Þjóðviljinn - 28.07.1974, Blaðsíða 8
8 StÐA — ÞJ6ÐVILJINN Sunnudagur 28. júll 1974.
Sunnudagur 28. júli 1974. ÞJÓÐVILJINN — SÍDA 9
Ingólfshöfði rís einstakur við
sjávarmál utan við Leirur aust-
ast á Skeiðarársandi u.þ.b. 10
km suður frá Fagurhólsmýri. Er
þangað yfir grunna ála aöfara á
löngum kafla og aðeins fært tor-
færubilum. Höfðinn skagar að
hluta þverhniptur í sjó fram, og
er þar ríkulegt fuglalíf og frá-
bært útsýni. Þar lagði skipi sínu
sumarið 874 Ingólfur Arnarson
með skylduliði og búsmala, kom-
inn öðru sinni til islands, ráðinn í
að nema hér land og bera hér
beinin, og veturinn eftir dvaldi
hann í höfðanum.
Marga islenska landnema og
þá er skemmri viðdvöl höfðu bar
í öndverðu upp að austurströnd
landsins, sunnanverðum Aust-
fjörðum og Skaftafellssýslu.
Þessu réðu hafstraumar og ná-
lægð þessa landshorns við grann-
löndin í Evrópu. Þarna voru að
líkindum fyrstir á ferð kaup-
menn og landkönnuðir frá menn-
ingarríkjum við Miðjarðarhaf,
en vottur um heimsóknir þeirra
hefur fundist í formi silfurpen-
inga frá 3. öld í Hamarsfirði. í
kjölfar þeirra sigldu hingað
kristnir frumbyggjar og einsetu-
menn frá Bretlandseyjum, sem
hröktust burt héðan fyrir næstu
öldu innflytjenda, norrænum
heiðingjum, er hirtu bú þeirra og
bjöllur, en skiluðu i staðinn heim-
ildum um veru þeirra inn á spjöld
sögunnar og kölluðu þá Papa. Á
Papa minna allmörg örnefni á
Suð-austurlandi, þótt enn feli
jörðin örugg verksummerki um
byggð þeirra og umsvif. Að sama
landshorni bar svo knerri
margra þeirra norrænu manna,
er hingað komu viljandi og óvilj-
andi í öndverðu, og nægir að
minna á Naddoð og þá fóstbræð-
ur Ingólf og Hjörleif.
Hér verður engin sagnfræði
fram reidd, en Þjóðviljinn vill
með nokkrum myndum frá
Austurlandi minna á þetta land-
nám og óskráðan en forvitnileg-
an bakgrunn fastrar búsetu í
landinu, sem sýna mætti meiri
sóma í rannsóknum og ritum en
gert hefur verið hingað til.
Sigling var tið á Berufjörö til forna, og þar efldist kaupstaöur IGautavlk noröan fjaröar, en
siöar i Fýluvogi og Djúpavogi á Búlandsnesi. t Gautavik kom út Þangbrandur, er boöaöi
kristni, og hélt þaöan suöur meö iandi. — Myndin er tekin norður yfir Berufjörö, þar sem
enn gnæfa fjöll hin sömu og leiöbeindu sæförum til Gautavikur.
t iandi Beruness viö
Reyöarfjörö sést móta
fyrir fornri rúst, sem
naumlega hefur bjargast
undan þjóövegi. Hér er
Þór Magnússon, þjóö-
minjavöröur, á vettvangi
ásamt Magnúsi Stefáns-
syni frá Berunesi. Minna
má á, aö Naddoður hinn
færeyski lenti skipi viö
Reyöarfjörö, gekk þar á
fjöll og nefndi landiö Snæ-
land.
Hamarsfjö'röur er nú litt fýsiiegur til siglinga, þar eö sandrif loka mynni hans, og hefst þar
sú hafnieysa, er einkennir suöurströnd iandsins. A Bragöavöilum viö fjarðarbotn hafa hins
vegar fundist einhverjar elstu fornminjar hérlendis, þar sem er rómverskt skotsilfur. —
Myndin er tekin inn eftir Hamarsfiröi noröanveröum.
Djáknadys heitir þessi grjóthrúga viö alafaraleiö I Hamarsfiröi,
mynduö af hjátrú og aökasti feröalanga. Enginn veit nú, hver
kastaði þar fyrsta steininum, en þjóösagan rekur upphafiö til
bardaga milli djákna frá Hamri og prests frá Háisi þar litlu utar,
og viröist litiö hafa þynnst I þeim vikingablóöiö viö nýjan átrún-
aö.
Út af Búlandsnesi liggur
Papey, um fjórar sjómfl-
ur frá landi og 2,5 ferkm
aö flatarmáli. Hún var
lengst af eina byggöa eyj-
an viö Austfirði, kostarik
til lands og sjávar, og
landsýn þaðan hin
fegursta i björtu veðri. —
Myndin er tekin af Hellis-
bjargi, hæsta kletti á
eynni (58 metrar yfir
sjávarmál) i átt til Beru-
fjarðar. Stærsta úteyjan,
Arnarey, viröist landföst.
Rústir, sem forseti vor
hefur kannaö, eru i lágu
holti nálægt miöri mynd.
Texti og
Ijósmyndir:
Hjörleifur
Guttormss.
trskuhóiar, Papatættur og fleiri örnefni l Papey minna á sagnir um frumbyggja eyjarinn- Dr. Kristján Eldjárn, forseti, hefur hin sfðustu ár kannaö fornar mannvistarleifar I Papey
ar, en minjar um þá eru á huldu. Þessi mynd sýnir útsýni tii noröurs frá Hrafnabjörgum, m.a. grafiö þar upp skáia og útihús, sem gætu veriö frá söguöld, en eru ekki minjar um
austast á eynni, m.a. fjöll viö Austfirði svo sem Súlur noröan Breiödalsvlkur og eyjuna byggö Papa. A myndinni sést grunnur Iveruhússins.
Skrúö viö hafsbrún.
Frá bæjarrústunum i Papey: Til vinstri eru leifar eldstæöis, en til hægri sjást aöaidyr eöa útgangur, er veit mót suöri.