Þjóðviljinn - 30.06.1989, Blaðsíða 19
HFLGARMENNINGIN
Leikhópurinn
Fantasía sýnir
frumsamið
leikrit um ástir
og vonir
Ég býð þér von sem lifir,
heitir nýtt leikrit eftir áhuga-
leikhóp, sem hóf störf nú í vet-
ur og kallar sig Fantasíu.
Leikritið varð til í samvinnu
leikaranna níu, en Kári Hall-
dór gerði leikgerð og leikstýrir
verkinu, sem þau frumsýndu í
Skeifunni 3 í gærkvöldi.
Þau Ágústa Skúladóttir, Birgir
Mogensen, Dagur Gunnarsson,
Guðrún Öyhals, Gunnhildur Öy-
hals, Margrét Óskarsdóttr, Mar-
teinn Marteinsson, Ragnheiður
Skúladóttir og Sæmundur And-
résson hafa starfað saman síðan í
október í fyrra, - við tókum okk-
ur saman nokkur sem höfðum
verið á námskeiði hjá Helga
Skúlasyni og smöluðum í hóp,
segja þau. - Við réðum Kára
Halldór og Öldu Arnardóttur til
að kenna okkur, og þau voru svo
duglegir kennarar að við ákváð-
um að gera alvöru úr því að
stofna leikhóp og stofnuðum
Fantasíu formlega nú í apríl.
- Það var upphaflega uppá-
stunga Kára að við enduðum
vetrarstarfið með því að hafa sýn-
ingu.
Það kom tvennt til, segir Kári,
- annars vegar var tilvalið að
ljúka vetrarstarfinu með því að
prófa að hafa sýningu, og eins
voru margir í hópnum að reyna
við inntökupróf í Leiklistar-
skólann svo það var eiginlega
nauðsynlegt að gera eitthvað við
hliðina á svo að allt starf hópsins
snerist ekki bara um prófið.
Vonin og
hagvöxturinn
Hvernig varð leikritið til?
- Við skrifuðum stuttar, sjálf-
stæðar senur, sem leikstjórinn sá
um að raða saman, og byrjuðum
að vinna út frá þeim. Við skiptum
til dæmis hópnum í pör og hvert
par um sig spann senuna aftur og
aftur og þannig fengum við marg-
ar mismunandi útgáfur, en oft
líka sama kjarnann, sem við héld-
um þá áfram með. Leikritið mót-
aðist síðan smám saman eftir því
sem við prófuðum okkur áfram,
og leikgerðin varð að hluta til í
gegnum spunavinnuna, þar
komu tengsl senanna í ljós og
framvinda leikritsins varð greini-
legri.
Skrifuðuð þið öll út frá sama
þemanu?
- Nei, það var ákveðið í upp-
hafi að reyna að setja saman sýn-
ingu á svipaðan hátt og revíu úr
allavega lausum senum, þar sem
hver um sig hefði skrifað út frá
þeirri hugmynd sem hann langaði
mest til að vinna með án þess að
þurfa að skrifa upp í eitt eða neitt
ákveðið.
- Það kom á daginn að flestir
skrifuðu um ástina, og um von-
ina, - og vonleysið. Annars vegar
berst manneskjan við að halda í
vonina, en brýtur hana niður á
sama tíma, því lögmál hagvaxtar-
ins og lífsgæðakapphlaupið sem
líf manna snýst um eru andstæð-
ingarhennar.
- Úr einrú af senunum kom
hugmynd að fyrirtæki og fjórum
karlmönnum, sem eiga það, en
um þetta fyrirtæki snýst leikur-
inn. Reyndar er mikið af þróun
leikritsins út frá þeirri senu, enda
ekki nema von, gerist ekki öll
þróun hérlendis út frá framsækn-
um fyrirtækjum?
Heimar tilfinninga og viðskipta mætast... Ragnheiður Skúladóttir og Marteinn Marteinsson.
Ég býð þér von
Beðið eftir voninni. Ragnheiður Skúladóttir, Ágústa Skúladóttir og
Guðrún Öyhals. Myndir - Jim Smart.
Tveir andstæöir
heimar
- Útkoman var röð mynda,
rúmlega þrjátíu myndir úr lífi níu
persóna sem allar tengjast um-
svifamiklu fyrirtæki hér í bæ. Við
vitum ekki alveg á hvaða sviði
þetta fyrirtæki starfar, enda
skiptir það ekki öllu máli. Ætli
þetta sé ekki bara umfangsmikið
og framsækið fyrirtæki á öllum
sviðum. Leikritið fjallar um
stjórnendur fyrirtækisins og þá
sem tengjast þeim, frjálsar ástir
og ófrjálsar. Þar koma við sögu
fyrrverandi og núverandi makar,
viðhöld og aðrir makalausir.
- Þetta eru persónur sem
standa í baráttu. Þau hafa fundið
að þeim hefur mistekist að fást
við sínar þrár og langanir, - fyrir-
tækið og tilfinningarnar togast á.
