Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2002, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2002, Blaðsíða 20
20 H e l c) u rb l o cJ JOV LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 2002 Köttur, ofurhetja og formaður Jóhann G. Jóhannsson leikari er nýr umsjón- armaður Stundarinnar okkar, formaður Leikfélaqs Reqkjavíkur og leikari. Jóhann talar við DV um nærinqu hróssins, erfið pen- inqamál LR oq kvíðann fqrir að feta í fót- spor Brqndísar Schram. Þaö hlýtur að vera skemmtilegt fyrir leikara að fá góða dóma enda sat Jóhann G. Jóhannsson skælbrosandi þegar fundum okkar bar saman i vikunni. Jóhann leikur köttinn í söngleiknum Honk sem var frumsýndur fyrir viku í Borgarleikhúsinu. Þetta er í meginatriðum sagan af ljóta andarunganum eftir H. C. Andersen sem er leikin og sungin á fjölunum. Daginn sem við Jóhann áttum stefnumót var sagt í Mbl. að hann hafi átt stórleik í rullu kattarins og atrið- ið þegar kisi ætlar að matreiða andarungann ljóta hafi verið eitt skemmtilegasta atriði leiksins. f DV sama dag var sagt að Jóhann hefði verið bæði hættulegur og sexí í hlutverki kattarins. Samtal okkar fer fyrst í stað í vangaveltur um það á hvaða tungumáli svanir segi nákvæmlega Honk. Ekkert íslenskt orð lýsir nákvæmlega orðræðu svana með lík- um hætti og við segjum: mjá, bra, me eða voff fyrir hönd annarra dýrategunda. Leikhópurinn hugsaði djúpar hugsanir um þetta mál á æfingatímanum og fór meðal annars niður á Tjörn til að hlusta á svani sem Jóhann segir að stynji stundum upp hljóðum sem hljóma nokkurn veginn eins og Honk. Hann gefur mér tóndæmi svo þjónustufólkið á kaffihúsinu hrekkur við. Þögnin er verst - En hvernig tilfinning er það að fá góða dóma? „Það er afskaplega góð tilfinning. Sumir leikarar lesa aldrei dóma en ég geri það alltaf. Leikarar geta vel lent i því að telja sig vera að gera góða hluti þegar þeir eru umkringdir cif já-fólki og eru að gera einhverja dellu. Auðvitað er þetta aðeins skoðun eins manns en ég hef gaman af að pæla í þeim og sérstaklega þegar þeir eru góðir. Það hættulegasta sem gerist er þegar leikarar fara að breyta leik sínum í samræmi við dómana. Það versta er þegar það er ekki sagt neitt," segir Jóhann sem segir einnig að hrósið sé nokkurs konar uppskera sem leikar- ar nærast á. - Hvað annað er á verkefnaskrá þinni í vetur? „Ég er í Kryddlegnum hjörtum en vorið er óskrifað blað. Vonandi gengur Honk vel sem mér finnst það hafa alla burði til. Höfundurinn var svolitið undrandi á því að við skyldum setja þetta upp sem barnasýningu en alls staðar annars staðar hefur þetta verið skilgreint sem fjölskyldusýning og sýnt á kvöldin enda vottar mjög víða í textanum fyrir gríni sem fullorðnir skilja mjög vel og sennilega á annan hátt en börnin." Það var reyndar beinlínis talað um tvíræöan húmor í umsögnum gagnrýnenda en tvírætt barnaleikrit hlýtur að vera óviðeigandi þversögn en Jóhann talar um felu- brandara í verkinu. Jóhann hefur verið leikari hjá LR frá árinu 1997 en hann útskrifaðist frá leiklistarskóla í Hartford í Conn- ecticut vorið 1994 og fyrsta verkefni hans var að leika í söngleiknum Hárinu sem var sýndur það sumar við miklar vinsældir. „Það var gæfa að lenda í Hárinu og var góð kynning því leikarar sem læra úti eiga stundum erfitt með að komast inn í leikhúsin því þeir fá ekki að sýna sig nóg.“ Jóhann segist hafa verið í hefðbundnu leiklistarnámi þar sem ekki var lögð sérstök áhersla á söng og dans sem hann segist þó alltaf hafa haft mikinn áhuga á. Hver leikari b'tíð fyrirtæki Jóhann gerði bragð úr ellefta boðorðinu árið 1999 þeg- ar hann yfirgaf leikhúsið um hrið og tók meistaragráðu í viðskiptastjórnun við Háskólann í Exeter og vann sem markaðsstjóri í stóru fyrirtæki i nokkur misseri eftir nám áður en hann sneri aftur í leikhúsiö Hvað átti þetta eiginlega að þýöa? „Ég ætlaði aldrei að yfirgefa leikiistina en vildi opna hugann. Ég heillaðist af því hve þetta eru ólíkir heimar. Viðskiptafræðin byggist á ósveigjanlegum lögmálum meðan leiklistin gerir það alls ekki.