Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.1988, Blaðsíða 25
ÞRIÐJUDAGUR 5. APRÍL 1988.
25
íþróttir
1
J
. ■ ■ ■ •
ír> »| íf V ‘W'j
- -VS-vif. »•'.«
• Lið íslandsmeistara Vals í 1. deild í handknattleik 1988 eftir úrslitaleikinn gegn FH.
DV-mynd Brynjar Gauti
íslandsmeistari - Stanisiav Modrowski, Val:
„Ég fékk engan tíma til að und-
irbúa Valsliðið fyrir keppnistímabil-
ið því ég kom nánast beint í fyrsta
leikinn. Byijunarörðugleikarnir
voru margvíslegir, ég þurfti að kynn-
ast íslendingum, siðum hér og
venjum, liðinu og öllum sem í kring-
um það standa. Pressan var strax
mikil, kröfurnar voru geysilegar, en
samt var liðið strax frá byrjun inn-
stillt á sigur í mótínu og íslands-
meistaratitil,“ sagði Stanislav
Modrowski, hinn pólski þjálfari
Valsmanna, í samtali við DV.
„Þetta var mikil barátta allan vet-
urinn og við máttum virkilega hafa
fyrir því að vinna flesta leikina. Til
að byrja með var vömin okkar sterk-
asti hluti ásamt markvörslunni og
hún lagði grunninn aö árangri okkar
í fyrri umferðinni. Eftir áramót
slaknaði varnarleikurinn en sóknin
varð betri og beittari. Ég er mjög
hlynntur fijálsum handknattleik og
held að mér hafi tekist að gera leik
Valshðsins léttari en áður. Leik-
mennimir höfðu gaman af því sem
þeir voru að gera og fengu mikla
ánægju út úr öhu saman.
Ég komst að því í vetur að íslend-
• Stanislav Modrowski, þjálfari ís-
landsmeistara Vals.
ingar eiga mörg mjög sterk hand-
knattleikslið. Ég hreifst af FH-ingum
strax í haust og þeir, Valur, Víking-
ur, Breiðablik og jafnvel Stjarnan
leika góðan handknattleik og gætu
staðið fyrir sínu hvar sem er í Evr-
ópu. KA sýndi ennfremur stórgóðan
og agaðan leik gegn okkur á Akur-
eyri.
Það var mikil pressa á mér fyrir
úrslitaleikinn, ekki síst vegna þess
að í gangi hafa verið vangaveltur um
hver myndi þjálfa Valsliðið næsta
vetur. Þær komu á versta tíma en
mótlætíð stappaöi í mig stáhnu og
þegar í leikinn var komið þurfti ég
ekki að hafa miklar áhyggjur - liðið
lék mjög vel og það kom aldrei neitt
annaö til greina en sigur og íslands-
meistaratitill.
Það er stórkostlegt að búa og starfa
á íslandi - íslendingar gera sér ekki
aUtaf grein fyrir því sjáUir hve vel
þeir eru settir," sagði Stanislav
Modrowski - þjálfari íslandsmeistar-
anna. -VS
• Geir Sveinsson, fyrirliði íslandsmeistara Vals, hampar hér
íslandsmeistarabikarnum sem er mjög glæsilegur. Geir var
einn besti leikmaður Valsliðsins á nýafstöðnu íslandsmóti.
DV-mynd Brynjar Gauti
GOTTAÐ KEYRANN
AUÐVELT AÐ BORGflNN
Cóö greiöslukjör.
Handhöfum VISA bjóöum viö 25%
útborgun og afganginn á
12 mánuöum.
verö frá kr. 176.600.-
JÖFUR -ÞECAR ÞÚ KAUPIR BÍL