Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1986, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1986, Síða 11
LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1986. 11 | ,.ý ’.jj, 9 ilPif 3f Æ II- • .i& # jat- £& I -.CjJ Éfe>. L M r 'WBt ? W"\ "z ^ ' 'i f y y - #ilp p > * 1 jggwss- ^ DV-mynd GVA Gamamð i Glasgow Það hlýtur að vera gaman að fara til Glasgow og kaupa og kaupa fyrir nokkra tugi þúsunda og spara sér þannig fyrir ferðinni vegna mismun- ar á verði þar og hér. Fólk kemur síðan heim með úttroðnar töskur og poka. Það vonast til að þurfa ekki að borga mikla yfirvigt, og sleppur vel, þótt einhver yfirvigt sé greidd. Verðmunurinn er svo mikill, einkum á fatnaði. Fólk kaupir fatnað fyrir allt næsta ár. I leiðinni er í svona ferðum unnt að slappa af á kvöldin eftir þreytandi búðaráp yfir daginn, njóta þess sem útlandið býður um- fram Frón. Talað er um, að fatnaður sé 100-140 prósent dýrari hér heima. Fólk fer í innkaupaferðir einkum til Glasgow, London og Amsterdam. Nær því uppselt er í allar þessar ferð- ir til borga austanhafs. Innkaupa- ferðir fyrir jól hafa aldrei verið meiri en nú. Fólk kaupir einkum föt og jólavörur. Þessar ferðir kosta írá tólf þúsund- um króna og standa yfirleitt í þrjá daga. Hótel er innifalið. Þetta virð- ist í fljótu bragði vera hið mesta sport. En galli er á gjöf Njarðar. Haftamúrar Sumir eru gripnir í tollinum, þegar heim kemur. Þær dularfullu reglur gilda, að fólkið má aðeins kaupa fyrir sem svarar sjö þúsund krónum og koma með til landsins. Þama höfum við enn haftamúra. Sú var tíðin, að ferðafólk fékk sára- lítinn gjaldeyri. Það átti undir einhveijum nefhdum, hvort unnt væri að fá lús meira. Svo var lengi. Landsfeðumir hafa í einhveiju dreg- ið úr höftunum. Við mótmælum kröftuglega, þegar okkur finnst út- lendingar beita höftum. Við þykj- umst hálfheilagir aðilar að fríverzl- unarsamtökunum EFl’A, og við höfum fríverzlunarsamning við Efhahagsbandalag Evrópu. A fund- um með útlendum tölum við máli fríverzlunar og verðum vondir, ef upp kemst, að hinir útlendu hafa til dæmis styrkt einhverjar vörur, sem eiga í samkeppni við okkar vörur. Nú er unnt að fá gjaldeyri í bönkum, sem ætti að duga flestum, þegar far- ið er út fyrir landsteinana. Auk þess hefur mikill fjöldi fólks fengið sér greiðslukort, sem unnt er að nota erlendis í ríkum mæli nú orðið. Ætla mætti af öllu þessu, að íslenzkir ferðamenn geti vel leyft sér að kaupa allnokkum vaming og hafa með sér heim. En svo er ekki. Á íslenzkum stjómarskrifstofum sitja enn möppudýr kerfisins og reikna, hvað fólk megi koma með af vamingi til landsins. Það er í engu samræmi við tímann. Engu er líkara en ætlazt sé til, að ferðalan- gamir eyði öllum gjaldeyrisskammt- inum í gistingu, mat og vín. Þama er ýtt undir þá kenningu, að íslenzk- ir ferðamenn eigi helzt að vera fullir alla ferðina. Vaming mega þeir ekki kaupa, svo að heitið geti. Eins og einn ferðalangurinn sagði í viðtali við DV, þá hafði hún eytt sjö þúsund krónum í fríhöfninni, eða svo. Fólk reynir að plata kerfið með því að kaupa í tergum eins og Glasgow vaming fyrir 40-50 þúsund krónur. Fólk reynir að taka hinar stein- runnu reglur ríkisins ekki alvarlega. Reyndar