Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1996, Blaðsíða 47

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1996, Blaðsíða 47
LAUGARDAGUR 17. FEBRUAR 1996 fréttir Fljótandi loðnuverk- smiðja á Fáskrúðsfirði Núna er gullæði ársins - segir Freysteinn Bjarnason verksmiðjustjóri „Núna er gullæði ársins og þetta er rosalega fjörugt," segir Frey- steinn Bjarnason, verksmiðjustjóri Síldarvinnslunnar á Neskaupstað. Allir sem vettlingi geta valdið er á kafi í loðnu. Inni á Fáskráðsfirði hefur verið fljótandi loðnuverk- smiðja undanfarna daga. Veiðiskip- in Júpíter og Beitir, sem bæði eru með flokkara, hafa dælt þar flokk- aðri loðnu í fimm frystitogara; Blæng, Örfirisey, Gnúp, Sléttanes og Akureyrina. Danskt nótaskip, sem heitir Geysir, tekur siðan karl- sílin þegar búið er að flokka frá og flytur í land til bræðslu. Loðnuveiðin var í gær út af Ing- ólfshöfða en þá voru ekki nema tveir sólarhringar frá því að loðnan fór fyrir Stokksnes. „Loðnan fer á aðra sjómílu á klukkustund. Með þessu framhaldi verður hún komin í Faxaflóann eftir hálfan mánuð eða jafnvel fyrr,“ telur Freysteinn. Aðspurður um nýja göngu segir hann menn hafa verið við lóðningar á Lónsbugt á fimmtudagskvöld á landleið og talið sig hafa orðið vara við loðnu. -IBS Ttílvusamfélag framtíðarinnar: Öryggið einungis tryggt með dulritun eina leiðin til að viðhalda einkalífinu, segir Robert Zimmermann, Tölvum og tækjum stolið Brotist var inn í fyrirtækið ís- hákarl í Stykkishólmi í gær og þaðan stolið tölvum, faxi, síma og verkfærum. Þá var reynt að brjót- ast inn í fleiri fyrirtæki á staðn- um en án árangurs. Lögregluna í Stykkishólmi gi-unar að hér hafi verið á ferð að- komumenn. Þeir höfðu ekki náðst í gærkvöld. Afrit voru til af gögnum í tölvunum en tjónið hjá íshákarli nemur engu að síður hundruðum þúsunda. -GK „Ef við viljum viðhalda rétti okk- ar sem þegnar í lýðræðisþjóðfélagi getur ekkert annað en dulritun tryggt það í tölvusamfélagi framtíð- arinnar. Það er ekki langt í að allt okkar lif velti á tölvum, Interneti og rafrænum viðskiptum og það opnar yfirvöldum sem og öðrum beina leið að lífi okkar og athöfnum. Það er hættuleg þróun sem við verðum að sporna gegn,“ segir Philip Zimmer- mann, höfundur PGP-hugbúnaðar- ins (Pretty-Good-Privacy) sem gerir tölvunotendum kleift að dulrita gögn á þann hátt að utanaðkomandi aðilar komast ekki í þau. Zimmer- mann, sem var sérstakur gestur á ráðstefnu Skýrslutæknifélags ís- lands um öryggi á Internetinu, dreifði á sínum tíma hugbúnaðin- um á Internetinu og vakti það mikla reiði bandarískra stjórnvalda. Dul- ritun af því tagi sem um ræðir er flokkuð sem hergagn og er því ein- ungis á færi stjórnvalda að nota hana og flytja út. Frystitogarinn Sunnutindur tekur loðnu til frystingar á Djúpavogi. DV-mynd HEB RE YFA RA KA UP! TILBOÐ ; - . ' -■ t . -* VEGGSAMSTÆÐA kr. 33.450. Margir litir. Ótal möguleikar á uppstillingu. SKENKAR frákr. 19.600. Svart/hvítt/beyki. SJONVARPSSKAPAR kr. 17.500 og 9.700 Gullfallegar KOMMÓÐURí úrvali Svart/hvítt/beyki. Gottverð! Svart/hvítt/beyki. SKRIFBORÐ með stækkunarmöguleika Svart/hvítt/beyki/fura frá kr. 8.600. Opið i dag laugardag frá kl. 12-20 HIRZLAN SJONVARPSSKAPAR margar gerðir. Svart/hvítt/beyki/mahoni Verð frá kr. 5.900. LYNGÁSI 10, GARÐABÆ - SÍMI 565 4535 BÓKAHILLUR. Svart/hvítt/beyki/fura. Verð frá kr. 3.300. 55 ||HB6maltnd Ekki missa af TÓNLISTAR- VIÐBURÐIÁRSINS. Forsalan er hafin í verslunum Skffunnar, Músík og Myndum Mjódd, Hljómdeild KEA og Hljómalind. CARDIGANS vinsælasta hljómsveit á íslandi í dag ásamt RAY WONDER og okkar ástsælu EMILIÖNU TORRINI, er þetta nokkur spurning ? Hótel Island 22. febrúar Sjallinn Akureyri 23. febrúar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.