafa lagt fram þingsályktunartillögu um könnun á tannlæknaþjónustu. „Markmið þessarar tillögu er að láta fara fram könnun á þvi hve oft ein- stakir aldurshópar í þjóðfélaginu notfæri sér tannlæknaþjónustu og enn ffemur útgjöld íjölskyldna og einstakl- inga af þeim sökum,“ segja flutnings- menn í greinargerð. Segja þeir að eftir upplýsingum, sem fengjust úr slíkri könnun, mætti ákveða hvaða leiðir ætti að fara til að auka tannvemd og fyrirbyggjandi aðgerðir og þar með draga úr tann- læknakostnaði. Einnig myndu þær upplýsingar auðvelda allar ákvarðanir um ffekari þátttöku hins opinbera í tannlæknakostnaði. Þá benda flutningsmenn á að skort- ur á upplýsingum hafi torveldað lausn þeirra samninga, sem lengi hafi staðið yfir við tannlækna. -KMU Kvikmynda- gerðarmenn í skólanefnd „Ulgangur með lagafrumvarpi þessu er að heimila fulltrúum kvikmynda- gerðarmanna setu í skólanefnd Leik- listarskóla íslands og auka þannig bein áhrif kvikmyndalistar á námstil- högun og menntun leiklistamema," segir í greinargerð með stjómarfrum- varpi um breytingu á lögum um Leiklistarskóla Islands. Lagt er til að Samband íslenskra kvikmyndaframleiðenda og Félag kvikmyndagerðarmanna tilnefni hvort sinn fulltrúa. Lagafrumvarpið gerir einnig ráð fyr- ir því að fulltrúi sjónvarpsdeildar Ríkisútvarpsins og fulltrúi Félags ís- lenskra leikstjóra fái sæti í skólanefnd. -KMU Kartóflugjald verði afnumið Tveir varaþingmenn Sjálfstæðis- flokksins, Jón Magnússon og Bessí Jóhannsdóttir, hafa lagt ffam á Al- þingi lagafrumvarp um að sérstakt jöfhunargjald af innfluttum kartöflum og vörum unnum úr þeim verði afhum- ið. Flutningsmenn segja að afleiðing- arnar af álagningu vömgjaldsins hafi orðið þær að verð á þessum vörum hafi stórhækkað til neytenda og fram- færsluvísitala hafi hækkað svo að hún fór ffam úr viðmiðunarmörkum kjara- samninga með þeim afleiðingum að aukaútgjöld atvinnurekenda hafi orð- ið um 200 milljónir króna. -KMU SUNNY BÍLASYNING Á REYÐARFIRÐI HJÁ BIFREIÐAVERKSTÆÐINU LYKLI OG MELAVÖLLUM VIÐ RAUÐAGERÐI laugardag og sunnudag kl. 14-17 báða dagana. ;|| INGVAR HELGASON HF IIH Sýningarsalurinn/Rauðagerði, simi 33560.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.