Dagur - 07.06.1985, Page 11
7. júní 1985- DAGUR- 11
Myndir: KGA
Texti: mþþ
Lystigarðsbrúðkaup
Þau giftu sig í Lystigarðinum á
Akureyri á miðvikudagskvöldið.
Komu alla leið frá Keflavíkur-
flugvelli í því skyni og voru
ánægð með ferðalagið.
Lynn Gordy er fædd í Bret-
landi, en flutti tveggja ára gömul
til Bandaríkjanna.
Daniel Sntellow Buckman er
fæddur í Florida, en flutti ungur
til Kaliforníu.
Lynn er kennari í Bandaríkj-
unum og heldur til Georgiu um
miðjan júní. Daniel á tvö ár eftir
af herskyldu sinni, en hann er nú
yfirmaður tölvudeildar Keflavík-
urflugvallar. Hann heldur til
Kaliforníu í október og mun
Lynn þá flytjast þangað til hans.
Daniel og Lynn komu til Akur-
eyrar í fyrrasumar og að sjálf-
sögðu var ákaflega gott veður.
þau urðu hrifin af staðnum og
ákváðu að hér skyldu þau gifta
sig. Vildu heldur rólega og hátíð-
lega stund norður í landi en uppi-
stand á Keflavíkurflugvelli. þar
sem Daniel vinnur.
Það var Hanna María Péturs-
dóttir nýskipaður prestur í Háls-
prestakalli sem gifti ungu hjónin
og Sigurður Árni Þórðarson eig-
inmaður hennar og nýskipaður
prestur í Staðarprestakalli flutti
unga fólkinu kærleiksboðskap á
enskri tungu. Svaramenn voru
systkinin Guðbjörg Bjarnadóttir
og Dagbjartur Bjarnason.
Pað var sérstök stemmning í
Lystigarðinum á ntiðvikudags-
kvöldið. Róleg. látlaus en ákaf-
lega falleg athöfn að sögn við-
staddra og eflaust mjög minnis-
stæð. Athöfnin þótti takast ein-
staklega vel, þrátt fyrir að örfáir
rigningardropar dyttu úr lofti.
Eftir giftinguna borðuðu brúð-
hjónin á Bautanum en héldu síð-
an að heimili Guðbjargar. Þar
var skálað, rabbað og hlustað á
góða tónlist fram eftir nóttu. í
gær héldu brúðhjónin í eins kon-
ar brúðkaupsferð um hringveg-
inn okkar góða.
Voru þau Daniel og Lynn
mjög ánægð með viðtökurnar og
kunnu öllum sem nálægt komu
hinar bestu þakkir fyrir að gera
þeim daginn óglevmanlegan.
- mþþ