Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2002, Blaðsíða 52

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2002, Blaðsíða 52
} 5& HelQarblacf H>’V LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 2002 ÞURRKUBLOÐ Engar tím&paritanir. Korridu núna? REYKJAVIK * AKUfíE/fii B / l A '/ A K T I N Skákþátturinn___________ Umsjón Sævar Bjarnason Stórmeistarinn Eduard Gufeld er látinn: Litríkur og skap- mikill persónuleiki Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Orkuveitu Reykjavíkur, óskar eftir tilboðum í verkið: Uppsteypa lokahúsa Forsteypa á þrjú lokahús sem skal síðan koma fyrir á tveim stöðum í Reykjavík og á einum á Akranesi í dreifikerfi ORá kölduvatni. Helstu magntölur eru: Steypumót 200 m2 Steypa 27 m3 Járnbinding 2000 kg Flutningur og frágangur húsa 3 staðir Skiladagur á lokahúsi á Akranesi er 15. nóvember2002. Skiladagur á lokahúsi Klettagörðum er 15. desember 2002. Skiladagur álokahúsi Barðastöðum er 15. febrúar 2003. Skiladagur heildarverks er 15. febrúar 2003. Útboðsgögn fást á skrifstofu Innkaupastofnunar Reykjavíkurborgar, Frikirkjuvegi 3,101 Reykjavík, frá og með 24. september 2002 gegn 20.000 kr. skilatryggingu. Opnun tilboða: 2. október 2002, kl. 11:00 hjá Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar. notahús, stór og líti Bjóöum RC íbúðarhús, sumarhús og sem gæðin skipta máli“ RC húsin og sumarhúsin eru öll byggð úr KJÖRVIÐI, sem er sérvalin, hægvaxin og þurrkuð, norsk fura af 1. sorteringu. Það fylgir allt með, sem til þarf til að byggja RC húsin og þú þarft því aldrei út í búð á byggingartímanum. Efnið í RC húsin kemur tilsniðið. Teikningar koma númeraðar og með sömu númerum og efnispakkarnir. Það fylgja einnig frágangs-og smíðateikningar fyrir smiðina. NÝTTÁ ÍSLANDI RC Hús bjóða nú NÝJA „Royal“ þrýstifúavöm, þar sem allt útitimbur, er nú soðið í náttúruvænum olíum, í þrýstitönkum, við 300° hita og í þeim lit sem þú vilft hafa húsið þitt. Eftir þetta þarfnast timbrið ekki eftirmeðferðar fyrr en eftir 6-10 ár. „RC hus þegar gæðin skipta máli“ ftG ftúif Sóltún 3,105 Reykjavík Sími: 511 5550 Veffang: www.rchus.is Netfang: rchus@rchus.is flahátlurinn Utvarpi Sögu fm 94.3 Þáttur um viðskipti og efna- hagsmál þar sem blaðamenn Viðskiptablaðsins rýna í það helsta á markaðnum á hverjum virkum degi milli klukkan 17-18 nlll l>m) úliiiítiirriDdxlii i liriiui riúslúplii i iliiu -það borgar sig að hlusta \ Landsbankinn Landsbréf Stórmeistarinn Eduard Gufeld er látinn í Los Angeles í Banda- ríkjunum. Hann fæddist í Úkraínu 1936 og um 1960 var hann meðal fremstu stórmeistara heims og lagði alla þá sterkustu: Tal, Spasskí, Kortsnoj og Bronstein. Hann var oft með sovésku ólymp- íusveitinni sem fararstjóri og