Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2002, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2002, Blaðsíða 26
26 / / e / C) o r b la c) 3Z>“V LAU GARDAGUR 28. SEPTEMBER 2002 Stuðmenn að eilífu Stuðmerw ætla að halda ti/enna tónleika í Þjóðleikhúsinu eftir helgina og það er þeg- ar uppselt á þá báða. Si/o trgggan sess á þessi roskna gleðisveit íhjörtum þjóðar sinnar. Stuðmenn eru um margt merkileg hljómsveit og á þeim tæplega 30 árum sem þeir hafa verið innan skynjunar- sviðs íslenskrar alþýðu hefur listsköpun þeirra og afþrey- ing tekið á sig ýmsar myndir. Það má eiginlega segja að Stuðmenn séu nokkurs konar menningarstofnun frekar en hljómsveit eða birtingarmynd einhvers heilkennis sem tengir fáeina listamenn saman. Saga Stuðmanna hefur verið rakin oftar en tölu verði á komið enda eina íslenska hljómsveitin sem lét skrifa um sig heila bók á miðjum níunda áratugnum. Hljómsveitin varð til í Menntaskólanum í Hamrahlíð 1973-74 og var lík- lega stofnuð af Jakobi Frímanni Magnússyni og Valgeiri Guðjónssyni. Markmið þeirra með hljómsveitarstofnun- inni var áreiðanlega sýniþörf í bland við athafnaþrá en upphaflega mun „conseptið" hafa gengið út á það að vera sem hallærislegastir. Það er skýringin á svörtu jakkaföt- unum og lakkrísbindunum sem voru lengi ásamt brillant- íngreiðslu einkennisbúningur sveitarinnar en á fæðingar- tíma hennar var þetta eins langt frá því að vera „kúl“ eins og hægt var að komast. Þessi hugmyndafræði sem var í rauninni lymskuleg uppreisn gegn gildismati foreldra sveitarmeðlima sem flestir voru virðulegir millistéttarborgarar í Reykjavík varð fljótlega að sérstakri tegund af kímnigáfu sem er í senn lágstemmd og æpandi. Hinn sérstaki Stuðmanna- húmor er ekki alltaf auðsær en sumt sem aðdáendur þeirra taka sem dauðans alvöru finnst þeim sjálfum mesta grín. Sumt af því sem hefur orðið hvað vinsælast af verkum sveitarinnar hefur líklega byrjað sem brandari eða útúrsnúningur. Stuðmenn sem móðurhljómsveit Stuðmenn uxu fljótlega frá því að vera undarleg innan- búðarhljómsveit í Hamrahlíðinni og urðu hulduhljóm- sveit með grímur. Eftir að þeim hluta ferils þeirra lauk sem stóð seinni hluta áttunda áratugarins og gat af sér plötur eins og Sumar á Sýrlandi og Tívolí sundraðist hljómsveitin í ýmsar áttir. Það er við fyrstu sýn erfitt að sjá hvað það er sem tengir saman verkefni eins og hið hippalega og léttróttæka Spilverk þjóðanna, hinn rammís- lenska Þursaflokk, barnahljómsveitina Hrekkjusvínin, hina furðulegu hljómsveit Jolli og Kóla, bræðingstónlist- armanninn Jack Magnet og nýbylgjuhljómsveitina Strax en allir þræðirnar sem tengja þessi ólíku verkefni ólíkra tíma saman liggja gegnum Stuðmenn og kannski eru all- ar þessar sveitir í rauninni ólík birtingarform sveitarinn- ar. Líklega er sanngjarnt að segja að ferill Stuðmanna rísi hvað hæst á níunda áratugnum þegar kvikmyndin Með allt á hreinu var gerð og sýnd við meiri vinsældir en nokkum tíma verða jafnaðar en alls sáu um 120 þúsund manns myndina. Það ber séríslenskri kímnigáfu myndar- innar fagurt vitni að örfáar tilraunir til að sýna útlend- ingum hana fóru algerlega út um þúfur, í kjölfarið fóru Stuðmenn marga hringi um landið og léku af miklum móð fyrir dansgesti sem troðfylltu flest fé- lagsheimili og þjóðhátíðardali sem finnast á landinu. Síðan má eiginlega segja að Stuðmenn hafi lifað á fornri frægð og gengið það bara nokkuð vel með þeim hætti að sveitarmeðlimir hafa jafnan vasast í ýmsum ólík- um verkefnum en ávallt skroppið saman í kös aftur með reglulegu millibili. Illjómsveitin glaðhlakkalega ásanit aðdáendum í kringum 1976 þegar Stuðnicnn voru hvað vinsælastir og ferill þeirra nýhafinn. Egill Ólafsson virðist þungbúinn á þessari mynd en það er ekki allt sem sýnist. DV-mynd Sigurður Jökull Það er útgáfufyrirtækið Edda sem hljóðritar tónleika Stuðmanna í Þjóðleikhúsinu en þar koma