munu tollarar heldur ekki taka þær mjög alvarlega. En sumir em gripnir. Tollarar reyna þá að geta sér til um, hvað er nýtt af því, sem fólk hefur í farteski sínu við komuna til Keflavikurflugvallar. Vamingurinn er tekinn, fari verð hans fram úr sjö þúsund krónum að mati tollara. Það hefur síðan vakið frekari furðu, að þessi vamingur er tollaður eftir vigt í Reykjavík. Vanti verðmiða, er farið eftir svokölluðu Hagstofuverði og fundið svokallað jafhaðarverð á hvert kíló. Síðan er dótið vigtað og tollað. Undantekn- ingar munu gerðar, ef um dýrar vömr er að ræða, svo sem pelsa, segja talsmenn tollsins. Viti menn. Verndartollur Þannig er það undir geðþótta- ákvörðun tollvarða komið, hver er tekinn og hver sleppur. Þessir heið- ursmenn líta framan í fólkið eins og venjulega, láta suma fara í gegn með fullar töskur en grípa aðra og láta greiða toll. Það er svo með reglur hins opinbera, sem öllum finnast vit- leysa. Það er undir geðþótta lög- reglumanna komið, hvort menn em teknir fyrir að fara 10 kílómetra fram úr hámarkshraða eða 20 kílómetra fram yfir á greiðfærum vegum. Svona reglur em til bölvunar. Þær verða til þess að rýra traust almenn- ings á öllum boðum og bönnum ríkisins. Þegar menn sjá, hve vit- laust sumt er, þykjast þeir geta sloppið við annað. Möppudýrin, sem setja haftamúra til að hindra venju- legt fólk í að koma með minniháttar Laugardags- pistill Haukur Helgason aðstoðarritstjóri vaming frá Glasgow, eyðileggja mikið. Tollurinn á fatnaðinn frá Glasgow er auðvitað vemdartollur. Við þykj- umst berjast gegn slíkum tollum á alþjóðlegum vettvangi. En hér höf- um við toll og aðrar hindranir til að vemda innlenda kaupmenn. Em það ekki í sjálfu sér nóg höft, hversu dýrt er að komast til annarra landa vegna fjarlægðar? Fatnaður er hér gjaman meira en tvöfalt dýrari en i Glasgow eins og sagt var. Kaupmönnum hefur ekki tekizt að koma með skýringar, sem viðhlítandi em, nema helzt, hve markaðurinn er lítill hér og mikið kostar að liggja með vömna, sem selzt seint. Þessi skýring dugir því ekki. Fæstir Islendingar em í stakk búnir til að fara í innkaupaferðir fyrir jól. Þótt margir komist, em hhiir langtum fleiri, sem em háðir íslenzka markaðnum í fatakaupum. Þeir eiga einfaldlega ekki 60-70 þús- und krónur á ákveðnum tíma, svo að þeir geti bmgðið sér í innkaupa- og skemmtiferð til útlanda. Margir komast í sumarleyfi til útlanda á lægstu kjörum. Það er dýrt að vera fátækur. Gert er upp á milli manna eftir efhahag með því kerfi, sem rík- ir. Hinir betur stæðu geta enn aukið forskot sitt með ódýrum innkaupum á fatnaði erlendis. Frjálsræðið Sá sem semur þennan pistil telur, að frjálsræði á markaðnum sé yfir- leitt affarasælast. Það leiðir til meiri framleiðslu í flestum greinum og verður því til að bæta lífskjör okkar allra, þegar fram í sækir. Við töpum jafhan mjög miklu í kjörum okkar vegna þeirra hafta, sem ríkja, vegna mikilla afskipta hins opinbera í smáu og stóru. Vissu- lega hefur ríkið hlutverk, ekki sízt í því að vemda lítilmagnann og hindra, að hinn sterkari láti jafhan kné fylgja kviði. í viðskiptum skilar frjálsi markaðurinn allajafhan mest- um árangri. Hann er neytandanum hagstæðastur, en þá því aðeins að samkeppni