Dagur - 07.06.1985, Blaðsíða 4
4 - DAGUR - 7. júní 1985
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58,
AKUREYRI, SlMI 24222
ÁSKRIFT KR. 220 Á MÁNUÐI ■ LAUSASÖLUVERÐ 30 KR.
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
HERMANN SVEINBJÖRNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI: GÍSLI SIGURGEIRSSON
FRÉTTASTJÓRI: GYLFI KRISTJÁNSSON
BLAÐAMENN: ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR,
GESTUR E. JÓNASSON, YNGVI KJARTANSSON,
KRISTJÁN G. ARNGRlMSSON, MARGRÉT Þ. ÞÓRSDÓTTIR
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Betur má
ef duga skal
Nú þegar líður að lokum
kvennaáratugar er algengt
að litið sé til baka og gaum-
gæft hvað hefur áunnist í
málefnum kvenna. Á einu
sviði, sem raunar er hags-
munamál allra landsmanna,
hefur stórt skref verið stig-
ið, en það er í barátt-
unni við vágestinn krabba-
mein. Þessi vágestur hefur
læst klóm sínum í margar
konur í blóma lífsins og ekki
sleppt þrátt fyrir mikla bar-
áttu lækna og annarra sér-
fræðinga.
Á haustmánuðum 1982
var efnt til þjóðarátaks
gegn krabbameini og ár-
angur þess þjóðarátaks var
að nýtt hús Krabbameins-
félagsins var vígt þann 31.
ágúst 1984. í þessu húsi er
unnið mikið og gott for-
varnarstarf sem miðar að
því að seinka tilkomu
krabbameins, eða helst að
koma í veg fyrir það. Fleira
hefur verið gert t.d. má
nefna söfnun Lionsmanna
fyrir línuhraðli sem á að
auka möguleika á lækningu
þeirra kvenna sem fengið
hafa krabbamein.
Þetta er allt mjög jákvætt,
en þáttur kvenna sjálfra
má ekki gleymast. Það er
alls ekki nóg að hafa gott
húsnæði og nýjan og full-
kominn tækjakost til rann-
sókna og lækninga. Konur
verða að koma í skoðun
reglulega til að hægt sé að
finna frumubreytingar á
byrjunarstigi, því þá eru
lækningarlíkur mestar.
Ung stúlka segir í auglýs-
ingu um happdrætti
Krabbameinsfélagsins að-
spurð um hvers vegna hún
kaupi miða: „Ég er alltaf
veik fyrir góðum málefnum
- og svo þykir mér bara svo
vænt um sjálfa mig.“ Svo
mörg voru þau orð. Þetta
svar ungu stúlkunnar ætti
að verða konum til um-
hugsunar, þeim á að þykja
það vænt um sjálfa sig að
þær mæti í krabbameins-
skoðun einu sinni á ári eða
annað hvert ár. Það er auð-
velt á flestum stöum á land-
inu og kostnaður og fyrir-
höfn við ferð til Reykjavíkur
er ekki það mikill að það sé
gild afsökun fyrir þær sem
ekki hafa aðstöðu í sinni
heimabyggð til krabba-
meinsleitar. Það að konan í
„næsta húsi“ veikist af
krabbameini á ekki að vera
nauðsynlegt til að konur
nýti sér þá miklu og góðu
þjónustu sem komið hefur
verið á í þessum málum.
Næsta stig í baráttunni
gegn krabbameininu er að
koma á reglubundinni hóp-
skoðun fyrir karlmenn og
væri verðugt fyrir alla, bæði
konur og karla, að taka
höndum saman og sann-
færa stjórnvöld um nauð-
syn þeirrar skoðunar. Því
fyrr sem það tekst þeim
mun fyrr fást fjármunir til
þess og þeir skila sér til
baka í færri sjúkdómstilfell-
um. ám
Óskabarmð verður
aldrei vandrœðabam
- Ef hitaveitustjóri fær að ráða ferðinni
Vegna þeirra umræðna sem orðið
hafa nýlega um málefni Hitaveitu
Akureyrar, í bæjarstjórn Akur-
eyrar og fjölmiðlum, langar mig
til að leggja fá orð í belg.
Þegar rætt er um þessar teg-
undir orkuveitna er þess oft ekki
gætt að aðstöðumunur þeirra er
æði mikill. Raforkan er notuð til
margs annars en húshitunar t.d.
Ijósa, suðu, og henni breytt í
hreyfiorku í vélum, svo nokkur
atriði séu nefnd. Verðlagning raf-
orkunnar er einnig mismunandi
eftir notkun frá kr. 6,92/kwst.
