Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2000, Page 39

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2000, Page 39
E>"V LAUGARDAGUR 4. MARS 2000 51< (allir í klukkutíma fjarlægö eða rétt rúmlega það) völdum við okk- ur hópferð sem var seld á einu hót- elanna. Og þetta reyndist vera hin besta skemmtun. Viltu kaupa? Mikil sölumennska er á Múrnum og við bílastæðið. Þarna er hægt að gera sérlega góð kaup. Ekki spillti það fyrir að þennan dag var mjög kalt og fáir létu sig hafa það að standa úti og prútta. Hins vegar get- ur ákafinn í sölumönnunum verið óþarflega mikill. Eitthvað töfðumst við lengur við vöruskoðunina en bilstjórinn gerði ráð fyrir svo hann keyrði til okkar (ætlaði líklega að spara okkur sporin í kuldanum). Hann var hrakinn í burtu með hrópum og sparki í bílinn og endaði með því að við áttum fótum okkar fjör að launa, með hrópandi sölu- mann á hælunum. Forboðnu borgina í hjarta Peking getur hver og einn skoðað. Hún líð- ur ásamt öllu öðru fyrir lélegar upplýsingar á ensku. Það sem borg- ar sig að gera er að kaupa leiðsögu- mann en okkar upplifun var sú að hann væri að flýta sér vegna þess að því fleiri sem hann leiðir í gegn því meiri pening þénar hann. Sunn- an við götuna er Torg hins himneska friðar. Þar má finna hús sem geymir Mao formann og við torgið stendur þinghús þjóðarinnar og þjóðminjasafnið. Sunnan við torgið, sunnan við borgarhliðin tvö, er hverfi sem virkilega gaman er að rölta í gegnum. Þar eru líflegir markaðir og frábærir matsölustað- ir, göturnar þröngar og allt til sölu. Það sem okkur þótti athyglisvert var hversu óhult við vorum, hvert sem við fórum. Aldrei fundum við til þess að okkur væri ógnað á einn eða neinn hátt. Okkar menn í Kína Við nutum þess að fá að kynnast íslenska sendiráðinu, starfsfólki þess og Ólafi Egilssyni sendiherra. Sendiráðið er til húsa á áttundu hæð í Landmark-byggingunni sem er við hliðina á Hard Rock í norð- austurhluta borgarinnar. Auk sendiherrans eru þar tveir islensk- ir starfsmenn, þau Ragnar Baldurs- son og Guðrún Margrét Þrastardótt- ir, auk þriggja Kínverja. Ekki viss- um við mikið um hlutverk né starf- semi þessara útvarða íslensku þjóð- arinnar. Þau voru hins vegar boðin og búin að aðstoða okkur og gefa góð ráð. Þama fer líka fram mikið uppbyggingarstarf. Kína er að taka miklum breytingum og tækifæri til athafna eru mörg en ekki auðsótt. í þessu, sem og nánast öllu öðru, er mikið að gera. En sendiráðið þjónar ekki bara Kína heldur meginhluta Þessir „leigubílstjórar“ grípa í spil meöan þeir bíöa eftir næsta farþega. Frostiö er 12-14 stig. fyrirhugaðan áfangastað og borgar áður en stigið er út úr bílnum. Leigubílarnir eru hins vegar lang- flestir af minnstu Daihatsu-gerð. Rúma þrjá þröngt Þegar farið er að aka um borg- ina kemur í ljós ótrúleg umferðar- menning. Viö fyrstu sýn virðist sem engar reglur séu. Það er mik- er ekki ein samfelld lína heldur margir mislangir „bútar“. í heild- ina er hann u.þ.b 50.000 kílómetra langur og ef efnið sem hefur verið notað í hann væri tekið og úr því gerður veggur sem væri einn metri á breidd og einn metri á hæð þá næði sá veggur 12 sinnum í kringum jörðina. Þetta er ótrúlegt mannvirki og eina verk mann- anna sem sést frá tunglinu. Frá Peking er hægt að komast á 3 staði á Múrnum. Til að komast þangað Sf: Kínversk verslunarmiöstöö á mörgum hæöum, í líkingu við Kringluna Skurðurinn sem maðurinn gengur með fram er opiö holræsi fyrir heilt hverfi. Steinsnar frá því eru manna- bústaðir en vestræn háhýsi handan ræsisins. ið flautað og keyrt á tveimur akreinum ef því er að skipta. Samt gengur umferðin vel. Hún er ekki hröð (og er það mildi) og á hálfum mánuði sáum við einn árekstur sem var meira nudd en klessa. Höfuðreglan er sú að sá sem kem- ur fyrstur á réttinn en hann þarf að fylgja honum eftir þvi menn reyna óspart að pota sér áfram. Það er mikið af leigubílum í borg- inni og aldrei nein bið. Maður rétt- ir einfaldlega út höndina og næst bíll stoppar. Það kom fyrir að bíl- stjórinn þekkti ekki staðinn sem við vorum að fara á og þá er helst til ráða að kalla á annan eða sýna honum annan stað sem er nálægt og fá hann til að keyra áfram þeg- ar þangað er komið, ef maður rat- ar á milli. 12 sinnum kringum jörðina Kínamúrinn er sennilega það sem flestir þekkja í Kína. Það er hins vegar ýmislegt sem flest okk- ar vita ekki um hann. Hann var byggður á tvö þúsund ára tímabili af hinum og þessum keisaradæm- um en alltaf í þeim tilgangi að verjast innrásum úr norðri. Hann Kínverjar eru iífsglatt fólk sem sest niöur og spilar hvenær sem tækifæri gefst. Asiu og Ástralíu. svo verkefnin koma viða að. Vinnudagurinn getur líka orðið langur. Sendiráðið er opnað kl. 9 og lokað kl. 5. Ár drekans - flugeldar í viku Nýtt ár gekk í garð meðan við vorum í borginni. Kínverjar eru mjög hjátrúarfullir og ár drekans er vist gott ár. Þetta þýðir að þeir nota næstu tólf mánuði til að fram-, kvæma mikilvæga hluti, svo sem að gifta sig, eiga börn og annað sem snýr að lífshamingju og heilbrigði. Þeir fagna líka árinu með stæl. Flestu vinnandi fólki (nema í þjón- ustugreinum - hver kannast ekki við það?) er gefið vikufrí. Þennan tíma nota Kinverjarnir til að vera með fjölskyldu sinni. Þeir ferðast jafnvel langan veg til að svo megi verða. Og svo er borðað. Rétt eins og hjá okkur þá snýst hátíðin um samveru og mat. Þeir fagna nýár- inu líka með flugeldum. Reyndar er bannað að skjóta upp flugeldum^ inni í borginni. Það aftrar þeim þó ekki og þeir eru ekki að klukkutím- ann fyrir og eftir miðnætti. Nei, þeir skjóta upp flugeldum í viku. Ferð okkar til Kína opnaði augu okkar fyrir fjölbreyttu mannlífi i fögru landi sem býr yfir ríkulegri menningarhefð sem stendur á mör? þúsund ára grunni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.