framleiðenda sé nóg. Sé samkeppni þeirra á milli of lítil, er ekki unnt að veita frjálsræðið. Þetta er einnig grunntónn þeirra laga, sem gilda nú síðustu ár. Fijálsræði í viðskiptum hefur verið aukið að undanfömu. í mörgum til- vikum er árangurinn góður. Verð vara, sem gefið er frjálst, hefur oft hækkað minna en verð annarra vara. En við höfum séð af síðustu reikningum á vfsitölu framfærslu- kostnaðar, að verð á fatnaði hefur hækkað mikið á þessu ári og keyrt vísitöluna upp. Þetta þýðir auðvitað meiri verðbólgu. Þannig hefur verð- bólga í ár reynzt meiri en ráð var fyrir gert, þegar kjarasamningamir vora gerðir í febrúar síðastliðnum og lagt var fyrir alvöru til atlögu við þann vágest. Fatakaupmenn bera mikla sök í því. Landið er langt frá öðrum löndum. Fatakaupmenn njóta góðs af. Eitt- hvað virðist vera að í fataverzlun- inni. I þessari grein var frjálsræði nýlega aukið. Spuming er, hvort það hafi ekki verið of snemmt og hvort þetta frjálsræði ætti að afturkalla. Verðlagsstofhun á að fylgjast með ákveðnum greinum verzlunar, þótt fijálsræði sé aðalregla í þeim grein- um. Nú bendir allt til, að Verðlags- stofhun verði að fara ofan í saumana á fataverzluninni og kanna hvort allt sé með felldu. Skýringar kaup- manna duga að minnsta kosti ekki enn sem komið er. Lexía Sú var tíðin, að íslendingar vora reyriiir í meiri átthagafjötra en nú er. Þannig fengu menn nánasarlegan gjaldeyrisskammt, ef þeir ferðuðust til útlanda. Skattur var lagður á þennan gjaldeyri. Flyttust menn héðan búferlum úr landi, tók mörg ár að koma fjármunum þeirra í gjaldeyri og til fólksins. Þetta hefur lagazt. En við sjáum af reynslu þeirra, sem nú fara í innkaupaferðir, hversu miklir átthagafjötrarnir eru enn. Því er gott að segja fréttir af þessu máli. Auðvitað gildir þetta allt árið um ferðafólk, sem fer til út- landa, austur og vestur. Kerfið er fáránlegt. Auðvitað er flugvallar- skatturinn einnig fáránlegur. Þannig hafa ríkisstjómir um langan aldur gengið gegn almenningi og séð um, að hann komist ekki undan oki hins litla markaðar hér heima. Sumir heimkomnir Glasgowfarar segja, að það sé eins og að koma í ræningjabæli að fara að nýju inn í verzlanir hér heima. Það er of mikið sagt. En þó verður fullyrt, að mál Glasgowfaranna er miklu stærra en ætla mætti í fljótu bragði. Það er ekki bara, að einhver hundruð manna fari í innkaupaferðir og ein- hver hluti þeirra lendi í klóm toll- varða. í þessu máli er barizt um miklu stærri hluti. Það er spuming um frjálsræði til handa almenningi. Það er spuming um, hvemig við stöndum að fríverzlun, hvort við er- um enn að burðast með höft, múra tolla. Það er spuming um, hvar sam- keppni sé nóg til þess að leyfa megi frjálsa verðlagningu á vörum. Flestum þessum spumingum hefur verið svarað hér eins og svörin koma fyrir að mati höfundar þessa pistils. Þannig er um fjölmörg mál, sem í fljótu bragði kunna að virðast smá. Þegar vel er gáð, reynast þau snú- ast um grundvallaratriði í því, sem kalla mætti pólitík. Oft snúast málin um frelsi einstaklinga, þátt sem allt- af er vert að gefa gaum. Landsfeðr- unum veitir ekki af aðhaldi í því efiii. Haukur Helgason

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.