Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1986, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1986, Blaðsíða 21
LAUGARDAGUR 22. NOVEMBER 1986. 21 ið heyrist bara og við vorum búnar að lesa okkur til um kosti og tak- markanir útvarpsleikrita. Líklega á að flytja verkið í útvarp- inu í byrjun næsta árs. Ef okkur stendur til boða að fylgjast með æf- ingum þá gerum við það en við vitum að þetta eru fagmenn og við treystum þeim til að gera þetta sómasamlega. Hins vegar væri það mjög lærdóms- ríkt að vera með og sjá hvaða annmarkar eru á koma verkinu í réttan búning." Stóra barnaleikritið - Er nýtt leikrit í smíðum hjá ykkur? „Við erum ekki með sameiginlegt verk í smíðum,“ segir Kristín. „Við höfum þó rætt mikið um að skrifa barnaleikrit. Það er stóri draumur- inn að skrifa barnaleikrit og fá það sett upp á sviði. Við höfum viðrað þessa hugmynd í leikhúsunum og okkur hefur alls ekki verið gefið undir fótinn með að byrja á verkinu. Þetta hlýtur þó að breytast og fólk fer að sjá að það gengur ekki að setja börnin bara fyrir framan myndbönd- in og hugsa síðan ekkert meira um þau. Við verðlaunaafhendinguna hvatti Jón Viðar Jónsson, leiklistarstjóri Ríkisútvarpsins, til þess að sinna börnunum meira og það er mikil uppörvum fyrir okkur. Við höfum alls ekki gefið barnaleikritið frá okk- ur og þessi verðlaun eru okkur hvatning til að ráðast í verkið. Við höfum mikinn áhuga á að sinna börnunum meira og erum sjálf- sagt hálfgerðar barnakerlingar. Mér finnst spennandi að skrifa barnabækur sem fullorðnir geta notið líka. Með því móti er hægt að koma ýmsum sjónarmiðum á fram- færi.“ Og Iðunn heldur áfram að segja frá áhuganum á börnunum: „Við erum báðar með barna- og unglingabækur í smíðum og berum skrifin reglulega undir hvora aðra þegar við hittumst við mikinn fögnuð. Við sækjum kjark hvor til annarrar og gerumst eins konar ritdómarar meðan verið er að semja.“ Önnur verslunarferð - Nú fenguð þið 200 þúsund í verð- laun. Hvað á að gera við þau? „Við hétum á okkur að ef við fengj- um þessi verðlaun þá mundum við fara í aðra verslunarferð og skrifa meira,“ segir Iðunn. „En með alla þessa peninga verðum við eiginlega að fara í heimsreisu. Það er mjög mikilvægt að komast frá til að skrifa og gleyma öllu amstrinu heima á meðan. Það er ágætt að fara í sumar- bústað en best er að fara út. Það er svo erfitt að skipta sér á milli íjöl- skyldunnar og þessara áhugamála. Okkur fmnst við vanrækja heimilið ef við stelumst frá stund og stund en þegar komið er út fyrir landsteinana þá verður bara að trúa því að allt gangi þótt við séum ekki nærri." GK ARCTIC CAT Þorgeir Astvaldsson syngur Eg fer í fríið. Textann samdi Iðunn Steinsdóttir. ÞEGAR TVEIR STERKIR STANDA AÐ ÞJÓNUSTVNNI... NÝIR SLEÐAR El Tigre árg. '87. ca 94 ho.............kr 418.500. Panthera árg. '87. ca 72 ho., veró meö rafstarti...........kr. 362 000 Cougar árg. '87. ca 56 ho.............kr 319 000 Cheetah F/C árg ‘87. ca 56 ho ,.............kr 349 000 Cheetah L/C árg. '87, ca 94 ho............kr. 436.000, Allir ofangreindir sleðar eru með jafnvægis- stong. Veró til b,orgunarsveita: Cheetah F/C árg. '87, ca 56 ho............kr. 184 800 Cheetah L/C árg. '87, ca 94 ho ..............kr 220 600 Fullkomin varahluta- og viðgerðarþjónusta. VERIÐ VELK0MIN BIFREIÐAR & LaNDBÚNAÐARVÉLAR 84060 S 38600 Van Leeuweh erstærsta lágerfyrirtæki röra og fylgihluta þeirra í Evrópu. Sindra Stál rekur stærstu birgðastöð fyrirfslenskan málmiðnað. Öflugtsamstarfvið V. Leeuwengerirokkurkleiftaðbjóðafjölbreytt úrvalafsvörtum og galvaniseruðum pípum, prófílpípum, heildregnum pípum og suðutengjum. Skjót og öflug þjónusta vegna sérverkefna! VAH LEEIIWEN fil‘ SINDRA STALHR Pósthólf 880, Borgartúni 31, 105 Reykjavík, sími: 27222. ARCS/SlA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.