Þjóðviljinn - 19.03.1983, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 19.03.1983, Blaðsíða 5
Helgin 19.-20. mars 1983 Í.JÓÐVILJINN - SÍÐA 5 veröri óvissu um raunveruiega stærð íslenska hrygningarstofnsins. Mælingar á stofnstaerð sumar- gotssíldar (mynd 3) ná yfir lengra tímabil, eða allt frá árinu 1947 að telja. Hinar gífurlegu sveiflur, sem þar koma fram og samhengi þeirra við afrakstur í veiði er ekki síður lærdómsrík lexía. Alveg sérstak- lega er uppbygging stofnsins með hámarksveiðikvóta frá árinu 1972 að telja lýsandi dæmi um nauðsyn og gildi stjórnunar, þótt hún hafi ekki að sama skapi náð til veiðiflot- ans, þar sem alltof mörg skip hafa sótt í takmarkaðan afla og tilkostn- aður við veiðarnar þannig orðið langt úr hófi fram. Stofnstærðarmælingar á loðnu ná aðeins yfir 5 ára tímabil (mynd 4), en segja dapurlega sögu um hrun stofnsins að undanförnu, sem öllum er í fersku minni. Sérstak- lega er athyglisvert, hversu nærri stofninum er hægt að ganga með veiði og hversu seint bresturinn í stofnstærð segir til sín í minnkandi afla. Beina verður fjármagni til vinnsiunnar Enginn heldur því fram, að fiski- fræði sé enn nákvæm vísindi, eða að þeir sem við mælingar og úr- vinnslu gagna vinna séu óbrigðulir. Til þess skortir enn þekkingu, svo og mannafla og fjármagn til gagna- öflunar. Úr því þarf að bæta og um leið að gera kleift að auka fiskileit og aðra þjónustu við fiskveiðiflot- ann og eftirlit með honum. Við okkur blasa hins vegar takmörk á stærð og þoli fískistofnanna nægi- lega skýrt til að mark sé á takandi og þá vitneskju eigum við að hag- nýta okkur til að tryggja skynsam- lega stjórnun og ná fram viðunandi arðsemi í veiðum. Hvert stefnt hef- ur í veiðunum sést m.a. á mynd 5, þar sem dregin er fram sú fjárfest- ing, sem bundin er í sístækkandi fískveiðiflota, en stærð hans er í engu samræmi við afrakstur fiski- stofnanna, tilkostnað við veiðarnar og aflaverðmæti. Einnig í þessu efni verða menn þó að slá varnagla. Endurnýjun togaraflota okkar var brýn nauðsyn og sjómenn okkar áttu kröfu á bættum aðbúnaði og öryggi, og er hvorugt komið í neina óskastöðu. Bátaflotinn er nú í heild orðinn gamall og úreltur. Viðhald og endurnýjun fiskiskipastólsins er sjálfsagt verkefni, sem leysa á jafnt og þétt í innlendum skipasmíðast- öðvum, sem nú hafa fengið þær rekstraraðstæður, að þær eiga að vera fyllilega samkeppnisfærar við erlenda keppinauta. Á sama tíma og beita verður miklu aðhaldi í fjárfestingu í nýjum fiskveiðiskipum, er afar brýnt að tryggja fjármagn til endurbóta og hagræðingar í fískiðnaði. Öfugþró- un í sjávarútvegi liðinna ára lýsir sér i fjárhagsstöðu Fiskveiðasjóðs, sem þarf í ár að taka 483 miljón króna erlendt lán vegna greiðslu- halla til þess eins að geta staðið við skuldbindingar sínar á sama tíma og aðeins 180 miljónir króna eru til ráðstöfunar vegna útlána. Greiðsluhallinn er að mestu til- kominn vegna stórfelldra vanskila útgerðaraðila við sjóðinn. Á sama tíma er neitað um lán til fram- kvæmda í fiskvinnslu. Löngu virðist tímabært að endurskoða út- lánastarfsemi Fiskveiðasjóðs, m.a. að greina skýrt á milli fjármagns, sem heimilt er að ráðstafa til fiski- skipa annars vegar og fiskiðnaðar hins vegar. Breytt stjórnun botnfiskveiða Stjórnun fiskveiða hefur mikið verið rædd af hagsmunaaðilum og stjórnvöldum undanfarin ár. Kvót- askipting hefur verið tekin upp við síldveiðár í hringnót (verðmætis- kvóti ásamt hámarksafla) og á loðnuveiðum (magnkvóti). Þessar stjórnunaraðgerðir voru óhjá- kvæmilegar og mættu í reynd ekki mikilli andstöðu. Eflaust er unnt að bæta þær í ljósi fenginnar reynslu. Á botnfiskveiðum búum við hins vegar enn við meingallað skrap- dagakerfí, þótt reynt hafi verið að sníða af því verstu annmarkana. Allhörð andstaða virðist enn gegn