Dagblaðið - 11.05.1979, Blaðsíða 3

Dagblaðið - 11.05.1979, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 11. MAt 1979. ■N ú Frá Keflavikurflugvelli. DB-mynd Hörður. HVAÐ LIÐUR STOFNUN SKRIFSTOFU VARNARMÁLADEILDAR Á VELLINUM? Heiðar Georgsson, starfsmaður á Keflavíkurflugvelli, hringdi: í kringum stjórnarskiptin var talað um að setja á laggirnar skrifstofu varnarmáladeildar utanríkisráðu- neytisins á Keflavíkurflugvelli. Enn hefur ekkert bólað á þeirri skrifstofu og því langar mig að beina þeirri spumingu til viðkomandi yfirvalda hvað þessari fyrirætlun líði. Þessari skrifstofu var ætlaðað fara með öll ágreiningsmál íslenzkra starfsmanna á Vellinum. Starfsmenn þar eru orðnir leiðir á að leita stöðugt með öll meiri háttar mál til ráðuneyt- isins í Reykjavík enda eru menn þar, sem fjalla eiga um málin, yfirleitt svo uppteknir að þeir hafa ekki tíma til að sinna þessum málum. Það vaknar því óhjákvæmilega hjá manni sú spuming hvort embættis- mennirnir, sem um þetta fjalla, hafi nógu gott samband við ráðherra. Þá vil ég einnig varpa fram þeirri spurn- ingu hvort þeir embættismenn sem um þetta hafa fjallað áratugum saman séu ekki óhæfir til þess vegna ‘kunningsskapar síns og vináttu við Bandarí kj amennina. Mig langar einnig að biðja um skýra túlkun á því sem utanríkisráð- herra samdi um 1974 — um að ís- lenzkir starfsmenn taki i auknum mæli við störfum af hermönnum á Keflavikurflugvelli. Þá þykir mér spuming hvort for- svaranlegt sé að herinn gefi út öku- skírteini bæði til þeirra sem hafa próf fyrir og eins þeirra sém aldrei hafa tekið ökupróf. Ég á við að herinn gefur út ökuréttindi á stóra vörubíla, stór tæki og strætisvagna, bæði inn- an vallar og utan — þar með um allt land. Þetta gerist jafnvel án þess að framvísað sé bandarískum ökuskír- teinum eins og þó er kveðið á um í 3. grein B-liðar viðauka varnarsamn- ingsins. Spákonan spáði engu — heldur spurði mig spjörunum úr .Rósa Ólafsdóttir hringdi: Fyrir stuttu fór ég til spákonu og fór eftir auglýsingu í einu dagblað- anna. Mér ofbauð svo vinnumáti þessarar konu að ég get ekki orða bundizt. Maður fer jú til spákonu til þess að láta spá fyrir sér, en hún gerði litið annað en spyrja mig. Það fyrsta sem ég kom auga á var fjöldi stjömu- merkjabóka. Hún spurði mig síðan hvenær ég væri fædd og fletti siðan upp í stjörnumerkjabók og las upp úr henni fyrir mig. Þegar mér varð það Ijóst að ég fengi ekkert af viti út úr þessari heimsókn stóð ég upp og gekk út. Mér var alveg nóg boðið. Fyrir „spádóminn”, sem tekur um 20 min- útur, tekur hún 2500 krónur. Þarna biðu nokkrar unglingsstúlkur og ég skil vel að þeim þyki spennandi að fara til spákonu. En að plokka pen- inga af þessum greyjum fyrir ekki neitt finnst mér alveg ótækt. Raddir lesenda Spurning dagsins Hvað finnst þér um farmannadeiluna? Sigríður Sigurjónsdótlir nemi: Ég hef ekki fylgzt mikið með henni. Mér finnst þó kröfur sjómannanna ekki of miklar. Guðmundur Ingi Guðmundsson húsa- smiður: Ætli farmenn verði ekki að fá bætt kjör eins og aðrir þegnar í kerfinu í dag. Það er vinsælt að fara til spákonu og spennandi að fá eitthvað að vita um ókomna framtíð. ★ ★ ★ ★ ★ SÚPER-HLUTAVELTA VERÐUR HALDIN í IÐNAÐARMANNAHÚSINU SUNNUDAGINN 13. MAÍ NK. KL. 2 E.H. SKÓLALÚÐRASVEIT ÁRBÆJAR OG BREIÐ- HOLTS LEIKUR. Meðal vinninga eru utanlandsferðir með Samvinnu- ferðum. Yfir 10.000 vinningar. Engin núll. Gamla krónan ífullu verðgildi. Verðgildi allra vinninga yfir kostnaðarverði. Allur ágóði til líknar- ogstyrktarmála. Kiwanisklúbburinn ELLIÐI Maria Emilsdóttir húsmóðir: Ég hef ekkert hugsað um hana. Ég er uppalin í syeit og þekki lítið til sjómanna. ellilifeyrisþegi: Farmenn sýna of mikla óbilgirni eins og ástandið er i þjóðfélaginu i dag. Heimilis læknir Raddir lesenda taka við skilaboðum til umsjónar- manns þáttarins „Heimil- islœknir svarar" 1 slma 27022, kl. 13-15 alla virka daga. Það er hjá Skeifunni sem ÞAÐ SKEÐUR að bíllinn selst sé hann á staðnum. BÍLASALAN SKEIFAN Skeifunni 11 — Símar 84848 og 35035. Ester Sigurbjörnsdóttir húsmóðir: Ég get lítið sagt um hana. Ég hef ekki myndað mér skoðun á málinu. Ingi Adólfsson heildsali: Farmenn eiga rétt á kauphækkun eins og allir aðrir þjóðfélagsþegnar.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.