Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2002, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2002, Blaðsíða 11
LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 2002 11 Skoðun Hugsað við uppþvottinn Laugardagspistill Jónas Haraldsson aðstoðarritstjóri Það var þögn í sumarhúsinu morguninn eftir samkvæmið sem hafði staðið fram á miðja nótt með gleði, söng og dansi. Tónlistin var við hæfi gesta, frá sokkabandsárum þeirra. Hún vakti góðar minningar, stundum ljúfsárar, jafnvel ára- tugagamlar. Tilefni samkomunnar var margþætt, íjórði í virðulegu stórafmæli, saumaklúbbssamkoma, með mökum til tilbreytingar, og létt íþróttamót fyrr um daginn. 1 því móti spreytti hópurinn sig á golf- kylfum með misjöfnum árangri. Morguninn eftir Ég vaknaði fyrstur þótt ég hefði tæpast náð fullum svefni. Það er ekki jafn auðvelt að sofa út og áður. Þó sá ég að sá hæfileiki er ekki endilega bundinn aldri. Aðrir næt- urgestir sváfu fast, margir heldur eldri en ég. Það er sérstakt ástand á húsi eða íbúð morguninn eftir partí af öflugri gerðinni. Tómar eða háif- tómar vínflöskur á víð og dreif og glösin fleiri en tölu varð á komið í fljótu bragði. Þær tómu voru af öll- um gerðum. Hvít- og rauðvínsflösk- urnar voru til marks um upphaf veislunnar, siðaðasta hluta hennar, neyslu borðvínanna. Bjórdósir og flöskur voru víða en sem betur fer flestar komnar í svarta poka. Það þurfti því ekki að tína þær saman. Einhver hafði hrokkið í tiltektargír- inn áður en samkvæmið var allt. Ég sendi viðkomandi þakkarskeyti í huganum. Nóg var samt. Misjafn smekkur Bjórinn á sér ekki eins afmark- aða stund í samkvæmum og borð- vínin. Hann lifir frá upphafi til enda. Svo var einnig í þetta sinn. Þeir hörðustu höfðu skellt í sig nokkrum meðan á íþróttamótinu góða stóð. Aðrir biðu þar til grillað var. Karlar hafa helgað sér þá mat- reiðsluaðferð en vilja gjarnan taka einn eða tvo kalda með, svona til að mýkja handbragðið. Konur láta þetta eftir þeim. Bjórmenn halda sig síðan við þann drykk, með mat og ekki síður er kvölda tekur, þegar stuð færist í mannskapinn. Aðrar áteknar flöskur á borðum og gólfi hússins sýndu mismunandi smekk, ailt frá dömulegu sérrii til vodka. Greinilegt var að sumir í þessum miðaldra hópi höfðu ekki vaxið upp úr æskudrykkjunum, þegar á reið að verða fullur sem fyrst, jafnvel deyja drottni sínum tímabundið. Sú tíð er sem betur fer löngu liðin. Þarna var líka að finna flöskur utan af Grand Mamier, vin- sælum líkjör sem konur virðast sækja í fremur en karlar en um leið gat að líta koníaksflöskur. Karlam- ir höfðu greinilega fengið sinn skammt. Jafnvel fyrir karlmenn Það var þörf tiltektar en eitt hef- ur þó breyst frá því sem áður var. Það var minna í öskubökkum. Þeir sem enn reykja stunda það flestir undir berum himni. Daunillir stubbar voru því fáir. Ég safhaði glösunum saman og hóf uppþvott- inn. Víst fór ég varlega til þess að vekja ekki þá sem þreyttari voru eftir nóttina. Ég er ekki þrautþjálf- aður i uppþvotti en sérfræðingar á þessu sviði mæla mjög með verk- inu. Það sé svo gott að láta hugann reika meðan á þvottinum stendur. Verkið sé ekki flóknara en svo, jafn- vel fyrir karlmenn, að þeir geti hugsað um leið og þeir þvo upp. Ég leyfði mér þennan munað. Ósýnilegir en þó inn allt Við samanburð á nýliðnu sam- kvæmi og partíum fyrri ára sá ég að margt var líkt. Það var tilhlökkun í góðum og samstæðum hópi að hitt- ast og sletta úr klaufunum, breyta hvunndeginum. Hið sama átti við fyrrum, hvort sem var i