Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1986, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1986, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1986. GiinterWa Þýski blaðamaðurinn Giinter Wallraff hefur öðlast mikla frægð fyrir að dulbúast sem tyrkneskur far- andverkamaður og kynna sér af eigin raun lífskjör þeirra manna sem kvað minnstrar virðingar njóta í Þýska- landi. Wallraff fékk „lánað“ nafn manns af tyrkneskum uppruna og gekk í gegnum reynslu sína undir nafninu Ali. Hann auglýsti eftir vinnu sem útlendingur sem gerði ekki miklar kröfur. Hann hafði eftir það úr næg- um óþrifaverkum að velja. Um reynslu sína hefur Wallraff skrifað bók sem vakið hefur mikla athygli, bæði í heimalandi hans sem og víða um heim. Hún er nú komin út i íslenskri þýðingu undir nafninu Niðurlægingin. Wallraff er staddur hér á landi og hefur rætt á opinberum fundum um reynslu sína. Með bók sinni hefur Wallraff vakið athygli landa sinna á kjörum tyrkneskra verkamanna og hleypt af stað mikilli umræðu um þau mál. Aðferð Wallraffs hefur einnig orðið til að vekja enn frekari athygli á vandamálinu. Hann segir í bókinni: „Maður verð- ur að dulbúa sig til þess að geta afhjúpað samfélagið, maður verður að villa á sér heimildir til þess að finna sannleikann." Með þetta að leiðarljósi hefur Wallraff lagt á sig allt það e'rfiði og allar þær hættur sem tyrkneskir verkamenn standa dag hvem frammi fyrir í Þýskalandi. I I Wallraff hefur áður beitt þessum aðferðum í rannsóknarblaða- Notaöir bílar í séiflokki! Fiat Uno 451984, ekinn 50.000 km, toppbíil. Verð kr. 200.000,- útb. 70.000,- eftirst. til 10 mán. Ch. Impala 1978, V8 305, sjálfsk., vökva- og veltistýri. Mjög góður bíil. Verð kr. 280.000,- útborgun 50.000,- eftirst. til 18 mán. Peugeot 504 GR, dísil, 1979. Mjög góður og ódýr dísilbill á aðeins kr. 150.000,- útborgun 30.000,- eft- irst. á 12 mán. Dodge Omni Custom 1979, 4 cyl., framdrifinn, sjálfsk., vökvastýri, litað gler o.fl. Verð kr. 165.000,- útb. 50.000,- eftirst. á 10 mán. Talbot Horizon 1980. Einn eigandi frá upphafi, ekinn 101.000 km og i fínu standi. Verð aðeins 110.000,- 30.000,- út, eftirst. til 10 mán. Mazda 62616001981, sérlega fall- egur. Verð kr. 200.000,- útb. 70.000,- eftirst. til 10 mán. Nissan Bluebird 1981, ekinn 82.000 km, sjálfskiptur, útvarp/ segulband. Verð kr. 230.000,- útb. 80.000,- eftirst. til 10 mán. Fiat 127 1985, gullfallegur frúar- bíll. Verð kr. 210.000,- útb. 70.000,- eftist. til 10 mán. Ch. Nova, 2ja dyra, 1978, V8 305, sjálsk., vökva- og veltistýri, rafm. rúður og -læsingar o.fl. Verð kr. 250.000,- útb. 70.000,- eftirst. til 10 mán. Toyota Tercel 4 WD 1983, ekinn aðeins 51.000 km, hvitur, með aukamælum, toppeintak. ■ PEUGEOT Nýbýlavegi 2 - Kópavogi - Sími 42600 ) SKODA CZflct) ^cmec' ichryslerI JÖFUR hf mennsku sinni. M.a. vöktu skrif hans um starfshætti á þýska blaðinu Bild mikla athygli fyrir nokkrum' árum. Hér á eftir fer kafli úr bók Wallr- affs þar sem hann segir frá hvemig tyrkneskir verkamenn eru notaðir við viðhald og viðgerðir í kjarnorku- verum þar sem veruleg hætta er á geislun. -GK Geislunin - kaf li úr bók Gunters Wallraffs Eiginlega á ég (Ali) að fara í vinnu i kjarnorkuverinu Wurgassen, elsta kjamorkuveri landsins-í notkun frá 1971 - sem þarfnast mjög viðgerðar. Það er verið að leita að áreiðanleg- um möimum til þess að framkvæma árlega yfirferð. Sérstaklega er sóst eftir