Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1996, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1996, Blaðsíða 24
24 LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 1996 JD"V" „Klárir,“ kallaði stimvaktarmað- urinn niður í borðsal. Hásetarnir og stýrimenn þustu upp og hlupu inn í stakkageymslu og gerðu sig klára. Innan stundar voru kapparnir komnir upp á dekk og voru reiðu- búnir að kasta. Það var þétt lóðning undir bátnum og innan stundar kallaði karlinn „laggo“ og stýrimað- urinn bergmálar skipunina. Háfin- um var hent út og innan skamms þaut nótin út úr nótakassanum á miklum hraða. Síldarkóngur á loðnu Við erum um borð í Húnaröst SF-550 skammt suðaustur af Hrollaugseyjum. Lagt hafði verið úr höfn á Hornafirði, þar sem Húna- röstin landar, um klukkan hálfsjö. Bræla hafði verið á loðnumiðunum fyrr um daginn þannig að nokkur kvika var þar þegar komið var þangað eftir hálfs annars tima stim. Á annan tug skipa var nokkuð þétt og öll ýmist að dæla úr nótinni, að kasta eða gera sig klár fyrir næsta kast. Skipstjóri um borð í Húnaröst er Hákon Magnússon, síldarkóngur á síðustu vertíð. Hann er jafnframt Skipið orðið sigið enda um 600 tonn komin í lestirnar. Sjórinn flæðir yfir dekkið og menn stökkva upp á lest- arlúgur og kranafestingar til að blotna ekki um of. Landburður af loðnu. Löndunargengið, Oddur, Hugi, Sigurður og Villi, lætur blóðvatnið buna i lestina. DV-myndir pp Það getur verið þröngt i stakka- geymslunni þegar mönnum liggur á að komast í galiana og upp á dekk. eigandi útgerðarinnar á móti Borgey á Hornafirði sem nýlega hef- ur keypt sig inn í reksturinn. Hann var í besta skapi enda nýbúinn að landa fullfermi og hafði náö tveim- ur túrum á einum sólarhring. Loðn- an var orðin frystingarhæf og því toppverð á aflanum. Hásetunum fannst hins vegar afurðaverðið held- ur rýrt og hlutur vinnslunnar of stór. Þeir hlustuðu því af áhuga á kvöldfréttir útvarps sem aö stórum hluta fjölluðu um loðnuverðið. Þegar öll nótin var komin út og hringurinn hafði verið sigldur var tekið við að snurpa. Karlinn öskraði skipanir út um gluggann í brúnni og hundskammaði hásetana fyrir að láta sig ekki vita af því að hætta væri á að nótin færi í skrúfuna. Áður en að því kom var hliðarskrúf- unni beitt svo hvein og vældi í skip- inu. Málunum var reddað og tekið við að draga inn nótina. Aftur í nótakassa mátti heyra hásetana karpa um að þessi eða hinn tæki nú ekki nóg á garninu, korkinum eða lóðunum og gálginn væri ekki hreyfður nógu mikið. Þegar hert hafði verið að loðnunni var dælunni slakað út í pokann. Brimið fyrir utan Hornafjarðarós getur verið ógnvekjandi á stundum. Sannur sjóari með húðflúr á handarbakinu. Sigurður, 2. stýrimaður, gæðir sér Hamast í nótakassanum og togað í korkinn og garnið. á hrognunum úr loðnunni sem verið er að landa.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.