Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2003, Side 20

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2003, Side 20
20 LAUOARDAGUR 20. DESEMBER 2003 Fókus W Ægir Einarov Sverrisson er barnabarn Sverris Kristjánssonar sagnfræðings. Hann er íslenskur í fóðurætt og hefur lagt stund á nám í íslensku um árabil. Ægir útskrifaðist í íslensku frá búlgörskum háskóla á dögunum og segir taugina vera sterka. Fyrir nokkrum dögum lauk ungur maður, Ægir Einarov Sverr- isson, meistaraprófi í íslensku við háskólann í Sophiu í Búlgaríu. Það er eini háskólinn á Balkanskaga þar sem sem kennd eru norræn mál en Ægir - sem er íslendingur að hálfu - hefur numið íslensku um langt árabil. Fyrst við Háskóla Islands en síðari árin ytra, þar sem hann hefur haft þýsku sem auka- grein. Árangurinn var prýðisgóður; meðaleinkunn hans var 5,88, á meðan 6,0 er hæsta möguleg. Þetta var útkoma úr munnlegum og bók- legum prófum. Afkomandi goðsagnar Á árunum eftir 1960 fór nokkur hópur ungra íslenskra manna til náms í Austur-Þýskalandi. Þeirra á meðal var Einar Sverrisson, sem las sagn- og fornleifafræði. Hann átti raunar ekki langt að sækja áhuga á þeim fræðum. Faðir hans var Sverrir Kristjánsson sagnfræðingur, sem sakir einstakrar frásagnargáfu og frábærra taka á íslensku máli er hann orðinn goðsögn. Fljótlega eftir að Einar Sverrisson fór utan kynntist hann rúmenskri konu og íluttust þau til heimalands hennar. Þau komu hingað heim til Islands með son sinn nokkurra mánaða gamlan árið 1966. Fjöl- skyldan hélt svo aftur utan en Einar lést f bflslysi fáum árum síðar, þegar sonur hans var aðeins þriggja ára. Eftir það höfðu ættingjar hans hér fslendingur í útlöndum Á góðri stundu ásamt konu sinni.Ægir Einarov hefur nú lok- ið meistaraprófi I islensku við háskóiann I Sophiu i Búlariu - og hyggur núá doktors- nám. Þá hefur hann lögfræðipróf upp á vas- ann, þannig að Ijóst má vera að hér fer eng- inn meðalmaður. Með konu og dóttur „Hérytra segir fólk að ég sé Islendingur, en heima á Islandi talar fólk um mig sem Búlgara. Ég skal ekki dæma um hvort heldur er," segir Ægir Einarov hér i vidtalinu. • ' V . W Endur fyrir löngu Ægir Einarov ihöndum föðursystur sinnar, GuðrúnarSverrisdóttur og afa sins, Sverris Kristjánssonar sagnfræðings. Hér erÆgir aðeins kornabarn, en hann er fæddur heima næsta takmarkað samband við Ægi Einarov, frænda sinn. Enda var það torvelt sakir þess hve Búlgaría er lokað land, einsog önnur austan járntjaldsins. íslenska taugin er sterk Ægir Einarov kom hingað til lands árið 1988, það er eftir að hann hafði sinnt herþjónustu ytra. Hér á landi dvaldist hann næstu fimm árin vestur á Seltjarnarnesi, á heimili föðursystur sinnar, Guðrúnar Sverr- isdóttur hjúkrunarfræðings og eig- inmanns hennar, Guðmundar heit- ins Jónssonar yfirlæknis. Stundaði Ægir Einarov nám í íslensku fyrir út- lendinga við Háskóla fslands, og starfaði jafnhliða meðal annars hjá ferðaskrifstofunni Ferðavali, sem sérhæfði sig í Búlagaríuferðum. Árið 1993 hélt hann aftur utan - og hefur síðan numið lögfræði f Búlgaríu og einnig íslensk fræði. „Hin íslenska taug í mér er býsna sterk. Hér ytra segir fólk að ég sé ís- lendingur, en heima á íslandi talar áriö 1966 fólk um mig sem Búlgara. Ég skal ekki dæma um hvort heldur er,“ seg- ir Ægir Einarov í samtali við DV. Hann hefúr bæði íslenskt rflcisfang og ríkisborgararétt. í Búlgaríu hefur hann verið mörgum íslendingum innanhandar, bæði sem túlkur og leiðsögumaður. I því sambandi má nefnda Björgólf Guðmundsson sem á síðari árum hefur látið að sér kveða í viðskiptalífi þar, rétt einsog hér heima. Rannsakar þolmyndir sagna Ægir Einarov hefur vegna ís- lenskunáms síns komið nokkrum sinnum hingað heim til rannsókna og heimildaöflunar. Síðast var hann á ferðinni 1998. Hann býst við að ferðir sínar verði fleiri á komandi tíð, enda ætlar hann að halda áfram námi í íslenskum fræðum. Nú er stefnan sett á doktorsgráðu - þar sem þolmyndir sagnorða er rann- sóknarefnið. „Ég er rétt að komast af stað með ritgerðina, er nýbúinn að fá hugmyndina í höfuðið. Mig langar til að sérhæfa mig í þessum fræðum, en einnig bæta við mig ís- lenskri gráðu í lögfræðinni. Þannig væri ég vel staddur," sagði Ægir Einarov. sigbogi@dv.is ★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ Tilboð 1. Rafmagnsgítartilboð Rafmagnsgítar, magnari, ól og snúra. Tilboðsverð 27.900,- stgr. ★★★★★★★ Opið alla daga til jóla til kl. 22 Gftarínn ehf. Stórhöfða 27 sími 552-2125 og 895 9376 www.gitarinn.is • gitarinn@gitarinn.is Tilboð 2. Kassagítar. Tilboðsverð 15.900 i“ stgr. ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★★★

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.