skólapartí- um eða öðrum. Nú sem fyrr var ákveðið að detta í það, taka þetta með stæl. Allt var þó betur undirbú- ið. Menn gáfu sér betri tíma og veislufongin voru að sönnu glæsi- legri, fjárhagurinn betri. Það sá ég á matarbirgðunum sem bornar voru inn í sumarhúsið og ekki síður vín- inu. Jepparnir í hlaðinu voru líka tákn um breytta stöðu en helsti mun- urinn var rólegra hormónaflæði. Hormónamir einkenndu partíin i gamla daga. Þeir voru ósýnfiegir en þó um allt, réðu samskiptum kynj- anna. Þess vegna, meðal annars, fóru ýmsir flatt á guðaveigunum. Áfengið efldi mönnum kjark og þor. Þeir sögðu hug sinn meöan rænan var enn til staðar en vandinn var að hún vildi hverfa, svo ört var sopið á. Meðvitundarleysið var ekki langt undan og þá var til lítils barist. Líð- anin daginn eftir var ömurleg en þeir timburmenn gleymdust fljótt. Partíið hvarf út um gluggann á meðan allir sváfu nema ég. Friðurinn var alger. Þess vegna hélt ég tiltektinni áfram, sóp- aði upp nasli og strauk af borðum. Það var þá sem ég áttaði mig á því að ýmislegt hafði breyst frá þvíforðum. Hormónarnir tóku öll völd þegar leið að næstu helgi. Það er fullmikið sagt að þeir hafi verið í dái nýliðið kvöld og nótt en fráleitt til vandræða. Breyttir tímar Ég þvoði glösin og þurrkaði. Snapsaglös fóru á sinn stað, bjór- glös á annan og vínglösin röðuðust pent í skáp. Lengstan tíma tók að ná varalitnum af sumum glösunum. Augljóst var að konumar höfðu ekki dregið af sér i andlitsskreyt- ingunni. Þetta verk vandaði ég samt af þeirri reynslu að gamall varalit- ur á stöðnu glasi er ekki lystauk- andi eins og sami litur getur þó ver- ið á vömm við réttar aðstæður. Varfæmum höndum strauk ég bleytuna af koníaksglösunum. Þau vora mitt uppáhald, fallega löguð með mjúkar línur. Ég opnaði glugga og hleypti hressandi haustloftinu inn, tók sam- an púða úr sófum og stólum og viðr- aði. Partíið hvarf út um gluggann á meðan allir sváfu nema ég. Friður- inn var alger. Þess vegna hélt ég til- tektinni áfram, sópaði upp nasli og strauk af borðum. Það var þá sem ég áttaði mig á því að ýmislegt hafði breyst frá þvi forðum. Við eftirleit í þá daga fundust ekki aðeins tómar flöskur og fullir öskubakkar. Hugs- anlegt var að upp úr sófa græfist brjósta- eða nærhald eða annar vitn- isburður um tilraunir til náins sam- bands. Ég varð hvergi var við slíkt og átti raunar ekki von á því. Frem- ur að ég fyndi síðar nærbuxur ein- hvers frá golfmótinu daginn áður. Það sem ég fann á borðum og milli púða í sófum voru gleraugu, ekki ein eða tvenn heldur mörg, glögg merki þess að samkvæmisgestir voru famir að tapa sjón. Það voru ekki aðeins hormónarnir sem höfðu látið á sjá heldur líka speglar sálar- innar. Sjáöldrin höfðu dofnað með áranum. Hjálpartækið Gleggsta merkið um breytingu frá fyrri tíð fannst þó til hliðar við þægÚegan stól með örmum. Á öðr- um þeirra hékk stafur, silfurbúinn. Ég vissi ekki hver átti göngustaf þennan en gaf mér það að eigandinn hefði staðið og gengið á tveimur jafnfljótum meðan stætt var daginn áður. Þegar skyggja tók hafi eitt- hvað látið undan, ökkli, hné eða mjaðmarliður. Því hafi verið gripið til hjálpartækisins. Kannski þarf fljótlega að skipta um kúlu í mjöðm einhvers félagans. Hugsanlegt er að sá hinn sami hafi tæklað of djarft í fótboltanum þegar hann var og hét. Allt verður imdan að láta. Þess ber þó að geta, sem er fagn- aðarefni, að engan fann ég góminn. Tannhiröu hefur, sem betur fer, fleygt fram.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.