Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1986, Page 9

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1986, Page 9
LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1986. 9 Ferðamál Verst af öllu að vera tekinn í græna hliðinu Fyrir þá sem eru alltaf „réttu meg- in“ við lögin er tollafgreiðsla við heimkomu ekkert mál. Þeir ganga bara í gegnum græna hliðið eins og ekkert sé og þannig á það auðvitað að vera. Mikil umræða er í gangi hér á landi vegna innkaupaferða til Skotlands og tollskoðun varðandi vaming sem fólk kaupir erlendis. Við erum ekki eina landið sem hefur reglur varðandi toll- frjálsan innflutning ferðamanna. Við rákumst á bráðskemmtilega grein í Business Traveller sem fjallar einmitt um þetta sama efrii, og koma hér á eftir punktar úr þeirri grein. Villt um fyrir tollurum Bent hefur verið á ýmsar leiðir fyrir fólk að fara til þess að villa um fyrir árvökulum tollvörðum. En það eru aðeins þeir heimsku og ábyrgðarlausu sem halda að þeir komist upp með að sleppa í gegnum tollhliðið með toll- skyldan vaming án þess að greiða af honum tilskilin gjöld. Þrátt fyrir mik- inn undirbúning og mikla uppfinn- ingasemi væntanlegra smyglara lengist alltaf listi þeirra sem kemst upp um og viðurlögin verða sífellt þyngri. Eitt af vandamálunum er að engin gulltryggð leið er til í gegnum nálar- augað fyrir smyglara. Margir hafa eflaust heyrt eftirfarandi ráðleggingar: Horfið ákveðið í augu tollvarðarins. (Einnig em til ráðleggingar um að forðast að líta í augu tollarans). Ræddu hátt um hjartveika frænda þinn á Akureyri. Vertu smekklega klæddur. Allar þessar ráðleggingar em til einskis. Það er aðeins eitt sem tollarar eiga sameiginlegt og það er áhugi þeirra á að ná í skottið á þeim sem em að smygla. Þar fyrir utan er ekki hægt að byggja á neinni samlíkingu um tollara, þeir em allir hver upp á sinn máta. Sumir em ungir og nýbyrjaðir í starfi. Þeir em líklegir til að stoppa farþega svona rétt til þess að æfa sig. Aðrir em gamlir í hettunni og stoppa farþega eftir tilfinningu sinni. Og það er aldrei að vita hvað kemur róti á þeirra tilfinningar. Á stórum flugvelli eins og á Heath- row í London fá tollverðir stundum viðvaranir frá leyniþjónustunni um líkur á að eitthvað sé að finna í ákveðnum farþegahóp sem er þá skoð- aður nánar við komuna til Heathrow. Rétturinn tollvarðanna megin En tollverðir hafa réttinn sín megin og þeir geta snúið við hvaða ferðat- ösku sem þeim dettur í hug og látið fólk bíða á meðan. Mörgum ferða- manninum finnst þetta óþolandi átroðningur tollaranna. Þeir halda statt og stöðugt fram sakleysi sínu (alveg sama þótt þeir séu það alls ekki) og þráast við eftir bestu getu. Ferða- menn ákæra tollara um kynþáttamis- rétti í von um að sleppa við tollskoðun. Þá er algengt að bera fyrir sig vel pökkuðum farangri, eða ákaflega við- kvæmum nærfatnaði kvenna. Þetta gerir bara allt verra viðureign- ar og er líklegra að herða á skoðun frekar en að ferðamaðurinn losni við hana. Aðeins tvö áhugamál Tollaramir eiga aðeins tvö áhuga- mál: að láta viðkomandi greiða toll og góma smyglarann. Engum vildu þeir frekar ná en einmitt þeim sem er að reyna að plata þá upp úr skónum. Þeir sem oft eru á