Þjóðviljinn - 12.11.1986, Page 6
Fíkniefnamyndin
Eftirlit
með
kostnaði
Borgarráð stöðvar tökur
áfrœðslumynd um
fíkniefni
Undirbúningsnefnd vill
láta Ijúka gerð
myndarinnar
Borgarráð hefur samþykkt þá
ákvörðun borgarstjóra að stöðva
tökur á fræðslumynd um fíkni-
efnamál, þar sem kostnaður hef-
ur farið rúmlega 100% fram úr
áætlun. Engu að síður er stefnt að
því að halda gerð myndarinnar
áfram áður en langt um líður.
Tákn s.f. var fengið til að gera
myndina og var ákveðið að leggja
til hennar 1750 þúsund krónur,
en síðan hefur komið á daginn að
þegar hafa verið lagðar um 4 milj-
ónir í myndina. Akveðið hefur
verið að kanna hvernig í þessu
liggur.
Undirbúningsnefnd um gerð
myndarinnar hefur engu að síður
áhuga á að myndin verði fullgerð.
Guðrún Ágústsdóttir, sem á sæti í
nefndinni, sagði á borgar-
stjórnarfundi að þó yrði að halda
frekari kostnaði í skefjum eins og
hægt er og borgin yrði að hafa
eftirlit með framkvæmd og kostn-
aði. Hins vegar sagði Guðrún að
það yrði skaði ef sú vinna og þeir
peningar sem lagðir hafa verið í
myndina glötuðust, og því væri
rétt að ljúka gerð hennar.
-68
FRETTIR
Tölvumiðstöð
Fatlaðir þurfa eina miljón
Félag um tölvumiðstöð fatlaðra hyggst hefja rekstur
Tölvumiðstöðvar á nœsta ári. Sótt um eina miljón á
fjárlögum
Við treystum því að þessu er-
indi okkar verði sinnt, að við
fáum nægilegt fé til þess að koma
Tölvumiðstöðinni í gagnið, enda
er það mjög brýnt fyrir fatlaða,
sagði Kristín Ingvarsdóttir for-
maður Félags um tölvumiðstöð
fatlaðra í samtali við Þjóðviljann
í gær.
Öryrkjabandalagið hefur
skorað á stjórnvöld að veita fé á
næstu fjárlögum svo hægt verði
að koma tölvumiðstöðinni í gagn-
ið.
Farið hefur verið fram á eina
miljón króna fyrir starfsemina á
næsta ári og á það fé að standa
undir rekstri skrifstofu með ein-
um starfsmanni.
Tölvumiðstöðin var stofnuð í
fyrra haust, en hefur ekki getað
hafið starf vegna fjárskorts. Sótt
var um framlag úr ríkissjóði í
fyrra, en beiðnin barst of seint og
ekkert fékkst. Kristín sagði í gær
að miðstöðin væri hugsuð sem
upplýsinga- og ráðgjafarmiðstöð
fyrir fatlaða, þar sem þeir yrðu
fræddir um vélbúnað og hugbún-
að sem gæti nýst þeim í námi,
starfi og tómstundum. Styrkt-
arfélag lamaðra og fatlaðra
hyggst útvega húsnæði undir
starfsemina. _gg
Félagar úr Hjálparsveit skáta Hafnarfirði ásamt fjölskyldum við vígslu neyðarskýlisins.
Hjálparsveit skáta
Neyðarskýli við Grindarsköið
Hjálparsveit skáta í Hafnar-
firði vígði á dögunum neyðarskýli
getrauna-
VINNINGAR!
12. leikvika - 8. nóvember 1986
Vinningsröð: 11X-X11-121-122
1. vinningur: 12 réttir, kr. 574.910,-
12478
131952(6/11)+
132746 (6/11)
205544(10/11)
206925(11/11)
210111(10/11)
2. vinningur: 11 réttir, kr. 10.125,-
3629
8408
5953
13738
15143
16350
18383
20567
20872
22775
42580
42716
45095+
45177+
50009+
50733
53367*
54385
54800
56587
57013
57090
57503
58055
58895
60284
65728
68753
72816
73313*
74548
75702
75826+
95346
95447*
96641*
96659
96943
98096
100349+
100796
101840+
101344
101771
102019
102616
103867
104871+
105480
125063
125501
125912+
126407
126697*
127049
127147*
127611
128557+
129182
129819+
130131
130138
130678*
130812
130815
131486*
131682
131763+
131776+
131842*+
132732 207937*
133623+ .210093
168590
184424
200395
201558
201728
201729
203203
204402
204771
205029
205443
206867
210117
527718
529818
132713
Ör 11.
41213+
102584*+
2/11
Kærufrestur er til mánudagsins 1. des. 1986 kl. 12.00 á
hádegi.
tslenskar Getraunir, Íþrótíamidstödinni v/Sigtún, Reykjuvik
Kærur skulu vera skriflegar. Kærueyðublöð fást hjá umboðsmönnum og á
skrifstofunni í Reykjavík. Vinningsupphæðir geta lækkað, ef kærur verða tekn-
ar til greina.
