Alþýðublaðið - 01.10.1967, Qupperneq 1
Sunnudagur 1. október 1967 — 48 árg. 219. tbl. — VerS 7 kr.
<Su*VuteCcuft
[SKlItltl)
Fjölbreytt vetrarstarí hjá Al-
þýöuflokksfélagi Reykjavíkur
VETRABSTARF Allíýðuflokksfé-
lags Reykjavíkur er nú að hefj-
ast. llefur stjórn félagrsins gengið
frá starfsáætiun vetrarins og^sam
kvæmt henni munu nokkrar nýj-
ungar koma til framkvæmda í
vetur.
Alþýðublaðið hefur komið að
máli við formann félagsins. Björg-
vin Guðmundsson, og beðið hann
að skýra frá því helzta sem stjórn
Alþýðuflokksfélagsins ráðgerir í
vetur.
Björgvin sagði, að stjórn Al-
þýðuflokksfélagsins hefði ákveð-
ið að taka upp þá nýbreytni í
vetur að efna til nokkurra há-
degisverðarfunda um stjórnmál.
Spilðkvöld
aö hefjast
SPILAKVÖLD Alþýðuflokksfé
lags Reykjjavíkur eru nú að
hefjast. Verður hið fyrsta n.
k. fimmtudagskvöld í Lídó. —
Þeir, scm koma fyrir kl. 8.30
þurfa ekki að greið'a ,,rúllu-
gjald“. Gunnar Vagnsson mun
stjórna spilakvöldunum í vet-
ur eins og s. 1. vetur, en hon-
um til aðstoðar verða dr.
Gunnlaugur Þórðarson og Sig
uroddur Magnússon. — Veitt
verða kvöldverfilaun og verð-
laun fyrir þriggja kvölda
keppni. — Hver aðgöngumiði
gildir sem haÞÞurættismiði en
vinningur er ferð til Mallorka
fyrir einn.
Væri það fundarform, scm ætti
auknum vinsældum að fagna. Þó
hygðist félagsstjórnin ekki varpa
hinu eldra fundaformi, kvöld-
fundunum, fyrir borð, lieldur j
yrðu þeir haldnir samhliða. Þá ■
sagði Björgvin, að Alþýðuflokks-
fé'agið hygðist taka upp þá nýj-
ung, að efna til lieimsókna í
stofnanir og stærri fyrirtæki. —
Yrði hin fyrsta sennilega farin
í Áburðarverksmiðjuna. Mál-
fundastarfsemi kvað hann einn-
ig í undirbúningi.
Aðrir liðir í félagsstarfinu
verða hinir sömu og undanfarin
ár, svo sem félagsvist og bridge.
Verða spilakvöldin í vetur í Lido
eins og á sl. vetri, cn það gafst
mjög vel að hafa spilakvöldin
þar. Var Iðnó orðin of lítil fyrir
spilakvöldin og því voru þau flutt
í stærra hús. Skemmtinefnd Al-
þýðuflokksfélagsins hefur ákveð-
ið að hafa tíu spilakvöld í vet-
ur, á fimmtudagskvöldum. Mun
hvei- aðgöngumiði gilda sem happ
BÆKUR
bls. 7
TÓNLIST
bls. 13
Aukafundi LÍÚ um vandamál sjávarútvegsins lauk
undir miðnætti á föstudagskvöld. Fundurinn sam*
þykkti ályktun, þar sem m. a. segir, að rekstrargrund-
völlur bæði útgerðar og fiskiðnaðar sé brostinn, og
sé óhjákvæmilegt að gerðar séu ráðstafanir til að
skapa öruggan grundvöll undir rekstri sjávarútvegs-
ins. Er talið í ályktuninni að verðfall sjávarafurða,
að meðtöldu teknatapi vegna minnkandi afla, muni
nema allt að 2000 milljónum króna.
í lok ályktunar er skorað á rík-
isstjómina að ^era m.a. eftirtald
ar ráðstafanir varðandi þann
vanda, sem við blasi alveg á næst
unni:
1. Hefja þegar undirbún. til að
tryggja verulega og nauðsynlega
hækkun á fiskverði á næsta ári.
2. Gerðar verði nú þegar ráð-
stafanir til verulegrar hækkunar
línufisks á þessu ári til áramóta.
