Þjóðviljinn - 19.03.1983, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 19.03.1983, Blaðsíða 13
Helgin 19.-20. mars 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13 kvikmyndir Bergman í fínu formi Ég skrapptil Stokkhólms um daginn og sá nýjustu myndina hans Ingmars Bergman, Fanny og Alexander, sem frumsýnd var þar fyrir skömmu og hefur hlotiöeinrómalof gagnrýnendaog áhorfenda. Bergman hefur lýst því yfir að þetta sé síðasta leikna myndin sem hann stjórnar, en vonandi er ekki meira að marka það en hliðstæðar yfirlýsingar Luis Bunuel, sem um margra ára skeið hefur verið með hótanir af þessu tagi við hverja frumsýningu. Fanny og Alexander-er stór- kostleg kvikmynd, í einu orði sagt, og langt síðan eitthvað sam- bærilegt hefur komið frá Berg- man. Myndin hefur beinlínis allt til að bera sem ein kvikmynd get- ur haft: frábæra leikara, kvik- myndatökumanninn Sven Ny- kvist, og alla þá galdra og kúnstir sem Bergman hefur á valdi sínu, bæði sem handritshöfundur og leikstjóri. Þetta er mynd um stóra, lífsglaða fjölskyldu í upp- hafi þessarar aldar, fjölskyldu Söguþráðurinn er flókinn, persónurnar margar. og margt sem gerist. Sumt af þvi er galdri líkast, einkum það sem tengist Gyðingnum Isak, sem er gamall vinur ömmu barnanna og frelsar þau að lokum úr klóm biskups- ins. í lokin er fjölskyldan sam- einuð á nýjan leik og allir glaðir. Drauntar og fantasía gegna stóru hlutverki í þessari mynd, sem er kannski fyrst og fremst mynd um listina. Framliðnir ganga aftur eins og ekkert sé sjálfsagðara og það er hægt að hafa áhrif á atburðarásina með viljastyrkinn einan að vopni. Drengurinn Alexander virðist vera sú persóna sem næst kemst Íiví að túlka sjónarmið Bergmans jálfs, og kannski má segja að þarna hafi Bergman gert ntynd um barnið í sjálfum sér. Það er þó" aðeins ein hliðin á málinu, því einsog allar góðar kvikmyndir er - Fanny og Alexander afskaplega margþætt og býður upp á ótelj- andi túlkunarmöguleika. Vonandi verður þess ekki langt að bíða að myndin verði tekin til sýninga hér á. landi. Auk þeirrar útgáfu sem ég sá, er rúmlega þriggja stunda.löng. er verið að gera sjónvarpsútgáfu sent verður enn lengri, eða 5-6 tírnar í ailt. Við getum því verið nokkuá vongóð: ef. bíóstjórarnir taka ekki við sér getur verið að sjón- varpið geri það. Missing Bandaríkin, 1982 Handrit: Costra-Gavras og Donald Stewart, eftir bók Thomas Hauser. Stjórn Costa-Gavras Kvikmyndun: Ricardo Aronovich Tónlist: Vangelis Aðalhlutverk: Jack Lemmon, Sissy Spacek. Sýningarstaður: Laugarásbíó. Costa-Gavras er Grikki sem var ungur sendur til náms í Frakklandi og hefur verið þar síðan, löngu heimsfrægur kvikmyndastjóri og þekktastur fyrir að gera þrælpólit- ískar, róttækar kvikmyndir sem slá í gegn á alþjóðlegum markaði. Hann er, líka forstöðumaður franska kvikmyndasafnsins, Cin- amaður, Charles Horman hverfur frá heimili sínu í Santiago nokkrum dögum eftir valdaránið. Faðir hans kemur fljúgandi frá New York til að aðstoða tengdadóttur sína við að hafa uppi á Charles. Bandaríska sendiráðið þykist taka þátt í leitinni en gerir í rauninni ekki annað en villa um fyrir Horman og reyna að blekkja hann, enda kemur í ljós að Charles var drepinn með samþykki þessa sama sendiráðs, fyrir að hafa óvart komist að hinu sanna um hlut bandarískra stjórnvölda í valda- ráninu. Týndur er pólitísk kvikmynd, gerð í þeim tilgangi að sýna banda- rískum almenningi og öðrum áhorfenum fram á óhúgnanlegar staðreyndir sem venjulega er lagt TÝNDUR ematheque Francaise. Þessi nýj- asta mynd hans, Missing, er tekin í Mexico og framleidd af bandarísk- um aðilum. Hún er líka greinilega ætluð bandarískum áhorfendum fyrst og fremst. Lesendum þessa blaðs eru á- reiðanlega í fersku minni þeir hryllilegu atburðir í Chile í sept- ember 1973, þegar herforingjar hrifsuðu völdin af Salvador Al- lende forseta, myrtu hann og tugi þúsunda annarra landa sinna og komu á þeirri ógnarstjórn sem nú hefur bráðum ríkt í áratug og dygg- ilega gætt bandarískra hagsmuna þar suður frá. í september 1973 voru Bandaríkjamenn enn á nálum um að bein aðild þeirra að þessu blóðuga valdaráni kynni að spyrj- ast út, en skömmu síðar varð hún reyndar á allra vitorði, þegar ITT- skjölin frægu komust í heimspressuna. Myndin Týndur gerist í Chile þessa svörtu septemberdaga og er byggð á raunverulegum atburðum einsog fyrri myndir Costa-Gavras: