Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2000, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2000, Qupperneq 2
2 LAUGARDAGUR 4. MARS 2000 fréttir Keikó synti úr kví sinni í Klettsvík: Fullt frelsi í sumar Háhyrningurinn Keikó brá sér í fyrsta skipti út úr kví sinni í Klettsvík í Vestmannaeyjum um hálfellefuleytiö í gærmorgun. Suð- urendi kvíarinnar hafði verið opn- aður nokkru áður en Keikó var ekki alveg á því að yfirgefa kvína þar sem hann hefur verið frá 10. september 1998. Var það ekki fyrr en þjálfararnir lokkuðu hann út fyrir að hann lét tilleiðast. Eftir stutta rannsókn á stærra umráða- svæði synti Keikó síðan inn í kvína á ný. Fyrr í vetur var tæplega 300 metra langt net strengt úr Heima- kletti í Ystaklett og girti það af innsta hluta Klettsvíkur. Kvíin sem Keikó hefur verið í er nálægt því að vera hálfur hektari að flatarmáli DV-MYND OMAR Keikó brá sér út fyrir kví sína í fyrsta sinn í gær. Þjálfarar Keikós uróu að lokka hann út en eftir stutta stund synti háhyrning- urinn aftur í kvína. en innan við netið er flatarmálið átta hektarar þannig að Keikó fær 16 sinnum stærra svæði og meira dýpi til að athafna sig. I gær var stigið stórt skref að því markmiði Ocean Future að sleppan Keikó út i sitt náttúrlega umhverfi í Norður-Atlantshafi. Siðustu áætl- anir miðast við að honum verði sleppt í sumar á tímabilinu maí til september. Þá eru frændur hans í stórum hópum við Vestmannaeyjar og taki þeir honum vei verður Keikó frjáls um eða eftir mitt þetta ár. Talsverður hópur fréttamanna ásamt bandaríska sendiherranum, Barböru Griffiths, og David, manni hennar, fylgdist með þegar Keikó fékk aukið frelsi. -ÓG 10 útilegukindur frá Sólheimum: Atu það sem uti fraus - voru þó sæmilega haldnar er þær skiluðu sér til bæja eftir harða útivist Tómas ísleifsson, bóndi á Ytri- Sólheimum, ofan Sólheimasands á Suðurlandi, heimti 10 útigangskind- ur í hús fyrir skömmu. Mun féð hafa verið þokkalega haldið þrátt fyrir harða útivist. Öðru hvoru heyrast fregnir af einstaka kindum sem hafa orðið viðskila í haustsmölun. Jafnvel að þær hafi haldið til á fjöllum vetrar- langt. Hins vegar hlýtur það að telj- ast til tíðinda að bændur heimti 10 kindur á einu bretti heilar á húfi eftir útigöngu í jarðbönnum og snjóatíð eins og nú er. Slíkt gerðist þó fyrir skömmu undir Mýr- dalsjökli, er tíu kindur komu heim að Sólheimabæjum eftir útivist í all- an vetur. Virðist þetta vera nokkurt feimn- ismál í sveitinni og vildi fólk lítt tjá sig um málið við blaðamann. Tómas Isleifsson, bóndi og eigandi fjárins, sagði þó í samtali við DV að kind- urnar hefðu gengið úti frá því í haust. Hefðu þær hafst við í gili við Ból og trúlega leitað skjóls í gilinu vegna veðurs. Þar var hins vegar orðið lítið fyrir þær að bíta og brenna. Þrátt fyrir að hafa átt fáa aðra úrkosti en að éta það sem úti fraus, þá virtist féð hafa verið í furðugóðu ástandi þegar það skilaði sér til bæja fyrir um tveim vikum. Tómas var annars fremur fámáll um þessi mál, en samsinnti að frem- ur óvenjulegt væri að svo margar kindur væru á útgangi mánuðum saman i vetrarríki eins og nú er. -HKr. Ökuþjálfun. Rúta frá Borgarnesi ók á lögreglubíl frá Selfossi í Reykjavík skömmu eftir hádegi í gær. Lögregluskólinn hafði fengið lögreglubílinn aö láni hjá lögreglunni á Selfossi til ökuþjálfunar lögreglunema. Við áreksturinn þeyttist lögreglubílinn út af veginum en engan sakaði. Mikið um dýrðir eftir setningu búnaðarþings við Hótel Sögu á morgun: Ríðandi nefndarmenn afhenda tillögur - landslið hestamanna stendur heiðursvörð með fáka og fána Vísir.is: Ljósmynda- samkeppni um Heklugos Vísir.is, Vífilfell og Bræðurnir Ormsþon efna nú til samkeppni | um bestu ljósmyndina tengda Heklugosinu sem hófst 26. febrú- ar síðastliðinn. Dómnefnd velur þær myndir sem birtast á Vísi.is ; og mun hún, ásamt lesendum Vísis.is, velja bestu myndirnar. Keppnin er eingöngu ætluð áhugamönnum. Vegleg verðlaun eru í boði, 1. verðlaun eru Olympus c 830 I myndavél að verðmæti 39.900 : krónur, 2. verðlaun Olympus iZOOM-75 myndavél að verð- I mæti 29.900 og 3. verðlaun eru Olympus MJU-2 myndavél að verðmæti 15.900. Einnig eru veitt verðlaun fyrir sérstökustu myndina, 12 kassar af kóki í gleri. Skilafrestur