Dagblaðið - 11.05.1979, Blaðsíða 12

Dagblaðið - 11.05.1979, Blaðsíða 12
12 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 11. MAl 1979. | Kermit er 22ja ára: | Enginn færað snerta hann nema skapari hans Stórstjörnurnar slást um að koma fram í þáttunum SKYNDIMYNDIR Vandaðar litmyndir i öll skírteini. barna&fjölsk/ldu- Ijösmyndir AUSTURSTRÆTI 6 SIMI 12644 Á þessu ári er Kermit, sjónvarps- eða Prúðu leikarnir, eru sýndir um stjarnan heimsfræga, 22ja ára. Sjón- allan heim og sagt er að 250 milljónir varpsþættir hans, The Muppet Show manna setjist vikulega niður til þess Dúkkusmiðjan hjá Prúðuleikurunum er engin smasmiði. Fjöldinn allur af dúkkum af öllum gerðum er búinn þar til og nú er verið með fimmtu dúkkuna af Kermit sjálfum. að horfa á þessa skemmtiþætti. Hérlendis, eins og annars staðar, nýtur þátturinn gífurlegra vinsælda hjá ungum sem öldnum. Má mikið út af bera til að fólk láti þáttinn fara fram hjá sér og hversu strangir sem foreldrarnir ætla sér að vera með háttatímann hjá börnunum þýðir ekkert að reyna að troða smáfólkinu í rúmið fyrr en það hefur fengið að sjá Kermit, Svínku og félaga. Enginn hafði trú á fyrirtækinu Eins og svo oft vill verða er saga Prúðu leikaranna og skapara þeirra, Jim Hensons, ævintýri likust. Allt hófst þetta fyrir 25 árum er Jim Henson, sem þá var við nám, kom fram í sjónvarpsþætti í Washington með nokkrar heimagerðar dúkkur. Jim var þá 17 ára og tveimur árum siðar bjó hann til dúkkuna Kermit, frosk sem síðan hefur verið fastur fylgisveinn hans í skemmtiiðnaðin- um. Fleiri dúkkur urðu til og nokkrar þeirra koma að staðaldri fram í barnatímanum „Sesame Street”, fræðslu- og skemmtiþætti fyrir börn sem sýndur hefur verið í Bandaríkj- unum í mörgár. Er vinsældir dúkknanna hans Hen- Stærstur hluti skýringarinnar er að Henson og aðstoðarmenn hans hafa allir langa skólagöngu í leikbrúðuleik og leiklist að baki. Skemmtiþættir verða aldrei skemmtilegir nema unnið séað þeim i fullri alvöru. Þegar Henson stjórnar Kermit — enginn annar fær að koma við dúkk- una grænu — er hann með hægri höndina inni í dúkkunni. Með fingr- unum lætur hann dúkkuna setja upp hina mörgu og frægu svipi, nokkuð sem enginn annar fær að gera. Með vinstri hendi stjórnar hann svo handahreyfingum frosksins með tveimur sveigjanlegum pinnum. Auk þess að stjórna og tala fyrir Kermit sér Henson um hundinn Rowlf, sem spilar á píanó og syngur með, Mr Waldorf, kallinn til vinstri í stúkunni, hljómsveitarstjórann, hr. Tönn, og geimskipstjórann, Link Hogthrob. „Við erum núna með fimmtu Ker- mit-dúkkuna, hinar voru hreinlega orðnar of slitnar,” segir Henson. Það er hundurinn Rowlf, sem best hefur haldið sér, hann er uppruna- legur.” Dúkkurnar eru gerðar úr taui og plasti og eru misjafnlega stórar, allt frá nokkrum sentimetrum til þriggja, fjögurra metra. Aldursforsetinn, Kermit, er um hálfur metri á hæð og er til í tveimur útgáfum, með eða án jakka. Umfangsmikið verk Þrátt fyrir að Jim Henson eigi einn höfundarréttinn að dúkkunum er hann ekki ejnn að baki hverrar sýn- ingar. Prúðu leikarnir eru orðnir stórfyrirtæki. Fyrir utan Henson vinna sex aðrir að stjórn á dúkkum og tala fyrir þær. Fjórir aðrir vinna að handritagerð, þrír upptökustjórnendur, tveir leik- stjórar, tveir danskennarar og tónlist- arstjóri. Nýlega kom leikkonan Elke Sommer f heimsókn til Prúðuleikaranna og eins og alltaf, þegar konur koma í heimsókn, fylgdist Svínka vel með þvi að Kermit yrði ekki gefið undir fótinn. Henson með fylgisveininn Kermit. Hann stjórnar andlitshreyfingum með hægri hendi en hreyfingum handanna með þeirri vinstri og talar fyrir froskinn með sérstökum hljóðnema. Henson er Kermit „Satt að segja hef ég ekki áhuga á peningunum lengur,” segir Henson. „Ég hef meiri áhuga á að þættirnir séu vel gerðir og til þess er ekkert sparað.” Margir nafa undrazt hversu eðlileg- ar og ekta dúkkurnar virðast vera. sons jukust og verðlaunum rigndi yfir þau, lagði hann fram hugmyndir sínar um eigin skemmtiþátt. Sú hug- mynd hans átti þó ekki upp á pall- borðið hjá ameriskum sjónvarps- stöðvum. Enski skemmtiiðnaðarkóngurinn Sir Lew Grade var hins vegar ekki í neinum vafa: „Látið þá fá fullar hendur fjár og frjálsar að auki!” Þetta varð til þess að sjónvarpsþátt- urinn er búinn til í Englandi af Bandaríkjamönnum og seldur m.a. til Bandaríkjanna. Henson er fyrir löngu orðinn margfaldur milljóna- mæringur. KJOLAR Nýsending Elízubúðin Skipholti 5. Fmlux LITSJOIWARPSTÆKI 20" Kr. 425.000.- mefl 22" Kr. 499.000.- sjálfvirkum 26" Kr. 549.000.- stöflvarveljara SJONVARPSBÚÐIN BORGARTUNI 18 REYKJAVIK SIMI27099

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.