Handhafar nafnlausra seðla (+) verða að framvísa eða senda stofninn og fullar
upplýsingar um nafn og heimilisfang til íslenskra Getrauna fyrir loka kæru-
frests.
sem komið hefur verið upp við
nýja Bláfjallaveginn ofan Hafn-
arfjarðar.
Skýlið er ætlað öllum þeim sem
lenda í vandræðum og þurfa á að-
stoð að halda, bæði skíðafólki,
vélsleðafólki og öðrum ferða-
löngum. Neyðarskýlið er staðsett
við gömlu Selvogsgötuleiðina,
neðan við Grindarskörð.
Við uppsetningu skýlisins naut
hjálparsveitin aðstoðar Vega-
gerðarinnar, bæjaryfirvalda í
Hafnarfirði og fleiri aðila en
Landssamband hjálparsveita gaf
talstöð i skýlið. ~lg.
Snjóruðningur
Vilja
sérstakt
átak
Borgarfulltrúar Alþýðubanda-
lagsins hafa lagt til að sérstakt
átak verði gert í snjóruðningi og
hálkueyðingu á gangstéttum
borgarinnar. Tillögunni var vísað
til borgarráðs.
Borgarfulltrúarnir leggja til að
kannað verði sérstaklega hvort
hægt er að fá sérstök tæki til að
auðvelda snjóruðning á gang-
stéttum.
Þau eru ófá slysin sem verða
þegar gangséttir verða illar yfir-
ferðar vegna snjóþunga. f skýrslu
Ólafs Ólafssonar landlæknis um
þessi mál kemur fram að lærbrot
og framhandleggsbrot eru al-
gengust meðal 70 ára og eldri og
mun algengari yfir vetrarmánuði
en ella. Þá kemur þar fram að
þess háttar slys eru margfalt al-
gengari hér á landi en í Svíþjóð, í
Bandaríkjunum og á Englandi.
-88
Ný bók
Reiðleiðir og göngugötur
Lýst reiðleiðumfrá Þjórsá að Hvítá í Borgarfirði
Reiðleiðir og göngugötur nefn-
íst bók, sem væntanleg er á mark-
aðinn um næstu áramót. Að út-
gáfu hennar stendur ferðanefnd
Landssambands hestamanna. I
bókinni verður lýst leiðum á
svæðum frá Þjórsá að Hvítá í
Borgarflrði, ásamt ýmsum
leiðum á hálendinu, og fylgja lit-
prentuð kort.
Meðal þeirra leiða, sem lýst er í
bókinni, eru Sfldarmannagötur,
leiðin yfir Hrafnabjargaháls,
Gagnheiði, Leggjarbrjótsleið,
reiðgötur í Mosfellssveit og frá
Reykjum á Skeiðum, Hellis-
skarðsleið, ýmsar leiðir inn á há-
lendið, reiðgötur um Manna-
mótsflöt, leiðin frá Stóru-Drag-
eyri um Mannamótsflöt að Faxa-
borg, ýmsar leiðir í Kjós og á
Kjalamesi, Sprengisandsleið inn
Gnúpverjaafrétt í Arnarfell, Ux-
ahryggjaleið, Okvegur, Kalda-
dalsleið, leiðir í Gjáarrétt, Sel-
vogsgötur, Elliðaárhringurinn,
leið í Mygludali og Kóngsvegur.
Þessi upptalning er þó engan veg-
inn tæmandi. Stefnt er að því að
gera öðmm hlutum landsins
sömu skil síðar.
Bókin verður um 200 bls. að
stærð, í sama broti og Ættbók
hrossa eftir Þorkel Bjarnason.
Henni verður dreift í bókaversl-
anir um næstu mánaðamót og
mun kosta tæpar 1700 kr. Sé hún
pöntuð í póstkröfu fyrir þann
tíma, fæst hún á áskriftarverði,
1450 kr., póstkröfukostnaður
innifalinn. Þeir, sem óska eftir að
fá bókina með þeim hætti, snúi
sér til Guðmundar Ó. Guð-
mundssonar hjá Landssambandi
hestamanna, Bændahöllinni,
Reykjavík, sími (91) 19200.
-mhg
6 SÍÐA - ÞJOÐVILJINN
w
FÉLAG BADNGBEINAKEHHASA
Félagsfundur
um stjörnufræði
Almennur félagsfundur veröur haldinn í Félagi
raungreinakennara þriðjudaginn 18. nóvember
kl. 20. Fundurinn verður haldinn í Valhúsaskóla á
Seltjarnarnesi.
Fundarefni:
1. Þorsteinn Sæmundsson heldur stutt erindi um
sólmyrkvann í haust.
2. Umræður um stjörnufræðikennslu í framhalds-
skólum. Frummælandi: Einar Guðmundsson.
3. Kaffiveitingar.
4. Stjörnuskoðun, ef skyggni leyfir, en eins og
kunnugt er er stór og góður stjörnusjónauki í
Valhúsaskóla.
Stjórnin