Þjóðviljinn - 07.01.1975, Síða 16
DiOBVIUINN
Þriöjudagur 7. janúar 1975.
Töpuðu
einum
rœkju-
bátnum
Einn besti rækjubátur þeirra
á Hvammstanga er nú ekki leng-
ur til rækjuveiða fallinn, en hann
sökk úti fyrir Skaga er varðskip
var að draga hann til viðgerðar
frá Hvammstanga nú um helgina.
Eru þá fjórir rækjubátar á
Hvammstanga.
Að sögn Þórðar Skúlasonar
sveitarstjóra á Hvammstanga
hefur tíð verið rysjótt á Hvamms-
tanga undanfarið og snjór allmik-
ill. A laugard. var urðu þrjár
rútur tepptar við Staðarskála i
Hrútafirði, en þær voru á suður-
leið, og ætlunin hafði verið að
ryðja veginn suður yfir heiðarn-
ar. Af þvi varð ekki, og varð þvi
að koma ferðalöngunum i svefn-
stað nyrðra. Ein rútan varð eftir
við Staðtarskála, önnur fór með
farþega að Reykjaskóla þar sem
þeir fengu gistingu, en þriðja rút-
an fór til Hvammstanga. Flestir
ferðalanganna i þeirri rútu voru
frá Hvammstanga eða nærsveit-
um, svo engir erfiðleikar urðu á
að koma þeim fyrir. —úþ
í aukastarfi
Aðaimenn i borgarstjórn — 15
talsins — fá hver um sig kr. 25.394
kr. á mánuði i laun, segir i
greinargerð með fjárhagsáætlun
Reykjavikur fyrir árið 1975, og er
þvi greinilega ekki ætlast til þess
að menn sinni starfi þessu nema
hluta úr mánuðinum. Vara-
fulltrúar fá greiddar kr. 2.895 fyr-
ir hvern fund sem þeir mæta á, en
fundirnir eru sjaldan styttri en
fimm klukkustundir, verða
stundum — sjaldan! — 12 timar
samfleytt eða svo.
Borgaráðsmenn — fimm — fá
42.323 kr. á mánuði i grunnlaun.
siglir
niður
brú
Ilobart 6/1 reuter — Talið er
að fjöldi þeirra sem fórust er
skip sigldi á brú yfir
Deerwentána á Tasmaniu i
gær sé allt að 20 manns. Erfið-
lega gengur að finna lik hinna
látnu vegna kraps i ánni og
kulda.
7.200 tonna flutningaskip,
Lake Illawarra, sigldi á einn
af brúarstólpunum á sunnu-
daginn f myrkri og þoku með
þeim afleiðingum að þrjú
brúarhöf hrundu niður á skipið
sem sökk eins og steinn.
Lengd brúarinnar er 1.6 km en
sá hluti hennar sem hrundi
var 126 metra langur.
Brúin ber uppi hraðbraut og
var nokkur umferð á henni
þegar slysið varð. Fjórir bilar
steyptust fram af og fóru i sjó-
inn og var fallið um 40 metrar.
Ekki er vitað með vissu hve
margir voru í bilunum. 2
bílar stöðvuðust á brúnni og
vógu þar salt en héldust uppi.
Fimm lik sjómanna af skipinu
hafa fundist og tveggja er
saknað en hinir komust af.
Lögreglan óttast að farþegar i
bflunum sem fórust hafi ver.ið
allt að 20 talsins.
Urgur í sjómönnum vegna veiðileyfa til erlendra loðnuskipa
Áreiðanlega gripið
tíl róttækra aðgerða
— sagði Guðbjörn Þorsteinsson skipstjóri
á Þorsteini RE, sem heldur til loðnuveiða í dag
Guðbjörn Þorsteinsson akip
stjóri á Þorsteini RE
— Sj<Jmönnum almennt finnst
það hrein svfvirða að á sama
tlma og við erum að reyna að fá
50 milna landhelgina viður-
kennda skuli gefið út Ieyfi til
handa erlendum skipum að
veiða hér á þeirri loðnuvertið
sem nú fer I hönd. Alveg svo
fyrir utan það, sem mér per-
sónulega finnst nú minna virði,
að auðvitað eykur það hina dýru
og hvimleiðu löndunarbið is-
lensku loðnuskipanna að hleypa
erlendum skipum i veiðarnar.
