Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2002, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2002, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 2002 Fréttir DV Maður sem lögreglan fær úrskurðaðan í gæslu vegna morðsins á Klapparstíg: Geðsjúkur afbrotamaður á reynslulausn - vistunarúrræði ekki til fyrir svona fólk, segir forstjóri Fangelsismálastofnunar Maðurinn sem lögreglan óskaði eftir að fá úrskurðaðan í gæsluvarð- hald, og grunaður er um að hafa banað Braga Ólafssyni, 65 ára, á Klapparstíg 11 á flmmtudagskvöld, var á reynslulausn hjá Fangelsis- málastofnun eftir að hafa afplánað rúmlega 2/3 af fjögurra ára fangels- isdómi fyrir alvarlega líkamsárás. Þorsteinn A. Jónsson, forstjóri stofnunarinnar, sagði við DV að vistunarúrræði virðist alls ekki fyr- ir hendi í þjóðfélaginu fyrir menn eins og þennan. Spurður hvort það sé áfall fyrir Fangelsismálastofnun að hafa veitt reynslulausn andlega sjúkum fanga, sem nú sé grunaður um morð, sagði forstjórinn að þegar reynslulausnin var veitt hefði verið talið heppilegra að veita manninum hana, enda hefði vilyrði fengist fyr- ir betri vistun á heimili annars staðar. Eftir það hefði maðurinn farið m.a. á Vog en þó allt hefði ver- ið reynt þar hefði ekki fengist lausn á vanda hans. „Þessi maður er mjög illa veikur," sagði Þorsteinn. Maðurinn hefur verið á „gráu svæði“ í fangelsis- og heilbrigðis- kerfinu meira og minna í áratug. Hann hefur talist sakhæfur enda þótt ljóst hafl verið allan þennan tíma að hann hefur átt við alvarleg geðræn vandamál að stríða ofan í það að vera flkniefnasjúklingur. Hann var árið 1992 dæmdur í 7 ára fangelsi fyrir stórfellt flkniefnabrot, glæfraakstur og líkamsárás á lög- reglumann. Óttar Sveinsson blaðamaöur Innlent fréttaljós Lilmlestir lögreglumenn Fjölmargir lögreglumenn hand- tóku manninn þann 18. ágúst 1992 á Vesturlandsvegi, eftir að hann hafði ekið bifreið á lögreglubíl, með 1,2 kíló af amfetamín í farangursrým- inu, með þeim afleiðingum að tveir lögreglumenn slösuðust, annar þeirra mjög alvarlega, og hefur hann ekki náð sér. Málið var gjarn- an kallað tálbeitumálið þar sem flkniefnalögreglan fékk mann til að „setja upp“ hinn grimaða - Stein Ármann Stefánsson. Fíkniefnalög- reglan elti síðan Stein frá sundlaug- unum í Laugardal og endaði sú eft- irför með skelfilegum afleiðingum þar sem ein dramatískasta hand- taka íslenskra sakamála átti sér stað. Litlu munaði að lögreglumenn- irnir létu lífið eftir að Steinn Ár- mann ók harkalega aftan á lögreglu- bílinn. Öðrum lögreglumanninum tókst sjálfum að komast út með naumindum en hinn var dreginn meðvitundarlaus úr logandi flak- inu. Þama var um almenna lög- reglumenn að ræða. Þetta kvöld lagði Steinn Ármann hins vegar tvisvar sinnum til óeinkennis- klædds lögreglumanns með skær- um. Svo vildi hins vegar til að hann var í leðurjakka og oddur skæranna stöðvaðist í minnisbók sem hann var með í brjóstvasa. Steinn Ár- mann ók Subaru Legacy bílaleigu- bifreið sem fikniefnalögreglan tók sjálf á leigu hjá Bílaleigu Akureyrar og var hún úrskurðuð ónýt eftir áreksturinn. Afskipti landlæknis Eftir handtökuna á Vesturlands- vegi kom fljótlega á daginn að Steinn Ármann gekk ekki heill til skógar andlega. Hann var úrskurð- aður í gæsluvarðhald og sat inni svo mánuðum skipti í hinu ómann- eskjulega