Fyrirtækið leyfir enga tilfinninga-
semi, þetta eru tveir ólíkir heimar
og báðir krefjast þeir alls eða
einskis og persónurnar virðast
ekki geta fundið leið til að sam-
eina þá. Þetta er fólk sem reynir
að lifa út frá einhverri ákveðinni
lífssýn, en lendir í átökum vegna
þess að þeim gengur illa að þróa
hana og laga hana að sjálfum sér.
Við erum einhvern veginn alin
upp við að mynda okkur ákveðna
lífssýn og halda svo fast við hana
og þar með takmarkar maður
sína eigin þróunarmöguleika og á
erfitt með að horfast í augu við
hver maður er.
- Vinnustaðurinnsjálfurskipt-
ir ekki öllu máli, vinnan er ekki
sýnd, það sem skiptir máli er að
þetta eru fjórir karlmenn sem lifa
í viðskiptaheimi og gefa ákveðna,
stífa yfirborðsmynd, eða reyna
að minnsta kosti að halda
ákveðnum svip. Af því sem þeir
segja og gera finnum við að þeir
eiga og ráða fyrirtæki, þó við
reynum ekki að sýna nákvæm-
lega hver staða þeirra er innan
fyrirtækisins.
- Konurnar eru ólíkari inn-
byrðis, að minnsta kosti í klæða-
burði og hlutverkum, þetta eru
allt konur sem tengjast körlunum
fjórum og alltaf að reyna að
draga einhverjar tilfinningar út
úr þeim. í myndunum fjöllum við
svo um hvernig viðskiptaandlitið
breytist í tilfinningalífinu, hvern-
ig sú mynd sem fólk gefur af sér á
vinnustað er allt önnur en sú sem
það sýnir heima fyrir.
Vonglatt fólk
og vonlaust
Hvernig persónur eru þetta?
- Ein kvennanna er heims-
kona, glæsileg og yfirveguð og
flíkar ekki tilfinningum sínum.
Önnur er tilfinningarík og óút-
reiknanleg, það er eiginlega ekki
hægt að staðsetja hana, en allt
sem hún gerir gerir hún af fyllstu
sannfæringu. Sú þriðja heldur sig
mikið inni í sjálfri sér. Hún eyðir
mestum tíma í sjerrídrykkju fyrir
framan sjónvarpið og vonar að
öll vandamál leysist ef hún bara
bíður róleg.
- Fjórða konan er ung stúlka
sem gerir sér miklar vonir til lífs-
ins, er full af tilfinningum og
þrám og vill hreint samband á
milli tilfinninga og ábyrgðar. Út
frá viðskiptum sínum við fólk og
ástina fer henni að finnast allt
vera vonlaust og vill ekki lengur
taka þátt í leiknum. Sú fimmta er
síðan lífsreynd kona sem enn
heldur í vonina. Hún leitar enn
að snertifleti þar sem hægt er að
tengja þessa ólíku heima og er
sátt við allar tilfinningar, gleði og
vonbrigði, og er fær um að greina
á milli og velja.
- Einn karlmannanna er
dæmigerður ungur uppi, en samt
svolítið blautur á bak við eyrun
ennþá. Hann ræður engan vegin
við heimana tvo, tilfinninga- og
viðskiptaheiminn og hættir til að
yfirkeyra allt. Annar er aðalfor-
stjórinn, sá sem er afgerandi í
fyrirtækinu og leggur línuna fyrir
alla hina. í vinnunni er hann
harður og straumlínulaga en
sígur saman þegar heim kemur.
Þar situr konan hans við sjerrí-
drykkjuna en hann hefur enda-
laust samviskubit og minnimátt-
arkennd gagnvart henni, finnst
hún vita allt betur en hann.
- Svo er það flagarinn, aðal-
sjarmörinn í bænum. Honum
gengur vel með kvenfólkið því
hann trúir á eigið aðdráttarafl, en
á erfitt með að hemja sig og
hleypur oft á sig. Hann tekur
ekkert alvarlega en er tilbúinn til
að gera hvað sem er fyrir betri
stöðu, fallegri konu og svo fram-
vegis. Sá fjórði er staðfastur og
tryggur, frekar litlaus karakter og
lætur alsstaðar kúga sig, til dæmis
í samböndum við konur. En hann
er einn þeirra sem ekki getur ver-
ið einn, verður alltaf að vera í
sambandi eða sambúð, maður
sem gjarnan vildi breyta ástandi
mála en gerir þó ekkert í því.
Einhverjar áætlanir um fram-
tfð Fantasíu?
- Við hættum ekki þarna,
heldur höldum áfram í haust, við
verðum til húsa hér í Skeifunni
næsta vetur ásamt fleiri hópum
og ætlum okkur að sýna eitthvað,
en hvað það verður vitum við'
ekki enn.
Næstu sýningar á Ég býð þér
von sem lifir verða kl. 21 í Skeif-
unni 3c i kvöld og á sunnudags-
kvöld. LG
Föstudagur 30. |úní 1989 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 19