Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2000, Síða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2000, Síða 38
v50 LAUGARDAGUR 4. MARS 2000 DV #na r - íslenskur Ijósmyndari fór á eigin vegum til Kína Þarna er rakarastofa á gangstéttarbrún þrátt fyrir frostiö. Þaö er líf í tuskunum á kínverskum matvörumarkaöi. Finnbogi Marinósson Ijós- myndari er nýkominn úr hálfsmánaöardvöl í Kína. nr Hann segir hér í máli og myndum frá kynnum sín- um af kínversku þjóðfélagi og fólkinu sem þar býr. Kína. Heimili eins af hverjum fimm íbúa þessar- ar jarðar. Landið er lítið eitt stærra en Bandaríkin. Þar er elsta samfellda mannkynssagan, vopn- kvaddir menn eru hvergi fleiri og undanfarin misseri hefur hagkerfið þanist hraðar út en á nokkrum öðrum stað i heiminum. Land sem fœst okkar gera sér vonir um að heimsœkja þrátt fyrir að langa meira þangað en á marga aðra staði. Kaldara en ísland Á þessum árstíma er vetur í Kína. Þessi vetur hefur verið kaldari en menn muna og áttum ^við eftir að finna fyrir því. Það góða við kuldann er að það má klæða hann af sér. Það er hins vegar kostulegt að í Peking er alltaf sól og heiðskírt. Stundum er svolítill vindur og þegar fryst- ir getur orðið ansi kalt. Til að mynda „fraus“ myndavélin okkar fyrsta daginn og tók ekki við sér fyrr en eftir dágóða stund innan- dyra. Á móti allri sólinni getur mengunin verið ótrúleg yfir vetr- artímann og fer þá saman mikil umferð og útblástur frá kynding- um og verksmiðjum. Á mótum austurs og vest- urs Við lentum rétt fyrir hádegi á nýjum og mjög glæsilegum flug- velli í Peking. Vegabréfaeftirlitið gengur hægt en auðvelt er að kom- ast í gegnum allt annað. Vinkona okkar sótti okkur og fyrirmælin voru einföld: Til að komast strax á réttan tíma þarf að borða, fara heim, leggja sig i tvo tíma og sofna svo um kvöldið og vakna með öll- um hinum Kínverjunum. Þetta reyndist heillaráð því við duttum strax inn í kínverska tímann, þrátt fyrir að hann sé 8 tímum á undan okkur. Það er ýmislegt sem kemur manni á óvart þegar þarna er komið. Eitt af þvi sem við vissum var að Kina er á hraðri leið inn í hinn vestræna heim. Það kom okkur samt mikið á óvart hversu langt Kínverjar eru komnir. Vega- kerflð gefur því besta sem við þekkjum ekkert eftir nema síður sé. Það líður fyrir að nánast allar merkingar eru á kínversku og þess vegna getur verið snúið að rata. Byggingar eru ótrúlega flottar. Sem áhugamaður um þessa hliö tOverunnar þá gapti ég stundum af undrun yfir öllum þeim glæsi- legu byggingum sem sprottið hafa upp í borgirtni á undanförnum árum. Þær eru bæði glæsilegar og svo er þeim líka gefið pláss til að standa á en ekki troðið hverri upp að annarri án tillits til nokkurs. Peking og Las Vegas Á kvöldin eru þær síðan lýstar upp og sumar á þann hátt að minnir einna helst á ljósadýrðina í Las Vegas. Þá má flnna (og þeim fjölgar ört) vestræna matsölustaði. Kentucky Fried Chicken skreytir Peking með einum 30 útibúum. Þegar inn er komið er þetta allt eins og við eigum að venjast þar til komið er að afgreiðsluborðinu. Þar er ekki röð. Þeir sem eru ákveðnastir eru afgreiddir fyrstir. Það sem er vandasamara er að allt er á kínversku. Það er ófyrirgefanleg synd að fara til Kína til að eltast við mat sem við þekkjum. Það er til dæm- is dýrara að borða á vestrænu skyndibitastöðunum en hefð- bundnum kinverskum veitinga- stað. Reyndar er ótrúlega ódýrt að fara út að borða í Peking. Sex rétta máltíð fyrir 4 með drykkjum getur kostað rúmlega 800 krónur. Hins Þaö sem einkennir Peking er mikil mengun en lítil umferö þrátt fyrir mikinn fólksfjölda. vegar lentum við inni á stöðum þar sem matseðillinn var ekki til á ensku. Þaö kemur ekki að sök á meðan einhver í hópnum les kín- verskuna en er annars augljóst vandamál. Þaö er líka af svo miklu að taka. Fyrstir koma, fyrstir fá Annað sem einkennir kinverska matsölustaði er að réttirnir eru bornir fram eftir því hvenær þeir eru tilbúnir. Og það getur liðið drykklöng stund frá þvi að fyrsti rétturinn kemur þangað til sá sið- asti er tilbúinn. Þess vegna er byrjað að borða um leið og sá fyrsti kemur og til siðs er að allir borði beint af diskinum með rétt- inum á. Þá er hvergi gaffla og hnífapör að sjá né finna svo að leikni í notkun prjónanna er nauö- synleg. Það er ekki verra að vera búinn að fá smáæfingu fyrir fram því annars fer gómsætur tími í óþarfa æfingar. Við vorum mjög heppin og lent- um aldrei á öðrum en frábærum matsölustöðum. Einu sinni hætt- um við við þegar slöngur í búri blöstu við okkur þegar kíkt var inn. Já, þeir segja sjálfir að þeir borði allt á fjórum fótum! Nema borðin! Og eru bara ánægðir með það. Við vorum vöruö við slöngum og öðru sem óvenjulegt er og á meðan maður er að komast betur inn i kerflð þá er það þjóöráð. Þrír í leigubíl Við notuðum leigubíla til að koma okkur á milli staða. Start- gjaldið er 85 krónur og þarf að fara langt til að tvöfalda þetta verð. Það er hins vegar nauðsynlegt að hafa með í for litla bók sem gefur upp alla helstu staði borgarinnar og er bæði á kínversku og ensku. Þegar sest er upp í bilinn sýnir maður Kínverjar flytja alla skapaöa hluti á reiðhjólum meö tengivagni. Þessi þunga- 'flutningamaður hvílir sig á farminum eftir erfiöan flutning. Ólafur Egilsson, sendlherra íslands í Kína.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.