þjálfari. Gufeld var lengi búsettur í Georgíu og var skákþjálfari kvenna þar. En konur frá Grúsíu þóttu öðrum fremri í skák í Sovét, eins og t.d. Maya Chiþurdanidze, sem varð síðasti heimsmeistari kvenna úr Sovétríkjunum. Hann ritaði margar bækur um skák. Það vakti furðu margra að Gufeld fékk að ferðast einn á skák- mót víðs vegar um heiminn á Sov- éttímanum, þegar allir aðrir höfðu með sér „leiðsögumenn". Það kom þeim orðrómi af stað að hann væri háttsettur í KGB en sjálfur neitaði hann þeim orðrómi ávallt. Eftir fall Sovétsins hélt hann tii Bandaríkjanna, þar sem hann dvaldi til æviloka. Gufeld þótti lit- rikur persónuleiki og skapmikill en einnig skemmtilegur. Honum var í mun að breiða út skáklistina og hélt fyrirlestra um skák um alla heimsbyggðina. Hann tefldi mjög skemmtilega og af miklu harðfylgi eins og við fáum að kynnast í dag. Hér er fórnarlamb Gufelds Vassilí Smyslov, fyrrverandi heimsmeistari, sem á þessum árum var enn í fullu fjöri við skákborðið. Hvítt: Vassilí Smyslov Svart: Eduard Gufeld Vængtafl. Sovéska meistaramótið 1967 1. c4 Rf6 2. Rf3 g6 3. b4 Bg7 4. Bb2 0-0 Þessi leikmáti var i miklu uppáhaldi hjá Smyslov sem hafði rólegan stöðustil. Þetta afbrigði fór á verkstæði í nokkurn tíma áður en Smyslov tefldi það aftur eftir þessa skák! 5. e3 b6 6. d4 c5 7. dxc5 bxc5 8. b5 a6 9. a4 Re4! Skemmtilegur leikur og Smyslov stenst ekki freistinguna að reyna að vinna lið. 10. Bxg7 Kxg7 11. Dd5 Da5+ 12. Ke2. Síðasti leikur hvíts, 12. Ke2, var nauðsynlegur. Eftir 12. Rbd2 Rxd2 13. Rxd2 axb5 er svartur i góðum málum. En nú koma óvæntar fórn- ir! 12. - Bb7! 13. Dxb7 Rc6 Hér afræður Smyslov að fóma drottn- ingunni. Eftir 14. bxc6 Hab8! 15. dxd7 Hb2+, fylgt af Hd8, er sókn svarts ógnvænleg. 14. Rfd2 Ha7 15. bxc6 Hxb7 16. cxb7 Sumar stöður sem upp koma á skákborðinu lúta engum lögmál- um og þessi staða er ein af þeim. Hvítur hefur 2 létta menn og hrók fyrir drottninguna og peð á b7 að auki. Meira en nóg oftast. En eftir næsta leik svarts er ljóst að eitt- hvað af liði hvits fýkur út af borð- inu! 16. - Db4!! 17. Rxe4 Db2+ 18. Rbd2 Dxal 19. Rxc5 Hb8 Hvitur hefur 3 létta menn fyrir drottninguna sem væri einnig í lagi ef þeir gætu unnið saman! 20. g3 Da3 21. Rxd7 Hxb7 22. Bh3 Dd6 23. c5 Dd5 24. f3 Hb2 25. Hdl e6 26. c6 Hvítur hefur smávon um að menn hans nái saman. En eftir næsta leik er ljóst að svartur hef- ur teflt sérlega glæsilega. 