Þjóðviljinn - 30.06.1989, Side 10
Sól á
klakanum
Eftir einhvern mesta snjó- og frostavetur í manna
minnum hefur heldur betur rofað til að undanförnu.
Vorið í höfuðborginni hefur einkennst af kuldaog
trekki en geislar sólar hafa leikið við hvern sinn
fingursíðustu daga. Einstök veðurblíða hefurverið
þessa daga, ekki bara í Reykjavík þarsem þessar
sumarmyndir voru teknar, heldur um allt land.
En sólargeislarnir staldra að líkindum stutt við
sunnanlands því gert er ráð fyrir rigningu strax um
helgina. íbúar á norður- og austurlandi munu þó
varla kvarta yfir veðri helgarinnar því þar verður
áframhaldandi veðurblíða.
Mynd-þóm.
SVÆÐISSTJÓRN MÁLEFNA FATLAÐRA
Á NORÐURLANDI EYSTRA
Forstöðumaður
Vegna skipulagsbreytinga óskar Svæðisstjórn
eftir að ráða 3 forstöðumenn að sambýlum fyrir
fatlaða á Akureyri. Á hverju þessara sambýla
eru 8 íbúar og eru þeir í vinnu utan heimilis yfir
daginn.
Upplýsingar eru veittar á skrifstofu Svæðis-
stjórnar á Akureyri, sími 96-26960, kl. 9-16.
Umsóknir er greini frá menntun og fyrri störfum
skulu sendar til Svæðisstjórnar málefna fatl-
aðra Stórholti 1, 603 Akureyri.
Umsóknarfrestur er til 7. júlí nk.
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið á Suðurlandi
Sumarferð
Sumarferð Ab. Suðurlandi verður farin til Vestmannaeyja dagana 30. júnf til
2. júli nk. Tilkynna þarf þátttöku í síðasta lagi á fimmtudag 29. júni til
Sigurðar Randvers í síma 21714.
Félagar fjölmennum til Eyja.
Ferða- og undirbúnlngsnefnd Kjördœmlsráðs Ab. Suðurlandl
Vantar
skattadómstól
Söluskattsmál Hagvirkis
hafa dregið athygli manna að1
ríkisskattanefnd. Samkvæmt
venjum tslenskrar réttarsögu
er ekki hægt að reka einkamál
um ágreining í skattamálum
fyrr en ríkisskattanefnd hefur
úrskurðað í málinu. Sýslu-
maður Rangárvallasýslu hóf
lögtaksmál gegn Hagvirki 28.
desember síðast liðinn. Lög-
menn Hagvirkis mótmæltu
fyrir dómi í Hafnarfirði og
sögðust hafa vísað ágrein-
ingnum til ríkisskattanefndar
ásamt gögnum. Sfðan hefur
málinu verið frestað þrisvar,
fyrst til 30. apríl, svo til 3. maí
en þá var því frestað ótíma-
bundið á meðan beðið væri
úrskurðar ríkisskattanefndar.
Nú ræða sýslumenn og lög-
menn alvarlega, hvort ekki sé
orðið tímabært að stofna sér-
stakan skattadómstól, þar
sem ágreiningsmálum vegna
álagðra skatta hefur fjölgað
mikið og orðið flóknari. Ríkis-
skattanefnd er nú skiþuð
fimm mönnum sem hafa þann
starfa sem aukastarf, ef frá er
talinn formaður nefndarinnar.
10 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ
Sumarferð Alþýðubandalagsins á Austurlandi:
Um söguslóðir á Fljótsdalshéraði
laugardaginn 8. júlí 1989.
Farið verður í rútum kl. 9 frá Söluskála KHB á Egilsstöðum og ekið um
Skriðdal, Fljótsdal, Fell, Hróarstungu og austur yfir hjá Lagarfossi til baka í
Egilsstaði kl. 19. - Bílferðir verða skipulagðar frá fjörðunum eftir þátttöku.
Staldrað verður við á völdum sögustöðum, skoðaðar fornminjar á gömlum
þingstöðum, kirkjur og bæir og fræðst um umhverfið, m.a. væntanleg
skógræktarsvæði á Héraði.
Meðal leiðsögumanna verða Guörún Kristinsdóttir minjavörður, Helgi
Hallgrímsson náttúrufræðingur, Jón Loftsson skógarvörður, Páll Páls-
son fræðimaður frá Aðalbóli og Skarphéðlnn Þórisson líffræðingur. Far-
arstjóri: Hjörleifur Guttormsson.
Tilkynniö þátttöku sem fyrst til Feröamiöstöövar Austurlands, Eglls-
stööum, síml (97)1 20 00.
öllum heimil þátttaka. - Alþýöubandalaglð - kjördæmlsráö.