Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2000, Blaðsíða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2000, Blaðsíða 35
JLlV LAUGARDAGUR 4. MARS 2000 %ðtaí ' heim á lægra plani en hérna á ís- landi en að öðru leyti sýndist mér tónlistarbransinn vera svipaður að þessu leyti hér og erlendis. Ég vissi samt alltaf i hjarta mínu að þetta var rangt og fann löngun til að snúa frá þessu. Ég vissi að það var til betra líf og það fólst í trúnni sem ég var alinn upp við. Ég fór að sækja samkomur í Krossinum skömmu áður en ég hætti og steig síðan skrefið til fulls og sleit mig lausan og tók við Jesú í hjarta mínu.“ Urðu vinslit milli þín og félag- anna í Jet Black Joe í kjölfar þessa? „Það urðu ekki eiginleg vinslit en ég hef lítið samband haft við þá síð- an. Tveir þeirra eru í hljómsveit- inni Ensimi sem spilar einhvers konar „underground“-tónlist og Gunnar Bjarni gítarleikari hefur verið með eigin hljómsveitir. Leiðir okkar lágu ekki lengur saman og ég hvarf úr þeirra heimi sem ég var ekki lengur sáttur við.“ Jesús frelsaði mig frá fíkniefnum Fórstu í einhvers konar meðferð til að hætta neyslu áfengis og fíkni- efna? „Ég er frelsaður og Jesús frelsaði mig frá þessu öllu. Það er engin til- viljun að SÁÁ og AA samtökin byggja á kristilegum grunni þó það sé búið að taka Guð að einhverju leyti út úr þeirra meðferð til að skelfa ekki heiðingjana. Þar er að- eins talað um mátt sem er æðri okk- ur öllum og við vitum vel að þar er átt við frelsarann sem dó á krossi og getur frelsað okkur frá öllu illu.“ Reyndist þér ekkert erfitt að snúa baki við þessum lífsstíl? „Ég hætti að reykja sígarettur nokkrum mánuðum eftir að ég frels- aðist og það var sá hluti sem mér fannst erfiðastur. Ég er hættur að nota áfengi en hef skálað í víni með mat við hátíðleg tækifæri, eins og til dæmis brúðkaupið mitt. En ég er ekki alkóhólisti og þó ég fái mér einn bjór þá þýðir það ekki að ég þurfi að drekka fimmtíu í viðbót. Ég hef tekið á móti Jesú í lífi mínu og hann hefur frelsað mig frá þessu. Þeir sem eru veikir fyrir áfengi eða fikniefnum og fara í með- ferð, sækja fundi og eru stöðugt að minna sig á að þeir séu alkóhólist- ar. Ef þeir smakka einn bjór er heimurinn hruninn. Mér finnst þetta ekki sniðugt en ég var kannski aldrei svo veikur fyrir þessu.“ En þegar hljómsveitin fer að spila og koma fram á tónleikum óttast þú ekki að falla í sama farið? „Nei, ég óttast það alls ekki. Við viljum sýna fólki að rokk er Páll Rósinkrans, fyrrum söngvari Jet Black Joe, vill hasla sér völl í rokki á nýjan leik. er til betra líf en víman.“ skemmtilegt hvernig sem lífsstíllinn er og það gerum við með því að vera fyrirmynd. Við ætlum ekki að spila á dansleikjum, frekar tónleikum og þess háttar." Fjölskyldufaðirinn á verkstæðinu Páll vinnur á hjólbarðaverkstæð- inu Hjólkó í Kópavogi. Það fyrir- tæki er í eigu trommarans Guðna en hann rekur sjálfur og á verk- stæðið Bílkó. Guðni er sonur Gunn- ars Þorsteinssonar, forstöðumanns í Krossinum og náfrændi Páls með þeim hætti að mæður þeirra eru systur. Páll segist sækja samkomur í Krossinum tvisvar í viku auk hlj óms veitaræfinganna Páll er kvæntur Sigríði Margréti Ólafsdóttur og eiga þau eina dóttur saman, Henríettu Hrefnu sem er 9 mánaða. Sigríður átti tvö börn fyrir en Páll einn son. Þau kynntust á samkomu í Krossinum og hafa ekki getað séð hvort af öðru síðan. „Við kynntumst í júlí og vorum gift í desember. Fyrsta íbúðin sem við keyptum var fjögurra herbergja og við eigum Plymouth Voyager til að koma allri fjölskyldunni fyrir. Þetta er frábært líf og ég myndi ekki vilja hafa það á neinn annan veg.“ Er nauðsynlegt að hjón séu bæði í söfnuðinum? „ Já, ég held þaö. Trúin er það stór hluti af lífi okkar að ég tel það nauð- synlegt. Ég var búinn að ýta svona hlutum frá mér og treysti á að Guð myndi senda mér réttu stúlkuna. Ég man að ég var einmitt að hugsa um það á fyrstu samkomunni sem ég sá hana hvort Guð myndi ekki fara að drífa í hlutunum. Það gerði hann svo sannarlega." PÁÁ Við eigum rokkið. - segir Gunnar Þorsteinsson, forstöðumaður Krossins „Rokkið hefur alltaf verið tónlist Guðs. Þaó var Elvis Presley sem kom meó rokkið út úr kirkjunni en David Bowie sagöi seinna að það vœri tón- list djöfulsins. Rokkið er okkar tón- list og ef djöfullinn á einhverja tón- list hefur hann stolið henni frá okk- ur, “ sagói Gunnar Þorsteinsson, for- stööumaður Krossins, í samtali viö DV. „Palli er afburóasöngvari í allri tónlist en bestur í kröftugu rokki. Mér finnst hann aldrei hafa verið betri en einmitt núna. “ -PÁÁ ■ Páll er ekki lengur villt popphetja heldur ráðsettur fjölskyldufaðir og framkvæmdastjóri sem sækir samkomur í Krossinum tvisvar í viku að jafnaði. Talið frá vinstri: Helgi Valur Pálsson, Sigríöur. situr með Henríettu, þá kemurSölvi Bernódus Helgason, Sara Dýrunn Jónsdóttir og loks Páll.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.