Þjóðviljinn - 14.02.1974, Qupperneq 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 14. febrúar 1974.
UÚÐVIUINN
maLgagn sósialisma
VERKALYÐSHREYFINGAR
OG ÞJÓÐFRELSIS.
Otgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans
Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann
Ritstjórar: Kjartan Ólafsson
Svavar Gestsson (áb)
Fréttastióri: Eysteinn Þorvaldsson
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar:
Skólav.st. 19. Simi 17500 (5 linur)
Áskriftarverö kr. 360.00 á mánuöi
Lausasöluverö kr. 22.00
Prentun: Blaöaprent h.f.
UPPGJÖR SOVÉSKRA STJÓRNVALDA
í fyrradag urðu kaflaskil i áratuga
langri viðureign sovéskra skrifstofu-
báknsins gegn Nóbelsverðlaunahafanum
Alexander Solsénitsin. Fáeinir lögreglu-
menn fara inn á heimili hans, færa hann á
braut og senda siðan úr landi.
Allur heimurinn hefur fylgst með bar-
áttu Solsénitsins á undanförnum árum.
Enginn getur hafa komist hjá þvi að dást
að staðfestu og seiglu þessa manns sem á
siðustu árum hefur með listaverkum
sinum og sivaxandi samúð umheimsins
risið upp i slika stærð að stjórnvöld Sovét-
rikjanna hafa staðið vanmegna; flutning-
urinn til Vestur-Þýskalans staðfestir upp-
gjöf sovéska skriffinnskubáknsins. Að
sjálfsögðu hefði þeim sem með völdin fara
verið sú uppgjöf ein sæmandi að láta
undan ofurþunganum og innleiða ritfrelsi
og frjálsa skoðanamyndun. En viðbrögðin
eru enn til marks um þann sljóleika
valdsins sem hefur heltekið valdamennina
innna Kommúnistaflokks Sovétrikjanna;
þeir halda að þeir bjargi sér á floti með
þvi að flytja háværasta andófsmanninn
úr landi. En þessi aðgerð mun ekki duga
valdhöfunum fremur en fyrri daginn. Enn
munu hækka raddir þeirra — innan Sovét-
rikjanna og utan — sem munu fordæma
framferði þeirra valdsmanna, sem bersýni-
lega muna vel sitt staliniska uppeldi.
Gagnrýni sósíalista á árásirnar gegn
Solsénitsin að undanförnu hafa byggst á
nákvæmlega sömu meginforsendum og
gagnrýnin og fordæmingin á innrásinni i
Tékkóslóvakiu fyrir hálfu sjötta ári. Á
þessum tveimur atburðum er vissulega
stigsmunur — en enginn eðlismunur.
Skilyrðið fyrir frelsi einstaklingsins er
frelsi heildarinnar; skilyrðið fyrir frelsi
heildarinnar er frelsi einstaklinganna til
þess að mynda sér skoðanir, til þess að tjá
sig i orði eða til þess að skapa listaverk.
Félagsleg eign á framleiðslutækjunum er
ein meginforsenda frjálsrar þróunar þjóð-
félags til manneskjulegs sósíalisma, en
félagsleg eign framleiðslutækjanna er
ekki eina nauðsynlega forsendan; er engin
trygging. Sú staðreynd hefur hvað eftir
annað verið staðfest af valdhöfum sjálfum
i orðum þeirra og athöfnum.
Augljóslega hafa skapast i Sovét-
rikjunum hrópandi andstæður. Þær and-
stæður byggjast ekki á afstöðunni til
framleiðslutækjanna eins og andstæður
auðvaldsþjóðfélagsins, heldur á afstöð-
unni til valdsins yfir valdatækjum
rlkisins. Annars vegar er um að ræða
purkunnarlaust rikisvald, sem einskis
svifst til þess að treysta stöðu sina og
endurnýjast til enn meira valds. Hins
vegar eru miljónirnar, þar á meðal and-
ófsmennirnir, sem ofurseldar eru geð-
þótta valdhafanna. Engu skal um það
spáð hvernig eða hvenær þessum and-
stæðum lýstur saman, en þær eru ósættan-
legar sem slikar.
