Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1996, Blaðsíða 51

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1996, Blaðsíða 51
I LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 1996 afmæli 59 Gróa Hreinsdóttir Gróa Hreinsdóttir tónlistarkenn- ari, Njarðvíkurbraut 33, Njarðvík, er fertug í dag. Starfsferill Gróa fæddist í Njarðvik. Hún lauk píanókennaraprófl frá Tón- listarskólanum í Reykjavík 1982 og hefur lokið þremur af fimm stigum Suzukikennaraprófs. Gróa var kennari við Tónlistar- skóla Njarðvíkur frá stofnun 1975-84, kenndi síðan við Tónlistar- skólann í Keflavík en er nú skóla- stjóri við Tónlistarskólann í Garði auk þess sem hún er jafnframt kennari og kórstjóri við Tónlistar- skólann í Keflavik og kórstjóri við Fjölbrautarskóla Suðurnesja. Gróa var formaður félagsmála- ráðs Njarðvíkur á síðasta kjörtíma- bili fyrir N-lista félagshyggjufólks, hefur verið formaður Kvenfélags Njarðvíkur sl. tvö ár og sat í stjórn Tónlistarfélags Keflavíkur í nokk- ur ár og þar af formaður þess í þrjú ár. Fjölskylda Eiginmaður Gróu er Guðmund- ur Sigiu-ðsson, f. 2.11. 1948, tækja- stjóri hjá snjóruðningsdeild Slökkviliðsins á Keflavíkurflug- velli. Hann er sonur Sigurður Guð- mundssonar og Estherar Finnboga- dóttur. Synir Gróu eru Sigurður Hall- dór, f. 15.3. 1978; Guðmundur Ósk- ar, f. 2.3. 1987; Hreinn Gunnar, f. 6.7. 1988; Gylfi Björgvin, f. 29.8. 1994. Foreldrar Gróu eru Hreinn B. Óskarsson, f. 26.11. 1935, húsa- smíðameistari í Njarðvík, og Guð- rún Ásta Björnsdóttir, f. 9.2. 1937, starfsstúlka í mötuneyti. Gróa verður heima á afmælis- daginn og tekur á móti gestum frá kl. 18.00. Gróa Hreinsdóttir. Til hamingju með afmælið 18. febrúar 85 ára 60 ára Sigríður Guðmundsdóttir, Berit Ryland, Birkigrund 58, Kópavogi. Torfufelli 27, Reykjavík. 80 ára 50 ára Guðbrandur Sigurbjörnsson, Túngötu 38, Siglufirði. Guðný Ingimarsdóttir, Strandgötu 8, Ólafsfirði. 75 ára Guðný Helgadóttir, Stakkhömrum 18, Reykjavík. Bjami Þ. Jónsson, Leiðhömrum 42, Reykjavík. Sigurður Jakobsson, Espilundi 12, Akureyri. Ursula Magnússon, Lyngbraut 9, Gerðahreppi. Kristín Jóna Kragh, Strandaseli 4, Reykjavík. Páll Guðmundsson, Reykjavegi 72, Mosfellsbæ. Erlendur Björnsson, Hjallaseli 20, Reykjavík. Sveinn Theodór Guðmundsson, Vesturgötu 63, Akranesi. Sigurbjörg Sverrisdóttir, Iðufelli 10, Reykjavík. 40 ára Birgir Þór Gunnarsson, Eikjuvogi 13, Reykjavík. Helga Guðrún Erlendsdóttir, Norðurbyggð lc, Akuréyri. Halldóra Jónsdóttir, Ljósheimum 16, Reykjavík. Þorgeir Ólafsson, listfræðingur og deildarsérfræð- ingur í mennta- málaráðuneyt- inu, Grettisgötu 28b, Reykjavik. Þorgeir tekur á móti gestum sínum á Sóloni íslandus á afmælisdaginn kl. 17.00-19.00. Guðleifur H. Eggertsson, Skagabraut 21, Akranesi. Ragnhiídur Skarphéðinsdóttir, Smáragötu 2, Reykjavík. Hafsteinn Sæmundsson, Langholtsvegi 103, Reykjavík. Arnbjörg Sveinsdóttir, Austurvegi 30, Seyðisfirði. Daníel Gunnarsson, Álfaskeiði 91, Hafnarfirði. Helga Ægisdóttir, Vesturgötu 56, Reykjavík. Kristinn Haukur Skarphéðins- son, Ægisíðu 96, Reykjavík. Steinunn Benna Hreiðarsdóttir, Langholti 19, Akureyri. Pétur Bjarnason, Eyjabakka 6, Reykjavík. Fyrsta konan í rakaraiðn útskrifaðist fyrir 60 árum og byrjaði að raka skegg: Varð blóðrisa á höndunum eftir skeggrótina ■ ■ ■ ■ ■ ■■■■■ % r ■ B ■ _ ■ ■ m m ■ ■ ■ ■ r - segir Hulda Sveinbjörnsdóttir sem hætti störfum fyrir sjö árum Það þótti tiðindum sæta fyrir 60 árum, árið 1936, þegar tvær konur útskifuðust fyrstar sem rakarar frá Iðnskólanum. Enn eitt karlavígið var fallið og nú voru konur teknar við að raka skegg. Önnur þessara kvenna er Hulda Sveinbjörnsdóttir sem í dag er 72 ára og hefur lagt rakhníf og skæri á hilluna. „Þóttist nú vera kona" „Þetta kom til af því að það var auglýst eftir nema á rakarastofu. Ég vann í mjólkurbúð og las í blaði að þar væri vinna í boði fyrir karl og konu. Ég þóttist nú vera kona og fór á stúfana. Þá reyndist þetta vera vinna hjá Einari Ölafssyni að Lækj- argötu 8. Einhvern veginn dróst það að gera samning við mig, og ég vildi hafa allt á hreinu, svo að Elías Jó- hannesson, sem var yndislegur maður, tók mig á samning og