Sá sem er svo ómyrkur i máli
er Guðbjörn Þorsteinsson,
skipstjóri á aflaskipinu
Þorstein.i RE, en hann hittum
við niðri við höfn i gær þar sem
hann og skipshöfn hans var að
leggja siðustu hönd á undirbún-
ing skipsins fyrir loðnuvertið-
ina, en Guðbjörn og hans menn
ætluðu að halda á miðin i dag.
— Sjómenn hafa haldið fund
um þessa leyfisveitingu og munu
aldrei sætta sig við hana. Þetta
er bara byrjunin, fleiri skip
munu koma á eftir þegar for-
dæmið hefur verið skapað, sagði
Guðbjörn. Við höfum óskað eftir
sjónvarpsumræðum um þetta
mál en ekki fengið þær, manni
virðist sem málið sé afar við-
kvæmt. Til að mynda var Morg-
unblaðið með smáviðtal við mig
fyrir fáeinum dögum, og þar
kom ég inná þetta mál, en þvi
var alveg sleppt úr viðtalinu.
— Hvað ætlið þið þá að gera i
málinu?
— Ég vil ekkert fullyrða um
til hvaða aðgerða verður gripið,
en ég þori að fullyrða að eitt-
hvað verður gert. Það hefur
fram að þessu alltaf verið nokk-
uð áhrifamikið að sigla flotan-
um 1 höfn, og ég á allt eins von á
þvi að sllkt myndi hrifa i þessu
máli.
— En svo við snúum okkur að
loðnuvertiðinni, þú ætlar út á
morgun, og hvert ferðu fyrst?
— Já, það er meiningin að
halda út á morgun og þá fyrst
austur fyrir landið. Annars hef-
ur maður ekkert heyrt enn frá
leitarskipinu, þannig að maður
rennir alveg blint i sjóinn með
þetta.
— Nú er ekki búið að ákveða
loðnuverðið, en þið byrjið samt?
— Já, menn hafa nú alltaf
gert það. Það er alveg eins gott
að hætta veiðum ef verðið verö-
uð óviðunandi eins og að biða i
landi eftir þvi, kannski öllu
sterkara að hætta veiðum en að
byrja þær ekki. —S.dór
Skipverjar á Þorsteini RE aðljúka undirbúningi fyrir fyrstu ferðina
á loðnumiðin á þessum vetri.
■J
Bandaríkin
Atvinnuleysi stóreykst
Washington 4/1 reuter — Fjöldi
atvinnulausra i Bandarikjunum
tók stökk I desembermánuði sl.
þá voru 6.5 miljónir atvinnulaus-
ar eða 7.1% vinnufærra manna i
landinu. Þetta er hæsta hlutfalls-
tala siðan árið 1961 en ekki hafa
fleiri verið atvinnulausir samtim-
is frá upphafi siðari heims-
styrjaldarinnar.
Arið 1940 þegar Bandarikin
höfðu enn ekki náð sér eftir
kreppuna komst tala atvinnuleys-
ingja upp i 8.1 miljón. Þá voru
vinnufærir menn i landinu aðeins
55.6 miljónir en núna eru þeir 91.5
miljónir svo þá var hlutfallslega
miklu meira en nú er.
En þrátt fyrir það er bessi
miklu fjöldi atvinnulausra nú al-
varlegt mál. Enda stóð ekki á við-
brögðunum. Jafnskjótt og tölurn-
ar birtust tilkynnti stjórnin að
bankavextir skyldu lækkaðir úr
7.75% i 7.25% til þess að örva
lánsviðskipti og vega á móti
stöðnun efnahagslifsins. Er þetta
önnur lækkunin á einum mánuði
en 6. des. sl. voru vextirnir lækk-
aðir úr 8% sem þeir höfðu verið i 8
mánuði.
