Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2002, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2002, Blaðsíða 18
s /7 elQ a rb la c) X>V LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 2002 Eg er öldróttur „Ég hef alltaf verið álitinn skrýtinn og heimurinn leyfir mér það. Stundum hugsa ég til fólksins sem situr innilokað á geðdeild og heldur að það sé Napóleon eða einhver álíka. Er þetta ímyndun eða sér það meira en við hin?“ segir Hermundur og spyr mig í leiðinni. Það er erfitt að vera ósammála því að veruleikinn sé meiri og stærri en einungis það sem augað nemur. Hermundur Rósinkranz, sem er ekki skyldur Páli Rósinkranz söngvara, trúir þessu og trúin er forsenda þess sem hann er. Hann er spá- maður. Fékk spádómshæfileika í vöggugjöf Spádómar Hermundar byggja á hinni fornu talna- speki. Þetta er ein elsta spádómslistin en hinn gríski heimspekingur og stærðfræðingur Pýþagóras var fyrsti Vesturlandabúinn til að nota hana og er gjaman talinn faðir talnaspekinnar. „Lífiö er hring- ur og talnaspekin byggist á því að reikna út hring- inn. Ef ég þekki fæðingardag og nafn viðkomandi get ég sagt fyrir um fortíð og framtiö viðkomandi. Ef fornleifafræðingur kæmi til mín og benti mér á einhvern stað og segði að þarna lægi Egill Skalla- grímsson þá gæti ég sagt honum ýmislegt um Egil, jafnvel að hann hefði verið sjúkur á geði. Allt í um- hverfi okkar er hægt að lesa með aðferðum talna- spekinnar." Hermundur segir ekki nóg að vita eingöngu þess- ar tölur. „Það er ekki þannig að ef tvær stúlkur fæð- ast sama daginn og heita sömu nöfnunum að þær verði eins. Það eru aðrir þættir sem eru að verki sem eru tilfinningalegs eðlis. Það sem skiptir mestu máli er nærvera fólks og þegar ég rissa upp kort fyr- ir manneskju þá skynja ég nærveru hennar og reyni að lesa úr henni. Tölurnar sem slíkar segja ekki neitt nema að ég túlki þær og það geri ég með því að lesa einstaklinginn." „Að hve miklu leyti er þetta lært?“ spyr ég. „Talnaspekin er lærð. Ég þarf að læra hvað hver tala þýðir og það reyndist mér mjög auðvelt að ná tökum á þessari speki. Það var Guðbjörg Hermanns- dóttir sem kenndi mér þetta. Ég var þrjátíu og tveggja ára gamall og ég fór til hennar í lestur. Hún gerir kort og ég virtist einhverra hluta vegna þekkja þetta og átti mjög auðvelt með að lesa úr kortinu. Henni fannst það merkilegt hvað þetta reyndist mér auðvelt og spurði mig hvort ég vildi ekki koma og læra þetta. Ég þáði það og fór á nám- skeið hjá henni. Ég varð strax mjög flinkur og lík- lega hef ég einhvern tímann fengist við þetta áður. Sumir koma með hæfileika inn í þetta líf. Beet- hoven var orðinn píanósnillingur innan við tíu ára aldur. Spádómsgáfan var mín vöggugjöf, þ.e. að geta túlkað rétt úr tölunum. Það tók mig bara langan tima að átta mig á því að lesa úr öllum þeim tilfinn- ingum sem ég upplifði. Ég áttaði mig ekki á því fyrr en ég var orðinn fullorðinn að ég fékk hellu fyrir eyrun þegar jarðskjálfti var i aðsigi." „Hvað sérðu gerast í framtíðinni?" spyr ég. „Tuttugasta og fyrsta öldin verður vatnsrík öld. Talan tveir tengist vatni og samkvæmt kínverskri speki erum við að ganga inn í öld vatnsberans. Árið í ár, þ.e. 2002, hefur summuna fjóra og sú tala teng- ist jörðinni. Ég hef það á tilfinningunni að ég geti tengt þetta við umbrot, eldgos undir vatni, hvort sem það er undir jökli, í stöðuvatni eða í sjó. Við höfum nú þegar séð flóð og jarðskjálfta á stöðum þar sem þau eru ekki venjulega. Það tóku þýskir sjónvarpsmenn viðtal við mig um daginn og ég spáði því að það yrðu flóð þar sem síðan urðu að veruleika fyrir stuttu. Það hafa orðið jarðskjálftar á stöðum þar sem þeir eru ekki venjulega, t.d. í Wales. Árið 2003 tengist loftinu og vandamálin liggja í loftinu. Það gæti hugsanlega tengst aukinni loft- mengun, t.d. vegna eldgosa eða óhappa í kjamorku- verum. Þetta ár gæti líka orðið ár sjúkdóma sem berast með lófti og mikilla storma á stöðum þar sem þeir eru ekki algengir." „Er heimurinn að farast?" spyr ég. „Það eina sem ég vil segja er að ef Bush fer í stríð þá erum við í djúpum skít. Þá munu kraftar losna sem við gerum okkur engan veginn grein fyrir. Ég hef mjög slæma tilfinningu fyrir þessum manni. Þegar hann var kosinn vissi ég að kosningamar myndu vekja mikla athygli og það gat ég lesið úr sjálfum kosningadeginum. Hvorki Bush né Gore áttu að verða forsetar en við hlustuðum ekki á það sem umhverfið var að segja okkur. Indíánar hlust- uðu alltaf á náttúruna. Þeir virtu það ef tréð gaf þeim ekki epli og leituðu annarra leiða til að afla sér matar. í dag notum við tæki og tól til að ná okk- ar vilja fram og berum engar tilfinningar í garð náttúrunnar. Ef þú stingur niður skóflu og jöröin gefur ekki eftir þá áttu ekki að byggja hús á þeim stað. Við eigum að hlusta og það þarf engan spá- mann til þess. Við getum öll gert það.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.