Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1994, Blaðsíða 23
MÁNUDAGUR 7. NÓVEMBER 1994
35.
Gylfi Gröndal hefur nú á örfáum árum ritað
ævisögur allra fyrrverandi forseta íslands. Alls
eru ævisögur hans nú orðnar nitján talsins. í
ljósi þessara miklu afkasta væri við því að bú-
ast að fljótaskrift væri á bókum hans. Sú er
a.m.k. ekki raunin á þeirri bók sem hér er til
umsagnar, ævisögu Sveins Björnssonar forseta.
Þvert á móti er augljóst að að baki henni liggur
mikil heimildavinna.
leggja sig fram um að fjalla ítarlegar um það
tímabil.
Sveinn var giftur
danskri konu
Mörgum stjórnmálamönnum þótti Sveinn,
sem kunnugt er, of hægfara i skilnaðarmálinu
við Dani og mislíkaði mjög er hann stakk upp
NYR SJALFVIRKUR
OFNHITASTILLIR
Heldur orku-
reikningnum
í lágmarki.
Bókmenntir
Styðst við
prentaðar heimildir
Líf og starf Sveins Björnssonar var í ótrúlega
ríkum mæli samofið sögu íslensku þjóðarinnar.
Það er því ekkert áhlaupaverk að skrifa sögu
hans. Bók Gylfa um Svein Björnsson er að því
leyti ólík bókum hans um þá Kristján Eldjárn
og Ásgeir Ásgeirsson að nú hefur hann fyrst og
fremst orðið að styðjast við prentaðar heimildir
þar sem hann hefur ekki haft aðgang að dagbók-
um, minnisblöðum og fleiri óprentuðum gögn-
um í þeim mæli sem raun var á við undirbúning
hinna bókanna tveggja. Það er því fátt i þessari
bók sem kemur verulega á óvart. Það breytir
því þó ekki að hér er um læsilegt og yfirleitt
mjög vandað rit að ræða.
I þessari bók eru sögu föður Sveins, Björns
Jónssonar ritstjóra og ráðherra, gerð mjög ræki-
leg skil. Bókin hefur að geyma ítarlega og vand-
aða umfjöllun um fjölmarga samferðamenn
Sveins. Ein shk minnisstæð persóna er Sigríður
bóndadóttir í Brattholti, „konan sem bjargaði
Gullfossi", en hún var einn af viðskiptavinum
Sveins er hann stundaði lögfræðistörf í Reykja-
Gunnlaugur A. Jónsson
á þjóðfundi um máliö í janúar 1944. Gylfi kemur
inn á spurninguna um ástæðuna fyrir áfstöðu
Sveins og segir, vafalaust réttilega, að nærtæk-
asta skýringin sé samúð hans með illum örlög-
um Dana. „Sjálfur átti hann einnig um sárt að
binda vegna nasista í fjölskyldu sinni... og
hafa ber í huga að hann var sendiherra í þjón-
ustu hans hátignar um tuttugu ára skeið.'“ Hér
hefði mátt bæta því við að Sveinn var kvæntur
danskri konu og átti einnig af þeirri ástæðu
auðveldara með að setja sig í spor Dana en flest-
ir landar hans. Sjálfum finnst mér raunar af-
staða Sveins í alla staði mjög skiljanleg eins og
komið var fyrir Dönum en hitt er rétt sem Gylfi
segir að ríkisstjórinn hafi á hinn bóginn ofmetið
völd sín og virðingu í þetta sinn.
Gylfi Gröndal
Svelnn Björnsson. Ævisaga.
Forlagiö 1994 (379 bls.)
Gylfi Gröndal
Sveinn Björnsson
ÆVISAGA...."T
vík í upphafi aldarinnar. Forvitniieg er sömu-
leiðis frásögnin af landskjálftunum miklu 1896.
Fyrri hluti bókarinnar finnst mér mun áhuga-
verðari en sá hluti er íjallar um ríkisstjóra- og
forsetatíð Sveins, þar sem umfjöllunin er óneit-
anlega dálítið snubbótt. Þar sem þetta er ein-
mitt það tímabil sem vantar í sjálfsævisögu
Sveins hefði maður búist við að Gylfi myndi
= HÉÐINN =
VERSLUN
SELJAVEGI 2 SÍMI 91-624260
AUKABÚNABUR ÁMYNO: ÁLFELGUR.
MITSUBISHI
MITSUBISHI LANCER GLXi ER HANNAÐUR
MEÐ SÉRSTAKA ÁHERSLU Á STOÐUGLEIKA OG
HÁRNÁKVÆMA SVÚRUN í AKSTRI,
EIGINLEIKA SEM LÉTTA AKSTURINN OG GERA
HANN ORUGGARI OG ÞÆGILEGRI.
ÞVI ER LANCER HEILLAVÆNLEGUR KOSTUR
SEM UPPFYLLIR ALLAR ÓSKIR KRÚFUHARÐRA
OKUMANNA UM FRAMÚRSKARANDI
AKSTURSEIGINLEIKA OG ORYGGI.
HEKLA
Yf //æ///a /est/
Laugavegi 170-174, sími 69 55 00
Menning
MARAZZI
riísar - úti ogJnni
r AiFABORG ?
KNARRARVOGI 4 • » 686755