útlendingum, einkum Tyrkjum. Ég reikna með að það sé vegna þess, hversu hreyfanlegir þeir eru. Það eru ekki til neinar nákvæmar vísindalegar rannsóknaniðurstöður í Sambandslýðveldinu á langtima- áhrifum tíðra en lítilla geisla- skammta. Flestir útlendingarnir, sem vinna í kjarnorkuvemnum við hreinsun og viðgerðir í hita og við afar geislavirkar aðstæður, koma ekki fram í skýrslum árum eða ára- tugum síðar þegar þeir gætu verið orðnir sjúkir eða jafnvel látnir vegna krabbameins í eistum, blöðruháls- kirtli eða skjaldkirtli. Þá búa þeir í öðrum borgum eða eru famir aftur heim til sin og enginn spyrst fyrir um það, hvort þeir hafi unnið tiltölu- lega létta og hreinlega vinnu mörgum árum áður í nokkra daga, vikur eða mánuði í þýsku kjarnorku- veri. Þeir sem reka kjamorkuverin hafa einmitt af þessari ástæðu áhuga á að komast af með tiltölulega fá- mennan hóp eigin fastra starfs- manna. Til þess hins vegar að vinna hættulegustu verkin fá þeir undir- verktaka til þess að útvega sér nýja menn með litlum fyrirvara, sem fá á nokkrum tímum eða dögum, jafnvel stundum sekúndum hámarksgeisla- sksunmt fyrir árið, 5000 millirem. Ég leitaði upplýsinga um þetta hjá tyrk- neskum og þýskum verkamönnum, sem gáfu sig í þetta fyrir 10 mörk á tímann (framburðir þeirra og upplýs- ingar liggja fyrir í eiðsvörnu formi). Einn fyrrverandi verkamaður segir frá: „Þegar slys verða þá eru Tyrk- irnir kallaðir til. Þeir eru sendir inn á hættusvæðið og eru þar þangað til þeir hafa náð 5000 milliremum. Það getur tekið nokkra klukkutíma en stundum aðeins mínútur eða jafnvel sekúndur. Félagarnir kalla þetta „upphitun“. „Yfirleitt eru þeir sem þetta á við útilokaðir frá vinnu það sem eftir er ársins. „En það eru til leiðir," segir einn mér, „til þess að fá vinnu einhvers staðar annars staðar áfram.“ Hvernig, það fæst hann ekki til að útskýra. „Þá fæ ég hvergi aðra vinnu.“ Til þess að komast sjálfur að því hvernig ástandið er býð ég (Ali) mig fram til slíkrar lífshættulegrar vinnu í Wúrgassen. Vandamálið er, að fyrst fer fram öryggisrannsókn. Ég gaf upp nafn og heimilisfang tvífara míns svo og alla dvalarstaði undanfarin tíu ár svo að öryggisyfirvöld geti byrjað rannsókn sína. Tölvan þarf að taka á „flísminni“ sínu: Þátttaka í mót- mælafundum? Önnur starfsemi? Rannsóknarlögregla Sambandslýð- veldisins er líka kölluð til leiksins. Yfirleitt tekur slík rannsókn sex vik- ur, í flóknum undantekningartilvik- um allt upp í þrjá mánuði. í mínu tilviki - þ.e.a.s. tvífara míns - virðist ítarleg rannsókn eiga sér stað, í það minnsta er ekki komin nein niður- staða tveim mánuðum síðar, hvorki jákvæð né neikvæð. Yfirleitt er ástæðunnar að leita í sumarleyfum. En drátturinn kemur sér í það minnsta vel fyrir mig, ég ákveð að standa að þessu á annan hátt en upphaflega var ætlunin. (Kunningi minn, röntgenlæknir og sérfræðing- ur í geislun, sem ég hafði leitt í allan sannleika um áætlun mína um að fara sem Tyrki í geislunina í kjarn- orkuveri, varar mig eindregið við. Heilsufarsástand mitt væri þegar orðið allbágborið eftir að ég hafði fengið þrálátt lungnakvef af rykinu hjá Thyssen og almennt heilsufarsá- fall eftir lyfjatilraunina. Hann lelur afar sennilegt, að geislun við þessar aðstæður hefði varanlegt heilsutjón í för með sér.) Þótt ég sé engan veginn geislandi af orku og lífsfjöri - þvert á móti finnst mér ég vera nánast búinn að vera þar sem ég hef lifað mig svo mjög inn í