3. Tryggt verði, að verð síldar
til bræðslu haldizt óbreytt frá 1.
okt. í ár til vertíðarloka, vænt-
anlega í janúar-febrúar.
4. Afborgunum af lánum til
Fiskveiðasjóðs íslands, sem í
gjalddaga falla 1. nóvember n.k.,
og öðrum stofnlánum til fiski-
skipa, verði frestað um eitt ár, og
lengist lánstíminn að sama skapi.
5. Vextir af lánum til Fisk-
veiðasjóðs lækki úr 61-2% í 4%
og dráttarvextir úr 12% í 7%.
6. Fundurinn harmar, hvað
dregizt hefur að koma til fram-
kvæmdd flestum þeim tillögum,
sem hin stjórnskipaða Vélbátaút
gerðarnefnd gerði í júní 1966, og
skorar á ríkisstjórnina að sjá til
þess, að þessar tillögur komi hið
allra fyrsta til framkvæmda.
drættismiði en vinningur í því
happdrætti verður Mallorka ferð
fyrir einn, 16 daga ferð, með
Ferðaskrifstofunni Sunnu. Brid-
ge verður spilað á laugardögum
í Ingólfskaffi eins og sl. vetur.
Árshátíð félagsins verður hald-
in í marz í Lídó. Starfsáætlun
Alþýðuflokksfélagsins gerir ráð
fyrir því, að alls verði haldnar
24 samkomur á vegum félagsins
í vetur. — Björgvin sagði, að
fyrsta spilakvöld félagsins yrði
nk. fimmtudag í Lídó, en fyrsti
félagsfundurinn yrði 17. október
næstk. í Iðnó. Mundu ráðherr-
arnir Gylfi Þ. Gíslason og Eggert
G. Þorsteinsson tala á þeim fundi
um aðsteðjandi vandamál. — Að
lokum gat Björgvin þess, að Al-
þýðuflokksfélagið hefði iláðið
sér starfsmann, hluta úr degi,
vegna aukinnar starfsemi. Er það
Baldur Guðmundsson, starfsmað-
ur félagsins.
skapi. Fundurinn telur eðlilegt
og óhjákvæmilógt, að 'sjómönn-
um á fiskiskipum verði veittur
gjaldfrestur á sköttum og útsvör-
fram á næsta ár, án þess að
glata frádráttarrétti sínum hans
vegna.
8. Sökum hinna miklu erfið-
leika, sem nú hafa skollið á sjáv
arútveginn vegna aflabrests, verð
falls, tollahækkana og lokunar
markaða, skorar fundurinn á rík-
isstjórnina að skipa nú þegar
nefnd manna til þess að starfa
með fulltrúum tilnefndum af
stjórn LÍÚ að því að gera tillög-
ur um, hvernig ráða megi fram
úr hinum miklu og bráðaðkall-
andi vandamálum sjávarútvegs-
ins. — Stefnt verði að því að
nefndin skili störfum fyrir 20.
október n.k.
í greinargerð meö tillögum
þessum er á það bent meðal ann-
ars, að verðfall á frystum flök-
um nemi 15—20% frá meðal
verði síðast liðins árs; að bolfisk
afli á síðustu vetrarvertíð hafi
Frainhald á 15. siöu
7. Útgerðarmönnum verði heim
ilt að greiða sjómönnum kaup-
tryggingu án tillits til skulda
þeirra á opinberum gjöldum og
minnki ábyrgð útvegsmanna á
greiðslum gjaldanna að sama
Danir unnu
í gær kusu ungmenni frá
Norðurlöndum vinsælasta
lagið úr syrpu norrænna
dægurlaga, sem send voru
út frá Osló og útvarpað sam
tímis í öllum liindunum.
Leikin voru ívö lög frá
hverju landinu um sig. Vin
sælasta lag keppninnar var
kjörið „Where were you
when I nceded you“, flutt
af dönsku hljómsveitinni
„The Hitmakers“. íslenzku
lögin höfnuðu í 6. og 8. sæti.
Meðfylgjandi mynd er tek-
in í upptökusal hljóðvarps-
ins hér á föstudagskvöld, er
íslenzk ungmenni greiddu
atkvæði um lög hinna land-
anna.