Dagblaðið - 11.05.1979, Blaðsíða 27

Dagblaðið - 11.05.1979, Blaðsíða 27
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 11. MAt 1979. Utvarp 31 Sjónvarp ÓHÆFUR VITNISBURÐUR—sjónvarp föstudag 11. maí: Ekki upplífgandi mynd RÐUVERK HEIMSINS VIÐ NÍL— útvarp kl. 21.20: „Myndin er byggð á leikriti eftir John Osbome og það er dálítið erfitt að átta sig á hvað verið er að fara í henni eins og oft er í leikritum eftir Osborne og Pinter til dæmis,” sagði Heba Júlíusdóttir, þýðandi myndarinnar Óhæfur vitnisburður. „Myndin hefst á því að verið er að fara með lögfræðinginn Bill Maitland í fangelsi. Hann er síðan leiddur fyrir rétt og þegar komið er að því að taka eið af honum óskar hann eftir að gefa yfirlýsingu i stað eiðsins. Síðan er sýnt úr einkalífi hans og það er eins og verið sé að lýsa ævi hans sem einhvers konar réttlætingu,” sagði Heba. Maitland á við margvísleg vandamál að stríða, á erfitt með að taka ákvarðanir, drekkur óhóflega og er óþolandi fjölskyldu- faðir. Að sögn Hebu getur myndin vart talizt upplífgandi. -GAJ- Úr myndinni Ohæfur vitnisburður. Pýramídunum fylgdi blessun —fyrir land og lýð „Það eru furðuverk heimsins við Níl sem ég fjalla um í þessu erindi, en það eru pýramidarnir miklu. Ég byrja á því að tala um töluna sjö sem hefur verið heilög tala í mörgum þjóð- og trúar- félögum. Þar má nefna hin sjö furðu- verk heimsins en pýramídarnir voru eitt þessara furðuverka,” sagði Jón R. 'Hjálmarsson, fræðslustjóri. „Pýramídarnir voru byggðir á miðri 3. öld f. Kr. og til skamms tíma var fólk á því að Egyptarnir hafi ráðið yfir meiri verkmenningu en síðar þekktist. Núna eru fræðimenn hins vegar á þeirri skoðun að þetta hafi fyrst og fremst verið framkvæmanlegt vegna hins gífurlega mannafla sem faraóarnir höfðu yfir að ráða. Þegar flóðatím- l___________________________________ arnir stóðu yfir héldu faraóarnir at- vinnulífinu gangandi með ýmiss konar ríkisframkvæmdum og þar á meðal var 1bygging pýramídanna. Til eru ýmsar gamlar sagnir um' hvernig pýramídarnir hafi verið byggðir. Þannig er til grísk sögn um að það hafi tekið hundrað þúsund menn tuttugu ár að reisa stærsta pýramídann. En vafalaust er það orðum aukið. Pýramídarnir eru afskaplega vel byggðir. Steinarnir falla svo vel saman að ekki er nema millimetrabrot milli þeirra. Þeir eru byggðir ákaflega stærð- fræðilega nákvæmlega, og menn gizka á að Egyptar hafi notað rennibrautir við að reisa þá því að steinarnir eru frá 2 til 2,5 tonn á þyngd. Pýramidarnir voru grafhýsi faraós. Hann var álitinn máttugur bæði þessa heims og annars. Þessar byggingar voru táknrænar fyrir vald þeirra og alræði eftir dauðann. í tengslum við pýramídana voru hof eða musteri þar sem hinn látni faraó var dýrkaður, og’ því átti að fylgja blessun fyrir land og lýð. Þeim mun betur sem gert var við hinn látna þeim mun meiri blessun. öll furðuverkin fornu hafa nú verið þurrkuð út af yfirborði jarðar að pýramídunum einum undanskildum. Þeir halda sér furðu vel og láta lítið á sjá enda hefur verið mjög til þeirra vandað,” sagði Jón R. Hjálmarsson. -GAJ- ________________________________) r- - > gUtvarp Föstudagur 11. maí 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veöurfregnir. Tilkynningar. Vió vinnuna: Tónleikar. 14.30 Miódegissagan: „Þorp I dftgun” eftir Tsjá-sjú-II. Guðmundur Sæmundsson les þýðingu sina (4). 15.00 Miódegistónleikar. Adrian Ruiz lcikur Pianósvítu i d moll op. 91 eftir Joachim Raff. 15.40 Lesin dagskrá næstu viku. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. <16.15 Veðurfregn ir). 16.30 Popphorn: Dóra Jónsdóttir kynnir. J7.20 Litli barnatíminn. Sigriður Eyþórsdóttir sér um timann. Flutt verður leikritið „ösku buska” (af plötu). 17.40 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsíns. