Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2002, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2002, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 2002 Fréttir 33V Mörg dæmi um þjófnað á gögnum úr Búnaðarbanka: „Þetta var eins og opinn kanall" - segir heimildarmaður - fjöldi skjala rataði til Norðurljósa Samkvæmt heimildum DV hafa fleiri pappírar veriö afritaöir í Búnaðarbanka og sendir Norður- ljósum en áöur hefur komiö fram. Þar er m.a. um að ræða fjölda skjala sem komið hefur verið til Norðurljósa, allavega í fjórum til- vikum sem starfsmönnum bankans er kunnugt um. Eins og fram kom i frétt blaðsins í gær mun vaktmaðurinn sem handtekinn var í fyrradag hafa ít- rekað leitað í gögnum bankans að skjölum er tengdust Norðurljósum. í sumar gerði Sigurður G. Guðjóns- son, forstjóri Norðurljósa, opinber gögn er vörðuðu Fjölmiðlafélagið ehf. og hugmyndir um sameiningu Skjás eins og Stöðvar tvö. Einnig var upplýst um gögn er vörðuðu áhuga manna á sameiningu Tals og Íslandssíma. Sá sem afritaði þau gögn og kom þeim í hendur for- stjóra Norðurljósa lét þó ekki þar við sitja. Þannig mun samkvæmt heimildum blaðsins í það minnsta í tveim tilvikum til viðbótar verið lekið skjölum til Norðurljósa. „Þetta var bara eins og opinn kanall," sagði heimildamaður DV. í öllum tilvikum mun sami maður vera grunaöur um verknaðinn. Hjá Norðurljósum starfar sem yf- irmaður einnar deildar sonur vakt- mannsins í Búnaðarbankanum. Hann neitaði staðfastlega í samtali við DV i gær að hafa haft milli- göngu um að koma skjölum til for- stjóra síns. „Þetta er algjört bull,“ sagði þessi yfirmaður hjá Norður- ljósum. í DV í gær sagðist Sigurður ekki þekkja þann starfsmann Búnaðar- banka sem handtekinn var og er grunaður um að hafa komið til hans gögnum. „... ég fékk bara þessi gögn í hendur,“ sagði Sigurð- ur. í Morgunblaöinu í gær kom fram að Sigurður G. Guðjónsson, for- stjóri Norðurljósa, sagðist í samtali við blaðið hafa fengið skjölin af- hent og að sá sem það gerði hefði haft samband við sig að fyrra bragði. Við yfirheyrslu hjá lögreglu í lok júlí neitaði Sigurður að gefa upp hver afhenti honum gögnin. Róbert Marshall, fréttamaður Stöðvar 2, spurði Sigurð í fréttum i fyrrakvöld: „Frá hverjum fékkst þú gögn úr Búnaðarbankanum?" - Sig- urður G. Guðjónsson svaraði: „Fékk þau send.“ - Róbert spurði þá aftur: „Og veist þú ekki frá hverjum?" - Þá svaraði Sigurður G. Guðjónsson: „Nei.“ -HKr. Upplýslngalekl í Bunaöarbankanum löinn uppljóstrari viröist hafa komiö fjölda skjala til Noröurljósa meö ólögmætum hætti. DV-MYND E.ÓL Einstök afmællsbörn Halli og Laddi drógu ekki af sér þegar þeir minntust 30 ára grínafmælis sem þeir bræöur eiga um þessar mundir. í tilefni afmælisins veröurgefm út safnplata meö sígildum verkum bræöranna. Henni munu þeir svo fyigja eftir meö skemmtidagskrá í Loftkastalanum. Fjölmiðlakönnun Gallups: 100 þúsund lásu DV Magasín Um 100 þúsund manns lásu DV Magasín i vikunni 15.-22. septem- ber en þá kom blaðið út i annað sinn. Þetta er niðurstaða fjölmiðlakönnunar Gallups. DV Magasín er dreift fritt á höfúðborg- arsvæðinu og til áskrifenda DV á landsbyggðinni og kemur út á fimmtudögum Könnun Gallups bendir til að Magasín fái góðan meðbyr strax í byrjun. Símakönnun Gallups var gerð í umræddri viku meðal 1500 manns á aldrinum 12-80 ára á öllu land- inu. Heildarfjöldi svarenda var 899, eða 62,5 prósent. Samkvæmt könnuninni lásu 42,5 prósent á 1 a n d i n u öllu DV Magasín sem kom út í könnunarvik- unni. Á höfuð- borgarsvæðinu lásu 52,8 prósent blaðið. -hlh Forstjóri LSH telur þörf á forgangsröðun: Átta mig ekki á Magnúsi segir heilbrigðisráðherra Jón Kristjáns- son heilbrigöis- ráðherra segist ekki átta sig á hvað Magnús Pétursson, for- stjóri Landspítal- ans, eigi við þeg- ar Magnús telji óhjákvæmilegt að forgangsraða í heilbrigðisþjón- ustunni. í ræöu, sem Magnús flutti fyrir skömmu, kom þetta viðhorf for- sfjórans fram. Hann sagði: „Mér sýnast erfiðleikarnir við nú- verandi fjármögnun heilbrigðisþjón- ustunnar, þ.e. með greiðslum TR annars vegar og eftir föstum fjárveit- ingum hins vegar, allt of miklir. Skýrslur og ábendingár Ríkisendur- skoðunar undanfarna daga hafa ver- ið gott framlag til umræðunnar. Vandamálin taka jöfnum höndum til heilsugæslunnar, sjálfstætt starfandi lækna, hjúkrunarþjónustu, félags- þjónustu og sjúkrahúsanna. Miðað við takmarkaða fjármuni er ljóst að það verður