Fjölmiðlar á Vesturlöndum hafa á
undanförnum árum beint sjónum sinum
mjög einhliða að Solsénitsin og baráttu
hans. Hins vegar hefur stundum gleymst
að barátta Nóbelshöfundarins er aðeins
hluti af viðtækri andófshreyfingu þar sem
saman kemur gagnrýni á samfélagið bæði
frá hægri og vinstri. Þessi hreyfing hefur
sumpart staðið i skjóli rithöfundarins um
langt skeið, en nú þegar sagt er að hann
hafi verið fluttur úr landi, er vissulega
hætta á að andófsmennirnir verði fyrir
enn meiri þrýstingi og harðræði en til
þessa af hálfu stjórnarvaldanna. Þvi
verður að veita itrustu athygli og mót-
mæla jafnharðan.
Bertold Brecht orti margt um samskipti
fólksins og valdhafanna. Einu sinni hirti
hann valdahroka stjórnarvalda á
háðulegasta hátt með þvi að spyrja hvort
ekki væri einfaldast fyrir stjórnarvöldin
að losa sig við þjóðina og kjósa sér aðra.
Þessi snjalla samliking kemur i hugann
þegar sovésk stjórnarvöld hafa brugðið á
það ráð að flytja andófsmanninn Sol-
sénitsin úr landi, — reynt er að flytja þá
hluta þjóðarinnar i burtu sem falla ekki
valdhöfunum i geð! Skyldi nokkurn
timann hafa frést af smánarlegri uppgjöf
yfirvalda?
Smyslov stöðvaður?
Ég held að flestir hafi verið á
einu máli um það að 7. umferð
Reykjavfkurskákmótsins hafi
verið sú skemmtilegasta til
þessa. Það var barist hart á ölium
borðum, nema einu. Þar bauð
Bronstein jafntefli I skák sinni
gegn Ciocaltea eftir 12 leiki, og þó
hafði Bronstein hvitt. Rúmeninn
þáði að sjálfsögðu jafnteflið, en
ári er Bronstein orðinn kjarklftill
að þora ekki að tefia til vinnings
með hvitu gegn sér miklu lakari
manni.
Jón Kristinsson hafði hvitt gegn
Guðmundi, og viku þeir fljótt af
alfaraleið og mátti tæpast á milli
sjá hvor tefldi frumlegar. Eftir 20
leiki var komin ein sú frum-
legasta og skemmtilegasta staða
sem sést hefur I mótinu. Þá hafði
Jón látið tvö peð gegn einu, og þó
að hinum peðunum hafi veriö
leikið langt fram á boröið var eins
og mennirnir kæmust allra sinna
ferða þrátt fyrir það. Sérstakiega
áttu riddararnir góöa reiti viða
um borðiö. En svona flóknar stöð-
ur krefjast mikils unhugsunar-
tima, og i lokin lentu báðir i þvi
heiftarlegasta timahraki sem um
getur, og I 35. leik lék Jón af sér
hrók og gafst samstundis upp, en
mér er til efs að þeir hefðu getað
lokið 40 leikjum á tilskildum
tima.
Hvitt: Jón Kristinsson
Svart: Guðmundur Sigurjónsson
1. Rf3 g6
2. g3 Bg7
3. Bg2 Rffi
4. C4 0-0
5. 0-0 d6
6. Rc3 c6
7. b4 d5
8. d4 dxc4
9. e4 a5
10. b5 cxb5
11. e5 Rd5
12. Rxb5 Bf5
13. Rg5 Rc6
Svartur er ekki hræddur við
framhladið 14. Bxd5Dxd5. 15. Rc7
Dxd4 16. Dxd4 Rxd4 17. Rxa8
Hxa8 18. f4
14. Bb2 Bd3
15. Hel Rcb4
16. e6 f5
Tekur e4 reitinn af riddaranum
á g5.
17. Dd2
18. a4
19. h4
20. Rc3
Hótar að vinna e-peðið
.. Bxg5 22. hxg5 Hxe6
21. Rxd5 Itxd5
22. He5 Rc7
23. d5 Bg7
24. Rf7 HxR
Um annað er tæpast að ræða.
25. exf7 Kxf7
26. Hxe7
Þetta virðist besti Ieikurinn. 26.