hlutverk mitt og það von- leysi, sem er hlutskipti félaga minna og vina hefur haft síversnandi og æ meira niðurdrepandi áhrif á mig - þá er ég samt hræddur við hægfara dauða vegna krabbameins af völdum geislunar, sem gæti haft í för með sér margra ára dauðastríð. „Þetta gæti gert út af við þig,“ hafði vinur minn, röntgenlæknirinn sagt við mig til viðvörunar. Ég viðurkenni því, að í þessu efni er ég smeykur og held mig utan við í skjóli forréttinda. Hundr- uð og jafnvel þúsundir erlendra verkamanna, sem slík vinna stendur til boða, neyðast hins vegar til að taka slíkri vinnu jafnvel þótt þeir leggi þar með heilsu sína og jafnvel líf í hættu og jafnvel þótt heilsufar þeirra sé mun verr komið en mitt. Það sem blekkir er einmitt, að þessi vinna krefst ekki líkamlegs erfiðis, þannig að jafnvel sjúkir, gamlir og útslitnir treysta sér í þetta. Auk þess er útlendingum alls ekki gerð grein fyrir þeirri hættu, sem af þessari starfsemi getur hlotist. Þegar ég (Ali) óskaði eftir vinnu þessari og spurði hreint út: „Er þessi vinna ekki hættuleg?" þá var mér svarað af starfsmannastjóranum: „Ekki frekar en önnur iðnaðarvinna!" Nokkrar lýsingar vitna sýna best hvernig vinnan fer fram í Wúrgass- en. Frank M., verkstjóri í Wúrgassen: „Annars er þetta vinna, þar sem maður þénar vel. Sem verkstjóri fékk ég síðast 2500 mörk nettó. Hins vegar mundi ég aldrei vinna hér lengur en fimm ár. Nema ég missti vinnuna. Eftir fimm ár skrifa ég mig frekar atvinnulausan. Geislunin er allt of há þarna og verið er of gamalt. Þetta er kjarnakljúfur þar sem notað er sjóðandi vatn í stað háþrýstings og þess vegna er geislunin meiri en ella. Samkvæmt mínu áliti er hver einasti kaffibolli geislavirkur. Bara við það að fara inn í verið fær maður 10 millirem á dosimeter, áður en maður byrjar að vinna.“ Dosimeter er mælitæki, sem allir á „heita svæðinu" verða að hafa á sér. Það sýnir geislunina, sem kemur fram á einum degi á vinnusvæðinu. Af ótta við að menn geti ekki náð nógu miklum tímafjölda er oft fiktað við þessi tæki. Einn fyrrverandi verkamaður í Wúrgassen segir: „Þetta er sjálfseft- irlit. Þú leggur dosimeterinn einfald- lega frá þér, t.d. í skápinn þinn, enginn tekur eftir því. Enginn skipt- ir sér af því. Allan þann tíma sem ég vann í Wúrgassen var ég aldrei spurður um tækið. Þar sem ekkert mælitæki er, þar er heldur ekki hægt að mæla neitt með því... Ég hef heyrt um dálítið sem gerðist hjá und- irverktakafyrirtækinu Reinhold & Mahler: Þeir voru með hóp af Júgó- slövum í vinnu hjá sér, eitthvað sextán manns. Þeir voru allir ólög- legir, voru ekki með neina pappíra. Þetta með öryggiseftirlitið er nú ekki alltaf tekið svo alvarlega. Þegar það fréttist var þeim öllum kurteislega sagt að fara. Til dæmis í Grohnde, þar eru svona kannski tuttugu pró- sent suðumannanna, sem þar vinna, Þjóðverjar. Hinir eru útlendingar.“ Og Frank M. heldúr áfram: „Undirverktakafyrirtækið okkar hefur um það bil 2500 manns í vinnu. Þar af eru í það minnsta 1500 útlend- ingar. Þeir vinna sitt verk og þegar eftirlitinu er lokið þá er þeim sagt upp. Flestir eru aðeins tvær til þrjár vikur. Það eru þeir, sem verða fyrir mestri geislun. Þeir koma og fá svo og svo mikla geislun. 1 fyrirtækinu, þar sem ég vinn, eru verkstjórar við byggingavinnu og þeir eru yfirleitt lengur í starfi. Allir hinir eru stutt. Þegar þeir hafa vinnusamning vegna

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.