fram auk Stuð- manna Borgardætur, sem syngja nýjar útsetningar á Stuðmannalögum, og nokkrir blásarar eru sveitinni til fulltingis á sviðinu. Óskalög Stuðmanna Skúli Helgason, starfsmaður Eddu, sem heldur um ýmsa þræði varðandi tónleikana, sagði í samtali við DV gegnum tölvupóst frá Ameríku að stefnt væri að því að sýna Stuðmenn í öðru ljósi en alþjóð hefði vanist. „Ferill þeirra geymir margar glerfinar lagasmíðar sem sumar hverjar hafa hvílt í skugganum af því þær henta ekki á ballprógrammið. . Þannig verða einungis fimm lög á prógramminu sem Stuðmenn hafa spilað í sínu söngprógrammi á liðnum árum, sex ný lög og margir gamlir vinir sem hafa sumir aldrei verið fluttir á tónleikum áður,“ reit Skúli þegar hann lýsti dagskránni fyrir DV. Hann segir í sama skeyti að Stuðmenn séu fjarri því saddir lifdaga heldur séu útlendingar sem óðast að opna augun fyrir þeirra séríslensku tónlist og vegsauki nokkur sé væntanlegur á þvi sviði. Á dagskránni í Þjóðleikhúsinu verða sex ný lög og í fyrsta sinn verða flutt lög eftir alla meðlimi hljómsveitar- innar en Ásgeir Óskarsson trommari og Tómas Tómasson bassaleikari hafa ekki átt lög á efnisskrá sveitarinnar áður. Flest gömlu lögin hafa fengið nýja útsetningu sem gestasöngvarar og spilarar setja sinn svip á en líklegt er að blásarar gefi tónlistinni jasskotnara yfirbragð en hlustendur eiga að venjast. Það er í anda Stuðmanna að sérstakur leynigestur verð- ur á dagskrá tónleikanna. Hans nafn hefur ekki verið aug- lýst að sjálfsögðu en hann tengist sveitinni frá fornu fari. Stuðmenn sjálfir orðuðu það svo í eyru blaðamanns að þarna væri safnað saman best geymdu lögum sveitarinn- ar í bland við nýrra efni. Það mátti ráöa af ýmsu sem þeir sögðu að sum þessara laga þættu þeim vera í flokki þeirra betri. Týndir Stuðmenn Það hafa tveir meðlimir hætt i Stuðmönnum frá upp- hafi. Annar er Valgeir Guðjónsson sem lengi var rytma- gítarleikari og söngvari sveitarinnar og afkastamikill lagahöfundur. Valgeir hætti í bandinu seint á níunda ára- tugnum og hefur átt á köflum blómlegan feril síðan við að flytja eigin tónlist. Valgeir hefur aldrei komið fram með Stuðmönnum síðan þrátt fyrir ýmis tilefni og hann hefur aldrei tjáð sig opinberlega um sérstakar ástæður fyrir brotthvarfi. Fyrir vikið er það gæluverkefni Stuðmanna- aðdáenda að velta vöngum yfir ýmsum samsæriskenning- um um brotthvarf Valgeirs og þá margt dregið til þeirrar sögu sem varla telst prenthæft. Hinn „týndi“ Stuðmaðurinn er Sigurður Bjóla sem starfaði með sveitinni og Spilverki þjóðanna um árabil. Sigurður á nokkur afar vinsæl lög á plötum beggja sveita og hæfileikar hans á því sviði eru óumdeildir. Sigurður hefur ekki frekar en Valgeir stigið á svið með Stuðmönn- um síðan hann hætti. Svo skemmtilega vill til að Sigurður er um þessar mundir starfsmaður Þjóðleikhússins og kemur því í krafti sins embættis talsvert að tónleikum Stuðmanna. Hvort hann lætur tilleiðast í þetta skipti og stígur fram á sviðið með fyrrum félögum sínum verður að koma í ljós en það verðu þó að teljast frekar óliklegt. Þegar fréttist af umræddum tónleikum seldust miðar á þá báða upp á skömmum tíma án þess að mikið væri haft fyrir auglýsingum og ætti það að styrkja orðstír sveitar- innar sem stundum hefur verið atyrt fyrir það í unglinga- blöðum að vilja ekki hætta. Þegar blaðamaður hitti Egil Ólafsson í æfingahúsnæði sveitarinnar fyrir skömmu fór Egill ýmsum orðum um þetta mál i misjafnlega heimspekilegu samhengi en taldi að þegar öllu væri á botninn hvolft þá hefðu hljómsveit- armeðlimir einfaldlega afskaplega gaman af því að starfa saman og hann taldi að sú gleði myndi halda hljómsveit- inni á lífi eins lengi og séð verður. „Þetta er bara svo gaman,“ sagði hann og gott ef það var ekki konseptið sem upphaflega var lagt til grundvall- ar þegar sveitin varð til. -PÁÁ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.