26. - Dc4+ 27. Kel Dd3 28. Bfl Dxe3+ 29. Be2 a5 30. f4 f6 31. c7 Hc2 32. Kfl Hxc7 33. Rc4 Og nú kemur smáleikflétta til að kóróna skákina. Það var illa farið með góðan mann í þessari skák! 33. - Hxc4 34. Bxc4 Df3+ 35. Kel Dc3+ 0-1 Annar sdgur í röð Hellir vann annan sigur sinn í röð í fimmtu umferð Evrópumóts taflfélaga. Að þessu sinni voru and- stæðingarnir enska liðið Barbican, með stórmeistarann Jonathan Parker (2.570) i broddi fylkingar. Hannes Hlífar er að komast á eðli- legt ról og lagði kappann. Andri Áss Grétarsson sigraði einnig í sinni skák. Liðinu hefur ekki geng- ið sem best en mótið er sterkt. Það eru franska liðið NAO, bosniska liðið Sarajevo og rússneska liðið Tomsk sem berjast um sigurinn en tefldar eru 7 umferðir eftir sviss- nesku Monradkerfi. Um 200 stór- meistarar taka þátt í mótinu! Liðsstjórinn sagði að þetta væru fyrstu úrslitin sem hann væri nokkuð sáttur við þótt sigurinn hefði getað orðið stærri. Þannig lék Ágúst Sindri illa af sér og tapaði og Ingvar lék einnig af sér í sjötta leik en tókst af ótrúlegri þrautseigju að halda jafntefli. Úrslit fimmtu umferðar: Barbican chess club - Taflfélag- ið Hellir: Jonathan Parker, (2570) - Hann- es Hlífar Stefánsson, 0-1 Stephen Dishman, (2297) - Helgi Ólafsson, 0,5-0,5 David Sands, (2246) - Ágúst Sindri Karlsson, 1-0 Peter P. Taylor, (2224) - Ingvar Ásmundsson, 0,5-0,5 Alex Tucker, (2199) - Snorri Bergsson, 0,5-0,5 David Flower, (2108) - Andri Áss Grétarsson, 0-1. Haustmót TR Sigurður Daði Sigfússon heldur forystunni á Haustmóti TR og er með 7,5 vinninga eftir 9 umferðir. I öðru sæti er Magnús Örn Úlfars- son með 7 vinninga og Davíð Kjartansson er í því þriðja með 6 vinninga. Mótið hefur verið skemmtilegt og spennandi og úr- slit ekki ráðin enn þegar 2 umferð- ir eru eftir. Staðan 1 A-flokki: 1. Sigurður Daði Sigfússon, 2400, 7,5, 2. Magnús Örn Úlfarsson, 2345, 7, 3. Davíð Kjartansson, 2155, 6, 4.-6. Guðmundur Halldórsson, 2275, Dagur Arngrímsson, 2115, og Kristján Eðvarðsson, 2240, 5 v. 7. Torfi Leósson, 2085, 4,5 v. 8.-9. Björn Þorsteinsson, 2200, og Sig- urður P. Steindórsson, 2185, 3,5 v. 10.-11. Sigurbjöm Björnsson, 2330, og Jón Árni Halldórsson, 2155, 3 v. 12. Halldór Pálsson, 1915, 1 v. Staðan í B-flokki: 1-2 Stefán Freyr Guðmundsson, 1810, og Stefán Bergsson, 1895, 8 v. 3 Kjartan Maack, 1940, 6,5 v. 4.-5. Gísli Gunnlaugsson, 1875, og Guðni Stefán Pétursson, 1880, 5 v. 6. Halldór Garðarsson, 1855, 4,5 v. 7. Bjami Sæmundsson, 1725, 3,5 v. 8. -10. Egill Þórðarson, 1835, Rafn Jónsson, 1800, og Sigurður G. Dan- íelsson, 1950, 3 v. 11. Atli Antons- son, 1720, 2,5 v. 12. Sigurður Inga- son, 1710, 2 v Staðan efstu manna í C-flokki: 1. Ámi Þorvaldsson, 1615, 8 v. 2. Sturla Þórðarson, 1400, 7 v. + frestuð skák, 3. Skúli Haukur Sig- urðarson, 1595, 6,5 v. 4.-5. Atli Freyr Kristjánsson, 1370, 5,5 v. Þórir Benediktsson, 1585, 5,5 v. + frestuð skák, 6.-8. Aron Ingi Ósk- arsson, 1410, Arnar Sigurðsson og Helgi Brynjarsson, 5 v. I ^Smáauglýsingar ^ tómstundir tua 550 5000
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.