Dagblaðið - 11.05.1979, Blaðsíða 28

Dagblaðið - 11.05.1979, Blaðsíða 28
Númer klippt, af bflum íKópavogi Númer voru klippt af nokkrum bílum í Kópavogi í gær vegna þess að þeir höfðu ekki verið færðir til skoðunar sem löngu er auglýst. Þessum að- gerðum verður nú fram haldið samkvæmt skipun yfirvalda. „Þetta er andstyggðar verkefni,” sagði lögreglumaður í morgun, ,,en gera verður fleira en gott þykir.” Mikil brögð eru að því í Kópavogi að bilar hafi ekki verið færðir til skoðunar á til- skyldum degi. - ASt. Bflakaup ráðherra: Tómasi gert að senda full trúa á þing- nefndarfund „Þetta er eins og bílasýning,” sagði Ólafur Ragnar Grímsson alþingis- maður (AB) í morgun um bílakaup ráð- herra. „Þetta er slæmur mórall, meðan verið er að herða að öðrum,” sagði hann. Fjárhags- og viðskiptanefnd efri deildar samþykkti einróma í gær að krefjast þess af fjármálaráðuneytinu, að fulltrúi þess mætti á fundi nefndar- innar næsta þriðjudag og gerði grein fyrir „innanhússreglum”, sem giltu um fríðindi ráðherra við bílakaup. Enn- fremur yrði skýrt frá, hvaða ráðherrar hefðu nýtt þessi friðindi og hvernig. Frumvarp um reglur um bílakaup ráðherra situr fast í nefndinni á meðan. - HH ' ....... . Fiskiðnaðarfólk við Eyjaf jörð: ÞRIGGJA MANAÐA HELGARVINNUBANN ÁKVEÐIÐ í SUMAR — Neyðir okkur ef til vill til að leggja einhverjum skipum, segir framkvæmdastjóri ÚA „Það er nú einu sinni svo að þótt fólki sé ekki skylt að vinna yfir- og helgidagavinnu, ber það þann hug til fyrirtækja sinna að það gerir það nær undantekningarlaust, ef þess er óskað,” sagði Sævar Frímannsson, starfsmaður verkalýðsfélagsins Ein- ingar við Eyjafjörð í viðtali við DB í gær. Félagið gekkst fyrir víðtækri skoð- anakönnun meðal starfsfólks í fisk- iðnaði nýverið, um helgarvinnubann í þrjá mánuði i sumar, og voru 92% spurðra fylgjandi því. Var bannið ákveðið á grundvelli þess. í öðrum greinum, svo sem bygg- ingariðnaði, er hins vegar annað uppi á teningnum, eins og félagið bjóst við, því þá er sumartíminn aðal „ver- tíðin”. í fyrrasumar var sett á helgar- vinnubann í fiskiðnaði við Eyjafjörð um tíma, en veittar nokkrar undan- þágur þegar þannig stóð á og fólk vildi vinna. „Þetta snertir okkur illa og dregur úr afkastagetu fiskiðjuvers okkar um 1/6 þar sem unnið hefur verið nær alla laugardaga sem af eru árinu. í ljósi þessa er okkur nauðugur einn kostur, að draga úr sókn skipa okkar eða jafnvel láta þau sigla út með afl- ann, sem við teljum óheppilegt,” sagði Gísli Konráðsson, fram- kvæmdastjóri Útgerðarfélags Akur- eyringa hf., er DB innti hann álits á banninu. Þótt eitthvað yrði dregið úr þorsk- sókn í sumar yrði skipunum beint í aðra stofna svo aflamagnið þyrfti ekki að minnka miðað við sl. sumar. Þá efaðist hann um að t.d. skólafólk, sem gjarnan sækir í uppgripavinnu hjá ÚA á sumrin sér til framfæris yfir veturinn, yrði hrifið af þessu. Er Gísli var spurður hvort vinnu- t’uninn á virkum dögum yrði ef til vill lengdur til að mæta þessu, taldi hann ólíklegt að til þess væri gripið þar sem það reyndist ekki heppilegur vinnutími frá beggja sjónarhóli. - GS KRA TAR KLOFNIRILAUNAMALUNUM Skoðanir eru ákaflega skiptar hjá alþýðuflokksmönnum um, hvað gera