Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.1999, Síða 16
i6 jslands þúsund ár
LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 1999 IjV
Jón Sigurðsson kjörinn frumkvöðull árþúsundsins:
Vér mótmælum allir
- ein íslenskasta setning sögunnar
Jón Sigurösson forseti (1811-1879)
var kjörinn frumkvöóull árþúsunds-
ins í könnun sem DV, Bylgjan, SS og
Vísir.is stóöu fyrir. Kosningin fór
fram á Visi.is og hlaut Jón 42% at-
kvϚa.
„Nú er Jón dauður en sjálfstæðis-
baslið það blífur og stár - um aldur
og ár“... söng Megas um Jón Sig-
urðsson hér um árið og fékk heldur
bágt fyrir. íslendingar hafa nefni-
lega alla tíð borið mikla virðingu
fyrir Jóni vegna framgöngu hans í
þjóðfrelsisbaráttunni á 19. öld og
líða engum að tala um hann af gal-
gopaskap.
Jón stóð flestum löndum sínum
framar í baráttunni fyrir sjálfstæði
íslands þó lengst af hafi hann sjálf-
ur búið í Kaupmannahöfn. Á þjóð-
fundinum árið 1851 kom Jón fram
sem óskoraður leiðtogi þjóðarinnar,
en hann hafði skömmu áður hafíð á
loft kröfuna um sjálfstjórn íslend-
inga - fullt fjárveitingar- og löggjaf-
arvald Alþingis og framkvæmda-
vald. Á þjóðfundinum stóð Jón upp
með nokkrum þjósti og sagði eina
frægustu setningu sem sögð hefur
verið í íslandssögunni: „Vér mót-
mælum allir.“ Það er bæði stolt og
íslensk setning sem sýnir að maður
þarf ekki að vera dónalegur þó áð
maður láti ekki vaða ofan í sig.
Með stöðulögum 1871 og
stjórnarskránni 1874 fengu
íslendingar flest þau réttindi
sem Jón Sigurðsson hafði
barist fyrir. Þjóðhátíðardag-
ur íslendinga, 17. júní, er
fæðingardagur Jóns og
þá er honum jafnan gert
hátt undir höfði i ræðu
og riti mektarmanna.
-þhs
Jón Sigurðsson, sem stundum
var nefndur forseti, fékk yfir-
burðakosningu sem frumkvöð-
ull árþúsundsins.
Féfletta aðdáendur
Allar stjömur eiga sér aðdáend-
ur, svokölluð „fön“. Það er þó
spuming hvort þær eiga það allar
skilið. Að minnsta kosti ættu menn
að hugsa sig um tvisvar áður en
þeir senda þeim óskir um eigin-
handaráritun. Flestar stjömur láta
nefnilega aðdáendur sína greiða fyr-
ir þær.
En sumar stjömur em óprúttnir
loddarar sem hirða peningana sem
koma til þeirra í
pósti - en senda
aldrei áritunina.
Harðsvíraðastar
í þessari fjáröfl-
unaraðferð eru
Celine Dion,
Mariah Carey,
Meg Ryan, Mar-
lon Brando og
Oprah Winfrey. Með þeim í hópi
eru að vísu 300 aðrar stjörnur, sem
sumar hverjar ganga enn lengra,
senda aðdáendum sínum bréf og
heimta meiri greiðslu fyrir rithand-
arsýnishomið. Þannig kostar til
dæmis eiginhandaráritun hjá Whit-
ney Houston kr. 1.440 og Michael
Bolton rukkar kr. 3.600, fyrir árit-
aða mynd. Anthony Hopins og Mary
Tyler Moore senda eiginhandarárit-
un en halda peningunum sem send-
ir em. Hins vegar era það öðlingar
eins og David Hyde Pierce (úr Frasi-
er-þáttunum), Gene Hackman og
Burt Reynolds sem senda áritunina
og skila peningunum.
Það em greinilega ekki allir jafn-
blankir í Hollívúdd þótt flestir skrifl
ábyggilega illa.
Kærir aðdáendur
sína
Talandi um aðdáendur, þá eru til
heilu klúbbamir og samtökin sem
dást að einhverjum tilteknum ein-
staklingi og gefa jafnvel út tímarit
honum til heiðurs. Þannig hefur
tímaritið Uptown
verið gagnupp-
tekið af perra-
söngvaranum
Prince. Nýlega
stefndi Prince þó
þessum sauð-
tryggu aðdáend-
um sínum, ásamt
aðdáendum á net-
inu, fyrir brot á birtingarrétti á
myndum og sýnishornum af tónlist
hans.
Uptown tímaritið gefur lítið fyrir
kæmna og segir Prince sjálfan hafa
veitt birtingarrétt á þessu efni fyrir
sex áram. Lögfræðingur tímarits-
ins, sem hefur verið trúr og tryggur
þjónn söngvarans í öll þessi ári,
heldur því fram að rokkarinn ætli
að knésetja Uptown og stofna síðan
sjálfur nýtt tímarit. Hann reiknar
þó með að kviðdómendur sjái i
gegnum þetta lúalega bragð.
Sem skilur bara eftir eina spum-
ingu: Hvers vegna í ósköpunum
vilja menn gefa út tímarit um mann
sem leggur allt þetta á sig til þess að
fara illa með þá?
SUMARBLAÐIÐ ER
Lestu allar þessar fréttir um fjármál
Tvær íjölskyldur
heimsóttar
Það er sama á hvaða aldri
þú ert, það borgar sig alltaf
að skipuleggja fjármálin
fyrir framtíðina. bis.4
GALLUP
Hvað vilja íslendingar
hafa í eftirlaun?
Nú getur þú skoðað
og bætt fjármálin þín á
fljótlegri hátt en nokkru
sinnifyrr! Bis. is
TITILGREIN
Gerbreytt sam-
félag á 15 árum
Breytingar á íslandi
undanfarin ár hafa verið
gífurlegar. bis.io
Gallup gerði könnun fyrir
okkur. Bis.i2
Hringdu í okkur ef þú hefur ekki