einangrunarfangelsi í Síðumúla. Þegar Steinn Ármann hafði setið þar í um tvo mánuði fór landlæknisembættið fram á það við ríkissaksóknara og fangelsislækni að kannað yrði hvort hægt væri að vista manninn annars staðar. Þetta var byggt á slæmu andlegu ástandi afbrotamannsins. Álit manna var að' geðheilsu hans hefði hrakað fljót- lega eftir að inn var komið. „Steinn Ármann er með mjög truflað veruleikaskyn. Hann lifir 1 tveimur heimum. Ég skil ekki hvemig hægt er að loka geðklofa mann inni í einangrun. Ég hef aldrei vitað til þess að slíkt hafl ver- ið gert nema með hörmulegum af- leiðingum," sagði einn heimildar- manna DV á meðan á réttarhöldun- um stóð árið 1992. Annar maður, háttsettur opinber starfsmaður, sagði: „Það er klárt mál að maður- inn er truflaður á geði eins og er.“ Lífshættulegt magn kókaíns Þegar Steinn Ármann var hand- tekinn var blóðsýni tekið. Þegar réttarhöld fóm fram kom á daginn að sýnt þótti að hann væri með kókaineitrun sem var ekki langt frá því að vera banvæn. Sökum kóka- ínáhrifanna hefði dómgreind hans og fjarlægðarskyn truflast og í stað þess að aka fram hjá lögreglubíln- um hefði hann ekið aftan á hann. Þegar þetta sakamál kom upp árið 1992 hafði Steinn Ármann þegar hlotið þrjá refsidóma, meðal annars fyrir líkamsárás og þjófnað. Þegar dómur var kveðinn upp í kókaínmálinu var Steinn Ármann þrátt fyrir allt úrskurðaður sakhæf- ur. Það þýddi að hann fór í afplán- un á Litla-Hrauni. Á næstu árum átti hann eftir að vera í læknismeð- ferð eins og kostur var, meðal ann- ars á réttargeðdeildinni að Sogni. Kerfið virtist hins vegar ekki ráða við þetta sjúkdómstilfelli. Töldum okkur búna að ... Þorsteinn Jónsson, forstjóri Fang- elsismálastofnunar rikisins, sagði við DV að þegar Steini Ármanni var veitt reynslulausn fyrr á árinu hefði stofnunin talið að búið væri að tryggja athvarf fyrir manninn. Skrifleg yfirlýsing hefði legiö fyrir um að hann kæmist inn á sambýli en 2 dögum áður en hann átti að losna út var hún afturkölluð. „Þá út- veguðum við honum vist í Byrginu, þar sem hann var nokkra mánuði. Síðan var hann í Reykjavík og loks hjá SÁÁ. Þar þótti erfitt að tjónka við manninn. Menn eins og hann virðast hvergi eiga samastað. Mað- urinn er illa haldinn og sjúkur og við töldum þvi betra fyrir hann að vera annars staðar en i fangelsi og fengum vilyrði fyrir plássi á heppi- legri stað. Þetta er maður sem er mjög illa veikur en það virðast ekki mörg úrræði fyrir menn eins og hann í þjóðfélaginu," segir Þor- steinn. - Er það áfall fyrir stofnunina að maður sem nýlega var veitt reynslu- lausn skuli nú grunaður um morð? „Okkur finnst aldrei ánægjulegt að menn fremji afbrot þegar reynslulausn er veitt. Við töldum okkur búna að gera það sem hægt var að ætlast til. Við reyndum mjög mikið aö koma honum í varanlegt skjól og kost en slík úrræði virðast ekki fyrir hendi. Þórarinn Tyrfmgs- son, yfirlæknir á Vogi, reyndi mjög mikið að hjálpa þessum manni, meira en venjulega er gert, en það tókst ekki,“ sagði Þorsteinn. -Ótt DV-MYND HARI Færður fyrir dómara Steinn Ármann Stefánsson, sem grunaður er um morðið á Klapparstígnum í fyrrakvöld, var síödegis í gær færður fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur en farið hafði verið fram á gæsiuvaröhaidsúrskurð yfir honum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.