eigi í launamálunum. Þar hafa komið fram hvers konar róttækar skoðanir, allt frá því að frysta allt kaup út í að láta aðila vinnumarkaðarins eina um þetta. Nefnd hefur verið skipuð, sem á að ganga frá stefnu flokksins um helgina. Alþýðuflokksmenn ræddu málin í gær, eftir að fyrir lá ályktun Verka- mannasambandsins, þar sem krafizt var „hörku” af rikisstjórninni. Líta þeirsvoá, að Verkamannasambands- menn vilji fyrst og fremst fá þak á launahækkanir til að halda hálauna- mönnum niðri. Rikisstjórnin ræddi í gær tillögur Alþýðubandalagsmanna og Fram- sóknar, sem DB hefur skýrt frá. Varð ekkert samkomulag, og verður málið tekið fyrir á stjórnarfundi á mánu- dag. - HH Byggingastofnun landbúnaðarins ífyrirvaralausu skyndiverkfalli: Getur tafið alvarlega segir byggingaf ulltrúi Suðurlands I.Þessi ákvörðun Byggingastofnunar landbúnaðarins, sem ég ekki skil og var tekin án vitneskju Stofnlána- deildar landbúnaðarins, kann að tefja verulega fyrir byggingafram- kvæmdum þeirra bænda, er hugöust ráðast í slikt að slætti loknum og ekki hafa nú þegar útvegað sér teikning- ar,” sagði Marteinn Björnsson, byggingafulltrúi landbúnaðarins á Suðurlandi, í viðtali við DB í morg- un. Marteinn fékk fyrir nokkrum dögum bréf frá stofnuninni, þess efnis að engar teikningar yrðu af- greiddar í mai og júní, sem sagt fyrir- varalaust. Telur Marteinn að opinber stofnun gæti ekki leyft sér slíkt og hyggst hann eftir beztu getu leysa vanda bænda þrátt fyrir þetta „skyndiverkfall” eins og hann túlkar aögerð stofnunarinnar. Helzt grunaði Martein að þetta stæði í samhengi við ný byggingalög, sem nú er verið að vinna reglugerðir við, en þrátt fyrir þaö taldi hann það ekki nægilega ástæðu til að tefja svo fyrir framkvæmdum manna. -GS Srjálst, úháð dagblað FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 1979. ErSveinn að hætta? „Það kem- uríljós” „Það kemur allt í ljós,” sagði Sveinn Einarsson þjóðleikhússtjóri þegar DB spurði hvort hann hygðist láta af störfum á næstunni. Sveinn hafði það á orði að hætta áður en hann hélt til Bandaríkjanna í vor og er nú fullyrt við DB að hann ætli að gera alvöru úr bvi. „Ég tel að menn eigi ekki að sitja of lengi í svona embættum. Ég vil að minnsta kosti ekki sitja of lengi,” sagði Sveinn í viðtali við DB. Hann var þá spurður um mál leikar- anna tveggja, Randvers Þorlákssonar og Bjarna Steingrímssonar, sem sagt var upp B-samningi en uppsögnin olli miklum deilum í leikhúsinu: „Þetta gengur allt sinn gang. Málið er komið í hendur á lögfræðingum. En það hvort ég hætti er ekkert tengt þessu máli,” sagði Sveinn. - DS Alvörubelja eða ekkert! Kynbótakálfurinn Jörundur i Hrísey, sem við sögðum frá á dögunum og vegur á sjötta hundrað kiló, er ekki einasta fastur fyrir hvað varðar líkam- lega burði. Jörundur fæst ekki með nokkru móti til að leggja sitt af mörkum til fjölgunar nautgripum landsins nema hann fái sprelllifandi belju til móts við sig. Á dögunum bauðst Jörundi gervi- kú sem hann harðneitaði að leggja lag sitt við — og við það sat þegar síðast fréttist. -ÓV Frændi Jörundar I Hrisey — þessi er sagður gera talsvert minni kröfur en Jörundur.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.