Þjóðviljinn - 07.01.1975, Blaðsíða 11
Þriðjudagur 7. janúar 1975. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11
4ra landa keppnin í körfuknattleik:
íslenska liðið bar
sigur úr býtum en...
sigurinn var dæmdur af því fyrir að nota of
marga leikmenn í mótinu,
þrátt fyrir það að danir hefðu áður leyft það
tslenska landsliðið I körfu-
knattleik vann um siðustu
helgi mesta afrek sem Isiensk-
ir körfuknattleiksmenn hafa
unnið til þessa, er það sigraði i
4ra ianda-keppninni i körfu-
knattleik sem fram fór I Dan-
mörku um helgina. En ekki er
ofsögum sagt af framkomu
dana i okkar garð, beri Islend-
ingar hærri hiut eii þeir i
iþróttum. Þeir iétu yfirstjórn
mótsins dæma sigurinn af is-
lendingum fyrir aö nota of
marga menn i mótinu og
dæmdu þá i neðsta sæti. ts-
iendingar notuöu 11 menn I
stað 10 sem alþjóöareglur
segja til um, en Islendingar
höfðu til þess munnlegt leyfi
frá dönum, sem svo gengu á
bak oröa sinna, þegar á
reyndi.
Þessi fólska dana gekk svo
fram af v-þjóöverjum, að þeir
ineituðu að taka við sigurverð-
laununum, sem þeim voru
dæmd eftir að danir höfðu
dæmt Islendinga frá sigri.
Lúxembúrgarmenn stóðu að
þessu óþokkabragði með dön-
um, en þeir eru okkur reiðir
eftir að KKt kærði þá til
Körfuknattleikssambands
Evrópu fyrir samningsrof um
landsleiki fyrr i haust.
Þetta 4ra landa mót var að-
eins æfingamót, stóð ekki i
sambandi við neina alvöru
keppni þannig að þetta skiptir
I sjálfu sér engu máli fyrir Is-
lenska liðið. Aðalatriðið er að
það SIGRAÐI t MÓTINU á
heiðarlegan hátt, sigraði bæði
v-þjóðverja og lúxembúrgara
en tapaði fyrir dönum, enda
skipti sá leikur engu máli,
mótið var unnið fyrir þann
leik.
Sigur islendinga yfir v-þjóð-
verjum, sem eru taldir vera
með eitt af bestu tándsliöum
Evrópu og Lúxembúrg sem
einnig á gott lið, er áreiðan-
lega mesta afrek sem Islensk-
ir körfuknattleiksmcnn hafa
unniö til þessa. Og það er orðið
langt slðan, ef frá er talið jafn-
teflið við a-þjóöverja I knatt-
spyrnu I haust, að úrslit 1
landsleikjum þar sem Islend-
ingar hafa verið annar aðilinn
hafa komiö jafn mikið á óvart
og þessi úrslit. Þau hafa aukið
hróður tslands um alla
Evrópu á Iþróttasviðinu og
veitti sannarlega ekki af. Ann-
ars urðu úrslit leikja I mótinu
þessi:
tsland — V-Þýskal. 83:70
ísland — Lúxembúrg 78:77
tsland — Danmörk 62:97
Danmörk—Lúxembúrg 64:69
Danmörk — V-Þýskal. 68:85
V-Þýskal. — Lúxemb. 59:48
íslensku stúlkurnar
unnu báða leikina
isl. kvennahandknatt-
leikslandsliðið vann auð-
velda sigra í báðum leikj-
um sinum við það banda-
riska/ sem fram fóru um
siðustu helgi. Fyrri leikur-
inn fór fram í Laugardals-
höllinni og lauk honum 21-8
og sá síðari/ sem fram fór í
Njarðvikum vannst með 19
mörkum gegn 5.
Þrátt fyrir þessa stóru sigra
finnst manni, að byrjun banda-
risku stúlknanna i handknattleik,
m
11. deild kvenna
KR sigraði
Víking og
Ármann FH
Tveir leikir fóru fram I 1.
deild kvenna um helgina, en
einum leik var frcstað, leik
Vals og Þórs frá Akureyri,
Þórs-stúlkurnar komust ekki
til Reykjavikur.
KR-stúlkurnar áttu ekki i
neinum erfiðleikum með Vlk-
ing og sigruöu 17:10 eftir að
hafa haft yfir I leikhléi 8:4.
Ilorfurnar hjá Vikingi eru nú
vægast sagt að verða alvar-
legar I 1. deild og segja má að
eina von þeirra til að halda sér
uppi sé að sigra Breiðablik
sem er með heldur slakt lið.
Strax á eftir leik KR og Vlk-
ings léku Ármann og FH. Hin-
ar ungu leikkonur Flf áttu
aldrei neina möguleika og Ar-
mann sigraði 19:11 eftir að
hafa haft yfir I leikhléi 10:3.
en þetta voru þeirra fyrstu lands-
leikir, sé mun betri en byrjunin
hjá körlunum nokkurn tima. A
köflum sáust ágætir leikkaflar
hjá þeim bandarisku og það sýn-
ir, að þær kunna sitt af hverju
þótt ennþá vanti leikreynslu og
æfingu i aö nýta þekkinguna til
fulls.