Stríðshótanir Kissingers
KEIÐI ARABA
YEKJA
og einnig heimafyrir
Washington, Paris og Bonn 6/1
reuter ntb — Ummæli Kissingers i
blaðaviðtali I siðustu viku þar
sem hann vildi ekki útiloka að
Bandarikin beittu vopnavaldi ef
oliurikin tækju iðnrikin „kverka-
taki”eins og hann oröaði það hafa
kallað á ýmis andmæli.
Mahmud Riad, formaður
Arababandalagsins, sagði i Kairó
i dag að ummæli Kissingers væru
brot á sáttmála Sameinuðu þjóð-
anna og að Arabarikin yrðu að
taka þau alvarlega. Sagði Riad að
löndin yrðu að gera ráðstafanir til
að verjast hugsanlegum átökum
viö Bandarikin um oliulindirnar.
Blaðið A1 Ahram I Kairó ásakar
Kissinger fyrir að leika sér með
eldinn og að auka spennuna fyrir
botni Miðjarðarhafs. Einnig sagði
blaðið að orkukreppuna væri ein-
ungis hægt að leysa með sam-
vinnu en ekki gagnkvæmum liðs-
safnaði.
Tveir þingmenn demókrata i
Bandarikjunum hafa fordæmt
ummæli utanrikisráðherrans og
kallað þau siðlaus og vitlaus. —
Ég býst við að Kissinger hafi
þarna misstigið sig og vona að
hann jafni sig, sagði annar
þeirra, Henry Reuss, i sjónvarps-
viðtali.
Þá hefur Helmut Schmidt
kanslari Vestur-Þýskalands sagt
i viðtali að stjórn hans muni berj-
ast gegn hverri tilraun Banda-
rikjanna til að nota herstöðvar
sinar I Þýskalandi til vopnaflutn-
inga til Israels. Kvað hann stjórn
sina staðráðna i að halda fast við
hlutleysisstefnu sina i málefnum
Austurlanda nær.
Loks birtist i dag viðtal við
Yassir Arafat leiðtoga PLO i
franska blaðinu Le Monde þar
sem hann segir Kissinger gleyma
tveimur mikilvægum atriðum i
útreikningum sinum. 1 fyrsta lagi
myndu Arabarikin frekar
sprengja oliulindir sinar i loft upp
en að láta þær falla i hendur
Bandarikjunum og „i öbru lagi
eru það ekki Bandarikin sem ráða
öllu um gang heimsmálanna. Við
getum vænst stuðnings voldugra
bandamanna”, sagði Arafat.
Ekki nafngreindi hann banda-
mennina en vafalaust hefur hann
þar átt við Sovétrikin.
Arafat lagði áherslu á að ef
Arabarikin gripu til efnahags-
legra hefndaraðgeraða i hugsan-
legu striði við Israel myndi það
koma jafnhart niður á Evrópu-
rikjunum og Bandarikjunum. —
Það efnahagsöngþveiti sem skap-
aðist vegna aðgerða okkar myndi
breiðast út um allan hinn vest-
ræna heim,sagði hann.
Arafat staðfesti að verið væri
að undirbúa stofnun bráðabirgða-
stjórnar Palestinu en kvað allt tal
um útlagastjórn vera hugaróra
eina. Hann upplýsti einnig, að sið-
an 1965 þegar fyrsta þjóð-
frelsishreyfingin var stofnuð hafi
37.600 palestinskir skæruliðar
verið drepnir. Einnig sagði hann
að nú sætu um 10 þúsund skæru-
liðar i israelskum fangelsum til
viðbótar þeim 850 sem komið hafa
fyrir rétt þar og hlotið dóm.