Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1986, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1986, Blaðsíða 17
LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1986. 17 skammtíma verkefnis, til dæmis vegna eftirlits og hafa fengið í sig ársfjórðungsgeislaskammt á innan við tveim vikum, segir geislaeftirlitið í verinu, að þeir fái ekki að koma aftur inn og þá er þeim sagt upp. Við höfum marga Tyrki, sem koma hing- að fljúgandi til þess eins að vinna í stuttan tíma og eru þá fluttir flug- leiðis heim til sín aftur, þegar þeir hafa fengið fullan geislaskammt. Þegar þörf er á suðumönnum, og þeir verða að vinna á geislasvæði þar sem skammturinn á klukkutíma gæti verið svona 1000 millirem, þá vinna þeir í tvo tíma og síðan eru þeir send- ir heim og aðrir taka við. Þeir sem við taka vinna líka í tvo tíma og fá 2000 og fara aftur heim. Og enn er skipt um menn þangað til verkinu er lokið. Yfirleitt gengur þetta þannig fyrir sig: útlendu verkamennimir vita ekki hvers vegna þeir verða að hætta eftir tvo daga eða tvo tíma. Þeini er aðeins sagt: þið megið ekki vinna lengur. Þá verða þeir að fara.“ Frank M. getur sagt frá því hvern- ig unnið er við hreingerningu á kjarnakljúfssvæðinu: „Þegar slökkt er á verinu þá er venjulega skipt um þrjátíu prósent af brennslukjörnunum. Þeir eru sett- ir í geymslukerið. Þar eru þeir hafðir í eitt ár meðan geislunin er að minnka. Þegar skipt er um kjamana er það gert í vatni og menn frá okk- ur verða að vera við og halda gólfmu kringum kerið hreinu til þess að óhreinindin (geislavirk óhreinindi, G.W.) berist ekki um allt verið. Svo stendur einn við barminn á kerinu og annar heldur í hann, bundinn með línu. Ef einhver dettur í vatnið verð- ur að ná honum upp innan 10 sekúndna af því að það er ekki hægt að synda í þessu vatni.“ Og júgóslavneski verkamaðurinn Dragan V.: „Mér var ekkert sagt um geislunar- hættu þegar ég var ráðinn. Mér var aðeins sagt, að ársfjórðungsskammt- urinn væri 2500 millirem og árs- skammturinn 5000 millirem. Meira var ekki sagt. Hve hættulegt og hvort þetta væri hættulegt, um það var ekkert sagt.“ 20. ágúst 1982 urðu fjórtán verkamenn frá utanaðkom- andi fyrirtækjum fyrir það mikilli geislun, að það varð að flytja þá á sjúkrahús í Dússeldorf. Þeir voru að skipta um svonefhdar „sandsíur" i lofthreinsikerfmu og urðu þá fyrir mikilli geislun. Stjórn versins skip- aði svo fyrir, að ekkert mætti fréttast um þennan atburð. Skýrsla verka- manns eins, sem var vitni að þessu slysi í Wúrgassen: „Ég er alltaf hræddur þegar ég er þarna inni að vinna. Sérstaklega eft- ir slysið. Fyrst settu þeir á tíma- bundna lokun. Þá urðu menn að vinna hálftíma áfram inni. Og svo allt í einu: allsherjarlokun. Slípar- arnir okkar voru sjö metra niðri. Aðrir sátu í stigahúsinu. Inn af því er eitt herbergi - þangað leitaði allur óþverrinn. I þessu herbergi voru þeir með verkfærakassana sína og leiðslur lágu þaðan út og þess vegna voru dyrnar opnar. Enginn tók eftir því fyrr en allsherjarlokunin skall á. Þeir