Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.1999, Page 56
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnieyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ
LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ1999
Heim með nýjar hendur:
Gífurleg
þjálfun
fram undan
- segir Guðmundur Felix
„Þetta var mjög strembið prógram
en árangurinn góður og fram undan er
gifurleg þjálfun,"
segir Guðmundur
Felix Grétarsson,
rafeindavirki sem
kom heim frá Sví-
þjóð í gær með
nýjar gervihendur.
Guðmundur Felix
lenti í alvarlegu
slysi í fyrravetur
Guömundur þegar hann fékk 11
Felix Grétarsson. þúsund volta
'** spennu þar sem hann vann við há-
spennulínu. Hann verður í þjálfun á
Reykjalundi næstu mánuði.
„Ég er bjartsýnn en geri mér þó
grein fyrir að þessar hendur koma
aldrei í stað þeirra gömlu. Ég er feginn
að þetta er afstaðið og ég kominn
heim,“ segir Guðmundur Felix. -aþ/rt
Frumkvöðiill árþúsundsins:
Jón Sigurðs-
son kjörinn
Jón Sigurðsson
forseti (1811-1879)
var kjörinn frum-
kvöðull árþús-
undsins í könnun
sem DV, Bylgjan,
SS og Visir.is
stóðu fyrir. Kosn-
ingin fór fram á
Vísir.is og hlaut
Jón 42% atkvæða.
Næstur var
Snorri Sturluson,
Jón Sigurðsson
forseti.
rithöfundur og
skáld (1179-1241) en hann hlaut 18%
atkvæða. Sjá nánar á bls. 16 og 17
Þá er að máta bolina! Hér sjáum viö tvo af þátttakendunum í Kvennahlaupi ÍSÍ. Þorsteinn G. Gunnarsson (t.h.) aðstoðar við val á réttri stærð. Þær Elsa Elísdóttir (t.v.)
og Eygló Karlsdóttir (í miðið) eru glaðbeittar, enda alltaf jafngaman í kvennahlaupinu. Búist er við gríðarlegri þátttöku kvenna alls staðar á landinu. DV-mynd JAK
Mummi í Virkinu staðfestir frétt DV um verðfall á dópi:
Neyslan stigmagnast
- innbrot og auðgunarbrot fikla eru daglegt brauð
„Eg er búinn að starfa að forvam-
ar- og meðferðarmálum í mörg ár og
hef séð neysluna stigmagnast og
sölumönnum fjölga. Markhópurinn
í dópinu er hér hjá okkur, 16-20 ára
fólk, og við fylgjumst því mjög vel
með þróuninni. Ég get því ekki sagt
annað en að frétt DV í gær, um
verðfall á dópi, lýsi ástandinu ein-
faldlega eins og það er,“ segir Guð-
mundur Týr, betur þekktur sem
Mummi í Virkinu, við DV.
Virkið verður eins árs á mánudag
og þar á bæ vonast menn eftir að fá
næga fjármuni til að geta haldið
starfmu áfram. í Virkinu eru að
jafnaði 12 krakkar og langur biðlisti
eftir plássi. í ágúst er reyndar ráð-
gert að flytja í nýtt og stærra hús-
næði á Kjalarnesi sem gef-
ur möguleika á 20 plássum.
En fréttir af lokun plássa á
Stuðlum vekur ugg.
„Við auglýsum náttúr-
lega eftir milljarðinum
margumtalaða. Þeir sem
lofuðu þessu hafa alltaf
sýnt okkur velvilja og
stuðning og ég trúi ekki
öðru en að staðið verði við
loforðin. Skilaboðin fyrir
ári vora að við ættum að
sýna hvað við gætum,
sanna okkur. Við höfum
fengið hæstu einkunn frá
kerfinu og árangurstölurnar era
góðar."
Áður en milljarðinum margum-
talaða verður ráðstafað vill
Mummi að unnið verði að
endurskipulagningu for-
varnar- og meðferðarstarf-
seminnar á íslandi.
„Hún getur orðið botnlaus
hít ef ekki er haldið utan um
hana. Til þess hafa menn að-
allega verið hver í sínu
homi að pukra en með nýju
Áfengis- og vímuvarnarráði
verður kannski hægt að
koma öllum þessum aðilum
að sama borði. Það er nauð-
synlegt þar sem ólíkir aðilar
era oft að vinna með sama
skjólstæðinginn, hver á sínu sviði.
Slíkt fyrirkomulag er allt of dýrt. Og
ef það væru tvö öflug meðferðar-
heimili í landinu sem fengju að
starfa af fullum kafti þyrfti ekki
nema eitt heimili eftir 3 ár. Þetta er
svo mikill uppsafnaður vandi.“
Mummi segir marga krakka í
dópneyslu lifa í mjög óheiðarlegum
heimi þar sem innbrot og auðgunar-
brot era daglegt brauð. Síðan veröi
foreldrar oft varir við að hlutir
hverfa af heimilinu.
„í unglingaherbergi er fullt af
hlutum sem breyta má i peninga. Þá
fjármagna mjög margir krakkar
neysluna með sölu og þess vegna
eru svona margir að selja dóp og
framboðið jafnmikið og raun ber
vitni.“
Fréttaljós um vímuefnavand-
ann á bls. 20. -hlh
Guðmundur Týr
sem betur er
þekktur sem
Mummi í Virk-
inu.
Mildast sunnan til á morgun
Á morgun, sunnudag, lítur út fyrir hæga norðvestlæga átt og smáskúrir norðaustan til á landinu en annars léttskýjað. Hitinn verður 5 til 12 stig,
mildast á sunnanverðu landinu. Á mánudag verður suðaustanstrekkingur, 8-13 metrar á sekúndu, og rigning á suðvestanverðu landinu en léttskýj-
að annars staðar. Hitinn verður á bilinu 9-15 stig, hlýjast á Norðurlandi.
Veörið í dag er á bls. 57.
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4