Alþýðublaðið - 01.10.1967, Blaðsíða 5
Sunnudags Alþýðublaðið - 1. október 1967
5
Ritstjóri: Benedikt Gröndal. — Eitstjóri Sunnudagsblaðs: Kristján
Bersi Ólafsson. —. Símar: 14900—14903. — Auglýsingasími 14906.
Aðsetur: Alþýðuhusið við Hverfisgötu, Eeykjavík. — Prentsmiðja
Alþýðublaðsins. Sími 14905. —'’ Askriftargjald: kr. 105,00. — í lausa*
sölu: kr. 7,00 eintakið. — Útgefandi: Alþýðuflokkurinn.
EFNAHAGSMÁLIN
cuÍM/cueáitfr
IW
Ríkisstjórnin hefur undanfarið unnið
að lausn þeirra efnahagsvandamála, er
skapazt hafa vegna hins mikla verð-
falls á íslenzkum útflutningsafurðum og
skerðingar útflutningstekna lands-
manna á yfirstandandi ári. Munu tillög
ur ríkisstjórnarinnar liggja fyrir, er
þing kemur saman.
Frá því hefur verið skýrt, að útflutn-
ingstekjurnar muni minnka um 1300
millj. á yfirstandandi ári eða 20-25%
jafnvel þó síldveiði verði sæmileg. Fer
ekki hjá því, að svo gífurleg breyting
hafi áhrif á afkomu landsmanna. Það
verður minna til skiptanna og því verð
ur ekki komizt hjá lífskjaraskerðingu
um skeið. Öllum hlýtur að vera ljóst,
að samdrátturinn í sjávarútveginum
skapar mikið vandamál fyrir þennan að
alatvinnuveg landsmanna, ekki sízt er
síldveiðar ganga einnig illa. Mun ríkis-
stjórnin líba á það sem höfuðskyldu
sína að tryggja áframhaldandi rekstur
útgerðarinnar.
Ríkisstjórnin hefur hin síðustu ár orð
ið að grípa til þess að veita ýmsum
greinum sjávarútvegsins nokkrar upp-
bætur vegna hins stórhækkaða fram-
leiðslukostnaðar á undanförnum árum.
En á undanfarandi ári hafa verðstöðv-
unarlögin haldið framleiðslukostnaði í
skefjum og hefði úvegurinn því án efa
s.taðið sæmilega að vígi í dag, ef ekki
hefði orðið stórfellt verðfall á útflut-
íngsvörum sjávarútvegsins. Augljóst er
að því eru takmörk sett hversu mikið
er unnt að auka uppbætur og styrki frá
hinu opinbera til atvinnuveganna Ýms
ir spyrja því nú hvort, ef til vill verði
nauðsynlegt að fella gengið til þess að
auka tekjur útflutningsatvinnuveganna
og komast hjá frekari uppbótagreiðsl-
um. Því er til 'að svara, að ríkisstjórn-
in hefur lýst því yfir, að hún vilji kom
ast hjá gengislækkun. Miðar ríkisstjórn
in því aðgerðir sínar nú við áframhald-
andi verðstöðvun í trausti þess, að verð
lag útflutningsvara okkar hækki á ný.
Það er tvímælalaust atvinnuvegum okk
ar fyrir beztu, að verðstöðvun geti hald
izt. Verðlag hækkar nú mjög mikið í
nágrannalöndum okkar. Og ef okkur
tekst að halda verðlagi óbreyttu á sama
tíma og verðlag hækkar í viðskiptalönd
um okkar, eykst verðgildi íslenzku
krónunnar.
En þó er nauðsynlegt, að almenning-
ur geri sér það ljóst, að ekki verður
unnt að halda verðstöðvunarstefnunni
áfram án einhverra fórna af almennings
hálfu. í rauninni er sama hvaða leið er
farin í d'ag. Kakan, sem landsmenn hafa
til skiptanna hefur minnkað og því mun
koma minna í hlut hvers og eins, hvaða
leið sem farin er. Ríkisstjómin hefur
á undanfarandi ári orðið að auka nið-
urgreiðslur úr ríkissjóði til þess að
halda verðstöðvuninni. Það hefur skap
að tekjuvandamál, sem verður að Ieysa
nú er Alþingi kemur saman. Er þess
að vænta að verkalýðshreyfingin taki
aðsteðjandi vandamálum með skilningi.
Munu verkalýðsfélögin gera sér það
Ijóst, að eins og ástandið er í dag skipt
ir mestu máli, að unnt verði að tryggja
fulla atvinnu og því mega höfuðatvinnu
vegirnir ekki verða fyrir neinum stór-
áföllum.
Aðvörun
Að marggefnu tilefni er fólk varað við að
kaupa og taka sér fasta búsetu í sumarbústöð
um í lögsagnarumdæmi Kópavogs,
þar sem gera má ráð fyrir að bústaðir þessir
verði fjarlægðir þegar henta þykir. '
Kópavogi 29. september 1967.
BYGGINGAFULLTRÚINN.
KENNSLA
TUNGUMÁL,
BÓKFÆRSLA,
REIKNINGUR.
Áherzla lögð á talæfing-
ar.
Segulband notað sé þess
óskað.
SKÓLI
HARALDAR
VILHELMSSONAR,
Baldursgötu 10
Sími 1-81-28.
SJONVARPS-
IÆKIN
eru viðurkennd fyrir
LANGDRÆGNI.
Skýr mynd ásamt góðum
hljómburði og glæsilegu
útliti setur þau í sérflokk.
ANDREA sjónvarpstækið
er bandarísk gæðavara.
LAUGAVEGI 47.
Sími 11575.
RATSJÁ HFe
Ingólfs-Café
Gömlu dansarnir
í KVÖLD KL. 9.
IUjómsveit Garðars leikur.
Söngvari: Björn Þorgeirsson.
Aðgöngumiðasala frá kl. 8. — Sími 12826.
Ingólfs-Café
BINGÓ f dag kl. 3.
aðalvinningur eftir vali.
11 umferðir spilaðar. — Borðpantanir
í síma 12826.
Byggingameistarar!
Húsbyggjendur!
Nú er rétti tíminn að panta.
BAHCO-
OLlUHITARANN
fyrir veturinn. Hann er afkastamikill og
hagkvæmur til upphitunar stórhýsa í
smíðum.
Spyrjið þá, sem reynsluna hafa.
h/fOFNASMIÐ)AN
MOU> 'O ■ B«»*«AwMr
30. september 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ 5