Z, Umsátursástand (State of Si- ege), Játningin. Ungur Bandaríkj- mikið kapp á að dylja, staðreyndir sem afhjúpa heimsvaldastefnu Bandaríkjanna. Aðferðin sem not- uð er í myndinni er snilldarlega ein- föld og áhrifamikil og felst í því að láta venjulegan bandarískan milli- stéttarmann beinlínis reka sig á þessar staðreyndir, gera þær að fjölskyldumáli hans og þarmeð máli sem snertir okkur öll. Hver getur ekki sett sig í spor Jacks Lem- mons og upplifað með honum áhyggjurnar af einkasyninum horfna? Ed Horman er miðaldra kaupsýslumaður í New York, siða- vandur og trúaður, meðlimur í trúflokknum' Christian Scientists. Hann hefur megnustu vantrú á syni sínum og tiltækjum hans, enda hef- ur drengurinn ekki fetað í fótspor föður síns. „Hefði hann bara hald- ið sig heima hjá sér hefði þetta aldrei komið fyrir“, segir hann við Beth tengdadóttur sína, sem að hans dómi á ekki svo lítinn þátt í óförum Charles. Þessi viðhorf Eds eiga þó eftir að breytast allrækilega, eftir því sem Fanny (Pernilla Alwin) og Alexander (Bertil Guve), innilokuð á bisk- upssetrinu. sem hefur lífsviðurværi sitt af leikhúss- og veitingahúsarekstri. í upphafi myndar sjáum við jóla- hald þessarar fjöiskyldu. Glauni- urinn og gieðin er í hámarki og lífið er leikur, en að baki býr óút- skýrður harrnur sem er til staðar en fær aldrei yfirhöndina. Svo kentur dauðinn í spilið. Ekdahl leikhússtjóri deyr og skilur eftir sig unga ekkju með tvö börn. Ekkjan er von bráðar búin að násér í nýjan mann, sjálf- an biskupinn á staðnum, og þá kveður við nýjan tón. Biskups- setrið er aigjör andstæða Ekdahl- heimilisins, þar ríkja ströng við- horf og biskupinn leggur allt kapp á að brjóta niður sjálfstæð- an vilja og lífsgleði nýju konunn- ar sinnar og bama hennar, Fanny og Alexanders. Sissy Spacek og Jack Lemmon í hlutverkum sínum í Týndur. þær upplýsingar hjá starfsmanni Ford Foundation, að sonur hans hafi verið tekinn af Iífi á íþrótta- leikvanginum í Santiago 19. sept- ember, gengur hann að sjálfsögðu út af skrifstofunni niðurbrotinn maður. Hann fer niður stiga og leggur síðan óvart af stað upp annan stiga, sem liggur upp á sömu hæðina og hann var að koma frá, í stað þess að halda áfram niður. Þetta er einsog atriði úr gaman- mynd, og Jack Lemmon er snill- ingur í einmitt atriðum af þessu tagi. Hann áttar sig á vitleysunni, staldrar við eitt andartak og snýr svo við. Þetta virðist vera smáatriði - en viðbrögð áhorfenda eru hlátur. Það er mikill léttir í þeim hlátri. í myndinni er alveg mátulega mikið af slíkum atriðum til þess að hún verður aldrei óbærileg. Týnd- ur er nefnilega skemmtileg mynd, fyrir utan allt annað. Skemmileg- heitin draga ekki úr óhugnaðinum sem frásögnin vekur, en þau beina samúð áhorfandans á réttar brautir. Þannig eiga listaverk að vera. Þetta grandalausa fólk hefur skyndilega lent í sjálfu helvíti, því hvað er annað hægt að kalla það ástand sem ríkir í Chile þessa dag- ana fyrir tíu árum og ríkir að miklu leyti enn? Fólk er skotið niður eins- og hundar, líkin liggja á götunum, fljóta á ánum og líkhúsin eru yfir- full, aftökur og bókabrennur eru daglegt brauð, hermenn vaða uppi og láta dólgslega, óttinn ræður ríkj- um. Með því að sýna þetta ástand einsog það kemur aðkomufólki fyrir sjónir færir kvikmyndin það enn nær okkur, gerir það raunveru- legra - þetta er eitthvað sem við gætum jafnvel lent í sjálf. Jafn- framt er þetta ástand sem við vitum að ríkir víða - myndin gæti þess- vegna eins gerst í t.d. E1 Salvador í dag. Costa-Gavras beitir ýmsum brögðum til þess að gera okkur persónurnar nákomnar og fá okkur til að setja okkur í spor þeirra. Eitt þessara bragða er fólgið í því að létta á spennunni í hvert sinn sem hún ætlar að verða óbærileg, og skal hér nefnt eitt dæmi af mý- mörgum. Þegar Ed hefur fengið leitin verður erfiðari og vonlausari og hann kynnist tengdadóttur sinni betur. Þau kynni verða líka til þess að hann sér Charles loksins í réttu ljósi og lærir að meta hann. Það er enn til marks um snilld Costa-Gavras, að hann gerir Beth og Charles ekki að sannfærðum kommúnistum eða vinstrisinnuð- um róttæklingum af neinu tagi. Þau eru líka „venjulegt fólk“, á sinn hátt: léttfríkaðir bandarískir krakkar, forvitnir og heiðarlegir, í leit að nýjum lífsstíl - og hver getur ekki lifað sig inn í það? Ingibjörg Haraldsdóttir skrifar

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.