þegar söluskattur og verðjöfn-
unargjald hefur verið lagt við, og
niður í kr. 1,39/kwst. sem er
orkugjald en óniðurgreitt.
Rafveiturnar hafa því mögu-
leika á að ná inn nauðsynlegum
tekjum þó þær selji raforku til
húshitunar undir raunverði, þær
ná inn tekjunum á sölu til ann-
arra nota. Heitt vatn frá hita-
veitum er nær einvörðungu notað
til húshitunar og þær verða að
selja það á raunverði.
Verðjöfnunargjaldið:
Á sínum tíma voru sett lög um
verðjöfnunargjald. Þetta gjald
var og er lagt á alla raforku aðra
en til húshitunar.
Þetta gjald var 19% en er nú
16%, tekjurnar af þessu gjaldi
renna til Rafmagnsveitna ríkisins
og Orkubús Vestfjarða, og skipt-
ast þannig að RARIK fær 80%
en Orkubúið 20%.
Rökstuðningur fyrir þessu
gjaldi er sá að þessar rafveitur
annast dreifingu á raforku til
strjálbýlis og afskekktra lands-
hluta. Rafveita Siglufjarðar er
eina þéttbýlisrafveitan sem þarf
ekki að skila þessu gjaldi í sam-
eiginlegan sjóð.
Eins og áður er sagt er verð-
jöfnunargjaldið bundið lögum og
ekki hægt með pennastriki að af-
nema það.
Niðurgreiðslur:
Niðurgreiðslur ríkisins á raforku
til hitunar og greiðslu olíustyrks
valda því að erfitt er að bera
saman gjaldskrár hitaveitna þar
sem orkugjaldið er óniðurgreitt
við hina hitunarkostina. Sem
dæmi, þá greiðir ríkið niður raf-
orku til hitunar á íbúðarhúsnæði
á orkuveitusvæði RARIK um
45% úr kr. 1,39/kwst. í kr.
0,76/kwst.
Eins og áður er vikið að er í
öllum gjaldskrám rafveitna hit-
unartaxtinn tilbúinn taxti og ber
ekki í sér samkostnað raforkunn-
ar, heldur eru aðrir taxtar látnir
greiða niður hitunartaxtann. T.d.
er heimilistaxtinn hjá RARIK kr.
4,61/kwst.
Á þessu ári er áætlað heild-
söluverð Landsvirkjunar til
RARIK kr. 1,38/kwst. eða svo til
sama verð og RARIK verður að
selja hitaorkuna á, eftir að hafa
dreift henni um dreifðar og af-
skekktar byggðir landsins með
ærnum kostnaði og orkutöpum.
Öll umræða um orkuverð verð-
ur alltaf staglkennd ef menn hafa
ekki kynnt sér vel málin, hvort
sem það eru bæjarfulltrúar,
fréttamenn eða lögfræðingar sem
eiga í hlut.
Breyting á
sölufyrirkomulagi
Hitaveitu Akureyrar
Þegar Hitaveita Akureyrar var
stofnuð var mikið rætt um sölu-
fyrirkomulagið. Ráðgjafar mæltu
eindregið með hemlaaðferðinni
og einnig forsvarsmenn Hitaveitu
Reykjavíkur, sem kváðust ætla
að breyta hjá sér úr vatnsmælum
yfir í hemla í áföngum. Þetta er
ástæða fyrir því að hemlaaðferð-
in var valin. Þetta reyndist því
miður vera rangt val, og það er
ekki fyrr en núverandi hitaveitu-
stjóri kom til starfa að farið var
að huga að þeim breytingum sem
nú standa yfir. Eftir að farið
verður að selja vatnið eftir mæl-
um mun notandi greiða fyrir þá
orku sem hann fær afhenta.
Þetta fyrirkomulag mun vafa-
laust hvetja til orkusparnaðar.
Þessar breytingar eru nauðsyn-
legar og í raun sjálfsagðar eins og
málum er komið. Ég vænti þess
að gamlir og reyndir bæjarfull-
trúar gefi stjórn hitaveitunnar
frið til að koma rekstri hennar í
gott horf.
Erlendar skuldir í dollurum og
háir vextir hafa skapað tíma-
bundna erfiðleika en ég er ekki í
vafa um að úr þeim rætist og
óskabarnið verður aldrei vand-
ræðabarn ef hitaveitustjóri fær að
ráða ferðinni.
Akureyri 28.05.1985
Ingólfur Árnason