frá honum útskrifaðist ég,“ segir Hulda. Um fjögurra ára nám í iðnskóla var að ræða og sótti Hulda skóla á kvöldin eftir vinnu en það var ekki alltaf mögulegt því að ef vinna þurfti fram eftir þá mætti skólinn afgangi. Stuttu eftir að Hulda fékk sveins- bréfið 'sitt opnaði hún eigin stofu með Guðjóni Jónssyni að Austur- stræti 14, þar sem Café Paris er til húsa í dag. „Þetta þótti alveg spes staður og stofan hét Rakarastofa Huldu og Guð- jóns. Ég starfaði bara við hana í rúm tvö ár því ég gifti mig um leið og ég setti hana upp. Síðan eignaðist ég barn og þá hætti ég um tíma að vinna við þetta eða allt til ársins 1962 að ég opnaði aðra stofu í Kópavogi." svo upp á manni hendurnar. Þetta voru ekki alltaf sæludagar. Eftir að maður hafði borið sápuna á skegg- rótina notaði maður svo hnífinn til raksturs - ég man að sumum körlunum var nú ekki alveg sama þegar kona ætlaði að raka þá. Það þótti ekki kvennaverk að fara með rakhníf en ég mátti vera lengi að sápa þá,“ segir Hulda. Raksturinn kostaði í þessa tíð 40 aura. Auk „alskveríngar", sem var þvottur, klipping og rakstur, tíðkað- ist að menn fengju höfuðbað og ís- Rakarar segja sögur „Ég seldi Kópavogsbæ húsið eftir 10 ára rekstur og það er dálítil saga sem mér dettur í hug í tengslum við það. Hún kemur kannski ekki starfi mínu við en rakarar segja jú alltaf sögur - ef mann vantaði fréttir í gamla daga fór maður á rakarastofu og fékk þær. Ég hef átt þrjú einbýl- ishús og þau hafa öll horfið. Æsku- heimili mitt á Akureyri varð fyrir aurskriðu og sópaðist niður fyrir nokkrum árum. Svo keypti ég hús Var orðin eldri en karlarnir á Grund Hún lauk svo starfsferli sínum á Grund og á Heilsuhælinu i Hvera- gerði þar sem hún klippti vistmenn. „Ég sá að ég var orðin elst af öllum þarna þannig að ég ákvað að hætta þessu,“ segir Hulda sem hætti störf- um fyrir 7 árum. „Ég var orðin ansi gömul og þurfti að taka 6 strætis- vagna til að komast í vinnuna. Hulda segir að vissulega hafi starf rakarans breyst á 60 árum. Höfuðbað tíðkist til dæmis ekki lengur og permanent og litun hafi verið mun sjaldgæfari, enda kenndi Kristolína Kragh, sem var aðalhár- greiðsludaman á þessum tíma, það á tveimur kvöldum að setja bylgjur í hár karlmanna, sem þótti mjög fal- legt. -pp „Eg man að sumum köriunum var nú ekki alveg sama þegar kona ætlaði að raka þá. Það þótti ekki kvennaverk að fara með rakhníf en ég mátti vera lengi að sápa þá,“ segir Hulda. DV-mynd GS RAFSTOÐVAR i Viðurkennd vörumerki Yamaha bensínrafstöðvar 1.2 kW, kr. 84.790 2.2 kW, kr. 97.570 Yanmar dísilrafstöðvar 4,2 kW, dísil, kr. 286.350 Einnig traktorsdrifnar rafstöðvar á hagstæðu y verði ötocsfe v Skútuvogi 12A, s. 581 2530 < Raksturinn kostaði 40 aura „Ég mætti engu kynjamisrétti í þessu starfi. Vissulega sópaði ég gólf fyrstu árin eins og allir nemar en síðan gekk ég í öll störf eins og karlarnir. Maður sápaði fyrir rakst- ur og var oft blóðrisa um hendurn- ar eftir daginn því skeggrótin reif bað á mánudögum. „Það voru nú aðallega karlarnir sem voru þunnir sem vildu þetta en ég hef ekki heyrt þetta nefnt í lengri tíma. Þá var nuddaður á þeim hársvörðurinn og höfuðið síðan baðað upp úr ísvatni og heitir og kaldir bakstrar á víxl. En það voru aðallega fjármálamenn og stórkarlar sem vildu þetta.“ Eftir að hafa tekið sér frí frá rak- arastörfum í nokkurn tíma opnaði Hulda svo rakarastofu í Kópavogi árið 1962, eins og fyrr sagði. Tíu árum seinna hætti hún rekstri þeirrar stofu. við Kópavogsbraut og þegar ég keyrði þar um í eitt skiptið var hús- ið horfið. Þegar þetta var ljóst var ég viss um að þriðja húsið myndi fara. Svo var það einn daginn að sonur minn kom heim sagði að gamli sum- arbústaðurinn okkar sem stóð við Rauðavatn væri farinn. Þess vegna sit ég hér í háhýsinu í Kópavogin- um því ég er nokkuð viss um að það fer ekki," segir Hulda sem býr í stóru fjölbýlishúsi í Kópavogi. (% na nýja verslun r W Gull- og silfurskartgripir I Messing- og eirskúlptúr Smíða úr gömlu gulli Viðgerðir á gull- og sítfurmunum. laugardaginn n.febrúar 1996. rl Olsen jr . Vesturgötu 10 (við Naustið) Reykjavík
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.