ætluðu að fara út um sjálf- virku dyrnar, gegnum mælitækin (sem mæla geislunina, G.W.) Þá kom í ljós, að þeir höfðu allir orðið fyrir geislun. Þá byrjaði það: Þeir urðu að fara í sturtu aftur og aftur en það breytti engu. Við hinir vorum komnir út en þeir voru enn í sturtunum. Þeir voru í sturtunum til klukkan þrjú eftir hádegi og burstuðu húðina rækilega. Frá hálftólf. Og svo komu þeir aftur út. Við fórum aftur inn rétt fyrir þrjú. Þá gátum við hafið vinnu að nýju. Aðeins vélasalurinn og teinainn- keyrslan voru lokuð áfram. Næsta dag, laugardag, fórum við aftur í vinnu, til að ná upp tímafjöldanum. Þá var kallað á okkur og okkur sagt að fara í sturtu aftur og vorum þar til hádegis. Og á mánudeginum vor- um við sendir til Dússeldorf, í geisl- unardeildina. En þeir gerðu ekkert annað en mæla. Og svo vorum við flestallir útilokaðir frá vinnu það sem eftir var ársins. Máttum ekki stíga fæti inn i verið.“ G#ÐJ#L GLEÐILEG JÓL Bestu jólagjafahugmyndir ársins: Bay Jacobsens heilsudýna og heilsukoddi. Fyrir fjölskylduna, vini eða þig sjálfan. Margir velja heilsudýnu Bay Jacobsens vegna baksins og þeir eru svo sannarlega ánægðir með hina frábæru eiginleika dýnunnar. En sífellt fleiri velja Bay Jacobsens heilsudýnu og kodda til þess að fá góðan næt- ursvefn svo að þeir geti vaknað hressir og úthvíldir. Heilsudýn- an inniheldur 80.000 litlar kúlur sem einangra gegn kulda neð- anfrá. Þær halda likamshitanum stöðugum alla nóttina. Auk þess verka þær sem nudd á líkamann og hafa þannig frískandi áhrif. Það er vísindalega sannað að nuddáhrif dýnunnar koma i staðinn fyrir helminginn af þeim hreyfingum sem maður annars framkvæmir að næturlagi til þess að finna þægilega hvíldar- stellingu. Svefninn verður rólegri, dýpri og lengri án hinna mörgu truflana. Árangur: Maður er hress og úthvíldur næsta morgun. Dýnan er 3 cm þykk. Fáanlegar breiddir eru 70/80/90 cm. Lengdin passar i rúm sem eru 190-200 cm. Verð kr. 4.860,-. Heilsukoddinn styður fullkom- lega við hnakka og höfuð. Sérstaklega hannað loftrásar- kerfi tryggir þægileg, tempruð hitaáhrif alltárið. Verð kr. 1.960,- Hreiðrið hefur jólagjöfina i ár - « BAY JACOBSEN Hreiðrið hefur jólagjöfina i ár- heilsudýnuna og koddann - og það er 14 daga skilafrestur frá 24. desember. HREIDRIÐ gf Grensásvegi 12 Simi 688140-84660 Pósthólf 8312- 128 Rvk. Hvaða áhyggjusvipur er þetta eiginlega þótt bankarnir séu að loka? Farðu í HRAÐBANKANN með launatékkann þinn - eftir vinnu eða seinna f kvöld. Þú getur lagt upphæðina inn á tékkareikning eða sparireikning hvenær sem er. • Borgarspítalanum • Landsbankanum Breiöholti • Landsbankanum Akureyri o Landspitalanum • Búnaðarbankanum, aðalbanka • Búnaðarbankanum við Hlemm • Búnaðarbankanum Garðabæ • Sparisjóði Vélstjóra • Samvinnubankanum Háaleitisbraut • Útvegsbankanum Hafnarfirði • Sparisjóði Reykjavlkur og nágr. Skólavörðustlg • Sparisjóði Keflavlkur • Landsbankanum, aðalbanka. NOTAÐU SKYNSEMINA - NOTAOU HRAOBANKANN! AUK W. X2.11/SlA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.