að forgangsraða og er það hlutverk stjómvaída í samráði við fagfólk og stjórnendur, jafnt opin- berra stofnana sem einkafyrirtækja. Nú víkja menn sér undcm þessum óþægindum en greiðslukerfm stýra aftur á móti þjónustustiginu og hvemig hún bygg- ist upp. Þetta tel ég óviðunandi og órökrétt. Heilbrigðisráð- herra segir að i gildi sé samningur um heilbrigðisá- ætlun þar sem segi að sjúkdóma eigi ekki að flokka. Hann viti ekki hvað Magnús eigi við en ljóst sé í hans huga að ekki hafi verið farið eftir aldri eða öðru slíku þegar ákvarðanir séu teknar um þjónustu. „Hver sjúklingur á að fá bestu lækn- ingu sem völ er á,“ segir ráðherra. Magnús sagði einnig eftirtektar- vert að flest ef ekki öll nágrannalönd íslendinga hefðu horfið frá fóstum fjárveitingum sem fjármögnunarað- ferð í heilbrigðisþjónustunni. Breytt- ar aðferðir hefðu tekið mismunandi stefnu í löndunum en kjami málsins væri sá að leitast ávallt við að tengja saman árangur og fjármuni. Ráðherra segir að ef kostnaðar- greining reynist lausnin frá þvi að hverfa frá föstum fjárveitingum komi ýmislegt til greina. Hann vilji hins vegar ekki taka afstöðu til þess hvort breyta skuli kerfmu fyrr en að slíkri athugun lokinni. -BÞ Magnús Jón Pétursson. Kristjánsson. Morðið á Klapparstíg: Gæsluvarðhald til 8. nóvember 35 ára gamall maður, Steinn Ármann Stefánsson, sem er grunað- ur um aö hafa myrt 65 ára gamlan mann í íbúð á Klapparstíg í Reykja- vík i fyrrakvöld, var í Héraösdómi Reykjavíkur úrskurðaður í gæslu- varðhald til 8. nóvember síðdegis 1 gær. Honum er einnig gert að sæta geðheilbrigðisrannsókn. Maðurmn vildi lítið tjá sig fyrir dómi. Hann játaði ekki á sig morðið. -JSS Sjá bls. 14 og 15. Stuðmenn að eilífu Blaðíð í dag Prinsessan opnar sig Leoncle Martin Er baráttuþrek ETA samtakanna á þrotum? Erlent fréttaljös Köttur, ofurhetja og formaður Jóhann G. Jóhannsson Ég er göldróttur Hermundur Rósinkranz Ekkert skemmtilegra en fatahönnun Guðrún Kristín Sveinbjömsdóttir Handtekin í Leifsstöð Tollgæslan á Keflavíkurflugvelli stöðvaði í gær við hefðbundið toll- eftirlit konu sem reyndist við leit vera með eitt kíló af hassi innan- klæða. Konan er 36 ára þýskur rík- isborgari og var að koma frá Kaup- mannahöfn. Á síðustu tveimur árum hefur 21 erlendur ríkisborgari verið stöðvaður með fíkniefni í Leifsstöö. Laxi slátrað í haust Ráðgert er að 300-400 tonnum af laxi verði slátrað í laxeldisstöð Sæsilfurs í Mjóafirði í haust. Lax- inn verður fluttur yfir til Norðfjarð- ar í slátrun hjá SÚdarvinnslunni á Neskaupstað. Samkvæmt frétt á mbl.is er fyrirhugað að slátrun hefj- ist í nóvember. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borg- arfulltrúi var í gær endurkjörinn for- maður Sambands íslenskra sveitarfé- laga á landsþingi sambandsins sem lauk á Akureyri í gær. Vilhjálmur hefur gegnt for- mennsku í tólf ár. Sjálfstæðismenn eiga 5 menn í nýrri stjórn, fram- sóknarmenn 2, Vinstri grænir einn og Samfylking einn. Hraðahundar teknir Lögreglan á Akureyri tók nokkra ökufanta í gær sem reyndust aka á of miklum hraða. Að sögn er ekki um marga að ræða en þeir sem voru teknir óku á upp undir 130 km hraða. Þannig voru tveir teknir á 128 km hraða en aðrir sem lögregl- an þurfti að hafa afskipti af óku heldur hægar. I Ruby flytur Deilur hafa verið milli forráða- manna Ruby Tuesday og leigusala á Akureyri og er svo komið að veit- ingahúsið hyggst flytja starfsemi sína. Heimildir DV herma að m.a. hafi verið tekist á um sorpmál og vinnur veitingahúsið nú að því að finna nýtt húsnæði á Akureyri. Að sögn Steingríms Bjamasonar, fram- kvæmdastjóra Ruby Tuesday, eru engar áætlanir í gangi um að hætta veitingarekstri í höfuðstað Norður- lands og er leit að nýju húsnæði haf- in. Þrennt í fangelsi Tveir karlmenn og kona, öll á þrí- tugsaldri, voru í gær dæmd til fang- elsisvistar í Héraðsdómi Reykjaness fyrir margvísleg brot. Körlunum er gert að sitja í fangelsi í 10 og 12 mánuði en konan hlaut 6 mánaða fangelsi, skilorðsbundið í þrjú ár. Nýr vegur um Kleifaheiöi Sturla Böðvars- son samgönguráð- herra var i gær við- staddur þegar nýr fjallvegur um Kleifaheiði milli Patreksfjarðar og Barðastrandar var formlega tekinn í notkun. Með nýja veginum um Kleifaheiði næst sá áfangi að bund- ið slitlag sé samfellt á aðalvegi um byggðina í Vestur-Barðastrandar- sýslu frá Vatnsfirði til Bíldudals. -aþ/JSS Endurkjörinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.