Það var svo sannarlega sorg-
lega fátt i Laugardalshöllinni
þegar fyrri leikurinn fór fram.
Greinilega hefur karlahandbolt-
inn tekið allan hug áhugamanna
og konurnar eru óneitanlega
nokkuð afskiptar.
Islensku stúlkurnar tóku strax
forystu I leiknum og héldu henni
stöðugt vaxandi. I leikhléi var
staðan 11-5 og eins og áður segir
urðu lokatölurnar 21-8.
Guðrún Sigurþórsdóttir varð
markahæst í leiknum með 7
mörk. Hún skoraði 4 fyrstu mörk
liðsins og tók sér siðan langt fri
eða þar til á siðustu minútunum
að hún bætti við þremur i röð.
Björg skoraði 3 mörk, Arnþrúður
3, Sigrún 3, Guöbjörg 2, Hanslna,
Oddný og Erla 1 hver.
Síðari leikurinn fór síðan
fram i Njarðvíkum. Þar
var Sigrún Guðmundsdótt-
ir í aðalhlutverki og
markahæst íslensku
stúlknanna með 5 mörk.
Björg Jónsdóttir fyrirliöi landsliðsins skorar hér eitt af mörkum sinum
I fyrri leiknum (Mynd: Einar)
Shp
Haraldur Kornellusson sigraði á nýársmóti TBR. Myndin er tekin I
undanúrslitaleiknum en inn I hana er felld mynd af verðlaunagripnum
sem hann hlaut.
Nýársmót TBR:
Haraldur er
enn ósigrandi
Friöleifur Stefánsson var nærri því aö
sigra Harald en úthaldið brást honum
Svo virðist sem enn sé langt I
land með að nokkur Islenskur
badmintonmaður storki Ilaraldi
Korneliussyni, sem veriö hefur ó-
sigrandi hér á landi um árabil. A
nýársmóti TBR sem fram fór sl.
sunnudag sigraði Haraldur enn I
mfl. eftir nokkuð harða viöureign
við Friðleif Stefánsson sem virð-
ist standa næstur Haraldi að getu
eftir að badminton varð auka-
grein hjá Sigurði Haraldssyni, en
hann var sá eini sem eitthvað
hafði I Harald að gera.
Þeir Haraldur og Friðleifur
léku til úrslita I mfl. á nýársmót-
inu. Fyrstu hrinuna vann Harald-
ur auðveldlega 15:6. En I annari
hrinunni náði Friðleifur sér vel
upp og sigraði 15:10 og það leit út
fyrir aö Friðleifur myndi sigra
þegar staðan var orðin 12:6 hon-
um i vil i úrslitahrinunni. En þá
tók Haraldur á honum stóra sin-
um. Friðleifur fékk ekki fleiri
punkta og Haraldur sigraði 15:12.
Kannski var það frekast úthaldið
sem brást Friðleifi þarna.
1 mfl. kvenna sigraði Lovisa
Sigurðardóttir Svanbjörgu Páls-
dóttur i úrslitum 11:5 og 11:0.
Úrsiitaleikurinn i A-flokki karla
var sannarlega leikur mótsins.
Þar áttust við tveir 16 ára gamlir
piltar sem af mörgum eru taldir
okkar efnilegustu badminton-
menn i dag, þeir Jóhann Kjart-
ansson og Jóhann G. Möller. Svo
fóru leikar að þessu sinni að Jó-
hann Kjartansson sigraði,en mik-
ið þurfti hann að hafa fyrir þvi.
Hann tapaði fyrstu hrinunni
11:15, vann svo aðra 17:14 og þá
þriðju 18:15 eftir að Jóhann Möll-
er hafði náð stöðunni 14:8; vant-
aði aðeins einn punkt til að sigra.
Hér var um að ræða úrslitaleik
eins og þeir gerast bestir.
1 A-fl. kvenna sigraði Kristin B.
Kristjánsdóttir Ragnheiði Páls-
dóttur i úrslitum 4:11— 11:5 og
11:0. I B-flokki karla sigraði Ei-
rikur ólafsson og i B-flokki
kvenna Bjarnheiður Ivarsdóttir.
U-landsliöið hafnaði í 4. sæti
lslcnska unglingalandsliöiö i
körfuknattleik hafnaði I 4. sæti á
Norðurlandameistaramótinu sem
fram fór i Noregi um helgina. Svl-
ar sigruðu, finnar urðu I 2. sæti,
norðmenn I 3. islendingar I 4. og
danir i 5.
trslit leikja Islenska urðu sem hér segir: liösins
tsland — Finnland 68:110
island — Sviþjóð 67:110
lsland — Noregur 67:93
island — Danmörk 96:83