Dc3 Bxe5 27. Dxe5 Re8 og svartur
sleppur.
26.... Kxe7
27. Bxg7 Rxd5
28. Hel Kf7
29. Dh6 Db4
30. He5 Rf6
Þetta er mjög góður leikur, sem
kemur i veg fyrir sóknaraðgerðir
hvits á köngsvængnum.
31. Bxf6 Kxf6
32. f4
Betri möguleika gaf framhaldiö
32. Dg5 Kxe5 33. Dxd8 sérstaklega
með tilliti til þess hve gifurlegu
timahraki báðir voru i.
32. ... Hd7
33. He8
Db6
Bh6
Had8
Hf6
með 21.
Til greina kom 33. h5 en svartur
getur svarað þvi með 33. ... Db6
og Dd8 sem valdar alla reiti
umhverfis svarta kónginn.
33. ... Be4
34. Hf8 Ke6
35. Dg5?? Dxf8
gefið.
Freysteinn hafði hvitt gegn
Forintos og virtist fá góða stöðu
upp úr byrjuninni, en furðulegar
veikingar á kóngsvæng og mið-
borði breyttu góðri stöðu i tapaða,
og Ungverjinn vann örugglega.
Magnús Sómundarson hefur teflt
ágætlega á mótinu og vann nú
siðast Tringov frá Búlgarfu.
Magnús Sólmundarson hafði
hvitt gegn Tringov og náði fljót-
lega rýmra tafli sem hann not-
færði sér vel til sigurs. Virðist
auðséð að Magnús hefur sjaldan
teflt betur en i þessu móti, en
vissulega veldur Tringov von-
brigðum.
Ingvar Asmundsson hafði hvitt
gegn Friðriki, og tefldu þeir Sikil-
eyjarvörn. Friðrik færöi sér vel i
nyt nokkra ónákvæmni Ingvars
og vann skemmtilega i 28 leikj-
um.
Hvitt: Ingvar Asmundsson
Svart: Friðrik ólafsson.
Sikileyjarvörn
1. e4 c5
2. Rf3 e6
3. d4 cxd4
4. Rxd4 Rc6
5. Rb5 d6
Hér leikur Fischer 6. Bf4 e5, 7.
Be3 Rf6 8. Bg5
6. c4 Rf6
7. Rc3 a 6
8. Ra.'t Be7
9. Be2 0-0
10. 0-0 b6
11. Be3 Bb7
Guðmundur valdi aðra leið i
skák sinni við Kristján i 3. um-
ferð. 11...Bd7 12. f3 Db8 13. Del
Ha7.
12. Rc2
Bronstein var litið hrifinn af
þessum leik betra. og taldi Hcl vera
12 Hc8
13. f3 He8
14. Dd2 Re5
15. b3 d5
Talið er að svartur sé laus úr
öllum vanda ef honum tekst að
leika d5 i Sikileyjarvörn sér að
meinalausu og sannast það
áþreifanlega í þessari skák.
16. exd5 exd5
17. Rxd5 Bxd5
18. cxd5 Rxd5
19. Bd4 Bg5
20. Ddl
Heima er best. Hvitur gat ekki
leikið 20. f4 vegna Rxf4 21. Hxf4
Bxf4 22. Dxf4 Hxc2 og svartur
vinnur. T.d. 23. Bdl Rd3
20.... Dc7
21. Bxa6 Hcd8
Svartur hirðir ekki um að drepa
á c2 þótt það ætti að nægja til
sigurs. 21. ... Dxc2 22. Bxc8 Dxc8.
22. Hel Rc3
Þrumulcikur.
Hvita drottningin á engan reit,
en Ingvar leikur þó nokkra leiki i
viðbót.
23. Bxe5 Hxe5
Hér gat Friðrik leikið 23. ...
HxD 24. BxD Hexel 25. Rxel Hxal
26. Bg3 Bd2 27. Kfl Hxa2 og
svartur vinnur, en þessi leið er
heldur tafsamari en sú sem hann
velur.
24. Dxd8 Bxd8
25. Hxe5 Dxe5
26. Hel Dc5
Þar fór siðasta vonin.
27. Kfl Kf8
gefiö.
Miðbragð
Velimirovic hafði hvitt gegn
Frh. á bls. 15