“ - Ég get skilið að leikarinn geti leikið viðskiptafræð- ing af innlifun eftir slíkt nám og starf en hvar getur leik- listin nýst markaðsstjóranum í starfi? „Á íslandi er hver leikari lítið fyrirtæki sem er í stöð- ugum samningaviöræðum svo leikararnir þekkja þetta betur en maður skyldi halda. Leiklist og leiklistarnám virkar vel alls staðar og sú hópvinna og hópefli sem leikarar kunna öðrum betur Jóhann G. Jóhannsson skemmtir börnum og leiknr kött milli þess sem hann hefur áhyggjur af fjárhagsstöðu Leikfélags Reykjavíkur en haun er formaður þess. DV-mynd ÞÖK virkar afskaplega vel í viðskiptalífinu. Það getur þurft að leika í viðskiptalífinu og bregða sér í hlutverk þess sem vel gengur en allur heimurinn er leiksvið," segir Jóhann. Formaður félags í kröggum - Kannski var það í krafti þessarar óvenjulegu sam- setningar viöskipta og leiklistar sem Jóhann var kosinn fyrir rúmu ári formaður Leikfélags Reykjavíkur vegna fjölda áskorana. Samkvæmt skipuriti félagsins er hann því í krafti síns embættis eiginlega yfirmaöur leikhús- stjórans sem er þó í hefðbundnum skilningi yfirmaður hans. Leikfélag Reykjavíkur hefur strítt við fjárhagsvand- ræði síðan félagið flutti í hið stóra og glæsilega Borgar- leikhús. Eftir hallarekstur og skuldasöfnun í allmörg ár var gerður merkur samningur við Reykjavíkurborg fyr- ir rúmu ári síöan. í þeim samningi fólst að borgin leysti til sín eignarhluta LR í Borgarleikhúsinu og við það grynnkaði verulega á skuldunum. Þessi samningur átti að leysa fjárhagsvanda félagsins og koma því á nokkuð lygnan sjó en raunin hefur orðið önnur. Á fyrsta árinu eftir að samningurinn var í höfn og leikhúsið var rekið eftir nýju skipulagi varð hallarekst- ur Leikfélags Reykjavikur 50 milljónir króna. Þegar það er haft i huga að Leikfélagið veltir um 380 milljónum króna á ári verður ljóst að hér er um skuggalegar upp- hæðir að ræða. Af þessu hafa ýmsir sem málið varðar miklar áhyggjur og í vikunni varð heyrinkunnugt að safnað haföi verið undirskriftum meðal leikara i Félagi íslenskra leikara og áskorun send einhverjum borgarfulltrúum með bón um úrlausn. Launaskriðið erfiðast Jóhann segir að samningaviðræður standi yfir við borgaryfirvöld sem hafi sýnt Leikfélaginu og vanda þess mikinn skilning og áhuga sem félagið sé þakklátt fyrir. Borgaryfirvöld fylgjast grannt með stöðu mála og hafa, að sögn Jóhanns, miklar áhyggjur af framvindunni. - En hver er orsök þessa fjárhagsvanda? „Það er ekki komin enn nein lausn á þessum vanda og það er auðvelt að skilja fólk sem óttast að missa vinn- una. Leikfélagið hefur verið að borga niður skuldir en höfuðástæðan fyrir vanda þessa síðasta árs er gífurlegt launaskrið. Skömmu eftir að samningurinn var gerður fóru af stað samningar við leikara og annað starfsfólk og launakostnaður hækkaði töluvert. Leikfélag Reykjavíkur hefur þurft að elta öll launakjör Þjóðleikhússins til að vera samkeppnishæft á leikhús- markaðinum. Þessi hallarekstur er að mestu leyti kom- inn til vegna þessa launaskriðs. Það er ekki gott að þurfa að segja það en þannig er það samt. Þetta er mannleg vinna og ef fólk fær greitt vel fyrir sína vinnu þá skilar það góðu verki svo það er ekki alveg sanngjarnt að skil- greina þetta sem vanda félagsins." í fótspor Bryndísar, Ástu og Kela - Helgina 5.-6. október birtist Jóhann landsmönnum í splunkunýju hlutverki en hann og Þóra Sigurðardóttir hafa verið ráðin til að annast Stundina okkar í Ríkis- sjónvarpinu og vera auk þess kynnar með bamaefni sem sýnt er á morgnana um helgar. Með þessu fetar Jóhann í fótspor Rannveigar og Krumma, Bryndisar Schram, Þórðar húsvarðar, Halla og Ladda, Gunna og Felix og Ástu og Kela og eru þá ekki taldir allir þeir sem unnið hafa hug og hjörtu ungra fs- lendinga gegnum áratugina. Sjálfur segist Jóhann vera alinn upp við Bryndísi Schram sem umsjónarmann og hún hlýtur því að vera hans stóra fyrirmynd á skjánum. Þau Jóhann og Þóra hafa farið þá leið að tvær persón- ur, Birta og Bárður, sjá um Stundina okkar. Birta er vénjuleg íslensk stelpa en Bárður er ofurhetja utan úr geimnum, alinn upp á plánetunni Súper. Þótt hann sé gæddur ýmsum ofurhetjueiginleikum, geti t.d. reimað skóna sína leifturhratt þá kemur það í hlut Birtu að kenna honum á mannleg samskipti og fræða hann um ís- land. „Þetta er frábærlega skemmtilegt verkefni en þetta er líka mikil ábyrgð og ég neita því ekki að fyrsta daginn sem upptökur fóru fram var ég í nettu kvíðakasti en það lagaðist fljótlega," segir Jóhann að lokum. -PÁÁ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.