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar. 19.40 íslenzkur stjórnmálamaður I Kanada. Jón Ásgeirsson ritstjóri talar við Magnús Eliason i Lundar á Nýja-Islandi; — fyrri hluti samtals ins. 20.00 ttalskar óperuarlur. Nicolai Gedda syngur aríur eftir Verdi og Puccini. Covent Garden óperuhljómsveitin i Lundúnum lcikur; Giuscppe Patané stj. 20.30 Á maikvftidi: Eylifi. Ásta Ragnhciður Jóhannesdóttir stjórnar dagskrárþætti. 21.05 F.inleikur á planó: Alexis Weissenberg leikur Mikla fantasíu og pólskt lagop. 13 eftir Chopin; Stanislaw Skrowaczewski stjórnar hljómsveit Tónlistarháskólans í París, scm leikur einnig. 21.20 Furóuverk heimsins við Nll. Jón R. Hjálmarsson flytur erindi. 21.40 Kórsöngur í útvarpssah Sftngfélagið „Glgjan” á Akureyri syngur íslenzk og erlend lög. Einsöngvari; Gunnfrlður Hreiðarsdóttir. Söngstjóri: Jakob Tryggvason. Pianólcikari: Barbara Harrington. 22.05 Kvöldsagan: „Gróðavegurinn” eftir Sig- urð Róbertsson. Gunnar Valdimarsson les 110). 22.30 Veöurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgun dagsins. 22.50 Ðókmenntaþáttur. Umsjón: Anna ólafs- dóttir Bjömsson. Rætt um finnska skáldkonu, MörthuTikkanen. 23.05 Kvftldstund meðSveini Einarssyni. 23.50 Dagskrárlok. Sjónvarp D Föstudagur 11. maí 20.00 Fréttir ogveóur. 20.30 Auglýsingar og dagskrá. 20.40 Skonrok(k). Þorgeir Ástvaldsson kynnir ný dægurlög. 2I.00 Kastljós. Þáttur um innlend málefni. UmsjónarmaðurÓmar Ragnarsson. 22.10 Óhæfur vitnisburóur (Jnadmissible Evi dence). Brcsk bíómynd frá árinu 1968, byggðá leikriti eftir John Osborne. Aðalhlutverk Nicol Williamson. Lögfræðingurinn Bill Maitland á við margvisleg eigin vandamál að stríða: Hann á erfitt með að taka ákvarðanir, er gersamlega háður öðrum, drekkur óhóflep og er óþolandi fjölskyldufaðir. Þýöandi Heba Júlíusdóttir. 23.40 Dagskrárlok. Ítalskar óperuaríur — útvarpkl. 20.00: Gedda ásamt ftölsku óperusöngkonunni Mirella Freni. Fjölhæfur söngvari - Nicolai Gedda syngur aríur eftir Verdi og Puccini Nicolai Gedda er einn fremsti og virt- asti óperusöngvari heimsins. Hann er 54 ára gamall Svíi af rússneskum ættum. Faðir hans var einnig söngvari og söng með Don-kósakkakórnum. Gedda kom fyrst fram i Stokkhólms- óperunni árið 1952 í Póstmanninum frá Lonjumeau. Þar heyrði hinn þekkti hljómsveitarstjóri, Herbert von Karajan i honum og tók hann upp á sína arma. Síðan hefur sigurganga hans mátt heita óslitin og hann hefur komið fram víða um lönd og meðal annars söng hann hér á landi fyrir allmörgum V______________________________________ árum. Þá söng hann Rigoletto í Þjóð- leikhúsinu við mikla hrifningu áheyr- enda eins og að líkum lætur. Styrkleiki Gedda sem söngmanns felst ekki sízt í því hversu fjölhæfur hann er. Hæfni hans í raddbeitingu er slík að hann syngur jafnt léttar sem þungar óperur, allt frá Mozartóperum og óratoríusöng upp i Wagnersöng. Þá syngur hann gjarnan óperur eftir þá Verdi og Puccini og það eru einmitt aríur eftir þá sem hann syngur í útvarpinu í dag. -GAJ- Geymsluhúsnæði ca 130 ferm til leigu nálægt Hlemmi. Uppl. gefur Auglýsingaþjónusta Dag- blaðsins, sími 27022. (■■■ Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar y | p Vonarstraeti 4. — Sími 25500. Skrifstofuhúsnæði Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar aug- lýsir hér með eftir húsnæði til leigu fyrir hverfaskrifstofu í Austurbæ, þarf að vera stað- sett austan Kringlumýrarbrautar, helzt nálægt Grensásvegi. Möguleikar þurfa að vera á skiptingu í 5—6 herbergi, auk afgreiðslu og biðstofuaðstöðu, samtals að stærð u.þ.b. 120 ferm. Allar nánari ! upplýsingar gefur skrifstofustjóri Félagsmála- l stofnunar Reykjavíkurhorgar að Vonarstræti 4, sími 25500. /

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.