kvótafyrirkomulagi, t.d. á þorsk- veiðum. Ég tel mjög brýnt að menn reyni hið fyrsta að ná saman um skiptingu þess afla, sem heimilað er að veiða í heild, milli fískiskipanna með það að markmiði ekki síst að draga úr útgerðarkostnaði og bæta meðferð aflans. Ýmsar aðferðir geta komið til álita í sambandi við aflakvóta, eins og tillögur hafa komið fram um á Fiskiþingum. Einnig bendi ég á nýlega grein eftir Magna Kristjánsson skipstjóra í Þjóðviljanum um þessi efni (3.mars 1983). í þessu sambandi virðist verðmætis- eða einingakvóti gefa mesta möguleika til skynsam- legrar stjórnunar, þar sem breyta mætti gildishlutfalli milli tegunda eftir aðstæðum, bæði fiskifræði- legum og varðandi markað. Ég er ekki að halda því fram, að kvótafyrirkomulag á botnfisk- veiðum sé eitthVert allsherjar- töfraráð, því fer fjarri. Hins vegar rnæla svo mörg atriði með því að mínu mati, að skylt er að reyna að skapa um það samstöðu. Fisk- veiðarnar þarf að laga í mun ríkari mæli en nú er gert að vinnslu í landi og markaðsaðstæðum. Á þessu sviði þarf þekking og skipulag að taka við af handahófi, sem alltof lengi hefur viðgengist. Gæði og hagkvæmni íöndvegi Samhliða slíkum breytingum til að auka afrakstur af takmörkuðum sjávarafla er brýnt að búa vel rekn- um fyrirtækjum í sjávarútvegi við- unandi rekstrargrundvöll, og aðstoða þau sem nú berjast í bökk- um við að bæta sinn rekstur, en setja jafnframt eðlileg og ákveðin skilyrði um úrbætur í rekstri. Þetta er brýnasta byggðamálið um þessar mundir og það er jafnframt for- senda þess, að unnt sé að tryggja áframhaldandi fulla atvinnu um land allt. í sjávarútvegi okkar eru enn miklir möguleikar ónotaðir. Þar þarf nú að setja gæði og hag- kvæmni í öndvegi og ýta undir heilbrigðan rekstur, sem staðið geti undir góðum hlut til sjómanna og til starfsfólks í landi fyrir hóf- legan vinnudag. Alþýðubandalagið hefur haft forystu um sókn og uppbyggingu í sjávarútvegi öðrum flokkum frem- ur síðustu áratugi. Þar er enn mikið verk að vinna, sem verða mun snar þáttur í þeirri íslensku auðlinda- og atvinnustefnu, sem Alþýðubanda- lagið berst fyrir og leitar eftir stuðningi við í komandi kosn- ingum. Árstíðar- fundur Samhygðar Samhygð gengst fyrir árstíðar- fundum fjórum sinnum á ári og eru þeir haldnir á sama tíma í öllum þeim löndum sem félagsskapurinn starfar í eða 46 þjóðlöndum. Á mánudaginn kemur verður einn slíkur fundur hér í borg, og verður hann haldinn í Sigtúni undir yfirskriftinni: Gegn öllu ofbeldi. Að sögn Önnu Helgu Hilmarsdótt- ur og Heiðrúnar.Olafsdóttur, en þær eru leiðbeinendur í Samhygð, beinist baráttan ekki aðeins gegn meiriháttar ofbeldi svo sem styrj- öldum heldur öllu ofbeldi m.a. því sem er innra með okkur og andlegu ofbeldi í mannlegum samskiptum, bæði á heimilum og í skólum. Þær stöllur sögðu að á ofbeldi vildu þau í Samhygð vinna með því að bæta mannleg samskipti þannig að fólk komist í nánari tengsl hvert Anna Helga og Heiðrún: Gegn öllu ofbeldi. (Ljósm.-eik). við annað. Árstíðarfundurinn í Sigtúni er opinn öllum almenningi og þar verða fyrst og fremst heima- löguð skemmtiatriði en engin að- keypt. Við viljum að félagar og gestir þeirra skemmti hver öðrum, segja þær Anna og Heiðrún. Þetta er sjálfboðaliðsvinna í þágu lífsins. Á fundinum verður margt skemmtilegt um að vera og eitthvað handa öllum. Fólk má troða upp, spila á gítar, syngja eða hvað sem er. Við komum saman til að skemmta okkur og ræða málin. Undanfarnar vikur hefur Sam- hygð kynnt hreyfinguna í fram- haldsskólum og í framhaldi af því verður farið á stóra vinnustaði. -GFr fiBUHMB í MTKLU 'ÓWALI HANDA .STELPUM 0G STRAKUM. Reióhjólaversiunin -- mmmmL v Spitalastig ö viö Oðinstorg 5:14661-26888 Iherber&’ a fierin A0 eröi lá GRÁFELÐUR ÞINGHOLTSSTRÆTI 2

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.