ferðinni í við- skiptaerindum eru löghlýðnastir ferðamanna. Yfirmaður tollamála á Heathrow segir að 94% þeirra lendi aldrei í neinum vandræðum. Þeir þekkja allar reglur og einnig viðurlög- in gegn brotunum. Það eru aðallega þeir sem sjaldan ferðast sem lenda í mestum vandræð- um. Það eru þeir sem líklegastir eru til þess að verða gripnir kaupæði er- lendis og hugsi sér að reyna að komast með góssið í gegnum tollinn. Fáfræði er oft borið við, en þessi yfirmaður segir að það sé engin afsökun. Hann bendir á að ágæt þumalfingursregla sé að allt sem er í farangrinum þegar þú kemur heim en var þar ekki þegar þú fórst er líklegt til að vera tollskylt. Verst að vera tekinn I græna hliðinu Langsamlega verst þykir þegar fólk er tekið í græna hliðinu með tollskyld- an vaming. Margir reyna einnig að blekkja með því að fara í rauða hliðið og gefa upp eitthvað smávegis sem þeir vilji gjaman greiða toll af. Þeir gera það í þeirri trú að þá verði ekki leitað frekar hjá þeim því þeir séu „hafnir yfir allan grun“. Breskir þegnar mega hafa meðferðis ótollskyldan vaming sem keyptur er í löndum utan Efnahagsbandalagsins fyrir 28 pund (eða sem svarar 1628 ísl. kr.). Mjög flóknar reglur gilda um breska tollinn og því er ferðamönnum ráðlagt að fara í gegnum „rauða hlið- ið“, ef þeir em í einhveijum vafa um hvort þeir hafi tollskyldan vaming meðferðis Það er rétti staðurinn til þess að spyrjast fyrir. Fyrirspumir í græna hliðinu em verri viðureignar. Loks er í greininni sagt frá dæmum af óförum breskra ferðamanna við heimkomuna. Ferðamaður hafði með- ferðis frá Japan síðbuxur sem kostuðu 20 pund og perlufesti sem kostaði 1000 pund. Hann var „tekinn" i græna hlið- inu. Buxumar vom tollfrjálsar og sömuleiðis 8 pund af andvirði perlu- festarinnar. En vegna þess að viðkom- andi var sekur um að fara í gegnum rangt hlið með tollskyldan vaming vom perlumar teknar og ferðamaður- inn varð að velja á milli þess að láta málið fara fyrir dómstóla og fá háar sektir og greiða síðan 15% virðisauka- skatt og 4,9% toll af 992 pundunum eða gera sér að góðu að tollyfirvöld gerðu festina upptæka. -A.BJ. Ómögulegt er að vita fyrirfram hvernig tollarar bregðast við, en þeir eiga aðeins tvö áhugamál: að láta viðkomandi greiða toll og góma smyglara. VIÐ FLYTJUM... SKRIFSTOFU OKKAR AÐ UNMRGÖTU9A Mánudaginn 24. nóvember opnum viö sölu- deild, farmskrárdeild og afgreiöslu í auknu og endurbættu húsnæöi aö Lindargötu 9A. Önnur skrifstofustarfsemi flytur í næsta mánuði. Við viljum biöja viðskiptavini okkar velvirö- ingar á hugsanlegri röskun, á meðan flutn- ingunum stendur. í hinu nýja húsnæöi ætlum viö enn að bæta þjónustuna. SKIPADEILD SAMBANDSINS LINDARGÖTU 9A • SÍMI 28200 Það er minna mál að teppaleggja íbúðina en þig grunai Turbo-teppin frá JL-byggingavörum kosta aðeins 585 krónur fermetrinn, t.d. kostar að- eins 20.478 krónur að leggja teppi á 35 fermetra gólf, þ.e.a.s. 5118 krónur í útborgun og eftirstöðvar á 0 mánuðum Við erum útverðir húsbyggjenda vestast og austast í höfuðborginni Munið laugardagsmarkaðinn á Stórhöfða. JL-teppadeild: Hringbraut, sími 28600. OPIÐ KL. 8-18 VIRKA DAGA KL. 10 - 16 LAUGARDAGA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.