er til 9. mars en valdar myndir verða settar inn á | vefinn um leið og þær berast. At- kvæðagreiðsla lesenda mun | standa til 15. mars og verður nið- urstaðan kynnt á Vísi.is föstu- daginn 17. mars. Dómnefnd skipa Gunnar V. Andrésson ljós- myndari, Einar Ólason ljós- myndari og Eiríkur. Hjálmars- son, ritstjóri Vísis.is. Senda má inn myndir, hvort heldur sem þær eru framkallaðar á pappir eða sem tölvuskjöl. Prentaðar myndir skal senda á heimilis- j fangið: Vísir.is - Hekla 2000, Þverholti 9, 105 Reykjavík. Tölvuskjöl skal senda á netfang- ið; Hekla2000@ff.is. -hlh Mikið verður um dýrðir að lok- inni setningu búnaðarþings á Hótel Sögu á morgun. Þá mun landslið hestamanna standa heiðursvörð með fáka sína við anddyri Súlnasal- ar meðan forsætisráðherra og land- búnaðarráðherra verða afhentar til- lögur nefndar um hlutverk ís- lenskra hesta og hestamanna við op- inberar móttökur í samræmi við ályktun Alþingis frá 10. mars 1999. Að sögn Hákonar Sigurgrímsson- ar, deildarstjóra í landbúnaðarráðu- neytinu, er stefnt að því að Hjálmar Árnason, alþingismaður og formað- ur nefndarinnar, komi riðandi á staðinn við a.m.k. þriðja mann, ef allt gengur eftir sem stefnt er að. Mun hann lesa upp tillögumar og afhenda Guðna Ágústssyni landbún- aðarráðherra og Davíð Oddssyni forsætisráðherra þær að því búnu. Hákon sagði að athöfnin myndi hefjast um kl. 16.15. Hestar landsliðs- ins yrðu keyrðir að Þjóðarbókhlöð- unni, en síðan myndu 10-12 lands- liðsmenn ríða þaðan að Hótel Sögu, þar sem þeir tækju sér stöðu, ein- kennisklæddir og með íslenska fána. Hákon sagði að upphaflega hefði átt að hafa athöfnina úti á Haga- torgi. En þar væri nú flughált og ef rigndi gæti verið beinlinis hættu- legt að fara með fólk þangað. Því hefði verið horfið frá þeirri hug- mynd. -JSS stuttar fréttir Sameining Ingibjörg Pálmadóttir heil- brigðisráðherra undirritaði í gær reglugerð um sameiningu Ríkis- spítala og Sjúkra- húss Reykjavík- ur. Nafn nýja sjúkrahússins er Landspítali, há- skólasjúkrahús og var það nafn valið eftir vandlega skoöun sérstakrar nefndar sem j fór yfir fjölda hugmynda sem fram höfðu komið um nýtt nafn. Óbreyttur kvóti Sjávarútvegsráðuneytið hefur ; ákveðið að loðnukvótinn verði ekki aukinn. Byggist sú ákvörð- un á nýlegum mælingum Haf- rannsóknastofnunarinnar fyrir IVesturlandi. Loðnukvótinn í ár er 891.500 lestir. Þegir Hrafn Sigurðsson, fyrrum fjár- málastjóri Þjóðminjasafnsins, segist hafa tekið þá ákvörðun að Isegja ekki orð um ástandið á Þjóðminjasafninu á meðan deil- urnar þar eru ekki til lykta leidd- ar. Sjálfur bíður þjóðminjavörð- ur eftir því að formaður þjóð- minjaráðs boði til fundar og kynni þar greiningu mennta- málaráðuneytisins á vandanum. Sænsk verðlaun Sænsk - islensku menningar- verðlaunin hafa fallið rithöfund- inum Einari Braga í skaut. Hlýtur Einar Bragi verð- launin fyrir að hafa stuðlað að því aö færa sænskar bók- : menntir nær íslendingum meðal annars með því að þýða öll verk Strindbergs af sænsku yfir á íslensku. Verð- launaupphæðin nemur 25 þús- und sænskum krónum. Sjatnar í Ölfusá Mjög hefur sjatnað í Ölfusá en vatnsyfirborð árinnar var Qórum metrum yfir því sem venjulegt er í fyrradag. Hekla enn að Miklar sprengingar voru í þeim gíg Heklu sem enn gýs í gær. Ferðamenn á staðnum sögðu að jörðin hefði titrað við ósköpin. - Rækta krækling Ráðgert er að hefja umfangs- mikla ræktun á kræklingi í Eyja- firði og er stefnt að því að rækt- unin hefjist í ágúst. Heimabakað Stefnt er að því að bjóða upp á heimabakað altarisbrauð á kristnitökuhátíð á Þingvöllum í sumar. Af því tilefni verður efnt til bakstursnámskeiða i öllum prófastsdæmum landsins. Dagur greindi frá. ■ Féll úr skíðalyftu Starfsmaður Húsavíkurbæjar féll í gær 6 metra ofan af skíða- lyftu sem hann var að gera við á skíðasvæði bæjarins. Lenti mað- urinn á harðri fónn og var flutt- ur á sjúkrahús. Líðan hans er eft- ir atvikum. VIII byggja Davíð Oddsson forsætisráð- herra hefur sótt um að fá að byggja sér ein- býlishús á einni ' hæð við Fáfnis- nes í Skerja- firði. Hann og {fjölskylda hans hafa búið í ein- , býlishúsi á tveimur hæðum við Lynghaga í Reykjavík um langt árabil.- ELR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.